Morgunblaðið - 22.02.2018, Page 54

Morgunblaðið - 22.02.2018, Page 54
Rafeyri, sem er í grunn- inn fyrirtæki rafvirkja á Akureyri, stendur í stór- ræðum um þessar mundir. Að loknu stóru verkefni í Færeyjum tek- ur við uppbygging á Kúrileyjum við Kyrrahaf, um 10 þúsund kílómetra frá Akureyri Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Frá upphafi hefur þjónusta við út- gerð og fiskvinnslu verið grunn- stoðin í starfsemi rafverktakafyrir- tækisins Rafeyrar ehf. á Akureyri. Fyrirtækið hefur þó víða komið að störfum og má nefna vinnu fyrir RARIK, Landsnet og Lands- virkjun, nú síðast á Þeistareykjum, auk verkefna fyrir iðnfyrirtæki á Akureyri. Framundan eru verkefni við byggingu stórra uppsjávar- frystihúsa á Þvereyri á Suðurey í Færeyjum og á Shikotan á Kúril- eyjum austast í Rússlandi. Kristinn Hreinsson, fram- kvæmdastjóri Rafeyrar, segir að talsverð áskorun felist í verkefninu í Shikotan við framandi aðstæður meira en 10 þúsund þúsund kíló- metra frá Akureyri. „Þetta verður ævintýri sem endar vonandi vel eins og góð ævintýri gera,“ segir Krist- inn. Undirbúningur fyrir verkefnið austur við Kyrrahaf er í fullum gangi, en á einhverjum tímapunkt- um í sumar verða um 20 af 80 starfsmönnum Rafeyrar bundnir við vinnu á Kúrileyjum eða í ferðalög- um á milli Íslands og Shikotan. Reiknað er með fjórum vikum í vinnu á staðnum, viku í ferðalög og eðlilega kalla svo langar fjarvistir á frídaga þegar heim er komið. Til að kanna áhuga starfsmanna var sendur út listi til að kanna áhuga og aðstæður manna til fjar- veru í svo langan tíma, ekki ólíkt því sem gerist á stærstu frystitogurum. Áður hafði verið miðað við að starfs- menn væru yfirleitt ekki meira en 2-3 vikur við vinnu fjarri höfuð- stöðvunum á Akureyri. Flestir tilbúnir í slaginn „Við vissum ekkert um hug manna til þessa verkefnis og eðli- lega veltu menn ýmsu fyrir sér, til dæmis þáttum eins og löngum fjar- vistum, samskiptum á samfélags- miðlum eða í síma, tungumálinu, veðri og mataræði því margt er ólíkt á Kúrileyjum og á Akureyri. Niðurstaðan varð sú að flestir voru tilbúnir að taka slaginn, enda fylgja góðar tekjur svona verkefnum,“ segir Kristinn. Fyrirtækið var stofnað 1994 af sex starfsmönnum rafmagnsdeildar Slippstöðvarinnar, sem verið var að leggja niður. Þau skilaboð fylgdu breytingunum að ef sexmenning- arnir stofnuðu fyrirtæki myndu þeir ganga fyrir vinnu í Slippnum. Allt gekk þetta eftir og fyrirtækið hefur vaxið jafnt og þétt. Starfsmenn eru nú 65-70 yfir vetrartímann, en 80-85 yfir sumar- tímann. Fyrirtækið hefur sérhæft sig í sterkstraum og háspennuraf- virkjun, en minna sinnt húsaraf- magni. Um verkefnastöðuna segir Kristinn að mikið sé að gera næstu mánuði, en einhvern veginn hafi starfsemin þróast þannig að eitt hafi tekið við af öðru þó svo að stað- an eftir eitt ár liggi ekki fyrir. Mörg handtök og kílómetrar í lögnum Nokkurra vikna seinkun hefur orðið á framkvæmdum við frysti- húsið í Færeyjum, sem verður eitt það stærsta í heimi. Kristinn segir að þeir hafi ætlað að vera byrjaðir í Færeyjum, en nú geti farið svo að verkefnin þar og í Rússlandi skar- ist. Í þessum verkefnum sé Skaginn 3x með stærsta hluta búnaðarins og Kælismiðjan Frost sé einnig stór. Hlutur Rafeyrar gæti verið um 10%, en handtökin mörg og raf- lagnametrarnir mældir í kílómetr- um. Innanlands hefur Rafeyri tekið að sér verkefni um allt land. Erlendis hafa starfsmenn Rafeyrar unnið í Noregi og víðar, auk verkefna í Rússlandi og Færeyjum. „Ástkæra Akureyri er þó alltaf heimavöllurinn okkar, en með þennan starfsmanna- fjölda þurfum við að leita fyrir okk- ur víðar,“ segir Kristinn. Ævintýri sem vonandi endar vel Mörg handtök Kristján Valur Kristjánsson, starfsmaður Rafeyrar, við vinnu í uppsjávarfrystihúsi Eskju. Kristinn Hreinsson Framundan hjá starfsmönnum Rafeyrar eru meðal annars verkefni á Kúrileyjum. 54 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Leitar þú að traustu BÍLAVERKSTÆÐI Smiðjuvegur 30 (GUL GATA) | 200 Kópavogi Sími 587 1400 |www. motorstilling.is SMURÞJÓNUSTA < HJÓLBARÐAÞJÓNUSTA TÍMAPANTANIR 587 1400 Við erum sérhæfðir í viðgerðum á amerískum bílum. Mótorstilling býður almennar bílaviðgerðir fyrir allar tegundir bíla. Smiðjuvegi 66 • Kópavogi • 580 5800 • www.landvelar.isFuruvöllum 3 • Akureyri • 461 2288 Kamasa verkfæri – þessi sterku Á þriðjudag dúraði á loðnumið- unum fyrir sunnan land og fengu mörg skipanna góðan afla, að því er segir á heimasíðu Síldarvinnslunn- ar. Vilhelm Þorsteinsson EA kom til Neskaupstaðar í gærmorgun með 1.480 tonn og verður hluti aflans frystur fyrir Japansmarkað. Börkur NK var væntanlegur í kjöl- far Vilhelms með 1.430 tonn og er einnig ætlunin að afli hans fari í Japansfrystingu. Polar Amaroq skipaði frystri loðnu um borð í flutningaskip í Norðfjarðarhöfn á þriðjudag en hélt síðan til veiða norður fyrir land þar sem norski loðnuflotinn hefur haldið sig. Frysta loðnu fyrir Japansmarkað Rafvirkjar eru uppistaðan í starfsmannahópi Rafeyrar, en meðal réttindaheita sem starfsmenn hafa borið má nefna vélstjóra, vélvirkja, raf- vélavirkja, rafiðnfræðinga, iðnaðarrafvirkja, vélfræðinga, rafvélavirkjameistara og vélvirkjameistara. Sérstök tæknideild er starfrækt innan fyrirtækisins sem annast til- boðsgerð, teikni- og hönn- unarvinnu ásamt því að leiða tæknihluta verkefna. Undanfarið hafa 10-12 nem- ar í rafvirkjun starfað hjá Raf- eyri og segir Kristinn að fyr- irtækið eigi góð samskipti við Verkmenntaskólann á Akur- eyri. Mikil þróun hafi orðið í rafvirkjun á síðustu árum og á stundum séu óljós mörk á milli rafvirkjunar og raf- eindavirkjunar. Tæknibúin skip nútímans séu í raun fljótandi verksmiðja með miklar tölvustýringar, sem krefjist mikillar tækniþekk- ingar innan fyrirtækisins. – En hvernig skyldi kynja- skiptingin vera innan fyrir- tækisins? „Hér eru þrjár konur í fullu starfi. Tvær eru á skrifstofu og ein er að læra rafvirkjun. Óneitanlega er þetta mjög karllægt samfélag og ekki annað að gera en að hvetja konur til að læra fagið,“ segir Kristinn. Krefst mik- illar tækni- þekkingar FJÖLDI STARFSHEITA INNAN FYRIRTÆKISINS

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.