Morgunblaðið - 22.02.2018, Page 62

Morgunblaðið - 22.02.2018, Page 62
62 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Skútan Sjá verð og verðdæmi á heimasíðu okkar www.veislulist.is Fagnaðir Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar. PINNAMATUR Veislur eru okkar list! Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta Pinna- og tapasréttir eru afgreiddir á einnota fötum, klárt fyrir veisluborðið. Þóra Sigurðardóttir thora@mbl.is „Ég stóð á tímamótum og ákvað að fara að æfa fitness,“ segir Bára Jóns- dóttir, margfaldur fitnessmeistari sem gerði sér lítið fyrir á sínu fyrsta móti og vann þrjá titla. Bára var alls óþekkt enda einungis búin að æfa íþróttina í fimm mánuði. „Ég var samt í ágætis formi enda búin að æfa súlufimi í þrjú ár en þar byggir mað- ur upp mjög góðan vöðvamassa,“ segir Bára af mikilli hógværð en ár- angurinn er engu að síður óheyrður. Bára starfar sem flugfreyja en þess á milli æfir hún af kappi hvar sem hún er stödd í heiminum. Fær súkkulaði áður en hún fer upp á svið Bára er þessa dagana að æfa fyrir Arnold-leikana sem fara fram í Bandaríkjunum eftir viku. Í aðdrag- anda móts þurfa keppendur að skera niður alla fitu og allt er gert til þess að draga fram vöðvana og gera þá sýnilegri. Bára segir þetta ferli þó ekki nándar nærri jafn óbærilegt eins og oft hefur verið af látið. „Dag- inn fyrir mót gerir maður til dæmis ekkert annað en að borða. Helst bara að liggja upp í rúmi og troða í sig all- an daginn. Svo á mótsdeginum sjálf- um líður manni ótrúlega vel og ég hefði eiginlega bara ekki trúað því. Svo fékk ég meira að segja súkkulaði áður en ég fór upp á svið en sykurinn þenur út æðarnar þannig að þær sjá- ist betur,“ segir hún hlæjandi og blæs á allar sögur um að fólk staulist upp á svið aðframkomið af hungri. Algjör sælgætisgrís Bára segir að veikleiki sinn sé ekki matur heldur sætindi. „Mér er eig- inlega alveg sama um mat en sætindi eru minn veikleiki. Ég er almennt með einn nammidag í viku en síðasta mánuðinn tek ég hann út,“ segir Bára. Er það ekkert erfitt? „Nei, ef ég svindla þá er ég að eyðileggja fyrir sjálfri mér og markmið mín. Ég hef borðað súkkulaði fyrir lífstíð – ég get beðið í mánuð,“ bætir hún við bros- andi. Með besta þjálfarann Bára segir að árangurinn sé ekki síst tilkominn þar sem hún sé með frábæran þjálfara en þjálfari henn- ar, Konráð Valur Gíslason, fer út með ellefu keppendur á mótið. „Ástæðan fyrir því að ég ákvað að keppa var að ég komst í þjálfun til Konna. Ég hefði líklegast hætt við allt fitnessið ef hann hefði ekki kom- ið mér að. Mig langaði að keppa en vildi einungis gera það undir hans þjálfun.“ Þessa síðustu daga er mikill daga- munur á því hvernig Bára borðar. Annan hvern dag borðar hún mjög kolvetnasnautt en hinn daginn má hún aðeins meira. „Þá fæ ég mér pönnukökurnar mínar sem eru það langvinsælasta sem ég hef gert. Það er endalaust verið að biðja um upp- skriftina á snappinu,“ segir Bára sem deilir hér uppskriftinni með les- endum. Prótein-pönnukökur Báru 1 banani 40 g hafrar 1 skeið prótein 2 eggjahvitur Ég leik mér svolítið með þetta eftir því hvort ég er að skera niður fyrir mót eða ekki. Ég t.d. nota eggjahvit- ur í stað eggja í niðurskurði því ég borða egg og möndlur sem millimál yfir daginn og þá er óþarfi að hafa rauðuna með í pönnsunum líka. Svo er ég fyrir mót bara með hálf- an banana og 25 gr hafra. Annars er ég venjulega með 40 gr af höfrum og heilan banana. Próteinið finnst mér gera aðal- bragðið. Persónulega finnst mér súkkulaði- og hnetusmjörsbragð eða karmelu-toffeebragð vera best. Þetta er 100% whey optimum nutrition prótín frá Perform. Svo er hægt að finna allskonar sykurlaus síróp sem eru mjög góð út á og setja svo bláber yfir eða þurrkuð trönuber og möndl- ur. Pönnukökurnar eru steiktar í stutta stund á pönnu og þá eru þær tilbúnar. Fitness-pönnukökurnar sem allir eru sjúkir í Morgunblaðið/Eggert Hafragrauturinn vék Bára elskar pönnukök- urnar og segist hætt að borða hefðbundinn hafragraut eftir að hún prófaði þær. Bára Jónsdóttir kom, sá og sigr- aði á síðasta bikarmóti í fitness en það sem þótti stórmerkilegt var að hún var einungis búin að æfa íþróttina í fimm mánuði. Þetta er fáheyrður árangur.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.