Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 12

Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Katrín Lilja Kolbeinsdóttir katrinlilja1988@gmail.com Árdís Ilmur Petty er 21árs Reykjavíkurmær semhafði lengi langað til þessað flytja til útlanda. Hún útskrifaðist frá Menntaskólanum við Sund árið 2016 og þaðan lá leið hennar til Bournemouth á Bret- landi þar sem hún leggur stund á viðburðastjórnun við Bournemouth University. Hún segir það hafa ver- ið góða ákvörðun og að námið eigi einstaklega vel við hana, það sé bæði krefjandi og skemmtilegt. „Ákvörðunin um að flytjast til útlanda hefur blundað í mér lengi, eiginlega alveg síðan mamma sagði mér fimm ára gamalli að við gæt- um ekki flutt til Portúgal en ég gæti alveg flutt til útlanda sjálf ein- hvern tímann seinna“ svarar Árdís, þegar hún er spurð hvers vegna hún hafi ákveðið að leggja land undir fót. „Þegar ég var um það bil að klára menntaskóla ákvað ég að það væri rétti tíminn til þess að láta þennan gamla draum rætast.“ Sjálfboðaliði Spurð hvort hún hafi starfað við viðburðastjórnun áður svarar Árdís neitandi. „Ekki beint en ég hef verið sjálfboðaliði á ýmsum við- burðum á Íslandi. Eftir að ég byrj- aði í náminu hérna úti hins vegar hefur skólinn verið duglegur að bjóða mér að vera sjálfboðaliði á hinum og þessum viðburðum sem ég hef verið að nýta mér“ Árdísi líkar námið í Bourne- mouth University mjög vel. „Ég er ótrúlega ánægð. Þetta er fjögurra ára nám og inni í því er eitt ár á vinnumarkaðnum. Í rauninni er þetta eitt fjölbreyttasta nám sem maður getur farið í, en í þessu námi lærir maður meðal annars hagfræði, hönnun, markaðsfræði, samskipti og allt um samfélags- miðla, og sögu.“ Árdís segir námið einnig mjög verklegt. „Manni er alveg kastað í djúpu laugina strax á fyrsta ári, maður fær mjög fljótt verkefni við að setja upp viðburð hjá fyrirtæki. Þriðja árið er svo þannig uppbyggt að maður fer að vinna hjá fyrirtæki í heilt ár til þess að safna í reynslu- bankann og læra hvernig það er að vera viðburðastjórnandi. Fjölmenningarborg Aðspurð segir Árdís að sér líki lífið á Bretlandi vel. „Ég er mjög ánægð hér. Það er mikil fjölmenn- ing í borginni og manni finnst mað- ur alltaf vera velkominn, allir eru mjög kurteisir og vinalegir. Bournemouth er mjög sunnarlega í Bretlandi, alveg við suðurströndina og þeir búa svo vel að hér er besta veðrið, sem er að sjálfsögðu stór plús!“ En hvernig skyldi hún sjá framtíðina fyrir sér að námi loknu? „Það er erfitt að segja. Ég vona að ég verði að vinna hjá skemmtilegu fyrirtæki sem býður upp á fjöl- breytilegan vinnudag. Draumurinn er svo að opna mína eigin viðburða- stofu í framtíðinni“ segir Árdís að lokum. Árdís Ilmur Petty er alsæl í námi sínu í viðburða- stjórnun í Bournemouth University á Bretlandi. Hún segir námið fjölbreytt og m.a. felast í hagfræði, hönnun, markaðsfræði, samskiptum og sögu sem og verklegum þáttum. Ljósmyndir/Guðmundur Hjaltason Við höfnina Árdís Ilmur í gönguferð við höfnina í Bournemouth Viðburður Árdís Ilmur í hátíð- armóttöku, sem haldin var fyrir erlenda nemendur skólans. Kastað í djúpu laugina strax á fyrsta ári Gospeltónlist frá ýmsum tímabilum mun hljóma í Lindakirkju í Kópavogi sunnudagskvöldið 25. febrúar Kór Lindakirkju þekkja margir úr keppninni Kórar Íslands en kórinn vakti athygli í keppninni, komst alla leið í úr- slit og endaði að lokum í öðru sæti. Óskar Einarsson er kórstjóri Kórs Lindakirkju, hann hefur verið ötull að kynna landsmönnum gospeltónlistina í gegnum tíðina. Hann tók við kórnum árið 2010 og innleiddi gospeltónlist í Lindakirkju. Auk þess að syngja flest sunnudags- kvöld í messum í Lindakirkju tekur kór- inn þátt í ýmsum viðburðum. Má þar nefna sýninguna Jesus Christ Superst- ar sem sýnd verður um páskana líkt og undanfarin ár í Hörpu. Áslaug Helga Hálfdánardóttir, sem syngur með Kór Lindakirkju segir að á tónleikunum á sunnudaginn verði flutt ný frumsamin lög eftir kórmeðlimi. „Við gáfum út disk árið 2014 með frumsömdu efni eftir kórfélaga og prestinn okkar Guðmund Karl Brynj- arsson. Við stefnum á að endurtaka leikinn í vor, segir Áslaug Helga sem lofar góðum tónleikum á sunnudag- inn. „Við syngjum gospeltónlist frá ýms- um tímabilum. Á tónleikunum munum við flytja eldri gospellög eins og til dæmis lög eftir Andraé Crouch og Kirk Franklin auk okkar frumsamda efnis,“ segir Áslaug Helga. Virkir kórfélagar í Kór Lindakirkju eru rúmlega 50 og mikil kraftur er í kórnum. Gospeltónleikarnir í Lindakirkju hefjast kl. 20.00. Allir eru hjartanlega velkomnir og aðgangur er ókeypis. Tónleikar í Lindakirkju í Kópavogi Kraftmikill Kór Lindakirkju er fjölmennur og syngur gospel af innlifun. Gospeltónlist frá ýmsum tímum Skeifunni 3h ll Sími: 588 5080 ll dynjandi.is Öryggis- og endurskinsfatnaður Dynjandi býður upp á hlífðar- og öryggisfatnað sem uppfyllir ströngustu kröfur. Hafðu samband. Við veitum þér faglega aðstoð. Dr. Robert Cost- anza, einn af þekktustu fræði- mönnum samtím- ans á sviði um- hverfismála, fjallar um hvernig beita má með- ferðarúrræðum sem gefist hafa einstaklingum vel til að þróa samfélög í átt til meiri sjálf- bærni og velferðar. Fundurinn, sem fer fram á ensku og er öllum opinn, er kl. 16 - 17.30 í dag, fimmtudaginn 22. febrúar á Háskólatorgi. Rétt eins og einstaklingar geta heil samfélög orðið fíkn að bráð, til dæmis fíkn í stöðugan hagvöxt. Með meðferð- arúrræðum á Costanza einkum við samtalsmeðferð sem snýst um já- kvæða hvatningu þar sem fíkillinn sér fyrir sér kosti þess að bæta hegðun sína í stað þess að horfa bara á skað- legar afleiðingar hennar. Á sama hátt er hægt að setja fram jákvæðar sviðs- myndir um þróun samfélaga í átt til sjálfbærni og aukinnar velferðar. Cost- anza mun meðal annars segja frá nýrri hreyfingu, Wellbeing Economy Alli- ance (WE-All), sem hefur sett þessi mál á oddinn en að henni koma rík- isstjórnir, samfélög, félagasamtök og fræðimenn víða um heim. Brynhildur Davíðsdóttir, prófessor í umhverfis- og auðlindafræði, stýrir fundinum og umræðum að loknum fyrirlestri. Að dagskrá lokinni verða léttar veit- ingar í Veröld – húsi Vigdísar. Opinn fundur á Háskólatorgi Er til meðferð við hag- vaxtarfíkn? Morgunblaðið/Hari Tákn Fjöldi byggingakrana þykir jafn- an tákn um aukinn hagvöxt. Dr. Robert Costanza
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.