Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 82

Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 82
82 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 Síðumúli 11 - 108 Reykjavík | Dalshraun 13 - 220 Hafnarfjörður 560-8888 • www.vfs.is Þegar þig vantar alvöru hörkutól Unndór Jón Egilsson myndlistarmaður á fjörutíu ára afmæli ídag. Hann útskrifaðist með BA-gráðu frá myndlistardeildListaháskóla Íslands árið 2008 og lauk MFA-námi frá Valand School of Art í Gautaborg árið 2011. Unndór vinnur aðallega með innsetningar og er undirbúa þrjár sýningar fyrir vorið. Fyrst verður samsýning sem hefst 24. mars í bænum Moss í Noregi og heitir Tenderness, síðan verður Unndór með einkasýningu í Gallerí Úthverfu á Ísafirði í maí og svo verður hann með verk á samsýningu í Tallinn í Eistlandi sem hefst í júní. „Ég verð með eina innsetningu á hverri sýningu, allt ólík verk.“ Unndór kennir einnig á smíðaverkstæðinu í Listaháskóla Íslands. „Ég er sjálfmenntaður í smíðum, lærði í gegnum myndlistina að smíða og get því sett upp mín verk alveg sjálfur. Svo smíða ég mín eigin hús- gögn, eins og borðstofuborð, sófaborð, skápa og rúm. Eiginlega öll húsgögnin sem eru heima hjá mér smíðaði ég sjálfur.“ Myndlistin og smíðarnar taka mestallan tíma hjá Unndóri, en svo finnst honum einn- ig gaman að ganga á fjöll. „Ég verð með fjölskylduboð um helgina í tilefni afmælisins, en kem líklega með köku í vinnuna í dag og fer svo út að borða um kvöldið.“ Kærasta Unndórs er Anna Valenius, nemi í keramik í Myndlista- skólanum í Reykjavík, en hún er frá Finnlandi. Foreldrar Unndórs eru Jón Egill Unndórsson og Ólöf Elva Sigvaldadóttir Listamaðurinn Unndór Jón Egilsson, dverghagur á járn og timbur. Smíðar sjálfur sín eigin húsgögn Unndór Jón Egilsson er fertugur í dag S igríður Þorgeirsdóttir fæddist í Reykjavík 22.2. 1958, en ólst fyrstu árin upp í Grænási við Kefla- víkurflugvöll þar sem faðir hennar var lögreglustjóri og síðar sýslumaður: „Návígið við flugvöllinn og bandarísku herstöð- ina hafði óneitanlega mikil áhrif á umhverfið, en annars var Grænás barnmargt samfélag fjölskyldna opinberra starfsmanna sem tengd- ust með einum eða öðrum hætti starfseminni þarna.“ Fjölskyldan flutti í Garðabæ er Sigríður var níu ára og er hún var 18 ára, lá leiðin til Reykjavíkur. Hún byrjaði ung að sendast á sumrin hjá Júpíter og Mars hf., í Aðalstræti, útgerðarskrifstofu móð- urföður síns, Tryggva Ófeigssonar. Þar fékk hún innsýn í sjómennsku og togaraútgerð þeirra tíma. Í sumarleyfum fór hún til Reyð- arfjarðar til afa og ömmu, Þor- steins Jónssonar, áður kaupfélags- stjóra og Sigríðar Þorvarðardóttur, vann eitt sumar við Kaupfélag Sigríður Þorgeirsdóttir heimspekingur 60 ára Fjölskyldan Sigríður og Magnús Diðrik með dóttur sinni, Elísabetu, og manni hennar, Christoph Buller. Með hugann við jafn- rétti og náttúruvernd Morgunblaðið/Golli Heimspekingurinn Sigríður Þorgeirsdóttir prófessor hefur kennt víða. Í dag, fimmtudaginn 22. febrúar 2018, eiga 60 ára brúðkaupsafmæli hjónin Katrín Björk Frið- jónsdóttir og Pálmi Við- ar, búsett að Hraunsvegi 13 í Njarðvík. Þau voru gefin saman 22. febrúar 1958 af sr. Birni Jóns- syni. Árnað heilla Demants- brúðkaup 85 ára er í dag, fimmtudaginn 22. febrúar 2018, Friðbjörg Krist- jana Ragnars- dóttir, til heimilis að Skipalóni 20 í Hafnarfirði. Í til- efni dagsins mun Friðbjörg taka á móti gestum í samkomusal hússins að Skipalóni 20, Hafnarfirði frá kl. 16.00 og fram á kvöld á afmælisdaginn. Árnað heilla 85 ára Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, Pétur Atli Lárusson islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu er sagt frámerkum viðburðum í lífi fólks, svo sem stórafmælum,hjónavígslum,barns- fæðingum og öðrum tímamótum. Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinnimbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is Börn og brúðhjón
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.