Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 42

Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 42
42 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Smáralind | Kringlunni | Reykjanesbæ | sími 511-2022 | www.dyrabaer.is LÍKA FYRIR STÓRU HUNDANA – fyrir dýrin þín kona, því upp að nauðbeygð hefði hún lengi þurft að láta sér nægja að hringja í föður sinn á laun og hitta hann á leynifundum. Þykir þetta staðfesta orðróm sem lengi hafði verið á kreiki um að Laeticia, sem er aðeins nokkrum árum eldri, hafi verið afbrýðisöm gagn- vart góðu sambandi feðginanna og gert sitt til að stöðva það. Brást eiginkonan Laeticia við því með til- kynningu til AFP-fréttastofunnar þar sem hún sagði „hamsleysi fjöl- miðla“ vegna dánarbúsins „viður- styggilegt“. Við útförina virtist samheldni ríkja innan fjölskyldunnar en það reyndist öðru nær, samkvæmt opnu bréfi Smet til föður síns, sem AFP-fréttastofan fékk að sjá. Gaf hún m.a. þar í skyn að Laeticia hafi komið í veg fyrir að hún fengi að heimsækja föður sinn á dánar- beðinum. „Það ergir mig enn mjög að hafa ekki getað kvatt þig, pabbi, eins og þú veist. Mörgum spurningum er ósvarað, öll þessi ár sem við þurft- um að hittast og tala saman í fel- um. Þó komst ég að því fyrir nokkrum dögum að þú hefðir um- skrifað erfðaskrá þína og svipt okkur David arfi með öllu,“ skrif- aði Laura Smet. „Það var fyrir aðeins nokkrum vikum að við snæddum málsverð saman og þú sagðir: „Hvenær ætl- ar þú svo að eignast barn?“ En hvað get ég sagt barninu um þig, mann sem ég hef dáðst svo að?“ spurði Smet, sem Johnny átti með leikkonunni Nathalie Baye. Lae- ticia brást við fréttastorminum, sagðist vera sallaróleg yfir öllu saman og myndi áfram beita kröft- um sínum í að tryggja að verk eig- inmanns hennar og orðspor yrðu virt. Réttur barna varinn Lögmenn Smet segja að David Hallyday, sem Johnny átti með Sylvie Vartan, poppstjörnu frá sjö- unda áratugnum, hefði einnig kraf- ist ógildingar hinnar umskrifuðu erfðaskrár. Gjörningurinn átti sér stað í Los Angeles og því undir lögum Kaliforníuríkis. Í Frakk- landi er erfðaréttur barna vernd- aður mjög. Öðru máli gegnir í Kaliforníu þar sem hægt er að svipta hvern sem er arfi ef vill, þar á meðal börn, segir lögmaðurinn Beti Tsai Bergman í Los Angeles sem sérhæft hefur sig í erfðarétti. Á lögfræðivefsíðunum Nolo.com og Findlaw.com segir einnig, að „al- mennt séð sé réttur barna til arfs eftir foreldra sína enginn“. Samkvæmt frönskum lögum erf- ir eiginkona ekki sjálfkrafa allt dánarbú eiginmannsins og almennt séð ber henni að deila því með börnum hans. Í hjartanístandi bréfi sínu lýsir Laura Smet hvern- ig faðir hennar birtist henni í draumi allar nætur. „Þú ert fal- legur og laus við húðflúr, þú ert loksins frjáls,“ segir hún. Hallyday byrjaði að láta stinga flúr á hör- und sér um það leyti sem hann kynntist Laeticia. Fundum þeirra bar fyrst saman á næturklúbbi í Miami í Flórída sem faðir hennar, Andre Boudou, átti. Hún var þá tvítug en hann 52 ára. Gengu þau í hjónaband rétt eftir 21 árs afmæli hennar, 1996. Vinir Hallyday segja að Laeticia hafi verið „járnfrú“ rokkarans; verið stjórnsöm við hann og komið röð og reglu á líf hans. Spurningar hafa vaknað um tök hennar og pabba hennar á Hallyday, en auður hans hefur verið áætlaður að minnsta kosti milli 50 og 100 milljóna evra, eða 6-12 milljarðar króna. Stundum hafa verið nefndar enn hærri töl- ur. „Ég elska þig pabbi“ „Fremur hefði ég kosið að allt þetta væri aðeins innan fjölskyld- unnar en því miður þá er þetta svona í okkar röðum. Ég er stolt af því að vera dóttir þín. Ég elska þig, pabbi,“ bætir Laura Smet við. Hún er hæfileikarík leikkona en mun hafa freistað sjálfsvígs eftir að faðir hennar var næstum horf- inn yfir móðuna miklu 2010. Í bréfinu segist hún hafa verið skilin eftir án minjagripa um hann – svo sem eins af gíturum hans eða mót- orhjólum. Ekki einu sinni hafi hún fengið hulstrið utan af plötunni með laginu „Laura“ , sögðu lög- menn hennar við AFP-fréttastof- una. Tveir risar aðrir úr frönsku tón- listarlífi bjuggu í Kaliforníu, laga- smiðurinn Maurice Jarre, sem m.a. skrifaði tónlist kvikmyndanna „Doctor Zhivago“ og „Arabíu- lárens“ og útsetjari Madonnu, Michel Colombier. Báðir sviptu þeir börn sín arfi. Sonur Jarre, raftónsmiðurinn Jean-Michel Jarre, og eldri börn Colombier töpuðu ógildingarkröfum vegna erfðaskránna fyrir frönskum dóm- stólum. Lögmaður Smet, Pierre-Olivier Sur, sagði við AFP að báðir þessir tónlistarmenn hefðu slitið á tengsl sín við Frakkland löngu áður en þeir gengu frá erfðaskrám sínum. Hins vegar hafi „Hallyday átt heimili í Frakklandi og sungið í Frakklandi þar til hann lést og hlotið ríkisútför sem forseti lands- ins kvað á um og tók þátt í.“ Sullivan Show. Reyndi hann að sjarmera áheyrendur með sínum útgáfum af slögurunum „Blue- berry Hill“ og „Be Bop A Lula“. Bar það ekki árangur. Hver til- raunin til að slá í gegn af annarri mistókst og var það ekki fyrr en 1996 að Ameríkudraumur Hally- day loks rættist. Tróð hann þá upp í Las Vegas og meðal annarra flugu samtals um 5.000 franskir aðdáendur hans 9.000 kílómetra leið til Bandaríkjanna til að hylla sinn mann á tónleikunum í spila- vítaborginni miklu. Keypti hann sér hús í Los Angeles og bjó þar hluta úr ári, í sömu götu og Tom Hanks og Ben Affleck í Pacific Palisades. „Ég elska friðsældina í L.A. Stjörnur eru þar út um allt, en þegar ég fer í göngutúra er ég al- veg látinn í friði,“ sagði Hallyday. Manna á meðal gekk hann undir nafninu Johnny og öðlaðist fljótt miklar vinsældir. Er hann var tví- tugur að aldri drógu tónleikar hans á Parísartorgi, árið 1963, til sín um 100.000 æsta aðdáendur. Annar eins óhaminn æsingur hafði aldrei sést í hinu íhaldssama landi með sinn staðfasta Charles de Gaulle sem forseta. Á ferlinum seldi Hallyday rúmlega 110 millj- ónir breiðskífa og fór hann rúm- lega 50 stórar tónleikaferðir. Lifði allt og alla Meðan aðrir komu, dvöldu skamma stund og hurfu svo úr frönsku tónlistarlífi hélt Hallyday alltaf velli. Lifði hann allar tónlistarstefnur og aðlagaði sig að þeim og tileinkaði. Hámarki náði 57 ára ferill hans í París árið 2000 á tónleikum við Eiffelturninn sem hálf milljón aðdáenda sótti. Lífi rokkstjörnunnar fylgdi óregla, Johnny Hallyday var einstaklega vinsæll í Frakklandi, stórstjarna í orðsins fyllstu merkingu, en nán- ast óþekktur í enskumælandi lönd- um. Hann var að sönnu „þjóðar- gersemi“ og dáður eftir 57 ára tónlistarferil. Hann fæddist í París árið 1943 sem Jean-Philippe Leo Smet. Nafnið þótti honum „ekki sérlega gott rokk og ról“ nafn og fékk því breytt í Johnny Halliday. Fyrir- myndina að því sótti hann til amer- ísks frænda að nafni Lee Halliday sem kynnti honum rokkið og gekk honum hálfvegis í föðurstað eftir að blóðfaðir hans yfirgaf fjölskyld- una er hann var átta mánaða. „Hann kallaði mig alltaf Johnny því hann gat ekki borið fram nafn- ið Jean-Philippe,“ sagði söngv- arinn. Vegna prentvillu á umslagi fyrstu plötu hans átti táningurinn ekki annarra kosta völ árið 1960 en að búa við tvö ypsilon í nafni sínu. Johnny Hallyday var dæmigerð- ur franskur unglingur með dálæti á öllu amerísku, tilgerðarlegu eldra fólki og frammámönnum til armæðu sem þoldu lítt allt banda- rískt. Naut hann þess að segja sög- ur af því er skífuþeytir á útvarps- stöð braut fyrstu plötu hans í útsendingu með þeim orðum að „þið munið aldrei heyra þetta framar“. Annað átti eftir að koma í ljós. Vildi frægð í Bandaríkjunum Sjálfan langaði Hallyday að ná vinsældum í Bandaríkjunum. Í þeim tilraunum tók hann upp þriðju breiðskífu sína í Nashville árið 1962 og söng öll lögin á ensku. Hann tróð upp víða um land og var m.a. boðið í hinn fræga þátt Ed „glötunarleiðin“ eins og hann orð- aði það er hann hafði snúið baki við stífu sukki, mest fyrir atorku hinnar ungu eiginkonu sinnar, Laeticia. „Lengi vel komst ég ekki fram úr rúminu á morgnana án þess að sniffa fyrst af kókaíni,“ játaði hann í viðtali í blaðinu Le Monde árið 1998. Sagðist hann líka hafa reynt að segja skilið við vesæla bernsku með áfengi, ópíum og kannabis. Ástarlíf hans var líka rokk og ról, elskendalistinn langur og hjóna- böndin fimm talsins, þar af kvænt- ist hann sömu konunni tvisvar. „Ég er rokkari og verð sem slíkur að lifa sem einförull úlfur,“ sagði hann. Hallyday lifði af misheppnaða tilraun til sjálfsvígs, óheyrilega lyfjanotkun og fjölda bílslysa. Af nokkurs konar þráhyggju fylgdist franska þjóðin alla tíð með heilsu- fari hans. Fréttir um að hann hefði „dáið“ um stund á skurðarborði árið 2009 fengu mjög á aðdáendur hans. Sorgin var ótímabær því eftir nokkrar vikur hafði rokkarinn jafnað sig. Hló hann síðar að ná- vígi sínu við dauðann og sagði: „Þegar ég dó fyrst líkaði mér það ekki svo ég sneri til baka til lífs- ins.“ Betri er kóngur en prins Meðal tónlistarmanna sem tróðu upp með Hallyday á tónleikum hans má nefna þá frægu menn Jimi Hendrix, Jimmy Page, gítarleik- ara Led Zeppelin, og Bob Dylan sem allir léku undir hjá honum. Hendrix og hljómsveit hans hitaði upp og lék undir hjá Hallyday á tónleikaferðalagi um Frakkland árið 1966. Munu þeir Hendrix hafa djammað saman milli tónleika. Page vann fyrir Hallyday við upp- tökur bæði í París og London. Síð- ar náði Hendrixlagið „Hey Joe“ gríðarlegum vinsældum í flutningi franska rokkarans. Hallyday dáði aðra franska tónlistargoðsögn í æsku, Edith Piaf. Sagan segir að er hún reyndi að tæla hann til lags við sig hafi brennandi áhugi hans á dívunni dvínað talsvert. Hann hélt þó áfram að flytja lögin hennar. Þótt Jacques Chirac gerði Johnny Hallyday að riddara frönsku heiðursorðunnar aftraði það honum ekki frá því að fara í útlegð til Sviss og Los Angeles vegna skatta. Kvartaði hann sáran undan skattpíningunni, sem hann orðaði svo. Frægð utan Frakk- lands og frönskumælandi ríkja öðl- aðist hann samt aldrei. Í Frakk- landi var hann goðsögn. „Annað hvort slæ ég í gegn á al- þjóðavísu eða ekki. Það er engin ástríða. Það er betra að vera kóng- ur í eigin landi en prins í ein- hverjum öðrum,“ sagði Hallyday. Hver var Johnny Hallyday? AFP Rokkstjarna Johnny Hallyday var Elvis Presley þeirra Frakka. Hann lést í lok síðasta árs, 74 ára að aldri. Þessi mynd var tekin í apríl 2016.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.