Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 16
16 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Sundföt 2018 Bláu húsin v/Faxafen Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun • Næg bílastæði Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Ífimm ár hef ég notað frí-stundir mínar til þess að skráþað fólk sem var í Eyjum þegargaus þar aðfaranótt 23. janúar 1973 og með hvaða hætti það flúði til lands. Afraksturinn af þessu áhuga- máli eru 4.820 skráningar af þeim 4.966 einstaklingum sem skráðir voru í Eyjum í byrjun árs 1973, segir Ingi- bergur Óskarsson rafvirki sem hlaut fréttapýramída héraðsfréttablaðsins Eyjafrétta í Vestmannaeyjum 2018. Ingibergur hlaut pýramídann fyrir ómetanlegt starf við söfnun og skrán- ingu flóttamannanna frá Eyjum og sögur af flóttanum sem hann hefur safnað á vefsíðuna www.1973- alliribatana.com. „Sögurnar frá fólkinu eru hliðar- verkefni og bónus við það sem ég hef verið að safna. Ég er aðeins að byrja að safna saman blaðaumfjöllun um gosið, mest af timarit.is, og hef sett inn um- fjöllun sem tilheyrir janúar 1973. Hug- myndin á bak við það er að fólk eigi auðveldara með að finna gögn um gos- ið,“ segir Ingibergur. „Ég byrjaði á skráningunni vegna þess að ég hreifst af hugmynd sem Sagnheimar, byggðasafn Vestmanna- eyja, hrintu í framkvæmd. Hugmyndin var frábær og eitthvað sem nauðsyn- legt var að gera. Þremur árum eftir að verkefnið hófst hjá Sagnheimum árið 2010 var komin lægð í það og þá bauð ég fram aðstoð mína sem endaði með því að ég tók við verkefninu árið 2013,“ segir Ingibergur og bætir við að þetta sé eflaust sín leið til þess að gera upp líðanina í tengslum við eldgosið. Ingibergur segir að ekki hefði verið mögulegt að vinna að þessu verkefni fyrr en fyrir sjö til tíu árum. „Tæknin, vefurinn og fésbókin gerðu það að verkum að svo vel hefur tekist til við upplýsingaöflunina,“ seg- ir Ingibergur sem leggur áherslu á að sagan tapist eftir því sem fleiri eldist og deyi. Eftir lifi frásagnir annarrar eða þriðju kynslóðar sem eðli máls samkvæmt geta ekki túlkað upplif- unina á sama hátt og þeir sem upp- lifðu eldgosið sjálfir. Ingibergur segir að enn sé eftir að skrá um 140 manns, en talið er að milli 200 og 300 hafi orðið eftir í Eyj- um gosnóttina og svo sé óvissuþáttur varðandi skráningu á aðkomu sjó- manna, farandverkafólks og íbúa í námi. „Það er nokkuð vel af sér vikið að hafa náð þessari góðu skráningu 40 til 45 árum eftir atburðinn og fór skráningin fram úr björtustu von- um,“ segir Ingibergur stoltur. Margir að gera upp gosið Ingibergur telur að almenn um- ræða um gosið og sögur fólksins hafi ekki byrjað almennilega fyrr en í kringum aldamótin. „Það er miserfitt fyrir fólk að ræða gosið og eftir að umfjöllunin hófst fyrir 20 árum hafa elstu ein- staklingarnir fallið frá. Eflaust átti það fólk erfitt með að ræða líðan sína. Nú erum við sem vorum börn í gosinu orðin fullorðin og margir að gera upp þennan hluta lífsins. Ingibergur var 9 ára og yngstur sjö systkina þegar gaus. Hann bjó með foreldrum sínum Óskari Matt- híassyni og Þóru Sigurjónsdóttur á Illugagötu 2, sem þá var talin til vest- urhluta eyjunnar en gosið kom upp í austurhlutanum. Ingibergur man eftir því þegar móðir hans vakti hann kl. tvö um nóttina og sjóninni sem blasti við honum út um gluggann. „Ég hélt að það væru mörg hús að brenna í austurbænum en svo fór ég niður á bryggju og um borð í bátinn hans pabba, Leó VE, ásamt fjölda fólks. Mér er alltaf minnisstætt þegar við sigldum út úr höfninni að ég mátti ekki vera úti og finna fyrir svörtu snjókornunum sem voru að vísu heit aska. Í minningunni var ég uppi í stýr- ishúsi allan tímann en mamma sagði það ekki rétt. Ég man líka þegar mamma skipaði sjómönnunum sem stóðu agndofa úti á dekki að horfa á gosið, að koma og aðstoða fólkið sem lá út um allan bát, bæði inni og úti. Ingibergur segir að sig hafi ekki órað fyrir því hversu viðamikið verk- efnið var og hefur nánast allur hans frítími í hálfan áratug farið í það. „Það var kostur að geta unnið verkefnið heima og fjölskyldan ekki langt undan. Það hafa komið tímar þar sem þolinmæðina þraut gagnvart mér en ég á góða og skilningsríka konu, Margréti Pétursdóttur, sem stutt hefur mig í þessu og börnin mín þrjú, Björg, Óskar Pétur og Stefán Örn.“ Ingibergur hvetur alla sem eiga eftir að skrá sig að gera það á vefsíð- unni 1973-alliribatana.com en þar er hægt að fletta upp farþegalistunum. Ingibergur á þá von að í framtíðinni verði listarnir til sýnis á gosminjasýn- ingunni í Eldheimum, en nú hanga þeir útprentaðir og til sýnis á vegg í Sagnheima í Vestmannaeyjum. Búið að skrá ferðir 4.820 Eyjamanna á flótta gosnóttina Ingibergur Óskarsson Eyjamaður hefur notað allar frístundir undanfarin fimm ár til þess að safna upp- lýsingum um ferðamáta þeirra sem flúðu Heimaey þegar eldgos hófst þar 1973. Ingibergur hlaut Frétta- pýramída Eyjafrétta fyrir framlag til menningar. Æskustöðvar Ingibergur með æskuheimilið í baksýn. Ljósmynd/Óskar Pétur Friðriksson Athafnamaður Ingibergur Óskarsson við afhendingu Fréttapýramída Eyjafrétta fyrir framlag til menningarmála. Sagnheimar Listi yfir ferðir 4.820 manna frá Eyjum. Umhverfisverndarsamtökin Blái her- inn hafa víða komið við frá því þau voru stofnuð árið 1998 og í dag, fimmtudaginn 22. febrúar, kl. 17.30 heldur herinn innreið sína í Borgar- bókasafnið Sólheimum. Tómas J. Knútsson, stofnandi, forsprakki og formaður samtakanna, mun kynna starfsemina í máli og myndum. Blái herinn gengst fyrir landsátaki í hreinsun og fegrun landsins og hef- ur beitt sér fyrir margvíslegum um- hverfisverkefnum síðustu árin, eink- um hvað snertir hreinsun strand- lengjunnar og sjávar. Markmiðið er að virkja landsmenn til allsherjar hreinsunarátaks á Íslandi, þjóðinni til hagsbóta. Samtökin hafa fengið ýmsa viður- kenningu fyrir störf sín, s.s. Umhverf- isverðlaun Reykjanesbæjar árið 2003, Umhverfisviðurkenningu Poka- sjóðs árið og Ungmennafélags Ís- lands árið 2004 og Náttúruvernd- arviðurkenningu Sigríðar í Brattholti árið 2014. Þeir sem vilja afla sér upplýsinga og styrkja Bláa herinn með fjár- framlögum geta farið á vefsíðuna www.blaiherinn.is og fyllt út þar til gert eyðublað. Vefsíðan www.blaiherinn.is Verkin tala Blái herinn hreinsaði drasl í fjörunni við Garðskagavita á dögunum. Landsátak í hreinsun lands Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.