Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 44

Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 44
44 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Eyesland . Grandagarði 13 og Glæsibæ, 5. hæð . sími 510 0110 . www.eyesland.is Frábært verð á glerjum Einfókus gler Verð frá kr. 16.900,- Margskipt gler Verð frá kr. 41.900,- Gleraugnaverslunin Eyesland býður mikið úrval af gæðagleraugum á góðu verði – og þú færð frábæra þjónustu. Verið velkomin! Jensen JN8846 umgjörð kr. 18.900,- Rafhitarar í skip, hús og sumarhús Ryðfríir neysluvatnshitarar með 12 ára ábyrgð Hitöld (element), hitastillar, hitastýringar og flest annað til rafhitunar Við erum sérfræðingar í öllu sem Kaplahrauni 19 • Hafnarfirði Sími: 565 3265 rafhitun@rafhitun.is • www.rafhitun.is viðkemur rafhitun. Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Hundruð óbreyttra borgara, þeirra á meðal tugir barna, hafa látið lífið síðustu daga í sprengjuárásum sýr- lenskra hersveita á Austur-Ghouta í Sýrlandi. Ólýsanleg neyð er á svæð- inu vegna nær sex ára umsáturs stjórnarhers landsins og sprengju- árása sem hafa meðal annars verið gerðar á sjúkrahús. Rúmlega 400.000 manns búa í Austur-Ghouta og komast ekki í burtu vegna umsátursins. Embættismenn Sameinuðu þjóð- anna sögðu í gær að gerðar hefðu verið sprengjuárásir á sjö sjúkrahús á svæðinu síðustu tvo daga. Í þrem- ur sjúkrahúsanna stöðvaðist starf- semin algerlega og í tveimur að hluta, að sögn Panos Moumtzis, sem stjórnar hjálparstarfi Sameinuðu þjóðanna í Sýrlandi. „Ólýsanlegar þjáningar íbúanna eru óviðunandi og þeir hafa ekki hugmynd um hvort þeir lifi af eða deyi. Þessari martröð í Austur-Ghouta verður að linna þegar í stað,“ hefur fréttaveitan AFP eftir honum. Hvar er öryggisráðið? Fréttavefur breska ríkisútvarps- ins hefur eftir lækni í Austur- Ghouta að ástandið þar sé hörmu- legt og þjóðir heims hafi hlaupist á brott frá vandanum. „Við höfum ekkert – engin matvæli, engin lyf, enga vernd,“ sagði hann. „Á hverri mínútu eru kannski gerðar tíu eða tólf loftárásir … Þeir gera árásir á allt, verslanir, útimarkaði, sjúkra- hús, skóla, moskur, allt. Hvar er al- þjóðasamfélagið, öryggisráð Sam- einuðu þjóðanna? Þau hlaupast á brott frá okkur. Þau snúa baki við okkur og láta okkur deyja.“ Árásirnar eru brot á alþjóðasátt- málum um mannréttindi á stríðstím- um, að sögn Díönu Semaan, sem hef- ur rannsakað ástandið í Sýrlandi á vegum mannréttindasamtakanna Amnesty International. „Íbúarnir hafa ekki aðeins mátt þola grimmi- legt umsátur síðustu sex árin, heldur eru þeir núna varnarlausir gegn dag- legum sprengjuárásum sem eru gerðar af ásettu ráði til að drepa og særa þá, og þetta eru svívirðilegir stríðsglæpir,“ hefur The Guardian eftir Semaan. Orðlaus Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, birti yfirlýsingu undir fyrirsögninni „Stríðið gegn börnum í Sýrlandi; fregnir um mikið mannfall meðal barna í Austur-Ghouta og Damaskus“. Yfirlýsingin var aðeins ein setning: „Engin orð duga fyrir börnin sem hafa verið drepin, mæð- ur þeirra, feður þeirra og aðra sem unna þeim.“ Yfirlýsingunni fylgdi neðanmálsgrein: „UNICEF birtir þessa óskrifuðu yfirlýsingu. Við höf- um ekki lengur orð sem lýsa þján- ingum barnanna og hneykslun okk- ar. Hafa þeir sem valda þessum þjáningum einhver orð sem réttlæta grimmilegar gerðir þeirra?“ Um miðjan dag í gær höfðu nær 300 manns beðið bana í árásunum frá því á sunnudaginn var, þeirra á með- al a.m.k. 67 börn, að sögn AFP. Áður en síðasta hrina sprengjuárásanna hófst um helgina var höfðu rúmlega 700 manns beðið bana á þremur mánuðum í Austur-Ghouta. Stjórnvöld í Rússlandi neituðu í gær fréttum um að rússneskar her- flugvélar hefðu tekið þátt í árásun- um. Þau lýstu fréttunum sem „til- hæfulausum ásökunum“. Austur-Ghouta er eitt af síðustu vígjum uppreisnarmanna í Sýrlandi og það síðasta í grennd við höfuð- borgina Damaskus. Svæðið hefur verið á valdi íslömsku hreyfingarinn- ar Jaysh al-Islam og þar eru einnig liðsmenn hreyfingar sem tengdist hryðjuverkasamtökunum al-Qaeda. Einræðisstjórnin í Sýrlandi hefur sent marga hermenn að svæðinu síð- ustu daga, að því er virðist til að undirbúa landhernað. „Martröðinni í Austur- Ghouta verður að linna“  Hundruð íbúa, m.a. tugir barna, liggja í valnum  Stríðsglæpir framdir Blóðsúthellingarnar í Sýrlandi Heimildir: SOHR, AFP 50 km TYRKLAND LÍB. JÓRDANÍA ÍRAK Yfirráðasvæði fylkinganna Aðrir uppreisnar- menn og hópar íslamista Uppreisnarlið sem styður Tyrki Hersveitir stjórnarinnar Ríki íslams Hersveitir Kúrda Deir Ezzor RaqaAleppo Afrin Homs DAMASKUS Daraa Átaka- svæði í sókn tyrkneskra hersveita Austur- Ghouta Idlib Helstu átakasvæði: Afrin: Hersveitir Tyrkja hafa náð tugum þorpa á sitt vald eftir sókn sem þær hófu 20. janúar. Hersveitir hliðhollar stjórn Sýlands berjast með herliði Kúrda Austur-Ghouta: Hersveitir Sýrlandsstjórnar hafa gert látlausar árásir á svæðið sem er á valdi uppreisnarmanna. Mikið mannfall hefur orðið meðal óbreyttra borgara og um 400.000 íbúar komast ekki í burtu Idlib: Rússneskar herflugvélar hafa gert árásir til að styðja sókn sem stjórnarherinn hóf 25. desember Deir Ezzor-hérað: Hersveitir stjórnarinnar eru vestan við Efrat, herlið Kúrda austan við fljótið, og nokkur þorp eru enn á valdi Ríkis íslams AFP Blóðsúthellingar Sýrlenskur björgunarmaður heldur á særðu barni sem bjargað var úr húsarústum eftir loftárás sýrlenska stjórnarhersins. Flókin átök » Átökin í Sýrlandi hófust árið 2011 með mótmælum gegn einræðisstjórn landsins. » Mestur hluti Sýrlands lýtur yfirráðum stjórnarhersins en önnur svæði eru á valdi her- sveita Kúrda, uppreisnarliðs sem styður Tyrki, annarra upp- reisnarmanna og íslamskra hreyfinga, m.a. Ríkis íslams, samtaka íslamista. » Einræðisstjórnin hefur sent hundruð hermanna til að berj- ast með herliði Kúrda gegn tyrkneskum hersveitum í Afrin í norðvesturhluta landsins. Billy Graham, þekktasti predikari Bandaríkjanna á öldinni sem leið, lést í gær, 99 ára að aldri. Graham var andlegur ráðgjafi margra for- seta landsins og einn þeirra, George H.W. Bush, lýsti honum sem „sálnahirði Bandaríkjanna“. Talið er að yfir 200 milljónir manna hafi hlýtt á predikanir hans í meira en 180 löndum, þeirra á meðal Íslandi, og hugvekjur hans voru birtar í blöðum víða um heim, m.a. í Morgunblaðinu. BILLY GRAHAM KVADDUR AFP Trúboð Graham á samkomu árið 2005. „Sálnahirðir Banda- ríkjanna“ látinn
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.