Morgunblaðið - 22.02.2018, Side 72
72
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Jón Agnar Ólason
jonagnar@mbl.is
„Þessi heimur er orðinn dálítíð
skemmtilegt mix,“ segir Sölvi Snær
þegar við setjumst yfir kaffibolla til
að ræða og reifa herratískuna um
þessar mundir, og hvert hún stefni á
næstu mánuðum og misserum. Upp á
síðkastið hefur herrastíllinn í aukn-
um mæli verið stílfærður bræðingur
af klassískri herratísku, íþróttafatn-
aði, hjólabrettastíl, útivistarfatnaði,
vinnufatnaði og nánast hverju því
sem mönnum dettur í hug að henda
saman. Stóra spurningin er ekki hvað
má – því allt má – heldur hvort þessi
hrærigrautur er kominn til að vera.
Erum við herramennirnir búnir að
fleygja burt öllum skilum á milli fínni
fata, íþróttafata, útivistarfata og svo
framvegis? Gengur allt með öllu, og
það um ókomna tíð? Okkar Sölva
bíða hér stór álitamál sem krefjast
vandlegrar skoðunar.
Týndi sonurinn er kominn heim
Það má segja að Sölvi Snær sé bú-
inn að loka ákveðnum hring. Eftir
rúmlega 15 ára fjarveru er hann
kominn aftur til NTC, tískuversl-
anasamstæðunnar sem rekur versl-
anirnar Gallerí Sautján, Kultur og
Kultur Menn, Smash og GK Reykja-
vík, en hann starfaði um langt árabil
hjá NTC sem verslunarstjóri, inn-
kaupastjóri og hönnuður. Nú er hann
semsé kominn aftur „heim“ og um
síðustu mánaðamót tók hann við sem
„Creative director“ hjá NTC, eða
skapandi framkvæmdastjóri eins og
það útleggst á íslensku.Það þýðir að
hann kemur að markaðsmálum, útliti
verslana, innkaupum og framleiðslu.
Síðast gegndi hann svipuðum titli hjá
Ellingsen og þar tókst honum með
áberandi hætti að tengja gamalgróna
útivistar- og vinnufataverslun inn í
dags daglegan lífstíl Íslendinga, ekki
síst ungmenna. Það hefði einhvern
tíma þótt saga til næsta bæjar að
tískumeðvituð ungmenni klæddust
húfum og hettupeysum merktum Ell-
ingsen, en það er engu að síður stað-
reynd. Eins og Sölvi bendir á er það
sama uppi á teningnum víða um heim
tískunnar – þessi ófyrirséða skörun
milli áðurnefndra flokka fatnaðar.
„Það voru þrjár tískusýningar með
línum fyrir næsta haust sem eru
mjög áberandi í umræðunni,“ bendir
Sölvi á. „Það er Raf Simons fyrir
Calvin Klein, það er lokasýning Chri-
stopher Bailey fyrir Burberry og svo
lokasýning Kim Jones fyrir Louis
Vuitton. Þar er allstaðar mjög áber-
andi áhrif eða tengingar við útivist-
arfatnað. Þessir gæjar voru allir öðr-
um hvorum megin við tvítugt þegar
streetwear-tískan ruddi sér til rúms
um miðjan tíunda áratug síðustu ald-
ar og þessi áhrif eru að koma mjög
sterkt inn í tískuna núna. Þetta end-
urspeglast í ýmsum merkjum sem
við erum með hjá NTC, eins og J
Lindeberg. Þar erum við með töff
herralínu, golflínu, skíðalínu og svo
mixa þeir þessu saman þegar lín-
urnar eru sýndar á tískupöllunum.“
Þegar haft er í huga að skotleyfið
er nánast algert í heimi herratísk-
unnar um þessar mundir og mögu-
leikarnir eftir því óþrjótandi, er þetta
ekki svolítið gott móment til að detta
aftur inn í tískubransann? Sölvi bros-
ir við og svarar þannig í rauninni
spurningunni áður en hann tekur til
máls. „Það er svolítið ástæðan fyrir
því að ég kom til baka hingað. Í raun-
inni getum við litið á tíma minn hjá
Ellingsen, og hann var frábær, sem
smá æfingabúðir fyrir endurkomuna
inn í tískuheiminn aftur. Bootcamp til
að gera mig kláran, koma mér í gír-
inn aftur fyrir hringiðuna.“ Það voru
efasemdir um ýmis verkefni sem
Sölvi setti í gang; hver myndi kaupa
fatnað merktan Ellingsen, sem sló
svo heldur betur í gegn.
Hundruð íslenskra ungmenna,
eins og átti eftir að koma á daginn.
Svava Johansen, framkvæmda-
stjóri NTC, fylgdist eflaust með
starfsmanninum fyrrverandi og
hugsaði með sér að strákurinn væri
enn þá með‘etta. Ekki satt?
Sölvi brosir út í annað og sýpur á
kaffinu. Kaffisopi er sama og sam-
þykki, hugsa ég með mér.
„Við getum sagt að í raun og veru
fannst mér skemmtilegasti parturinn
af Ellingsen-verkefninu kominn, og
búðin komin á þann stað að ég var
tilbúinn að láta öðrum eftir að halda
verkefninu við. Mér fannst um leið
mjög spennandi að komast í nýtt
verkefni sem snýst um einar fimmtán
verslanir í tískubransanum og finna
þar tækifæri til að gera góða hluti
enn betri. Framleiðsla, innkaup,
markaðsmál, þetta eru allt ótrúlega
spennandi hlutir sem ég fæ að vinna
með því góða fólki sem fyrir er.“
Góðkunningi verður tvítugur
Sölvi hætti hjá NTC um áramótin
2001-2002 og stofnaði tískuversl-
unina Retro, sem var fljót að gera sig
gildandi í umræðunni hér heima.
Reyndar svo mjög að NTC keypti
fyrirtækið árið 2005. Nú þegar hann
er búinn að koma sér fyrir á kont-
órnum inni á gafli hjá gamla vinnu-
veitandanum á ný – er þetta sama
fyrirtækið og hann yfirgaf á sínum
tíma?
„Ýmislegt er breytt, annað er
kunnuglegt. Verslunin Deres er
hætt, verslunin GK komin inn í NTC
hópinn. MAO merkið, sem ég bjó til á
sínum tíma og var framleitt fyrir
Sautján-búðirnar, það hefur lifað öll
þessi ár og er ennþá til. Þar er ég að
hitta gamlan kunningja aftur, getum
við sagt, og ég er að spá í að gera 20
ára afmælis-collection næsta haust
því MAO verður einmitt 20 ára
seinna á árinu.“
Tískan hefur semsé gengið áfram
sinn vanagang meðan Sölvi hafði öðr-
um hnöppum að hneppa. Ýmislegt
hefur gengið á síðustu 15 árin í þeim
efnum, svo ekki sé fastar að orði
kveðið, og hefur þar skipst á sumt
gott og annað miður, eins og gengur.
En kom einhvern tímann tímabil eða
tiltekinn stíll sem fékk Sölva til að
hugsa sem svo, að nú væri hann
sannarlega til í að vera í bransanum –
nú væru skemmtilegir hlutir að ger-
ast á þeim vígstöðvum? Hann hugsar
til baka, flettir í úrklippubók hugans
og rifjar upp eitt og annað, meðan ég
bíð átekta.
„Það má eiginlega segja að flest
árin hafi ég nú verið spenntur fyrir
bransanum, þar sem ég fylgdist með
á hliðarlínunni. Þetta hefur alltaf ver-
ið mitt áhugamál númer eitt. Þó kom
mjög skemmtilegt tímabil hjá Kor-
máki & Skildi og Geysi á að giska
2012 eða 2013, með eftirminnilegum
tískusýningum og blaðaútgáfu.“
Innrás götutískunnar
inn í klassíkina
En merkilegast fannst Sölva engu
að síður að fylgjast með innrás
streetwear-fatnaðar inn í klassíska
heiminn, nokkuð sem er allsráðandi
um þessar mundir. Hann nefnir til að
mynda að öll stærstu merki heimsins
eru til að mynda farin að keppa á
strigaskó-markaðnum, og nægir í því
sambandi að nefna Gucci, Louis Vuit-
ton og Balenciaga. „Þetta er bara
þróun á síðustu 2-3 árum, sem þetta
er að gerast, og það kveikti svolítið í
mér því þetta er á vissan hátt að ríma
við það sem við vorum að gera 9́5-́96
þegar við hjá NTC opnuðum Smash.
Við sóttum innblástur í hiphop menn-
inguna og hjólabrettastílinn sem er í
rauninni orðinn meginstraumsstíllinn
í dag. Þess vegna þekkjum við ele-
mentin á sinn hátt og skiljum hvað
knýr þessa hreyfingu áfram.“
Þar sem við Sölvi erum jafnaldrar
tengi ég við það sem hann segir. Eftir
tiltölulega íhaldssöm og klassísk
menntaskólaár hvað persónulega
fatatísku varðaði, brá svo við í kring-
um 1995 að undirritaður fór að sækja
í buxur sem voru hreinn og klár
vinnufatnaður; Carhartt og Dickies
voru merkin sem Sölvi seldi blaða-
manni, löngu áður en við urðum í
reynd málkunnugir, í bland við merki
undir áhrifum götustískunnar á borð
við Diesel, Loaf og Combo. Þetta
voru það sem kallast góðir tímar.
Þarna varð fyrst til einhvers konar
bræðingur úr tískufatnaði og vinnu-
fatnaði. Í dag er þessi jaðarstemning
orðin allsráðandi í bland við ennþá
fleiri áhrif. Það er bókstaflega allt að
gerast.
Komið til að vera – en ...
„Það er einmitt það sem er að ger-
ast,“ tekur Sölvi undir. „Okkar kyn-
slóð er að leyfa sér alls konar æfingar
og það er verið að mixa öllu saman.“
Miðaldra gaurar mega semsagt gera
það sem þeim sýnist – það er ekki
einkamál yngstu kynslóðarinnar
lengur. En er bræðingurinn komin til
að vera? Verður dagskipunin „gerðu
bara það sem þú vilt“ ríkjandi áfram?
Sölvi er hreint ekki frá því.
„Miðað við helstu herralínurnar
fyrir næsta haust þá er allt í boði.“
Þar höfum við það.
„En ...“ segir Sölvi íbygginn.
Hananú. Hér kemur það.
„Það sem gerist oft eftir slíka orgíu
af litum, sniðum og stílum, er að
minimalisminn kemur í kjölfarið sem
andsvar.“
Þannig rúllar bara alheimurinn.
Líka herratískan. „Action/reaction.“
Hið kosmíska gangverk lætur ekki
að sér hæða.
„Þetta gerðist líka upp úr hinu hip-
hop-smitaða æði sem sprakk út um
1996. Í kjölfarið kom Prada með
mjög naumhyggjulega sportlínu þar
sem litir voru dökkir, mest svart og
dimmgrátt, sniðin einföld og skörp,
yfirbragðið alvarlegt. Prada er ein-
mitt á mikilli siglingu núna og það
gæti vel verið að þau muni taka við af
þessu bóhema-mixi sem allt snýst um
núna.“
Það væri þá ekki í fyrsta skipti
sem frú Miuccia sneri heiminum á
haus. Annað eins hefur hún gert.
„Get fundið mér
eitthvað í öllum búðunum“
Eins og gefur að skilja er hver
verslun innan NTC-samsteypunnar
með sinn prófíl, sínar áherslur og
sinn stíl. Og þar komum við að loka-
prófinu á því hvort allt sé leyfilegt og
allt sem við leyfum okkur gangi upp.
Myndi Sölvi geta fundið sér eitt-
hvað í hverri búð sem NTC rekur?
Án þess að hugsa sig um svarar hann
því játandi.
„Ég fór í Smash og keypti mér
Jordan Air Force One, þessa klass-
ísku hvítu, og svo keypti ég mér Adi-
das bómullarpeysu sem minnir tals-
vert á Austur-Evrópu lúkkið sem
Vétements hafa verið að vinna með. Í
Kultur Menn er önnur hver flík af því
tagi að ég gæti hugsað mér að eiga
hana og Sautján er endalaus upp-
spretta af fallegum fötum.“ Og þar
með telst Sölvi hafa sannað mál sitt.
„Málið er að tabúin eru að þurrk-
ast út. Ef þér líst á eitthvað, þú hefur
gaman af því og það gefur þér lífsfyll-
ingu á einhvern hátt, þá gerirðu það
bara. Það er ekki verið að hólfa menn
niður í box eins og hefur verið.“
Og þar komum við að kjarna máls-
ins, lesandi góður.
Boxið er alveg farið.
„Boxið er alveg farið“
Fyrir þá sem til þekkja
eru nokkur tíðindi fólgin
í því að Sölvi Snær
Magnússon sé kominn
aftur til starfa hjá NTC
og því tvöföld ástæða til
að taka hann í þétt
herratískuspjall.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Frelsi „Málið er að tabúin eru að þurrkast út. Ef þér líst á eitthvað, þú hefur gaman af því og það gefur þér lífsfyll-
ingu á einhvern hátt, þá gerirðu það bara. Það er ekki verið að hólfa menn niður í box eins og hefur verið,“ segir
Sölvi Snær Magnússon, nýráðinn skapandi framkvæmdastjóri hjá NTC samstæðunni.
HERRATÍSKA
Íshúsið ehf ∑ Smiðjuvegur 4a, græn gata, 200 Kópavogur
viftur.is
-andaðuléttar
hljóðlátu baðvifturnar
Stundum þarf maður
bara smá frið