Morgunblaðið - 22.02.2018, Síða 86
VIÐTAL
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Lies Are More Flexible, eða Lygar
eru sveigjanlegri, nefnist nýjasta
breiðskífa Gus Gus sem kemur út á
morgun, 23. febrúar, og er hún jafn-
framt sú tíunda sem sveitin sendir
frá sér. Gus Gus skipa nú Biggi
Veira og Daníel Ágúst Haraldsson
og hefur hljómsveitin bæði stækkað
og minnkað á þeim tæplega 23 árum
sem liðin eru frá stofnun hennar, ár-
ið 1995.
Síðasta plata Gus Gus, Mexico,
kom út fyrir um þremur og hálfu ári
og þeir Biggi og Daníel eru spurðir
að því hvað hafi á daga Gus Gus
drifið frá þeirri útgáfu. „Við höfum
verið að túra, ferðast um heiminn
og náttúrlega semja nýja plötu ...
eða plötur,“ svarar Daníel og Biggi
bætir við að þeir hafi alltaf verið dá-
lítið lengi að gera plötur. „En nú
ætlum við að laga það … eða næst,“
segir hann kíminn og Daníel skýtur
inn í að þetta segi þeir í hvert sinn
sem þeir sendi frá sér breiðskífu.
– Hvernig stendur á því, eruð þið
svona vandvirkir?
„Þegar maður gefur út plötu tek-
ur alltaf tíma að losna við hana úr
taugakerfinu þannig að maður geti
gert nýja, það getur tekið heilt ár.
Svo fer maður að þreifa fyrir sér og
spá í hvað mann langar að gera
næst. Stundum er maður kominn
með einhverjar hugmyndir um það,
búinn að hlusta á einhverja tónlist
eða tappa inn í einhverja strauma
og stefnur, bæði nýjar og gamlar og
þannig mótast hvað okkur langar að
prófa að sjóða saman næst,“ svarar
Biggi. „Síðan kemur alltaf að því að
demóin fara að gefa lykt af næstu
plötu og þá fer þetta að ganga að-
eins hraðar.“
Textarnir og melódíurnar
koma oft samsíða
Biggi segir plötugerðarferlið í
raun tvíþætt. „Annars vegar er ég
bara í stúdíóinu að kokka upp ein-
hverja elektróníska sýru á synth-
ana mína, reyna að ná niður ein-
hverjum einföldum skissum sem
innihalda eitthvert sánd eða grúv
sem hægt væri að nota. Og þegar
Daníel tengir við einhverja skissuna
verður kannski til lag,“ segir Biggi
og Daníel fær orðið. „Textarnir við
lögin og melódíurnar koma oft sam-
síða. Ég þarf náttúrlega líka að
upplifa eitthvað og gera einhverja
sýru til þess að hafa eitthvað um að
semja svo eitthvert innihald sé í
þessu,“ segir hann.
Biggi segir þá Daníel oft hanga
saman löngum stundum í stúdíóinu
og vilji þeir fá algeran frið til list-
sköpunar er haldið í sumarbústað.
Á umslagi plötunnar nýju er ljós-
mynd af Daníel með bensínstöð í
bakgrunni og veðrið heldur hrá-
slagalegt, snjór og kuldi. Blaðamað-
ur spyr hvort myndin hafi verið
tekin þegar þeir voru á leið í bústað
og Daníel svarar um hæl: „Ná-
kvæmlega“.
Mynd af engu
– Þetta er skemmtileg súr ljós-
mynd, verð ég að segja. Hver er
pælingin með henni?
Fólk þarf eldsneyti
Tíunda breiðskífa tvíeykisins Gus Gus, Lies Are More Flexible, kemur út á morgun Nýjar upp-
skriftir en sami kryddskápurinn Lygar eru miklu sveigjanlegri en sannleikur, segja Gus Gus-menn
Morgunblaðið/Hari
Áreitislausir Gus Gus-menn, þeir Daníel Ágúst og Biggi Veira, á ferðinni við eina af bensínstöðvum höfuðborgarinnar. „Þú finnur þig sjálfan á bensín-
stöðinni því það er ekkert annað þar,“ segir Biggi og Daníel bætir við að lífsfyllingin komi innan frá, þegar ekkert er áreitið.
86 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
Norræn kvikmyndahátíð hefst í
Norræna húsinu í dag og stendur
yfir til þriðjudags, 27. febrúar. 15
kvikmyndir frá Svíþjóð, Danmörku,
Noregi og Finnlandi verða sýndar á
hátíðinni og er aðgangur að sýn-
ingum ókeypis. Miðapantanir fara
fram á tix.is og segir markaðs- og
kynningarstjóri Norræna hússins,
Kristbjörg Kona
Kristjánsdóttir,
að þegar sé orðið
uppbókað á
nokkrar sýningar
og á aðrar nærri
fullbókað.
Kristbjörg
minnir á að Nor-
ræna húsið sé
ekki kvikmynda-
hús og að hver
mynd verði aðeins sýnd einu sinni
eða tvisvar á hátíðinni. „Þetta eru
oftast myndir sem er búið að frum-
sýna en það kemur fyrir að við
frumsýnum myndir sem hafa ekki
og munu ekki fara í almenna dreif-
ingu á Íslandi,“ segir hún. Því mið-
ur hafi norrænar kvikmyndir ekki
ratað eins vel í íslensk kvikmynda-
hús og þær bandarísku. „Þannig að
við höfum fundið okkur knúin til að
bjóða upp á þessa hátíð,“ segir
Kristbjörg.
Lengri útgáfa af
Óþekkta hermanninum
Kristbjörg segir hlutverk Nor-
ræna hússins að miðla norrænni
menningu til Íslendinga og að hátíð-
in falli undir það. „Og Norðurlöndin
standa framarlega í dag í sjón-
varpsþátta- og kvikmyndagerð sem
gerir þetta ennþá skemmtilegra.“
Opnunarmynd hátíðarinnar er
sænska kvikmyndin The Square
sem hlaut fjölda verðlauna í fyrra,
m.a. Gullpálmann í Cannes og af
öðrum myndum má nefna Óþekkta
hermanninn frá Finnlandi, dýrustu
kvikmynd sem Finnar hafa fram-
leitt og slegið hefur í gegn í heima-
landinu en lengri útgáfa af henni
verður sýnd í Norræna húsinu en
sú sem sýnd var í Bíó Paradís fyrr
á þessu ári, um klukkustund lengri.
–Hver velur myndirnar og hvað
ræður valinu á þeim?
„Hún heitir Gunn Hernes og er
15 kvikmyndir og
aðgangur ókeypis
Norræn kvikmyndahátíð hefst í dag
Kristbjörg Kona
Kristjánsdóttir
JUNG BRUNNDÆLUR
TRAUSTAR UNDIR ÁLAGI
Við veitum þér ráðgjöf fyrir
dren og skolpdælur.
Hafðu samband - s 5400600
www.daelur.is