Morgunblaðið - 22.02.2018, Page 56
Hönnun Katrín Dóra hefur mikla reynslu í iðnaði og lætur til sín taka fyrir WETLAND um þessar mundir.
Elínrós Líndal
elinros@mbl.is
„Hjá Wetland er íslenska mokkaskinnið í
öndvegi og þar komum við Sunneva sterkar
inn. Sunneva hefur margra ára reynslu í
hönnun flíka úr íslensku skinni og ég hef rek-
ið fyrirtæki þar sem framleiddar voru töskur
úr leðri og skinni. Fyrsta vörulínan Wetland
samanstendur af treflum, slám og töskum úr
þessu skemmtilega hráefni,“ segir Katrín
Dóra.
Hún segir teymið skipta öllu máli þegar
verið er að stofna fyrirtæki. „Beta sér um
grafísku vinnuna, hún er mikill stílisti og er
annar að eigendum Volka sem hannar vörur
úr íslenskri ull þar sem grafíkin og ullin koma
saman. Ég var framkvæmdastjóri um árabil
hjá Sunneva Design sem er í eigu Sunnevu.“
Sjálfbærni
Katrín Dóra segir Wetland leggja áherslu á
sjálfbærni vörunnar, lambaskinnið sem er að-
alhráefnið í hönnuninni er sjálfbær vara þar
sem hún er aukaafurð sem fellur til við lamb-
kjötsframleiðslu. „Okkur finnst mjög mik-
ilvægt að nýta þetta glæsilega hráefni í okkar
vörur og berum óendanlega mikla virðingu
fyrir því. Eins og staðan er núna framleiðum
við vörurnar á Íslandi. Vörurnar eru saum-
aðar á litlum saumastofum bæði á höfuðborg-
arsvæðinu og fyrir norðan.“
Spurð um áhuga sinn á efninu hlær Katrín
og bendir á að allt frá því hún var ung
dreymdi hana um að verða sauðfjárrækt-
arráðunautur líkt og Ólafur Vagnsson og
blaðamanni leikur forvitni á að vita meira um
þennan draum. ,,Ég er alin upp á stóru sauð-
fjárbúi svo íslenska kindin hefur alltaf verið
mér kær.“
Þýskaland áhugaverður markaður
Katrín Dóra er með kennsluréttindi í fata-
hönnun, saum og sníðagerð. Hún er einnig
iðnrekstrarfræðingur og með MBA frá Há-
skólanum í Reykjavík. ,,Það er gamall
draumar að rætast þegar við stofnuðum Wet-
land en nafnið sækir örlítinn innblástur í
skoska hálanda- og herragarðsstemningu.“
Katrín segir vörumerkið eiga erindi á mark-
að víða, enda séu flíkur úr mokka einstaklega
hlýjar og léttar. Þær stefna að því að markaðs-
setja vöruna í Þýskalandi á næstu misserum.
,,Wetland er alþjóðlegt vörumerki sem er fáan-
legt í gegnum vefsíðuna okkar www.wetland.is
og er aðgengi að vörunni gott, þó að við séum
ekki að selja í stórum stíl í dag um allan heim.
Vörurnar kosta sitt og eiga erindi víða þar sem
fólk er tilbúið að kaupa gæðavörur á eðlilegu
verði.“
Vel að sér í iðnaði
Það heyrist glöggt þegar talað er við Katrínu
Dóru að hún er vel að sér í íslenskum iðnaði, en
hún starfaði í nokkur ár fyrir alþjóðlega iðn-
aðinn hjá Samtökum iðnaðarins. Hún segir
nokkuð upp á vanta með starfsumhverfi ís-
lenskra hönnunarfyrirtækja. „Við þurfum á
fleiri áhugaverðum hönnunarfyrirtækjum að
halda í landinu, enda hafa rannsóknir sýnt að
fólk vill fleiri skapandi störf. Ég sé fyrir mér
fjölmörg tækifæri hér í framtíðinni, enda erum
við að vinna vandaðan og vel hannaðan fatnað
víða á landinu.“
Viðurkenning mikilvæg
WETLAND hlaut fyrir áramótin viðurkenn-
inguna „Award of Excellence 2017“.
Verðlaunin eru veitt af Icelandic lamb til
samstarfsaðila er þykja hafa skarað fram úr í
hönnun og handverki úr sauðfjárafurðum.
Katrín segir að viðurkenning fyrir vinnuna sé
mikilvæg fyrir vörumerkið og gefi því gæða-
stimpil. „Við höfum mikinn áhuga á að tengjast
ferðamannaiðnaðinum í náinni framtíð, enda
má segja að sá iðnaður sé kominn hvað lengst í
þekkingu á sölu og markaðssetningu á netinu á
alþjóðavísu og sjáum við gríðarlega tækifæri í
þannig samstarfi þar sem varan okkar hefur
svo sterka menningararfleið. Við sjáum bæði
Dani og Svía standa sig vel í hönnunariðnaði,
íslensk sköpun er útflutningsvara í mörgum
greinum og hví ættum við ekki að geta komið
fleiri flottum fyrirtækjum á kortið?“
Wetland-vörurnar eru nú þegar fáanlegar í
gegnum vefsíðuna okkar www.wetland.is
„Íslenska
kindin hefur
alltaf verið
mér kær“
Wetland er nýtt íslenskt hönnunarmerki sem
framleiðir vandaðar og fallegar lífsstílsvörur,
hannaðar undir norrænum áhrifum og sér-
hæfir sig í hönnun á vörum úr íslensku
lambaskinni (mokka). Snið eru einföld og
klassísk þar sem innblásturs er leitað í feg-
urð og dulúð íslenskrar náttúru. Hráefni og
hönnun haldast í hendur og mynda tíma-
lausa vöru sem endist kynslóð fram af
kynslóð. Eigendur vörumerkisins Wetland
eru Sigríður Sunneva Vigfúsdóttir fata-
hönnuður, Elísabet Jónsdóttir, grafískur
hönnuður, og Katrín Dóra Þorsteinsdóttir
MBA, rekstrar- og viðskiptafræðingur.
Katrín Dóra segir að teymið skipti máli
þegar fyrirtæki er stofnað.
Morgunblaðið/Hanna
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Laugavegi 26
NÝTT MERKI