Morgunblaðið - 22.02.2018, Page 50

Morgunblaðið - 22.02.2018, Page 50
50 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Breiðumörk 1c, 810Hveragerði / www.hotelork.is / booking@hotelork.is / sími: +354 4834700 / fax: +354 4834775 Fallegt umhverfi og fjölmargir möguleikar til afþreyingar tryggja betri fundarhlé. Fundarfriður áHótelÖrk ÁHótel Örk er öll aðstaða til fundahalda til fyrirmyndar. Starfsfólk okkar býr yfir mikilli reynslu og metnaði til að aðstoða stóra og litla hópa, fyrirtæki og félagasamtök við skipulagningu og undirbúning á fundum og ráðstefnum. Í viðleitni minni til að rekja afskiptaleysi formanns BÍ í málum landbúnaðarins er röðin komin að þeim þætti sem hefur orðið umbjóðendum hans til mests skaða en það er gerð síðasta bú- vörusamnings. Um miðjan níunda áratuginn þegar land- búnaðarframleiðslan var farin úr böndunum vegna offramleiðslu á landbúnaðarvörum, sem þá voru af- urðir nautgripa og sauðfjár, voru sett búvörulög. Þar er ríkinu veitt heimild til samninga við samtök bænda þar sem m.a. mátti kveða á um framleiðslumagn tiltekinna af- urða. Slíkir samningar voru strax gerðir og hafa síðan verið end- urnýjaðir með vissum breytingum á 5-8 ára millibili. Það eru þeir samningar sem nefndir eru búvöru- samningar. Eðli landbúnaðarins hefur tekið stökkbreytingum á þeim tíma þó að slíkt verði ekki sagt um alla þætti samninganna. Hverfum til nútímans með örlít- illi upprifjun. Árið 2014 var viðhorf almennings í landinu mjög jákvætt til landbúnaðarins. Hafði byggst upp frá hruninu. Við setningu Búnaðarþings það ár flutti Sig- urður Ingi frábært tilboð til bænda um endurskoðun samninga. For- maður BÍ beitti sér fyrir því að Búnaðarþing hafnaði því. Í kjölfar þess var af eðlilegum ástæðum engin hraðferð í að taka upp vinnu við gerð nýrra samninga hjá ríkinu. Bændur undir forystu formanns BÍ mættu til viðræðnanna án allrar forvinnu eða unninna tillagna, nema forystumenn LK höfðu unnið ákveðna vinnu í sínum málum. Í byrjun kom fram meðal bænda ákveðinn skoðanaágreiningur um málefni mjólkurframleiðslunnar. Formaðurinn ákvað þá að fresta þeim hluta um nokkur ár. Í árs- byrjun 2016 komst því gangur í samningagerðina. Yfir henni hvíldi að vísu ótrúleg launhyggja. Út frá því litla sem aðgengilegt var þá sá ég hvaða myrkraverk verið var að vinna og sendi Bændablaðinu grein, sem ekki fékkst birt þar og var upphaf hins raunverulega rit- banns blaðsins á skrif mín. Þar lagði ég ein- faldlega til að samn- ingum væri frestað meðan málið væri skoðað betur. Síðla í febrúar und- irrita ríkið og bænda- samtökin samning. Strax varð vart mik- illar andstöðu bænda og almennings gegn samningnum. Ég reyndi smávegis að höfða til þingmanna um að neita samningnum staðfestingar á Al- þingi. Loks um sumarið afgreiddi þingið samninginn. Það var mikill minnihluti þingmanna sem samt studdi málið, fleiri fjarverandi, greiddu ekki atkvæði eða voru mót- fallnir. Þingið samþykkti málið með breytingum sem þýða í raun að nýr samningur verður gerður á þessu og næsta ári. Sterkari er staða bænda ekki. Þetta mál breytti ótrú- lega viðhorfi almennings til ís- lensks landbúnaðar. Hér verða ekki ræddir nýir samningar. Stærstu málin bíða þar mjólkurframleiðenda. Stjórn á framleiðslu eða ekki, viðhorf til fjórðu tæknibyltingarinnar, sem er í dag eitt heitasta mál umræðu er- lendis en menn virðast ekki vilja kynna sér hérlendis, afstaða til hennar ræður samt úrslitum um þróun greinarinnar í framtíðinni, umhverfismálin þarfnast einnig grundvallarendurskoðunar. Hið grátlega í dag er að horfa á um- ræðuleysi íslenskra bænda um þessi mál sem öllu varða framtíð þeirra sjálfra. Formaður BÍ er stöðu sinna vegna skipaður til að vera í stafni slíkrar umræðu. Hinar alverlegu brotalamir nú- gildandi samnings hef ég mikið skrifað um sem þeir sem óska geta kynnt sér. Vil samt minnast á allra stærstu málin sem þarfnast grund- vallarendurskoðunar á núverandi samningi. Umhverfismálin eru þar efst á blaði. Margt í núverandi samningi gengur þar þvert á alla viðleitni til að draga úr loftslagsáhrifum fram- leiðslunnar. Beinast liggur þar við að benda á gripagreiðslur sem ganga þvert á öll slík sjónarmið. Einnig er þörf á einhverjum miklu gleggri skýringum á þeim stuðn- ingi við nautakjötsframleiðslu til framtíðar sem þar er boðuð ef hún á ekki að vera í hrópandi mótsögn. Skoða þarf miklu betur alla mögu- leika á samtengingu landvernd- araðgerða og stuðnings við dilka- kjötsframleiðslu. Landgreiðslur eru nýjung samn- inganna en útfærsla þeirra að mínu mati rugl. Beit hefur og verður ekki síður í framtíðinni snar þáttur íslensks landbúnaðar. Þetta er ein meginsérstaða landbúnaðar hér á landi. Að gera hana að engu eins og núverandi samningur gerir er því beint högg á öll framtíðarsjón- armið. Öllum er ljóst að stuðningur við sauðfjárframleiðslu er í huga al- mennings að hluta stuðningur við byggð í landinu. Núverandi samn- ingur er hins vegar aðför að þeirri sauðfjárrækt sem býr við besta land- og beitarnýtingu, er hag- kvæmust á grip og sjálfbærust en er yfirleitt staðsett þar sem byggð stendur höllustum fæti. Hann gengur því þvert á byggðasjón- armið og útfærsla hans aðhláturs- efni og rugl. Aðeins örfá mál nefnd. Öll eru þau samt aðför að framtíð íslensks landbúnaðar. Þetta eru afrek for- manns BÍ. Bændur hafa ekki efni á slíkum forystumanni, nóg hafa þeir þegar blætt. Það þarf nýja forystu, að unnið sé að málum og ný hugsun mótuð. Núverandi formaður BÍ talar í frösum og rugli. Frá núverandi for- manni hefur aldrei komið ný hugs- un. Hefur yfirleitt nokkru sinni komið heil hugsun frá honum? Gerð búvörusamninga Eftir Jón V. Jónmundsson » Aðeins örfá mál nefnd. Öll eru þau samt aðför að framtíð íslensks landbúnaðar. Þetta eru afrek formanns BÍ. Jón Viðar Jónmundsson Starfaði við gerð búvörusamninga frá byrjun og fram yfir aldamót. jvj111@outlook.com Samkvæmt gjalda- hlið fjárlagafrum- varps 2018 kemur fram að ríkisútgjöld nemi 818 ma.kr. Stærsti hluti ríkis- útgjalda fer til heil- brigðismála 209 ma.kr. eða 26% ann- ars vegar og hins vegar félags, hús- næði- og trygging- armála 211 ma.kr. eða 26%. Út- gjöld til mennta- og menningarmála eru áætluð 99 ma.kr. eða 12%. Þessir þrír mála- flokkar nema því 64% af heildar- ríkisútgjöldum. Ríkisútgjöld hafa aukist um 170 milljarða á sjö árum og virðast aukast stjórnlaust án nokkurrar hagræðingar eða auk- innar framleiðni. Þjónustustig og árangur í heilbrigðiskerfinu og menntakerfinu hefur á sama tíma aldrei verið minni. Lífeyrisskuld- bindingar ríkissjóðs hafa tvöfaldast á síðustu tíu árum og nema nú um 800 ma.kr. Lífeyrisskuldbindingar hins opinberra hafa aukist með miklum hraða vegna hækkunar á launum opinberra starfsmanna sem hafa hækkað um rúm 90% frá árinu 2007. Fíllinn í stofunni er ríkissjóður og embættismannakerf- ið sem hefur á undanförnum sjö árum ekki notað tækifærið til að greiða niður lífeyrisskuldbindingar eða hagrætt og aukið framleiðni í sínum rekstri. Það er með hreinum ólíkindum hvernig Alþingi Íslend- inga er haldið í heljargreipum óvenjumargra slakra alþing- ismanna sem virðast eiga erfitt með að vinna með uppbyggilegum hætti. Mestur tími fer í málþóf, út- úrsnúninga og lýðskrum fyrr- greindra þingmanna og er til há- borinnar skammar fyrir land og þjóð. Mikilvæg mál komast ekki á dagskrá og kostnaður samfélagsins sökum þess að miklar tafir verða á öðrum mikilvægum málum. Sjálf- skipaður hópur fólks sem gengur undir nafninu „góða fólkið“ hefur það helst unnið sér til frægðar að segja okkur hinum hvernig eigi að lifa lífinu, hvað sé pólitískt rétt og hvað orðið lýðræði stendur fyrir. Á sama tíma hefur það oft á tíðum verið á framfæri ríkissjóðs með einum eða öðrum hætti, sumir alla ævi og ekki þurft að takast á við alvörusamkeppni á einkamarkaði. Það hefur samt sterkar skoðanir á framúrskarandi íslenskum fyr- irtækjum sem hafa komist í fremstu röð á alþjóðlegum mörk- uðum og eru á heimsmælikvarða hvað rekstur snertir. Þessi ís- lensku alþjóðlegu fyrirtæki eru t.a.m. Samherji, Marel og Össur sem gætu örugglega tekið marga alþingismenn og opinbera starfs- menn í smá kennslustund í rekstri og hvernig á að ná árangri. Það gæti verið góð tilbreyting að bjóða íslenska embættismannakerfinu upp á námskeið í rekstri fyrir- tækja og stofnana í boði þessara frábæru fyrirtækja sem hafa oft þurft að sitja undir gagnrýni „góða fólksins.“ Getur ríkissjóður lært eitt- hvað af bestu fyrirtækjum landsins í fjármálastjórnun og rekstri? Það sem er sammerkt með bestu fyrirtækjum á Íslandi er að þau hófu starfsemi sína fyrir um 40 ár- um og hafa stöðugt bætt rekstur sinn og verið með skarpa framtíð- arsýn í sínum rekstri og eru núna öll í forystu á sínu sviði á alþjóð- legum mörkuðum. Samherji er ís- lenskt alþjóðlegt fyrirtæki í fremstu röð og leitun að slíku fyr- irtæki á heimsvísu sem hefur sýnt slíka framúrskarandi forystu og rekstrarhæfni í áhætturekstri en eigendur og stjórn- endur hafa verið stöð- ugt á tánum og sýnt fádæma útsjónarsemi í sínum rekstri. Stjórn- endur Samherja þurfa að vera stöðugt á tán- um þar sem miklir fjármunir eru bundnir í fastafjármunum og mikil óvissa er í fisk- veiðum auk þess sem sveiflur geta verið miklar í fiskverði. Óvissuþættir í rekstri sjávar- útvegsfyrirtækis eru fjölmargir og ekki fyrir alla að stýra slíkum áhætturekstri af myndarskap eins og Samherji hefur gert síðustu 30 árin enda fyrirtækin vaxið mikið og bætt rekstur sinn verulega. Ís- lensk alþjóðleg fyrirtæki sem hafa náð langt á alþjóðlegum mörk- uðum eru t.a.m. Marel og Össur. Marel varð til í umhverfi sjávar- útvegsfyrirtækja, afburða járn- smiða og verkfræðinga en fram- sýnir og framúrskarandi stjórnendur hafa síðan komið Mar- el í fremstu röð á heimsvísu. Össur er stoðtækjafyrirtæki sem hefur komist í fremstu röð með fram- úrskarandi vöruþróun og stjórn- endum. Ríkissjóður Íslands með ís- lenska embættismannakerfið í heilbrigðisráðuneytinu, velferð- arráðuneytinu og menntamála- ráðuneytinu gæti örugglega aukið færni sína og árangur mikið með því að kynna sér framúrskarandi rekstur þessara fyrirtækja en 64% af ríkisútgjöldum sem eru 524 ma.kr. fara í gegnum þessi þrjú útgjaldamestu ráðuneyti. Innleiða þarf nýja hugsun og byrja hagræð- inguna strax. Ríkiskerfinu virðist vera haldið í gíslingu og helj- argreipum embættismanna sem hindra ákvarðanir til að ná ár- angri. Á erlendum mörkuðum er oft talað um að hægt sé að verð- meta fyrirtæki í öfugu hlutfalli við stærð höfuðstöðva, því stærri höf- uðstöðvar því meiri hnignun sem hindrar mikilvægar ákvarðanir. Hvenær byrjar hagræðingin hjá ríkissjóði og stofnunum ríkisins? „Það kemur yfirleitt ekki í ljós hverjir eru naktir á ströndinni fyrr en fjarar út,“ segir Warren Buffet frægasti fjárfestir heims. Vonandi verður það ekki hlutskipti ríkis- sjóðs Íslands. Það hljóta margir að velta fyrir sér hvenær byrjað verð- ur á hagræðingu í rekstri ríkisins en krafa almennings og skattgreið- enda er að stjórnlaus aukning rík- isútgjalda stöðvist og hagræðing og virðisauki í þjónustustigi rík- isins aukist. Auka þarf möguleika einkarekinna rekstrarforma til að veita verðuga samkeppni á sem flestum sviðum en þannig má bæta þjónustustig og verðmætasköpun horft til framtíðar. Einnig þarf að greiða niður skuldir og lífeyris- skuldbindingar sem hækka stjórn- laust þrátt fyrir fullnýtta skatt- stofna og þá staðreynd að Ísland er á toppi hagsveiflunnar. Góða fólkið og fíllinn í stofunni Eftir Albert Þór Jónsson Albert Þór Jónsson » Fíllinn í stofunni er ríkissjóður og emb- ættismannakerfið sem hefur ekki notað tæki- færið til að greiða niður lífeyrisskuldbindingar eða hagrætt og aukið framleiðni í sínum rekstri. Höfundur er viðskiptafræðingur, MCF í fjármálum fyrirtækja með 30 ára starfsreynslu á fjármálamarkaði.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.