Morgunblaðið - 22.02.2018, Qupperneq 8

Morgunblaðið - 22.02.2018, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Fyrir nokkrum árum var brydd-að upp á því í umræðunni að harðar bannreglur varðandi eitur- lyf og barátta gegn þeim með at- beina lögreglu, dómstóla og fang- elsa hefði misheppnast.    Eina lausnin ogeina vitið væri að viðurkenna stað- reyndir, gefast upp og lögleyfa eiturlyf.    Á móti var á það bent að ákvarð-anir sem teknar væru í þá átt, án alþjóðlegs samstarfs í þá veru, myndu leiða til miklu verra ástands hér en það þó væri. Holland fór leiðina sem ýmsir mæltu með.    Páll Vilhjálmsson skrifar:    Glæpahópar stjórna hollenskusamfélagi í auknum mæli, seg- ir í skýrslu samtaka hollenskra lög- reglumanna. Frjálslynd löggjöf, sem leyfir hass og vændi, er orsök þess að Holland er miðstöð eitur- lyfjasmygls í Evrópu og mansals.    Hollenska lögreglan ræður ekkivið glæpahópana sem nota illa fengið fé til að koma sér fyrir á ólíkum sviðum samfélagsins, s.s. í heilsugæslu, ferðaþjónustu og á fasteignamarkaði.    Glæpahóparnir herja m.a. á aldr-aða og aðra sem standa höllum fæti. Aðeins um fimmtungur af- brota er kærður til lögreglunnar.    Í skýrslunni kemur fram að auð-velt sé að kaupa leigumorðingja fyrir 400 þús. ísl. kr. en slík við- skipti voru óþekkt til skamms tíma.“ Páll Vilhjálmsson Vatnselgur jókst í því blauta Hollandi STAKSTEINAR Veður víða um heim 21.2., kl. 18.00 Reykjavík 3 alskýjað Bolungarvík 5 skýjað Akureyri 6 alskýjað Nuuk -17 léttskýjað Þórshöfn 6 skýjað Ósló -2 alskýjað Kaupmannahöfn 1 snjókoma Stokkhólmur -5 snjókoma Helsinki -11 léttskýjað Lúxemborg 3 heiðskírt Brussel 4 þoka Dublin 7 léttskýjað Glasgow 6 léttskýjað London 5 þoka París 4 þoka Amsterdam 3 heiðskírt Hamborg 2 heiðskírt Berlín 2 skýjað Vín 0 snjókoma Moskva -11 heiðskírt Algarve 16 heiðskírt Madríd 9 léttskýjað Barcelona 13 léttskýjað Mallorca 9 skýjað Róm 10 skúrir Aþena 13 rigning Winnipeg -18 heiðskírt Montreal 11 rigning New York 19 léttskýjað Chicago -1 alskýjað Orlando 27 skýjað Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 22. febrúar Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 8:59 18:24 ÍSAFJÖRÐUR 9:12 18:21 SIGLUFJÖRÐUR 8:55 18:04 DJÚPIVOGUR 8:31 17:52 Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is Hin árlega íslenska bjórhátíð verður sett í sjöunda sinn á Kex Hostel síð- degis í dag. Hátíðin stendur í þrjá daga og munu 5-600 manns fagna 29 ára afmæli þess að bjórbanninu var aflétt hér á landi. Hátíðarhöldin verða vegleg því um 50 brugghús kynna sína bestu bjóra. Þau hafa aldrei verið fleiri og sérstaka athygli vekur að íslenskum brugghúsum hefur fjölgað umtalsvert. „Fyrstu 2-3 árin vorum við bara með íslensk brugghús á hátíðinni en svo bættust Mikkeller og To Øl í hópinn. Síðan hefur þetta gerst mjög hratt og síðustu tvö árin höfum við stækkað mikið. Þetta var hobbíhátíð en nú tala margir erlendu gestanna um að þetta sé besta „lænöppið“ í Evrópu þetta árið,“ segir Hinrik Carl Ellertsson, einn skipuleggj- enda hátíðarinnar. Fyrirkomulag hátíðarinnar er þannig að hverju brugghúsi er boðið að koma með sex bjóra á hátíðina. Tveir eru kynntir á dag, en sum minni íslensku brugghúsin láta sér einn duga. Alls stendur hátíðar- gestum til boða að smakka hátt í 300 bjóra sé sá gállinn á þeim. Og þessir bjórar þykja ekkert slor. „Menn eru ekkert að mæta með standard-bjórana sína. Hingað koma með menn með sína bestu bjóra enda er þetta að einhverju leyti til sölusýning. Mikkel í Mikkeller kem- ur sjálfur en hann er stærsti dreif- ingaraðili bjórs í Evrópu. Svo er von á eiganda brugghússins Cloudwater en það er annað besta brugghús heims samkvæmt nýjum lista Rate- beer. Reyndar sýnir það vel hversu sterk hátíðin er að hingað koma fimm af tíu bestu brugghúsum heims á þeim lista og 15 af 100 bestu. Þetta er rjómi þess besta. Margir Ís- lendingar gera sér ekki grein fyrir því hvað þetta eru stór nöfn sem hingað koma,“ segir Hinrik. Morgunblaðið hefur fjallað um mikinn fjölda nýrra íslenskra brugg- húsa sem eru að opna eða munu opna innan tíðar. Eftir að tollar voru afnumdir af innflutningi brugggræja er mun auðveldara að hefja fram- leiðslu á bjór og mun framboð á ís- lenskum bjór að líkindum aukast hratt á næstunni. Gestir bjórhátíð- arinnar fá forskot á sæluna og geta kynnt sér bjóra frá Jóni ríka, Austra, Ölverk, Beljanda, Lady Bre- wery, ÖR Brewing Project, Æg- isgarði, Malbygg, Öldum og Mono svo einhverjir séu taldir. „Þetta er þvílíkt sprengja. Einu sinni þótti kúl að eiga sólbaðsstofu eða sjoppu. Nú eru það brugghúsin,“ segir Hinrik í léttum tón. Sjálfur er hann einn forsvarsmanna Kex Brewing sem hefur getið sér gott orð síðustu misseri. Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Bjórhátíð Hinrik Carl Ellertsson segir að The Annual Icelandic Beer Festi- val jafnist á við stórar bjórhátíðír úti í heimi. Hátíðin verður sett í dag. Geta smakkað 300 bjóra á hátíðinni Auglýsing eftir þátttakendum í rannsókn um áhrif núvitundar á hugræna næmisþætti í þróun og bakslag þunglyndis Markmið rannsóknarinnar er að kanna hugræna næmisþætti fyrir þróun og bakslag þunglyndis hjá einstaklingum með eða án sögu um þunglyndi. Jafnframt verður kannað hvort núvitundarmiðuð hugræn meðferð (Mindfulness Based Cognitive Therapy) dragi úr hugrænum næmisþáttum hjá fólki með fyrri sögu um þunglyndi. Hverjir geta tekið þátt?:  þeir sem eru á aldrinum 18 til 65 ára  þeir sem hafa annaðhvort aldrei upplifað þunglyndi eða telja sig hafa gengið í gegnum slíkt að minnsta kosti þrisvar (óþarfi að hafa staðfestingu á því frá fagfólki). Rannsóknin skiptist í þrjú stig og þátttaka er mismunandi eftir því hvort fólk hefur fyrri sögu um þunglyndi eða enga sögu. Þátttaka á fyrsta stigi felst í þremur heimsóknum til rannsakanda og fá þátttakendur greiddar 5000 kr. fyrir að ljúka því stigi. EF ÞÚ HEFUR MÖGULEGA ÁHUGA Á AÐ TAKA ÞÁTT Í ÞESSARI RANNSÓKN OG VILT NÁNARI UPPLÝSINGAR: Sendu tölvupóst á rannsokn@hi.is Þeir sem hafa samband eru með því aðeins að lýsa yfir áhuga sínum á því að fá frekari upplýsingar, ekki að skuldbinda sig til þátttöku. Matvælastofnun telur, á grundvelli ljósmynda og annarra þeirra gagna sem henni hafa borist, með- al annars lýsingum kafara, að litl- ar líkur séu á því að fiskur hafi sloppið úr sjókvíum fyrirtækisins í síðustu viku í kjölfar þess að tjón varð á tveimur kvíum fyrirtæk- isins. Önnur kvíin er í Arnarfirði en hin í Tálknafirði. Þá telur stofnunin að fyrirtækið hafi brugðist rétt við til að fyrir- byggja frekara tjón. Segir í til- kynningu frá MAST að farið verði í eftirlitsferð hjá Arnarlaxi við fyrsta tækifæri og að frekari út- tekt verði þá gerð á sjókvíum fyr- irtækisins og fyrrnefndum við- brögðum þess. Fiskistofu var einnig tilkynnt um tjón fyrirtækisins og gögn málsins hafa verið send þangað. Fiskistofa fer með mál er varða slysasleppingar. MAST telur litlar líkur á að fiskur hafi sloppið  Tvær kvíar Arnarlax skemmdust
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.