Morgunblaðið - 22.02.2018, Side 49
UMRÆÐAN 49
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Fyrrverandi vara-
þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins og uppstill-
ingarnefndarmaður í
stéttarfélaginu Efl-
ingu gerir í Morg-
unblaðsgrein 19. febr-
úar athugasemdir við
að aðrir en þeir sem
hún valdi sjálf á lista
skuli gefa kost á sér í
stjórnarkjöri Eflingar.
Varaþingmaðurinn fyrrverandi telur
einnig ótækt að þeir sem gefa kost á
sér til trúnaðarstarfa fyrir verka-
lýðsfélög skuli starfa með pólitískum
hreyfingum en fyrst og fremst virð-
ist hún hneyksluð á því að eignar-
hald á félaginu skuli dregið í efa, að
almennir félagsmenn reyni að hafa
áhrif án þess að hafa fengið formlegt
boð frá uppstillingarnefnd félagsins.
Hún kveðst afskaplega ánægð með
eigin störf að menntunarmálum
félagsmanna í Eflingu en hefur
greinilega misst af byrjenda-
námskeiðinu um sögu verkalýðs-
hreyfingarinnar þaðan sem enginn
útskrifast án þess að gera sér grein
fyrir að öll rétttindi launafólks feng-
ust með harðri baráttu þar sem sósí-
alistar voru í fylkingarbroddi meðan
flokkurinn sem hún fylgir að málum
barðist af hörku gegn vökulögum
sjómanna og öðrum grundvallarrétt-
indum verkafólks. En varaþingmað-
urinn fyrrverandi vill enga pólitík og
engin læti heldur ráðleggur hún lág-
launafólki að standa kyrrt, væntan-
lega til að auðvelda auðstéttinni að
hitta þegar og ef henni dettur í hug
að henda í það brauðmolum. Það
rímar við málflutning frambjóðand-
ans sem varaþingamaðurinn fyrr-
verandi styður, best að hafa sig hæg
og vona hið besta. Hann fór líka
rétta leið í framboð, þáði boð um að
bjóða sig fram: reyndur fundarstjóri
sem fannst við leitina miklu í nóv-
ember og desember.
Stjórnmálaflokkurinn sem grein-
arhöfundur (ef hún skrifaði greinina
sjálf) fylgir hefur á und-
anförnum áratugum
kerfisbundið grafið
undan þeim réttindum
sem launafólk hafði
náð, með löggjöf sem
auðveldar félagsleg
undirboð, breytingum á
skattkerfinu í þágu
hinna ríku, bankakerfi
sem hefur fengið veiði-
leyfi á almenning og
með því að gera íbúðar-
húsnæði að gjaldmiðli í
spilavíti samviskulausra stórkapíta-
lista. Ekkert af þessu virðist hafa
raskað ró formannsframbjóðandans
sem Sjálfstæðiskonunni líkar við,
fundirnir sem hann var svo duglegur
að sækja hafa a.m.k. ekki sent frá
sér ályktanir sem náð hafa að vekja
athygli.
Í verkalýðshreyfingunni er eng-
inn hörgull á vönum fundarstjórum,
en stéttarfélag sem hefur innan
sinna vébanda láglaunafólk sem get-
ur ekki lifað af launum sínum þarf
meira en fundarstjóra, það þarf öfl-
uga forystu. Í stjórnarkjörinu fram-
undan býðst félögum í Eflingu skýrt
val. Þeir geta kosið lista B, skipaðan
fólki sem beið ekki boðanna heldur
bauð sig fram sjálft, formannsefnið
Sólveigu Önnu Jónsdóttur sem talar
um kjör láglaunafólks þannig að um
er rætt og eftir er tekið, lista fólks
sem hefur hugsjónir um samfélag
réttlætis og jöfnuðar. En þeir geta
líka kosið óbreytt ástand: valið að
standa kyrrir og vona bara að kjörin
hætti að versna.
Kjarabarátta
eða klúbbastarf?
Eftir Birnu
Gunnarsdóttur
Birna Gunnarsdóttir
» Stéttarfélag sem hef-
ur innan sinna vé-
banda láglaunafólk sem
nær ekki endum saman
þarf meira en fundar-
stjóra, það þarf öfluga
forystu.
Höfundur er minjafræðingur.
Framundan eru
kosningar í Eflingu
stéttarfélagi. Fyrsta
skipti í sögu félagsins.
Sagt er að stjórn-
málaflokkur sé að taka
yfir félagið. Það er
meira en að segja það
að fara fram á móti
sitjandi stjórn. Þarf
mótframboðið að
leggja fram minnst
120 meðmælendur og stilla upp for-
manni og 8 stjórnarmönnum. Það
sjá það flestir að til að gera svona
hluti þarf sterkt bakland til að ná
fram kosningum. Fólkið sem stend-
ur á bak við B-listann telur sig hafa
borið skertan hlut frá
borði í samningum síð-
ustu ára. Trúnaðar-
menn hjá stórum vinnu-
stöðum í einkageir-
anum hafa lítinn
aðgang að samninga-
borðinu, og sést það
best í launatöflum hjá Eflingu.
Vegna kosn-
inga í Eflingu
Eftir Aðalstein R.
Björnsson
Aðalsteinn R. Björnsson
» Í fyrsta
skipti í sögu
Eflingar eru
kosningar.
Höfundur hefur verið trúnaðar-
maður síðustu 9 ár og átti
sæti í trúnaðarráði Eflingar.
arb@hive.is
TIL SÖLU
Smiðjuvegur 38
200 Kópavogur
534 1020
Ármúla 7, Reykjavík - www.jofur.is
Ólafur
S: 824 6703
Magnús
S: 861 0511
Sigurður J.
S: 534 1026
Helgi Már
S: 897 7086
Bergsveinn
S: 863 5868
Til sölu vel staðsett 281,1 fm. iðnaðarhúsnæði með góðri aðkomu. Í húsnæðinu er rekin
bílasprautun og er möguleiki á að fá keyptan sprautuklefa með húsnæðinu. Húsnæðið skiptist í
stóran vinnusal og starfsmannaaðstöðu með skrifstofu og salernum. Ein stór innkeyrsluhurð er
í rýmið og er lóð malbikuð.
Sérhæfum okkur í sölu og leigu á atvinnuhúsnæði
Pantaðu verðmat eða skoðun - 534 1020 // sala@jofur.is
Lager- og iðnaðarhúsnæði
Stærð: 281,1 fm.
Verð: Tilboð óskast
Allar nánari upplýsingar veitir:
Bergsveinn Ólafsson
Löggiltur fasteigna-, fyrirtækja-
og skipasali, löggiltur leigumiðlari
og rekstrarfræðingur
863 5868 | 534 1028
bergsveinn@jofur.is
Fasteignir
ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
VEISTU
UM GÓÐAN
RAFVIRKJA?