Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 62
62
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Hólshraun 3 · 220Hafnarfjörður · Símar: 555-1810, 565-1810 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is
Skútan
Sjá verð og verðdæmi
á heimasíðu okkar
www.veislulist.is
Fagnaðir
Næst þegar þið þurfið pinnamat, smurt brauð eða tertur
fyrir útskriftina eða annan mannfagnað, hafðu þá
samband og fáðu tilboð í sal okkar og veitingarnar þínar.
PINNAMATUR
Veislur eru
okkar list!
Bjóðum uppá fjölda tegundapinnamats og tapasrétta
Pinna- og tapasréttir
eru afgreiddir á
einnota fötum,
klárt fyrir veisluborðið.
Þóra Sigurðardóttir
thora@mbl.is
„Ég stóð á tímamótum og ákvað að
fara að æfa fitness,“ segir Bára Jóns-
dóttir, margfaldur fitnessmeistari
sem gerði sér lítið fyrir á sínu fyrsta
móti og vann þrjá titla. Bára var alls
óþekkt enda einungis búin að æfa
íþróttina í fimm mánuði. „Ég var
samt í ágætis formi enda búin að æfa
súlufimi í þrjú ár en þar byggir mað-
ur upp mjög góðan vöðvamassa,“
segir Bára af mikilli hógværð en ár-
angurinn er engu að síður óheyrður.
Bára starfar sem flugfreyja en þess á
milli æfir hún af kappi hvar sem hún
er stödd í heiminum.
Fær súkkulaði áður
en hún fer upp á svið
Bára er þessa dagana að æfa fyrir
Arnold-leikana sem fara fram í
Bandaríkjunum eftir viku. Í aðdrag-
anda móts þurfa keppendur að skera
niður alla fitu og allt er gert til þess
að draga fram vöðvana og gera þá
sýnilegri. Bára segir þetta ferli þó
ekki nándar nærri jafn óbærilegt
eins og oft hefur verið af látið. „Dag-
inn fyrir mót gerir maður til dæmis
ekkert annað en að borða. Helst bara
að liggja upp í rúmi og troða í sig all-
an daginn. Svo á mótsdeginum sjálf-
um líður manni ótrúlega vel og ég
hefði eiginlega bara ekki trúað því.
Svo fékk ég meira að segja súkkulaði
áður en ég fór upp á svið en sykurinn
þenur út æðarnar þannig að þær sjá-
ist betur,“ segir hún hlæjandi og
blæs á allar sögur um að fólk staulist
upp á svið aðframkomið af hungri.
Algjör sælgætisgrís
Bára segir að veikleiki sinn sé ekki
matur heldur sætindi. „Mér er eig-
inlega alveg sama um mat en sætindi
eru minn veikleiki. Ég er almennt
með einn nammidag í viku en síðasta
mánuðinn tek ég hann út,“ segir
Bára. Er það ekkert erfitt? „Nei, ef
ég svindla þá er ég að eyðileggja fyrir
sjálfri mér og markmið mín. Ég hef
borðað súkkulaði fyrir lífstíð – ég get
beðið í mánuð,“ bætir hún við bros-
andi.
Með besta þjálfarann
Bára segir að árangurinn sé ekki
síst tilkominn þar sem hún sé með
frábæran þjálfara en þjálfari henn-
ar, Konráð Valur Gíslason, fer út
með ellefu keppendur á mótið.
„Ástæðan fyrir því að ég ákvað að
keppa var að ég komst í þjálfun til
Konna. Ég hefði líklegast hætt við
allt fitnessið ef hann hefði ekki kom-
ið mér að. Mig langaði að keppa en
vildi einungis gera það undir hans
þjálfun.“
Þessa síðustu daga er mikill daga-
munur á því hvernig Bára borðar.
Annan hvern dag borðar hún mjög
kolvetnasnautt en hinn daginn má
hún aðeins meira. „Þá fæ ég mér
pönnukökurnar mínar sem eru það
langvinsælasta sem ég hef gert. Það
er endalaust verið að biðja um upp-
skriftina á snappinu,“ segir Bára sem
deilir hér uppskriftinni með les-
endum.
Prótein-pönnukökur Báru
1 banani
40 g hafrar
1 skeið prótein
2 eggjahvitur
Ég leik mér svolítið með þetta eftir
því hvort ég er að skera niður fyrir
mót eða ekki. Ég t.d. nota eggjahvit-
ur í stað eggja í niðurskurði því ég
borða egg og möndlur sem millimál
yfir daginn og þá er óþarfi að hafa
rauðuna með í pönnsunum líka.
Svo er ég fyrir mót bara með hálf-
an banana og 25 gr hafra. Annars er
ég venjulega með 40 gr af höfrum og
heilan banana.
Próteinið finnst mér gera aðal-
bragðið. Persónulega finnst mér
súkkulaði- og hnetusmjörsbragð eða
karmelu-toffeebragð vera best. Þetta
er 100% whey optimum nutrition
prótín frá Perform. Svo er hægt að
finna allskonar sykurlaus síróp sem
eru mjög góð út á og setja svo bláber
yfir eða þurrkuð trönuber og möndl-
ur.
Pönnukökurnar eru steiktar í
stutta stund á pönnu og þá eru þær
tilbúnar.
Fitness-pönnukökurnar
sem allir eru sjúkir í
Morgunblaðið/Eggert
Hafragrauturinn vék
Bára elskar pönnukök-
urnar og segist hætt að
borða hefðbundinn
hafragraut eftir að
hún prófaði þær.
Bára Jónsdóttir kom, sá og sigr-
aði á síðasta bikarmóti í fitness
en það sem þótti stórmerkilegt
var að hún var einungis búin að
æfa íþróttina í fimm mánuði.
Þetta er fáheyrður árangur.