Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 75

Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 75
MINNINGAR 75 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 ✝ Pétur Sigurðs-son fæddist 9. mars 1950 í Reykjavík. Hann lést á hjúkrunar- heimilinu Skógar- bæ 15. febrúar 2018. Foreldrar hans voru Sigurður Þor- kelsson, f. 1. febr- úar 1914, d. 6. sept- ember 1984, og Else Þorkelsson, f. 12. apríl 1919, d. 2. september 2009. Pétur var yngstur þriggja bræðra. Bræður eru Björn, f. 1943, og Einar, f. 1944. 3. nóvember 1973 kvæntist hann Jóhönnu Ólafsdóttur, f. 4. desember 1947 í Reykjavík. lauk BS-próf í efnafræði frá Há- skóla Íslands 1974. Pétur stund- aði framhaldsnám í efnisfræði og málmprófunum í Englandi árin 1977-78. Pétur starfaði hjá Iðntækni- stofnun á árunum 1974-82. Hann kenndi efnisfræði málma við Tækniskóla Íslands í 20 ár ásamt því að gefa út kennsluefni í faginu. Árið 1982 hóf Pétur sjálf- stæðan rekstur við ráðgjöf og eftirlit í málmiðnaði. Árið 2014 tók sonur hans við fyrirtækinu. Pétur var einn af stofnendum Málmsuðufélags Íslands árið 1983. Pétur gekk til liðs við Odd- fellowstúku nr. 12 Skúla fógeta árið 1984. Árið 1996 tók hann þátt í að stofna Oddfellowstúku nr. 21 Þorlák Helga. Pétur var virkur félagi og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum þar. Útför Péturs fer fram frá Grafarvogskirkju í dag, 22. febrúar 2018, klukkan 13. Börn þeirra eru 1) Helgi Pétursson f. 30. september 1972, kvæntur Guðnýju Unni Jökulsdóttur, f. 13. maí 1969. Þau eiga tvö börn; Ágúst Benóný og Atla Stefán. 2) Tryggvi Pétursson f. 6. febrúar 1975, kvæntur Kristínu Hrönn Guðmunds- dóttur, f. 12. febrúar 1976. Þau eiga þrjú börn; Katrínu Ingu, Ólaf Kára og Viktoríu Helgu. 3) Þorkell Pétursson f. 9. janúar 1982. Pétur ólst upp á Birkimel í Reykjavík. Hann útskrifaðist sem stúdent frá MR árið 1970 og Ég hef oft hugsað hversu mikið ég datt í lukkupottinn þegar ég kynntist eiginmanni mínum en ekki síður með hvað ég var heppin með tengdafor- eldra. Nú er tengdafaðir minn fallinn frá og ég vil minnast hans í stuttu máli. Pétur var hörkuduglegur, stoppaði aldrei og áorkaði miklu, en þó ekki með neinum látum. Svo til nýútskrifaður úr há- skóla keypti hann ásamt Jó- hönnu sumarbústaðarlóð og þau girtu hana af. Hann fór í framhaldsnám til Englands. Þegar heim var komið byggðu þau sumarbústaðinn og svo ein- býlishús við hlið sumarbústað- arlands foreldra Péturs í Graf- arvoginum. Allt var byggt af mikilli skyn- semi og farið eftir fjárhag hverju sinni. Sumarbústaðurinn hefur allt- af verið mikilvægur fjölskyld- unni, oftast var safnast þar sam- an á páskum, falin páskaegg, og svo má ekki gleyma hinum ár- legu kartöfluniðursetningum og -uppskerum. Rétta nafn sumarbústaðarins er Vonarholt en það heyrðist að nágrannarnir kölluðu hann Kaffistofuna því svo mikið var stöðugt verið að dytta að, planta gróðri, klippa tré og viðhalda hlutunum að lítill tími gafst til að hanga inni í bústað. Byggt var við bústaðinn og bætt við heitum potti og þá fjölgaði ánægjustundunum þar, í réttum takti við fjölgun afkom- endanna. Margar ánægjustundir hef ég haft með Pétri og Jóhönnu og fyrir utan sumarbústaðarferð- irnar má þar nefna ferðalögin, innan lands sem utan. Göngur á Fimmvörðuháls og Heklu standa upp úr, sem og Flórídaferðir og ferðin til Dubai fyrir rétt rúmu ári. Ég þakka Pétri samfylgdina. Minning hans lifir. Guðný Unnur. Pétur vinur okkar og félagi er látinn. Ekki bar það brátt að en sárt er það engu að síður og hrærist nú upp í minningabrunninum. Það var vorið 1971 sem við nokkrir félagar úr efnafræði- námi víð HÍ tókum upp á því að spila bridge tvisvar í mánuði. Hlé var þó gert á spila- mennskunni í rúman áratug á meðan menn sinntu sérnámi er- lendis en upp var tekinn þráð- urinn nokkru eftir að sá síðasti skilaði sér aftur til landsins. Geirfugl var klúbburinn kallaður að tillögu Péturs því að um þær mundir var safnað fé til kaupa á „síðasta geirfuglinum“ sem var á uppboði í London. Pétur var lykilmaður í hópn- um, hélt utan um spilabókhald og fjárreiður spilaklúbbsins Geirfugls lengst af og annaðist greiðslur fyrir heimshornaflakk klúbbfélaga. Hann stjórnaði árshátíðahaldi klúbbsins og lagði margt gott til málanna meðan við hinir sáum um eldamennsku og hristum saman görótta kokkteila, en jarðarberin voru þó hans sér- grein. Það var alltaf notalegt að koma í Funafoldina þar sem dönsk „hygge“ ríkti hjá þeim hjónum. Pétur var slyngur spila- maður og mjög vel læs á stöð- una. Víst er að enginn okkar hefur sagt og staðið þrjú grönd jafn oft og Pétur. Vandmeðfarin snilldarsögn á veik spil og þar var Pétur færastur. Við söknum góðs félaga og vottum Jóhönnu og sonunum samúð á erfiðum tímum. Guðmundur, Kristján, Ólafur og Sigurður. Pétur minn. Þetta voru upp- hafsorð þegar Pétur var ávarp- aður í Klíkunni. Klíkan ferðaðist saman um óbyggðir og vítt og breitt um landið og gerði sér oft dagamun af margs konar tilefni. Það var gott að ferðast með Pétri og sitja í bíl með honum því að hann var einstaklega af- slappaður við aksturinn. Þegar ferðast var með honum varð hann að stoppa við brýr og at- huga brúarstöpla og ryð undir brúm. Minnisstætt er þegar Pétur sló upp dansiballi við Sesseljuvík og þar voru dansaðir gömlu dansarnir við harmonikkutóna. Pétur var mikill gestgjafi og veitti vel köflótta drykki eins og í fertugsafmæli Jóhönnu. Boðið átti að vera kokkteil- partí milli 5 og 7 en veislan leystist upp rétt undir morgun. Og ógleymanleg var veislan í Sviðnum. Takk, Pétur minn, fyrir að ýta mér upp á Keili og drösla með niður Grímannsfellið. Inni- legar samúðarkveðjur til þín, Jó- hanna mín, sonum og vinum Péturs votta ég samúð. Takk, Pétur minn. Erla Ragna Ágústsdóttir. Vinur minn og starfsfélagi til margra ára, Pétur Sigurðsson, er látinn langt um aldur fram. Leiðir okkar lágu fyrst saman fyrir um það bil 45 árum þegar Pétur var í námi í efnafræði við Háskóla Íslands. Kom hann þá í sumarvinnu á Rannsóknastofn- un iðnaðarins og fékk þar verk- efni við prófanir á málmum og málmsuðu. Fylltist hann fljótt miklum áhuga á þessu sviði og gerði það að ævistarfi sínu að loknu há- skólanámi, fyrst hjá rannsókna- stofnuninni en síðan sem sjálf- stæður prófunaraðili og ráðgjafi. Þessi áhugi smitaðist svo áfram til sonar hans, Tryggva, sem tók við keflinu eftir að Pét- ur varð smám saman að draga sig í hlé vegna veikinda sinna. Verkefni okkar Péturs tengd- ust oft í gegnum tíðina og bar aldrei skugga á samstarfið. Pét- ur var nákvæmur sérfræðingur og fylgdist vel með nýjungum á sínu sviði. Hann fór í framhaldsnám t.d. hjá Welding Institute í Cam- bridge og var með alþjóðlega vottun sem sérfræðingur í málmprófunum. Pétur var mjög góður og skemmtilegur félagi bæði í vinnu og utan hennar og mikill vinur vina sinna. Eins var hann mikill fjölskyldumaður. Tryggð og heiðarleiki voru einkenni hans bæði í leik og starfi. Nú þegar að kveðjustund er komið þakka ég Pétri fyrir ára- tuga samfylgd og sendi Jóhönnu og öðrum aðstandendum innileg- ar samúðarkveðjur. Þeirra miss- ir er mikill. Blessuð sé minning Péturs Sigurðssonar. Ásbjörn Einarsson. Mjök erum tregt tungu at hræra Svo orti Egill Skallagrímsson við fráfall sona sinna. Mér líður eins. Æskuvinur minn er fallinn frá allt of fljótt. Við kynntumst þriggja ára, þegar við fluttum báðir á sömu hæð í blokkina á Birkimel, eða Símablokkina eins og hún var oft kölluð. Stutt var að fara yfir ganginn og vorum við ósjaldan að hlaupa á milli íbúða í allskonar leikjum og ým- islegt var brallað bæði gott og annað ekki alltaf vinsælt hjá fullorðna fólkinu. Æskan á Birkimel var engu lík, tæplega 30 krakkar á líkum aldri og var verið í leik allan daginn. Við Pétur æfðum fót- bolta saman, vorum í skátunum, og fleira. Nokkurs konar hugsanaflutn- ingur (telepati) var á milli okkar, við vissum yfirleitt hvernig hin- um leið og er gott dæmi um það þegar Pétur var úti á landi í pössun, þá var ég að leika við hann heima á stofugólfi en upp- götvaði svo að Pétur var ekki heima og varð dauðhræddur. Seinna komst ég að því að hon- um hafði leiðst vistin og hafði saknað mín á því sama augna- bliki. Á unglingsárum fluttum við báðir á loftið með herbergi hlið við hlið, þar sem önnur iðja tók við, menntaskólalærdómur og sitthvað fleira, sem ekki skal tí- undað hér. Mamma Péturs var dönsk og var danskur bragur á heimilinu. Gott var að koma til Elsu eft- ir skóla og fá smørrebrød og annað danskt góðgæti og alltaf tók Elsa á móti mér af sömu góðvildinni. Foreldrar Péturs höfðu land til afnota við Gufunes, nú Folda- hverfi, og þangað fór ég oft með þeim á sumrin , þar sem við lék- um okkur fjarri borgarniðnum í annars konar leikjum. Þurftum við þó stundum að taka til hendinni í garðyrkjunni, það var ekki gefið eftir af þeim hjónum. Pétur byggði síðan hús sitt í næsta nágrenni „Lóðarinnar“ eins og landið var nefnt. Þegar við báðir höfðum stofn- að heimili var talsverður sam- gangur á milli fjölskyldna okkar. Oft var kíkt í kvöldkaffi, við tókum þátt í stórafmælum, brúðkaupum, fermingum og út- skriftum barna okkar, stofnuð- um matarklúbb ásamt fleiri Birkimelsvinum og fórum til Spánar 2016, þar sem Pétur spilaði golf af miklu kappi. Einn- ig tefldum við skák reglulega og alltaf var gaman að hittast. Pétur var eins og nafnið gefur til kynna klettur. Traustur, stað- fastur og duglegur. Hann var með afbrigðum handlaginn og fór létt með að byggja sumarbú- stað og einbýlishús yfir fjöl- skylduna. Fyrirtæki sitt byggði hann upp af dugnaði og elju og var vel liðinn hjá viðskiptavin- um. Það var sárt að fylgjast með hvernig sjúkdómurinn náði helj- artökum á vini mínum og sitjum við eftir með söknuð í hjarta. Við Marta sendum Jóhönnu, sonum þeirra og fjölskyldum okkar innilegustu samúðarkveðj- ur. Hvíl í friði, kæri vinur, og takk fyrir samveruna. Deyr fé, deyja frændur, deyr sjálfur ið sama; en orðstír deyr aldregi, hveim er sér góðan getur. (Úr Hávamálum) Kjartan K. Steinbach. Við andlát Péturs Sigurðsson- ar féll frá mikill öndvegismaður. Hann var vinur vina sinna, dug- legur, umhyggjusamur og hjálp- legur í alla staði. Við Gunna Sigga, Pétur og Jóhanna áttum mjög margar og góðar samverustundir. Flestar sneru þær að vinnu af ýmsu tagi, í Grímsnesi, Hveragerði og Funafold 48 í Reykjavík, þar sem þau byggðu sér fallegt heimili. Pétur var áræðinn til verka en flanaði aldrei að neinu. Hann aflaði sér upplýsinga og setti verkin vel fyrir sig bæði fjárhagslega og verklega. Það má segja að samvinna okkar hafi byrjað af alvöru þeg- ar Pétur og Jóhanna byggðu sumarhúsið sitt í Grímsnesi fyrir um 35 árum. Samvera fjölskyldna okkar var þá mjög mikil og hélst í mörg ár. Við eyddum t.d. þó nokkrum páskum saman í Grímsnesinu og skemmtum okkur við ýmsa leiki með drengjunum okkar. Ekki minnkaði samvinnan og samveran þegar Pétur og Jó- hanna hófu að byggja glæsihúsið að Funafold 48. Þau voru ófá handtökin sem við Pétur unnum saman að í því húsi og mun það lifa í minningunni hvað hann var þægilegur í samstarfi. Pétur var sérlega hjálpsamur og ávallt tilbúinn þegar þurfti að taka til hendi í garðyrkjustöð- inni hjá foreldrum okkar Jó- hönnu og skipti þá ekki máli hvað var verið að gera, smíða- vinna, pípulagnir, glerjun gróð- urhúsa eða að singarðyrkjunni og blómaræktuninni. Við hjónin og drengirnir okk- ar Eiríkur og Ólafur munum minnast Péturs sem góðs vinar og félaga. Við biðjum góðan guð að styrkja Jóhönnu, Helga, Tryggva og Þorkel, einnig tengdadæturnar og barnabörnin á þessum erfiðu stundum. Steinn Guðmundur Ólafsson og Guðrún Sigríður Eiríksdóttir. Pétur Sigurðsson Ástkær eiginkona mín, móðir, tengdamóðir, amma og langamma, GUÐNÝ ARADÓTTIR, Fróðengi 3, 112 Reykjavík, er lést föstudaginn 9. febrúar á Land- spítalanum, verður jarðsungin föstudaginn 23. febrúar klukkan 13 frá Grafarvogskirkju. Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir en þeim er vildu minnast hennar er bent á líknarsjóði Oddfellowreglunnar. Karl Jónasson Karl M. Karlsson Rósa P. Sigtryggsdóttir Björg Karlsdóttir Örn Guðnason Ari Karlsson Dóra Camilla Kristjánsdóttir Kristjana Jónsdóttir Björn Karlsson Svanhildur Rún Þórarinsdóttir Gísli S. Karlsson Sigurbjörg Karlsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, GUÐJÓN EMILSSON, Laxárhlíð, Hrunamannahreppi, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurlands 12. febrúar. Útför fer fram frá Skálholtskirkju laugardaginn 24. febrúar klukkan 14. Sigríður Guðmundsdóttir Emil Guðjónsson Alma Guðmundsdóttir Eyrún Guðjónsdóttir Guðmundur Guðjónsson Berglind Bára Hansdóttir Steinar Guðjónsson Hrönn Erlingsdóttir barnabörn og barnabarnabarn Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ARNÓR EGGERTSSON löggiltur endurskoðandi, Víðimel 67, Reykjavík, andaðist á líknardeild Landspítalans þriðjudaginn 20. febrúar. Hann verður jarðsunginn frá Neskirkju mánudaginn 26. febrúar klukkan 13. Arndís Jóhanna Arnórsdóttir Jóhanna Arnórsdóttir Helmut Hinrichsen Valdís Arnórsdóttir Ingólfur Gissurarson Hrafnhildur, Arnór Tumi, Margeir, Teitur, Kristín Laufey, Jóhanna María og Eva Þórdís Elsku eiginmaður minn og faðir okkar, PÁLMI ÁSMUNDSSON húsasmíðameistari, Þverárseli 2, Reykjavík, varð bráðkvaddur laugardaginn 17. febrúar. Útförin fer fram frá Seljakirkju þriðjudaginn 27. febrúar klukkan 13. Ásdís Halldórsdóttir Linda Rós Pálmadóttir Pálmi Þór Pálmason Elskulegur sonur minn, bróðir og frændi, RÖGNVALDUR AXEL RÖGNVALDSSON, lést sunnudaginn 11. febrúar á líknardeild Landspítalans í Kópavogi. Sálumessa hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Kristrún Elíasdóttir Margrét G. Rögnvaldsdóttir Anna A. Rögnvaldsdóttir Ástkær eiginkona mín, móðir og systir, HELGA L. JÓNSDÓTTIR HUTCHINSON frá Kirkjuhvoli, Akranesi, lést á heimili sínu í Omaha, Nebraska, mánudaginn 12. febrúar. Útför hefur farið fram. Ralph Hutchinson Emma Hutchinson og systkini hinnar látnu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.