Morgunblaðið - 22.02.2018, Page 88
88 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
VIÐTAL
Silja Björk Huldudóttir
silja@mbl.is
„Þegar ég sit úti í sal á æfingum lang-
ar mig iðulega að stökkva upp á svið
og vera með – ég held að það sé góðs
viti,“ segir Guðjón Davíð Karlsson,
betur þekktur sem Gói, höfundur og
leikstjóri fjölskyldusirkussöngleiks-
ins Slá í gegn sem frumsýndur verð-
ur í Þjóðleikhúsinu á laugardag.
Fyrir rúmi ári frumsýndi Þjóðleik-
húsið fjölskyldusöngleikinn Fjarska-
land úr smiðju Góa í leikstjórn Selmu
Björnsdóttur og því verða tveir söng-
leikir Góa í sýningu á Stóra sviðinu
næstu vikurnar. „Ég er þakklátur
Ara [Matthíassyni þjóðleikhússtjóra]
fyrir að hafa trú á mér og fyrir að fá
tækifæri til að gera marga og ólíka
hluti innan leikhússins,“ segir Gói og
rifjar upp að hann
hafi frá fimm ára
aldri átt sér
draum um að
verða leikhús-
listamaður þegar
hann yrði stór.
„Ég hef verið svo
lánsamur að sá
draumur rættist.
Ég þreytist aldrei
á því í samtölum
mínum við skóla-
börn að hvetja þau til að fylgja ávallt
hjartanu, elta draumana og gefast
aldrei upp. Því það er ekkert eins
dásamlegt og þegar maður sér
drauma sína rætast.“
Sýningin á að breyta heiminum
En hvernig kemur það til að þú
leikstýrir eigin verki að þessu sinni?
„Mér fannst það spennandi, ekki
síst vegna þess að ég hafði mjög
skýra sýn á hvað mig langaði til að
gera við þennan efnivið. Markmið
mitt er að smita gleði út í samfélagið í
anda Stuðmanna. Stuðmenn eru
ótrúlega hæfileikaríkir listamenn,
frábærir hljóðfæraleikarar og snilld-
arlegir laga- og textasmiðir, enda
hafa þeir samið ógrynni hittara.
Þeirra aðalsmerki er samt húmorinn,
ekki síst fyrir sjálfum sér, sem skýr-
ir, að ég held, áratugalangar vinsæld-
ir þeirra. Mig langaði að fanga þenn-
an létta blæ og færa gleðina á svið.
Þetta verður sannkölluð gleði-
sprengja. Markmið mitt hefur frá
fyrsta bókstaf verið að breyta heim-
inum með þessu verki, því ég held að
hægt sé að breyta heiminum til góðs
þegar 500 áhorfendur koma út af
hverri sýningu með dillandi Stuð-
mannatakt í líkamanum, bros á vör
og gleði í hjarta,“ segir Gói og tekur
fram að þó hann hafi skýra listræna
sýn og sterkar skoðanir hafi hann
engar áhyggjur af því að verða ein-
ræðisherra.
„Ég er með frábært listrænt teymi
í kringum mig sem er mikið leik-
húslistafólk,“ segir Gói og nefnir í því
samhengi Maríu Th. Ólafsdóttur sem
hannar búninga, Finn Arnar Arnar-
son sem hannar leikmynd, Magnús
Arnar Sigurðsson sem hannar lýs-
ingu, Kristin Gauta Einarsson og
Kristján Sigmund Einarsson sem
hanna hljóðmynd, Stefán Hall Stef-
ánsson aðstoðarleikstjóra, Vigni Snæ
Vigfússon tónlistarstjóra, Nicholas
Arthur Candy sirkusstjóra og Chan-
telle Carey danshöfund. „Við höfum
átt mjög gott samtal og ég er al-
gjörlega ófeiminn að treysta öðrum.
Ég er alltaf til í að skoða allar hug-
myndir og lít ekki á mig sem einræð-
isherra. Ég veit að heildin virkar ekki
nema allir fái sína rödd og eigi hlut-
deild í sköpuninni,“ segir Gói og tek-
ur fram að hann sé einstaklega hepp-
inn með leikhópinn og samverkafólk.
„Ég hef aldrei áður verið í leikhóp
sem kemur jafn jákvæður og æstur í
að gera frábæra sýningu, eins og í
þessu ferli. Það er sama hvað við höf-
um verið að fást við. Því er alltaf
mætt með jákvæðni og allir eru til í
að prófa,“ segir Gói og tekur fram að
í ljósi þess að sirkus sé leiðarstef í
gegnum sýninguna þurfi að leysa
ýmis flókin tæknileg mál og skapa
galdra á sviðinu.
„Hér hefur þurft að útbúa tækni-
lega flókna leikmuni, gervi og bún-
inga ásamt því að og finna tækni-
lausnir til að skapa galdra á sviðinu.
Enda er það ekki á hverjum degi sem
starfsmenn hússins þurfa að finna
lausn á því hvernig þeir geta látið
Örn Árnason sitja í lausu lofti í heilt
lag. Deildir hússins hafa unnið ein-
staklega vel saman og þar hefur já-
kvæðnin verið leiðarljósið. Ég held
að jákvæðnin, sem birtist í öllum
deildum Þjóðleikhússins, skýrist af
því að það vita allir í húsinu hvað okk-
ur langar til að gera með þessari sýn-
ingu. Hér eru allir mjög fókúseraðir
á það að þetta er Þjóðleikhúsið okk-
ar, öll þjóðin á þetta leikhús og það er
mjög mikilvægt að bjóða upp á sýn-
ingu sem númer eitt, tvö og þrjú er
gerð fyrir okkar dyggustu gesti –
fólkið sem mætir hér í leikhús og
styður við bakið á okkur. Ég held að
það sé partur af skýringunni. Svo
finnst öllum svo spennandi að fá að
taka þátt í þessari frumsköpun sem
hér fer fram við vinnslu sýningar-
innar. Við eigum öll svo stóran þátt í
þessari sýningu,“ segir Gói og áréttar
að það séu mikil forréttindi að fá að
vinna í slíku skapandi umhverfi. „Við
sem hér vinnum erum sannkallaður
forréttindahópur því við fáum að
vinna við það sem við elskum og okk-
ur dreymir um.“
Engu við myndina að bæta
En hvernig kviknaði hugmyndin
að þessum sirkussöngleik?
„Hún kviknaði í samtali mínu við
þjóðleikhússtjóra og Stuðmenn. Í
desember sl. voru 35 ár síðan kvik-
myndin Með allt á hreinu var frum-
sýnd og því fannst okkur sniðugt að
gera eitthvað í tilefni afmælisins.
Mér fannst ekki koma til greina að
búa til söngleik upp úr myndinni, því
hún stendur sem fullkomið listaverk
og engu við hana að bæta. Ég varð
strax mjög hrifinn af þeirri hugmynd
að búa til glymskrattasöngleik þar
sem allur katalógur Stuðmanna væri
undir,“ segir Gói og tekur fram að
söngleikurinn innihaldi bæði vinsæl-
ustu lög Stuðmanna og minna þekkt
lög sem aðeins séu til í tónleika-
upptöku.
Hefur þú verið aðdáanda Stuð-
manna lengi?
„Já, ég hef alla tíð hlustað mikið á
Stuðmenn og haldið upp á þá,“ segir
Gói og tekur fram að það hafi verið
sér mikill heiður þegar honum gafst
tækifæri til að koma fram með Stuð-
mönnum á styrktartónleikum fyrir
Stefán Karl Stefánsson leikara síðla
árs 2016. „Það var stórkostleg upp-
lifun,“ segir Gói og rifjar upp atvik úr
æsku. „Þegar ég var á grunnskóla-
aldri bjó ég í miðbænum og hjólaði
reglulega niður á Grettisgötu eftir
skóla til að horfa á bílinn hans Egils
Ólafssonar, enda fallegasti bíllinn í
borginni,“ segir Gói og rifjar upp að
um hafi verið að ræða hvítan Merce-
des Benz. „Þegar ég sá samskonar
grip á bílasölu fyrir nokkrum árum
varð ég að kaupa hann,“ segir Gói
kíminn.
Ég er að þroskast
En um hvað fjallar svo sirkussöng-
leikurinn Slá í gegn?
„Þegar ég hugsa um Stuðmenn og
Með allt á hreinu fer ég strax að
hugsa um félagsheimili. Hér á landi
er starfandi leikfélag í nánast hverju
byggðarlagi, en þessi mikli leiklistar-
áhugi Íslendinga er einsdæmi. Ég dá-
ist að fólki sem mætir í félagsheimilið
í byggðarlaginu að loknum löngum
vinnudegi til að uppfylla leiklistar-
drauma sína. Ég er svo lánsamur að
geta mætt í félagsheimilið hér við
Hverfisgötu og sinnt minni list-
sköpun í fullu starfi,“ segir Gói og
tekur fram að Slá í gegn gerist ein-
mitt í litlu byggðarlagi þar sem leik-
félagið á staðnum fagnar 100 ára
starfsafmæli með því að setja upp
Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson.
„Formaður leikfélagsins er Sigur-
jón digri, sem Jón Gnarr leikur, og
hann hefur ásamt fjölskyldu sinni
borið leikfélagið á herðum sér. Hann
leikstýrir afmælissýningunni og yfir-
tekur smám saman öll hlutverkin því
honum finnst enginn geta leikið jafn-
vel og hann sjálfur. Á staðinn mætir
draumóramaðurinn Binni, sem Örn
Árnason leikur, með sirkus frá Rúm-
eníu sem hann keypti á eBay og ætlar
að nýta plássið til að þróa sirkussýn-
inguna áður en hann heldur til höfuð-
borgarinnar. Með honum í för eru
Helga eiginkona hans, sem Ólafía
Hrönn Jónsdóttir leikur, og dóttir
þeirra, Harpa Sjöfn sem Snæfríður
Ingvarsdóttir leikur. Þá er nú heppi-
legt að Sigurjón digri er búinn að
reka alla úr leikfélaginu, því bæjar-
búar, sem dreymir alla um að slá í
gegn með einhverjum hætti, ganga til
liðs við sirkusinn og úr verður heil-
mikil sýning,“ segir Gói og bendir á
að það sé engin tilviljun að sirkus hafi
orðið fyrir valinu sem rauði þráður
verksins. „Því það er mikill sirkus í
Stuðmönnum. Sirkusinn er líka kjör-
in leið til að skapa þá gleðisprengju
sem markmiðið er,“ segir Gói og tek-
ur fram að í lokaþætti verksins gefist
færi á góðri lagasyrpu, en í þriðja og
síðasta þætti leikritsins fá áhorfendur
að sjá sirkussýninguna sem verið hef-
ur í undirbúningi allt verkið.
Í ljósi þess að þetta er fyrsta stóra
sýningin sem þú leikstýrir í atvinnu-
leikhúsi er eðlilegt að spyrja hvort þú
sért nú kominn á bragðið og langi að
leikstýra meira?
„Já, ekki spurning. Fyrir nokkrum
árum, þegar ég hafði skrifað Góa og
eldfærin, var ég spurður hvort mig
langaði að skrifa meira og svaraði þá
neitandi. Hálfu ári seinna var ég kom-
inn á fullt við að skrifa Stundina okk-
ar. Fyrir nokkrum árum var ég líka
spurður hvort mig langaði að leik-
stýra og þá svaraði ég líka neitandi og
sá fyrir mér að ég myndi bara vilja
leika. Í dag get ég hins vegar svarað
því einlæglega að ég væri til í að leik-
stýra meira. Sennilega er þetta það
sem kallast þroski. Þannig að ég er að
þroskast. Ég skal alveg viðurkenna
að ég átti ekki von á því að það myndi
gerast,“ segir Gói og skellihlær.
„Sannkölluð gleðisprengja“
Þjóðleikhúsið frumsýnir sirkussöngleikinn Slá í gegn eftir Góa með tónlist Stuðmanna
Höfundurinn segist sannfærður um að breyta megi heiminum til góðs með uppfærslunni
Ljósmynd/Hörður Sveinsson
Fjölskyldusöngleikur Örn Árnason (fyrir miðju) í hlutverki Binna sem keypti sér sirkus á eBay í Slá í gegn.
Guðjón Davíð
Karlsson
Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími 588 8000 • slippfelagid.is
DROTTNINGABLÁR*
AFSLÁ R
50%
T
Li
tir
ni
r
er
u
le
ið
be
in
an
di
.F
áð
u
ek
ta
lit
ap
ru
fu
hj
á
ok
ku
r
ín
æ
st
u
ve
rs
lu
n.
T
ÍU
P
U
N
K
T
A
R
Kozýgrár
Draumagrár
Gammel bleikur
af þremur vinsælustu litunum í febrúar