Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 87

Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 87
„Fólk þarf að vera á ferðinni og fólk þarf eldsneyti og það gerir það á Íslandi í hvaða veðri sem er. Það þarf eldsneyti í lífinu til að geta haldið því gangandi,“ svarar Daníel og Biggi segir að þessi ljósmynd sé að hluta til valin út frá hugmynd um mynd af engu þannig að sá sem skoði hana verði sjálfur að finna viðfangsefnið. „Það sem okkur fannst áhugavert við þessa bens- ínstöðvarpælingu var spurningin um hvar þú finnur fyrir dýptinni í lífinu. Er það ekki einmitt á stað sem er frekar leiðinlegur, þar sem þú finnur enga afþreyingu? Þú finnur þig sjálfan á bensínstöðinni því það er ekkert annað þar,“ segir Biggi og Daníel bætir við að lífsfyll- ingin komi innan frá, þegar ekkert er áreitið. „Við lifum á mjög sérstökum tím- um þar sem skoðanir eru allt í einu rétthærri en sannleikurinn, það eru margir á þeirri skoðun. Sannleik- urinn er orðinn afstætt fyrirbrigði á þessum „post-truth“ tíma sem við lifum á,“ segir Biggi um titil plöt- unnar. „Hann tengist líka þessum litlu lygum sem við segjum sjálfum okkur til að réttlæta líf okkar og sá þokuvefur torveldar okkur sýn á hvað líf okkar raunverulega er því oft er maður bara að elta ein- hverjar lygar, í raun og veru. Þær eru svo þægilegar, lygarnar, svo miklu sveigjanlegri en sannleik- urinn. Og við sjáum það líka í ís- lenskri pólitík, ef hægt er að kom- ast auðveldu leiðina er í lagi að hún sé lygi.“ Eitthvað kunnuglegt við áferðina – Það er greinilegt frá fyrsta lagi á plötunni að þarna er Gus Gus á ferð og lögin minna sum hver á eldri lögin ykkar. Hafa aðrir nefnt þetta við ykkur? „Nei, kannski ekki,“ svarar Biggi og Daníel spyr á móti: „Hljómar þetta ekki bara eins og eitthvert gamalt lag með einhverjum allt öðr- um?“ Þeir hlæja og Biggi segir að fólk virðist alltaf þekkja Gus Gus- hljóminn. „Það er eitthvað varðandi áferðina sem fólk þekkir, hvernig þetta blandast saman þó þetta séu mörg mismunandi lög,“ segir hann. Daníel bendir á að tónlistin sé gerð í rafrænu umhverfi og að þeir muni ekki taka upp kassagítarana og fara að djamma. „Við erum í þessu umhverfi og þó það sé sveigj- anlegt og teygjanlegt hefur það tón og hljóm sem þekkist. Og Biggi er náttúrlega galdrakarlinn í Gus Gus- stúdíóinu og þó hann komi með nýj- ar uppskriftir þá er þetta jú sami kryddskápurinn!“. Þeir hlæja inni- lega að þessum matreiðslusamlík- ingum og Biggi segir að alltaf megi finna einhverjar nýjar pælingar þó ekki sé endilega víst að hlustandinn átti sig á því hverjar þær eru. „Þegar við byrjuðum að vinna þessa plötu höfðum við bakvið eyr- að að tengja aðeins inn á nýbylgju- tímabilið milli ’78 og 84, þá sér- staklega rafræna hlutann,“ útskýrir Biggi og að nýbylgjuáhrifin megi greina bæði í hljómagangi og til- teknum „sándum“. Vínyllinn ennþá kósí – Þetta er fyrri platan af tveimur sem þið hafið verið að vinna í á sama tíma? „Já, síðasta vor var ákveðið að skipta plötunni í tvennt svo við gætum náð að klára plötu fyrir haustið og gera næstu núna í vetur og hafa plöturnar frekar styttri. Það er nefnilega ekki búið að mót- ast almennilega hvaða áhrif þessi nýi veruleiki í tónlistarneyslu hefur á þetta LP-format. Við lítum á okk- ur sem albúm-artista. Við erum ekki „single“-artistar – gerum ekki lög og gefum út og svo fleiri lög og svo eru plöturnar bara eitthvert samansafn af lögum – heldur lítum við svo á að við séum að gera stórar plötur. Neysluhegðunin er búin að breytast svo mikið og það er áhuga- vert að pæla í því hvaða áhrif það hefur á stóru plöturnar,“ svarar Biggi. Hann bendir á að vínylplötur hafi sett ákveðinn tímaramma á sínum tíma, 45 mínútur og geisladiskurinn svo 80 mínútna ramma. Nú sé geisladiskurinn svo gott sem dauð- ur og rýmið orðið endalaust, þ.e. hið stafræna á netinu, auk þess sem líftími platna sé orðinn miklu styttri en áður. „Það er þá betra að vera með styttri plötur og gefa út plötur oftar og því hentaði okkur vel að tengja það við vínylformatið sem er það eina áþreifanlega sem eitthvert vit er í,“ segir Biggi. Enn sé kósí að setja plötu á fóninn heima í stofu. Getur valdið gæsahúð Gus Gus virðist síbreytileg að stærð, í upphafi voru liðsmenn sveitarinnar níu en núna eru þeir tveir. Blaðamaður nefnir þetta við þá félaga og svarar Daníel því til að hljómsveitin hafi samt sem áður aldrei verið stærri. Biggi hlær að þessum ummælum, tekur undir með vini sínum og bætir við að nú sé fókusinn á samspil hans og Daníels en áður hafi hann verið á meira á framlínu söngvaranna. – Gus Gus er bæði þekkt og vin- sæl hljómsveit í hinum ólíklegustu löndum. Í hvaða landi haldið þið að hún sé hvað vinsælust? „Það er nú bara hægt að horfa á tölurnar. Við erum heimsóttir á netinu af fólki frá hinum ólíkleg- ustu löndum, eins og þú segir, en mest er það frá Mexíkó og Rúss- landi,“ segir Daníel og Biggi bætir við Póllandi og Þýskalandi og segir Gus Gus líka vinsæla í löndum Austur-Evrópu og á Spáni. „Svo höfum við alltaf verið með gott fylgi í Bandaríkjunum en þau eru bara svo stór og sá hópur mjög dreifður,“ segir Biggi. Ef nefna eigi borgir sem Gus Gus njóti hvað mestra vinsælda í séu það Moskva, Mexíkóborg, Kænugarður og Berlín. – Hvar er skemmtilegast að halda tónleika, hvar er fólk lífleg- ast? „Hverjir einustu tónleikar eru frábærir,“ svarar Daníel og Biggi tekur undir það. Þeir hafi alltaf verið heppnir með tónleikagesti. „Það kemur til að skemmta sér og hlusta á músíkina okkar, kann yf- irleitt textana og fylgist með. Það er bara æpandi af ánægju og gleði, dansar og skemmtir sér, fer út úr líkamanum,“ segir Daníel. Biggi bætir því við að það sé markmið þeirra Daníels að bjóða upp á dá- leiðandi, tilfinningaþrunginn ryþmaseið sem sé „einhver skepna“. Hann hlær að þessari skáldlegu lýsingu sinni og varar að lokum við því að Gus Gus geti kall- að fram gæsahúð. Sú tíunda Umslag Lies are more flexible, nýrrar plötu Gus Gus. MENNING 87 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 verkefnastjóri hérna í Norræna húsinu. Hún velur myndirnar í sam- starfi við norrænu sendiherrana á Íslandi og svo hefur hún bara sam- band og athugar hvort við megum sýna þær,“ segir Kristbjörg kímin. –Þetta eru margar myndir og fáir dagar sem hátíðin stendur yfir. Fólk þarf að vera allan daginn í Norræna húsinu til að ná sem flest- um, eða hvað? „Ef það nær því þá er það bara eðal,“ svarar Kristbjörg glettin og bætir við að veitingastaðurinn sé alltaf opinn og því ætti enginn há- tíðargestur að svelta. Í gær var þegar orðið uppbókað á nokkrar sýningar hátíðarinnar, sem fyrr segir, og þurfa áhugasamir væntanlega að hafa hraðar hendur ætli þeir að ná miðum. „Það fer hver að verða síðastur,“ segir Kristbjörg og að yfirleitt séu um tíu sæti laus á hverja sýningu því þeir sem bóki miða mæti ekki alltaf allir. 80-90 manns komast á hverja sýningu og skal því engan undra að miðar gangi hratt út. Frekari upplýsingar um kvik- myndirnar má finna á vef Norræna hússins á slóðinni nordichouse.is/ event/nordic-film-festival. Unglingar mæta á hasarmyndir Kristbjörg er að lokum spurð að því hverjir sæki að jafnaði þessa ár- legu hátíð. Er það einkum miðaldra fólk og unglingar kannski sjaldséð- ir? Jú, rétt reynist það en Krist- björg segir unglinga þó hafa sést þegar hasarmyndir eru í boði og sýningartími heppilegur fyrir þá. Ein slík er nú í boði nú, norska has- ar- og háspennumyndin Cave. „Og ef myndin er ekki á ensku er hún textuð á ensku,“ bætir Kristbjörg við. Háspenna Úr norsku kvikmyndinni Cave. Hún fylgir þremur ungum vinum sem stefna að því að verða fyrstu mann- eskjurnar til að komast í gegnum hellakerfi í fjalli einu fjarri mannabyggðum. Þau hefja förina án þess að vita hvaða martröð bíður þeirra, eins og segir á vef Norræna hússins. Cave er sögð háspennumynd sem nýti sér jaðar- íþróttir og stórkostlegt sögusvið til að kanna mannshugann og þá sérstaklega mörk sjálfsbjargar og illsku. Ert þú á leið í leikhús? Pantaðu ljúffengar veitingar til að njóta fyrir sýningu eða í hléi á borgarleikhus.is Rocky Horror (Stóra sviðið) Fös 16/3 kl. 20:00 Frums. Fös 6/4 kl. 20:00 6. s Fös 20/4 kl. 20:00 11. s Sun 18/3 kl. 20:00 2. sýn Lau 7/4 kl. 20:00 aukas. Lau 21/4 kl. 20:00 aukas. Mið 21/3 kl. 20:00 aukas. Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 22/4 kl. 20:00 12. s Fim 22/3 kl. 20:00 aukas. Mið 11/4 kl. 20:00 aukas. Fim 26/4 kl. 20:00 13. s Fös 23/3 kl. 20:00 3. s Fim 12/4 kl. 20:00 aukas. Lau 28/4 kl. 20:00 25. s Lau 24/3 kl. 20:00 4. s Fös 13/4 kl. 20:00 aukas. Mið 2/5 kl. 20:00 26. s Sun 25/3 kl. 20:00 5. s Lau 14/4 kl. 20:00 8. s Fim 3/5 kl. 20:00 27. s Þri 27/3 kl. 20:00 aukas. Sun 15/4 kl. 20:00 9. s Fös 4/5 kl. 20:00 28. s Mið 4/4 kl. 20:00 aukas. Mið 18/4 kl. 20:00 aukas. Lau 5/5 kl. 20:00 29. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 19/4 kl. 20:00 10. s Sun 6/5 kl. 20:00 30. s Besta partý sem þú munt nokkurn tímann upplifa. Elly (Stóra sviðið) Fös 23/2 kl. 20:00 128. s Fös 2/3 kl. 20:00 132. s Lau 10/3 kl. 20:00 136. s Lau 24/2 kl. 20:00 129. s Lau 3/3 kl. 20:00 133. s Sun 11/3 kl. 20:00 137. s Sun 25/2 kl. 20:00 130. s Sun 4/3 kl. 20:00 134. s Lau 17/3 kl. 20:00 138. s Fim 1/3 kl. 20:00 131. s Fös 9/3 kl. 20:00 135. s Sýningar haustið 2018 komnar í sölu. Himnaríki og helvíti (Stóra sviðið) Fim 22/2 kl. 20:00 Lokas. Allra síðasta sýning! Brot úr hjónabandi (Litla sviðið) Lau 24/2 kl. 20:00 55. s Lau 3/3 kl. 20:00 57. s Fös 9/3 kl. 20:00 59. s Fös 2/3 kl. 20:00 56. s Fim 8/3 kl. 20:00 58. s Lau 10/3 kl. 20:00 Lokas. Allra síðustu aukasýningar komnar í sölu. Lóaboratoríum (Litla sviðið) Fim 22/2 kl. 20:00 Lokas. Í samvinnu við Sokkabandið. Sýningin sem klikkar (Nýja sviðið) Lau 24/3 kl. 20:00 Frums. Lau 7/4 kl. 20:00 6. s Lau 14/4 kl. 20:00 12. s Sun 25/3 kl. 20:00 2. s Sun 8/4 kl. 20:00 7. s Sun 15/4 kl. 20:00 13. s Þri 27/3 kl. 20:00 3. s Þri 10/4 kl. 20:00 8 .s Mið 18/4 kl. 20:00 14. s Mið 4/4 kl. 20:00 4. s Mið 11/4 kl. 20:00 9. s Fim 19/4 kl. 20:00 15. s Fim 5/4 kl. 20:00 aukas. Fim 12/4 kl. 20:00 10. s Fös 20/4 kl. 20:00 16. s Fös 6/4 kl. 20:00 5. s Fös 13/4 kl. 20:00 11. s Lau 21/4 kl. 20:00 17. s Það er alveg öruggt að þetta fer úrskeiðis! Slá í gegn (Stóra sviðið) Fim 22/2 kl. 19:30 Fors Fim 8/3 kl. 19:30 Auka Sun 25/3 kl. 19:30 12.sýn Fös 23/2 kl. 19:30 Fors Fös 9/3 kl. 19:30 6.sýn Lau 7/4 kl. 19:30 13.sýn Lau 24/2 kl. 19:30 Frums Lau 10/3 kl. 19:30 7.sýn Sun 8/4 kl. 19:30 14.sýn Sun 25/2 kl. 19:30 2.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 8.sýn Fös 13/4 kl. 19:30 15.sýn Fim 1/3 kl. 19:30 3.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 9.sýn Lau 14/4 kl. 19:30 16.sýn Fös 2/3 kl. 19:30 4.sýn Fös 23/3 kl. 19:30 10.sýn Sun 22/4 kl. 19:30 17.sýn Lau 3/3 kl. 19:30 5.sýn Lau 24/3 kl. 19:30 11.sýn Einstaklega litríkt sjónarspil og frábær skemmtun fyrir alla fjölskylduna! Risaeðlurnar (Stóra sviðið) Fim 15/3 kl. 19:30 AUka Fös 16/3 kl. 19:30 Síðustu Síðustu sýningar komnar í sölu Fjarskaland (Stóra sviðið) Sun 4/3 kl. 13:00 Sun 11/3 kl. 13:00 Síðustu Sun 4/3 kl. 16:00 Sun 11/3 kl. 16:00 Síðustu Síðustu sýningar komnar í sölu Faðirinn (Kassinn) Mið 28/2 kl. 19:30 24.sýn Fim 15/3 kl. 19:30 26.sýn Mið 7/3 kl. 19:30 25.sýn Fös 16/3 kl. 19:30 27.sýn Áhrifamikið nýtt verðlaunaverk. Efi (Kassinn) Þri 27/2 kl. 19:30 Auka Þri 6/3 kl. 19:30 13.sýn Sun 18/3 kl. 19:30 19.sýn Lau 3/3 kl. 19:30 14.sýn Fös 9/3 kl. 19:30 16.sýn Sun 4/3 kl. 19:30 15.sýn Lau 17/3 kl. 19:30 18.sýn Margverðlaunað og spennandi verk ! Ég get (Kúlan) Sun 25/2 kl. 13:00 12.sýn Ljóðræn leiksýning fyrir yngstu börnin, um það sem er mitt og þitt og okkar Pétur og úlfurinn (Brúðuloftið) Lau 24/2 kl. 13:00 Lau 3/3 kl. 13:00 Lau 24/2 kl. 15:00 Lau 3/3 kl. 15:00 Brúðusýning Mið-Ísland - Á tæpasta vaði! (Þjóðleikhúskjallarinn) Fim 22/2 kl. 20:00 Fim 1/3 kl. 20:00 Fim 8/3 kl. 20:00 Fös 23/2 kl. 20:00 Fös 2/3 kl. 20:00 Fös 9/3 kl. 20:00 Fös 23/2 kl. 22:30 Fös 2/3 kl. 22:30 Fös 9/3 kl. 22:30 Lau 24/2 kl. 20:00 Lau 3/3 kl. 20:00 Lau 10/3 kl. 20:00 Lau 24/2 kl. 22:30 Lau 3/3 kl. 22:30 Lau 10/3 kl. 22:30 Sun 25/2 kl. 20:00 Sun 4/3 kl. 20:00 Ef hláturinn lengir lífið stefnir Mið-Ísland á ódauðleika! Improv Ísland (Þjóðleikhúskjallari) Mið 28/2 kl. 20:00 Mið 21/3 kl. 20:00 Mið 11/4 kl. 20:00 Mið 7/3 kl. 20:00 Fim 22/3 kl. 20:00 Fesival Mið 18/4 kl. 20:00 Mið 14/3 kl. 20:00 Mið 4/4 kl. 20:00 Mið 25/4 kl. 20:00 Spunasýningarnar vinsælu snúa aftur - engin sýning eins! leikhusid.is | midasala@leikhusid.is | 551 1200 ÞÚ FINNUR ALLT Á FINNA.IS
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.