Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 47
47 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Vetur Kona gekk í krapi í Borgartúni í gær. Óveðrið truflaði ferðir margra. Eggert Víkur nú sögunni að Norðurlandi, Aust- urlandi og Suðaust- urlandi – allt til Hornafjarðar. Í fyrri greinum mínum hef ég fjallað um hvar skórinn kreppir á höf- uðborgarsvæðinu, á Vesturlandi og Vest- fjörðum. Af ærnu var að taka í þessum landshlutum og ekki er verkefnið minna að vöxtum á þessu land- svæði – sem telur hálfa strand- lengju Íslands. Húnaþing er mín gamla heima- sveit og þar er víða þörf á gagn- gerum úrbótum. Ég nefni Vatns- nesveg og á þeirri leið er Tjarnarbrúin sem ekki þolir bið. Vatnsnesvegurinn er 77 km. lang- ur og þar af eru aðeins 5 km lagð- ir bundnu slitlagi. Hinir 72 km eru malarvegur. Álitið er að kostnaður við endurbyggingu þessa vegar með bundnu slitlagi gæti orðið 4 til 4,5 milljarðar króna, en það mun auðvitað taka einhvern tíma. Tengivegir víða í héraðinu eru löngu komnir að þolmörkum og nauðsynlegt er að endurbætur þeirra haldist í hendur við aukna fjármuni til viðhalds vega. Skaga- strandarvegur er 8,5 km langur og löngu tímabært að gera á honum bragarbót. Kostnaður við lagningu slitlags ásamt nauðsynlegum öðr- um úrbótum er áætlaður um 1,5 milljarðar. Einnig á vegurinn um Laxárdalsheiði sem er ein helsta tengingin á milli Vesturlands og Norðvesturlands að vera á for- gangslista, en kostnaður við að fullklára hann er talinn munu nema um 1.100 milljónum. Norðausturland Á Norðausturlandi fékk Detti- fossvegurinn aukna fjárveitingu á síðasta ári, en heimamenn og ferðaþjónustan kalla hástöfum eft- ir því að hann verði fullkláraður. Nauðsynlegt er að raða verkefnum í forgangsröð og bráðaaðgerða er víða þörf. Eigi að síður byggist sú atvinnustarfsemi á þessu svæði sem tengist ferðaþjónustu á að Dettifossvegur verði fullkláraður og á þau sjónarmið ber að hlusta. Á síðasta ári var yfir hálfur millj- arður eyrnamerktur Dettifossvegi, en ljóst er að veru- legu fé þarf að verja til viðbótar til að ljúka þessu verkefni. Áætl- að er að það muni kosta um 1,5 milljarða króna. Hvarvetna á þessu svæði eru aðkallandi verkefni. Unnið er að því að leggja bundið slitlag á Kísilveg og nemur kostnaður við þá framkvæmd 350 til 400 milljónum króna, en einnig þarf að leggja bundið slitlag frá þjóðveginum að Hver- fjalli sem er einn vinsælasti ferða- mannastaður í Mývatnssveit. Við Mývatn er einnig kallað eftir að- gerðum, svo sem göngu- og hjól- reiðavegum í kringum vatnið sem og að útskotum á veginum verði fjölgað vegna vaxandi ferðamanna- straums. Kostnaður vegna þessara verkefna er áætlaður um 1,1 millj- arður. Einbreiðar brýr á hringveginum á þessum slóðum eru yfir Skjálf- andafljót og Jökulsá á Fjöllum. Þessar leiðir eru fjölfarnar og brýnt er að ráðast í endurbygg- ingu þeirra. Kostnaður við breikk- un beggja er talinn munu nema um 3 milljörðum króna. Þess utan ætti brúin á Skjálfandafljóti á Norðausturvegi að Húsavík að vera í forgangi, en það verkefni er áætlað munu kosta um 2 milljarða króna. Fleiri brýn verkefni má auðveldlega tína til á þessu lands- horni. Þar á meðal er vert að nefna nýjan veg um Brekknaheiði á milli Bakkafjarðar og Þórs- hafnar sem áætlað er að kosti 1.200 milljónir og einnig veg um Langanesströnd sunnan Brekkna- heiðar, þar sem verðmiðinn er um 1.400 milljónir. Í þessu sambandi má og nefna að einbreiðar brýr á stofn- og tengivegum á Norður- landi og Austurlandi eru nær 200 talsins og þar af eru 76 á stofnveg- um. Breikkun einbreiðra brúa á að vera í forgangi, enda brýnt um- ferðaröryggismál. Kostnaður við slíkt stórvirki sem tvöföldun þess- ara mannvirkja óhjákvæmilega verður mun hlaupa á tugum millj- arða króna. Kostnaður vegna ofangreindra verkefna er talinn munu nema tæpum 11 milljörðum króna og er þá kostnaður vegna breikkunar einbreiðra brúa ótalinn. Sé gert ráð fyrir að meðaltalskostnaður sé 500 milljónir á hverja brú á stofn- vegi – sem trúlega er vanáætlað – þá myndi kostnaður við brýrnar 76 verða 38 milljarðar. Ég geri ráð fyrir að einhverjir lesendur súpi nú hveljur. Vegtenging Hjaltadals og Hörgárdals Mig langar til að nefna hér áhugaverða hugmynd um styttingu þjóðvegar 1 á milli Norðvest- urlands og Eyjafjarðar. Hún felst í vegtengingu á milli Hjaltadals og Hörgárdals með veggöngum allt að 20 km löngum. Leiðin á milli Reykjavíkur og Akureyrar lægi þá um Þverárfjall, Sauðárkrók, Hjaltadal og um jarðgöng yfir í Hörgárdal. Leiðin milli Blönduóss og Akureyrar gæti með þessu móti styst úr 145 km eftir þjóðvegi 1, í 127 km um Þverárfjall, Hjaltadal og Hörgárdal. Auk 20 km jarðganga yrði að leggja nýja vegi. Kostnaður gæti numið 40 milljörðum við jarð- gangagerð og 5 milljörðum við lagningu nýrra vega sem yrðu um 50 km. Þetta yrðu kostnaðarsamar framkvæmdir, en um leið myndi umferðaröryggi aukast og draga myndi mjög úr þörf á vetrarþjón- ustu við erfiða fjallvegi eins og Öxnadalsheiði og Vatnsskarð og þar með sparast umtalsverðir fjár- munir. Afleiðing þessa gæti orðið sú að ekki þyrfti að koma til bygg- ingar jarðganga frá Siglufirði yfir í Fljót. Vegtengingar á milli þess- ara héraða eru brýnar og nauðsyn- legt að ráðast í jarðgangagerð á þessu svæði til að tengja saman byggðir og atvinnusvæði. Einnig verður að halda því til haga að ný göng í stað þeirra gömlu um Ólafs- fjarðarmúla eru tímabær og það fyrr en síðar. Jarðgöng til Seyðisfjarðar Í ráðherratíð minni skipaði ég starfshóp til þess að komast að niðurstöðu um fýsilegasta valkost- inn í jarðgangagarð til Seyð- isfjarðar. Ekki þarf að fjölyrða um nauðsyn þess að koma á tryggu vegarsambandi við Seyðisfjörð, enda Fjarðarheiði oft mikill far- artálmi að vetrarlagi. Tvær leiðir koma hér til greina. Annars vegar eru það göng undir Fjarðarheiði. Hins vegar eru göng sem tengja saman Seyðisfjörð, Mjóafjörð og Norðfjörð með tengingu yfir í Fagradal. Mikilvægast er að mínu mati að skipa málum með þeim hætti að rjúfa vetrareinangrun Seyðisfjarðar og um leið – ef kost- ur er – að tengja saman byggðir og atvinnusvæði með það að mark- miði að styrkja byggð og atvinnulíf á Seyðisfirði og Austurlandi öllu. Nauðsynlegt er að ná samstöðu hjá Austfirðingum sem og lands- mönnum um þá leið sem farin verður, enda yrði hér um að ræða einhverja dýrustu einstöku fram- kvæmd Íslandssögunnar í vega- gerð, en áætlaður kostnaður er af stærðargráðunni 25 milljarðar. Síðla hausts tók gildi ákvörðun um færslu þjóðvegar 1 á Austur- landi. Þjóðvegur 1 liggur nú um firðina í stað Breiðdals eins og áð- ur var. Þessi ákvörðun var tekin að ráði Vegagerðarinnar og nauð- synleg, ekki síst út frá umferð- aröryggi. Allt of oft hafði komið til þess að ferðalangar lentu í ógöng- um og ófærð á Breiðdal að vetr- arlagi með tilheyrandi fyrirhöfn lögreglu, björgunarsveita og heimamanna. Þetta krefst þó þess að lagfæra þarf vegarkafla á þess- ari leið, þ.e. frá Breiðdalsvík að Reyðarfirði. Í stóra samhenginu er þessi framkvæmd ekki svo ýkja dýr, er talin munu kosta um 2,2 milljarða. Axarvegur Nauðsynleg tilfærsla þjóðvegar 1 breytir þó engu um nauðsyn þess að byggja fullbúinn heils- ársveg um Öxi, enda hvergi meiri stytting í boði á milli landshluta og á þeirri leið, eða um 70 km. Ax- arvegur á að vera í forgangi, enda fjölfarinn. Í júlímánuði 2017 fóru 16 þúsund bílar um Axarveg. Þeg- ar liggur fyrir hönnun og mats- áætlun fyrir framkvæmdinni sem áætlað er að kosti tæpa 3 millj- arða. Nú er í gangi vinna í Berufjarð- arbotni með færslu þjóðvegarins og byggingu nýrrar brúar, en gert er ráð fyrir að verkinu ljúki á þessu ári. Ekki verður svo skilist við Austfirði að ekki sé minnst á leiðina til Borgarfjarðar. Þar er brýnast að hefjast handa, enda um malarveg að fara sem er á köflum illfær smærri fólksbílum. Austfirð- ingar hafa enda lagt þunga áherslu á að úr þessu verði bætt og tek ég fyllilega undir sjónarmið þeirra. Hornafjörður Mjög er beðið eftir aðgerðum við Hornafjörð, nýjum kafla á hringveginum og nýrri brú yfir fljótið. Sveitarstjórnin hefur verið mjög áfram um þetta verkefni, enda þótt nokkrar deilur hafi verið í héraði. Á síðasta ári voru settar 200 milljónir í verkefnið, en það er langur vegur frá að þeir fjármunir dugi nema til að hefja fram- kvæmdir – sem hófust svo í fram- haldinu. Þetta verkefni er talið munu kosta nálægt 4,5 milljörðum, en verður mikil samgöngubót og eykur umferðaröryggi. Þau verkefni sem hér hafa verið nefnd eru öll brýn og mjög eftir þeim kallað af fólkinu á þessum svæðum. Reyndar er það mitt mat að sjaldan eða aldrei hafi verið jafn mikil samstaða meðal lands- manna um gagngerar endurbætur á vegakerfinu um land allt. En þessar framkvæmdir verða ekki ókeypis. Fljótt á litið er að kostn- aður geti orðið á milli 90 og 100 milljarðar króna, en þá eru jarð- göngin og tilheyrandi vegagerð á milli Hjaltadals og Hörgárdals ótalin. Hér hefur aðeins verið stiklað á stóru og fjölmargra verkefna sem áríðandi er að ráðast í er ekki get- ið. Það segir okkur það að þau verkefni í vegagerð sem eru fyrir framan okkur eru risavaxin. Þeir peningar sem ráðstafað er á fjár- lögum hvers árs – sé litið til und- angenginna ára – eru ekki upp í nös á ketti þegar litið er til þeirra stórfelldu verkefna sem bíða okkar og landsmenn krefjast að farið verði í – og það fyrr en síðar. Það er verkefni okkar sem höfum gefið kost á okkur til að starfa í þjón- ustu almennings á vettvangi stjórnmálanna að finna á þessu lausn. Eftir Jón Gunnarsson » Þeir peningar sem ráðstafað er á fjár- lögum hvers árs eru ekki upp í nös á ketti þegar litið er til þeirra stórfelldu verkefna sem bíða okkar. Jón Gunnarsson Höfundur er alþingismaður og fyrrverandi samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra. Ákall um aðgerðir – Norðurland, Austurland og Suðausturland Margir þeir sem hafa nauðsynlega þurft að fá svör við erindum sínum hjá Reykjavík- urborg hafa ýmist fengið sein eða jafnvel engin svör. Þetta háttalag er auðvitað með engu móti við- unandi. Borginni ber að sinna mikilvægri þjónustu við íbúana en ánægja með hana hefur verið afar lítil síðustu árin. Tafir og frestanir ákvarðana hafa leitt til þess að byggingarverktakar hafa leitað annað og nú er svo komið að á síðasta ári voru einungis 322 íbúðir byggðar í Reykjavík. Auk fastra nefnda og ráða var 351 starfshópur skipaður fyrstu þrjú ár kjörtímabilsins. Með öðrum orðum var skipaður nýr starfshópur þriðja hvern dag. Þegar stjórnkerfið er orðið jafn ofvaxið og raun ber vitni er nær- tækasta lausnin að einfalda kerfið og stytta boðleiðir. En núverandi borgarstjórnarmeirihluti hefur hins vegar valið þveröfuga leið og skip- að enn einn starfs- hópinn: „Starfshóp um miðlæga stefnu- mótun“. Um hann segir í erindisbréfi: „Hlutverk starfshóps- ins er að vinna að umbótum og sam- ræmdri framkvæmd í stefnumótun og stefnuframkvæmd, einkum í miðlægri stjórnsýslu og mið- lægri stefnumótun.“ Þannig er það nú ljóst að þessir starfshópar, 351 að tölu, sem skip- aðir voru fyrstu þrjú ár kjör- tímabilsins, gengu aldrei saman þar sem stefnur þeirra ganga ekki saman. Þess vegna hefur núverandi meirihluti brugðið á það ráð að skipa „Starfshóp um miðlæga stefnumótun“ eins og erindisbréfið er til vitnis um. Starfshóp sem hef- ur þann eina tilgang að samræma flókna stefnumótun allra þessara hópa sem núverandi meirihluti ýtti úr vör á síðasta kjörtímabili. Þann- ig eru embættismenn borgarinnar orðnir of uppteknir við samræm- ingu stefnumótunar og hafa því lít- inn tíma til að sinna erindum borg- arbúa. Þetta er dæmi um það hvernig meirihlutinn hefur misst tökin á vexti stjórnsýslunnar, sem verður til þess að nær ómögulegt er fyrir hana að rækja skyldur sín- ar. Þótt ekki fari mikið fyrir skipun þessa starfshóps sýnir hann engu að síður, svart á hvítu, að mik- ilvægt er að stjórnkerfi borg- arinnar verði einfaldað eftir næstu kosningar. Það mun spara mikla fjármuni og bæta þjónustuna við borgarbúa. Það er kominn tími til að Ráðhúsið fái aftur jarðsamband við fólkið í borginni og skynsemin fái að ráða. Nýr starfshópur þriðja hvern dag Eftir Eyþór Arnalds » Þegar stjórnkerfið er orðið jafn ofvaxið og raun ber vitni er nærtækasta lausnin að einfalda kerfið og stytta boðleiðir. Eyþór Arnalds Höfundur er borgarstjóraefni Sjálfstæðisflokksins.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.