Morgunblaðið - 22.02.2018, Qupperneq 88

Morgunblaðið - 22.02.2018, Qupperneq 88
88 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 VIÐTAL Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Þegar ég sit úti í sal á æfingum lang- ar mig iðulega að stökkva upp á svið og vera með – ég held að það sé góðs viti,“ segir Guðjón Davíð Karlsson, betur þekktur sem Gói, höfundur og leikstjóri fjölskyldusirkussöngleiks- ins Slá í gegn sem frumsýndur verð- ur í Þjóðleikhúsinu á laugardag. Fyrir rúmi ári frumsýndi Þjóðleik- húsið fjölskyldusöngleikinn Fjarska- land úr smiðju Góa í leikstjórn Selmu Björnsdóttur og því verða tveir söng- leikir Góa í sýningu á Stóra sviðinu næstu vikurnar. „Ég er þakklátur Ara [Matthíassyni þjóðleikhússtjóra] fyrir að hafa trú á mér og fyrir að fá tækifæri til að gera marga og ólíka hluti innan leikhússins,“ segir Gói og rifjar upp að hann hafi frá fimm ára aldri átt sér draum um að verða leikhús- listamaður þegar hann yrði stór. „Ég hef verið svo lánsamur að sá draumur rættist. Ég þreytist aldrei á því í samtölum mínum við skóla- börn að hvetja þau til að fylgja ávallt hjartanu, elta draumana og gefast aldrei upp. Því það er ekkert eins dásamlegt og þegar maður sér drauma sína rætast.“ Sýningin á að breyta heiminum En hvernig kemur það til að þú leikstýrir eigin verki að þessu sinni? „Mér fannst það spennandi, ekki síst vegna þess að ég hafði mjög skýra sýn á hvað mig langaði til að gera við þennan efnivið. Markmið mitt er að smita gleði út í samfélagið í anda Stuðmanna. Stuðmenn eru ótrúlega hæfileikaríkir listamenn, frábærir hljóðfæraleikarar og snilld- arlegir laga- og textasmiðir, enda hafa þeir samið ógrynni hittara. Þeirra aðalsmerki er samt húmorinn, ekki síst fyrir sjálfum sér, sem skýr- ir, að ég held, áratugalangar vinsæld- ir þeirra. Mig langaði að fanga þenn- an létta blæ og færa gleðina á svið. Þetta verður sannkölluð gleði- sprengja. Markmið mitt hefur frá fyrsta bókstaf verið að breyta heim- inum með þessu verki, því ég held að hægt sé að breyta heiminum til góðs þegar 500 áhorfendur koma út af hverri sýningu með dillandi Stuð- mannatakt í líkamanum, bros á vör og gleði í hjarta,“ segir Gói og tekur fram að þó hann hafi skýra listræna sýn og sterkar skoðanir hafi hann engar áhyggjur af því að verða ein- ræðisherra. „Ég er með frábært listrænt teymi í kringum mig sem er mikið leik- húslistafólk,“ segir Gói og nefnir í því samhengi Maríu Th. Ólafsdóttur sem hannar búninga, Finn Arnar Arnar- son sem hannar leikmynd, Magnús Arnar Sigurðsson sem hannar lýs- ingu, Kristin Gauta Einarsson og Kristján Sigmund Einarsson sem hanna hljóðmynd, Stefán Hall Stef- ánsson aðstoðarleikstjóra, Vigni Snæ Vigfússon tónlistarstjóra, Nicholas Arthur Candy sirkusstjóra og Chan- telle Carey danshöfund. „Við höfum átt mjög gott samtal og ég er al- gjörlega ófeiminn að treysta öðrum. Ég er alltaf til í að skoða allar hug- myndir og lít ekki á mig sem einræð- isherra. Ég veit að heildin virkar ekki nema allir fái sína rödd og eigi hlut- deild í sköpuninni,“ segir Gói og tek- ur fram að hann sé einstaklega hepp- inn með leikhópinn og samverkafólk. „Ég hef aldrei áður verið í leikhóp sem kemur jafn jákvæður og æstur í að gera frábæra sýningu, eins og í þessu ferli. Það er sama hvað við höf- um verið að fást við. Því er alltaf mætt með jákvæðni og allir eru til í að prófa,“ segir Gói og tekur fram að í ljósi þess að sirkus sé leiðarstef í gegnum sýninguna þurfi að leysa ýmis flókin tæknileg mál og skapa galdra á sviðinu. „Hér hefur þurft að útbúa tækni- lega flókna leikmuni, gervi og bún- inga ásamt því að og finna tækni- lausnir til að skapa galdra á sviðinu. Enda er það ekki á hverjum degi sem starfsmenn hússins þurfa að finna lausn á því hvernig þeir geta látið Örn Árnason sitja í lausu lofti í heilt lag. Deildir hússins hafa unnið ein- staklega vel saman og þar hefur já- kvæðnin verið leiðarljósið. Ég held að jákvæðnin, sem birtist í öllum deildum Þjóðleikhússins, skýrist af því að það vita allir í húsinu hvað okk- ur langar til að gera með þessari sýn- ingu. Hér eru allir mjög fókúseraðir á það að þetta er Þjóðleikhúsið okk- ar, öll þjóðin á þetta leikhús og það er mjög mikilvægt að bjóða upp á sýn- ingu sem númer eitt, tvö og þrjú er gerð fyrir okkar dyggustu gesti – fólkið sem mætir hér í leikhús og styður við bakið á okkur. Ég held að það sé partur af skýringunni. Svo finnst öllum svo spennandi að fá að taka þátt í þessari frumsköpun sem hér fer fram við vinnslu sýningar- innar. Við eigum öll svo stóran þátt í þessari sýningu,“ segir Gói og áréttar að það séu mikil forréttindi að fá að vinna í slíku skapandi umhverfi. „Við sem hér vinnum erum sannkallaður forréttindahópur því við fáum að vinna við það sem við elskum og okk- ur dreymir um.“ Engu við myndina að bæta En hvernig kviknaði hugmyndin að þessum sirkussöngleik? „Hún kviknaði í samtali mínu við þjóðleikhússtjóra og Stuðmenn. Í desember sl. voru 35 ár síðan kvik- myndin Með allt á hreinu var frum- sýnd og því fannst okkur sniðugt að gera eitthvað í tilefni afmælisins. Mér fannst ekki koma til greina að búa til söngleik upp úr myndinni, því hún stendur sem fullkomið listaverk og engu við hana að bæta. Ég varð strax mjög hrifinn af þeirri hugmynd að búa til glymskrattasöngleik þar sem allur katalógur Stuðmanna væri undir,“ segir Gói og tekur fram að söngleikurinn innihaldi bæði vinsæl- ustu lög Stuðmanna og minna þekkt lög sem aðeins séu til í tónleika- upptöku. Hefur þú verið aðdáanda Stuð- manna lengi? „Já, ég hef alla tíð hlustað mikið á Stuðmenn og haldið upp á þá,“ segir Gói og tekur fram að það hafi verið sér mikill heiður þegar honum gafst tækifæri til að koma fram með Stuð- mönnum á styrktartónleikum fyrir Stefán Karl Stefánsson leikara síðla árs 2016. „Það var stórkostleg upp- lifun,“ segir Gói og rifjar upp atvik úr æsku. „Þegar ég var á grunnskóla- aldri bjó ég í miðbænum og hjólaði reglulega niður á Grettisgötu eftir skóla til að horfa á bílinn hans Egils Ólafssonar, enda fallegasti bíllinn í borginni,“ segir Gói og rifjar upp að um hafi verið að ræða hvítan Merce- des Benz. „Þegar ég sá samskonar grip á bílasölu fyrir nokkrum árum varð ég að kaupa hann,“ segir Gói kíminn. Ég er að þroskast En um hvað fjallar svo sirkussöng- leikurinn Slá í gegn? „Þegar ég hugsa um Stuðmenn og Með allt á hreinu fer ég strax að hugsa um félagsheimili. Hér á landi er starfandi leikfélag í nánast hverju byggðarlagi, en þessi mikli leiklistar- áhugi Íslendinga er einsdæmi. Ég dá- ist að fólki sem mætir í félagsheimilið í byggðarlaginu að loknum löngum vinnudegi til að uppfylla leiklistar- drauma sína. Ég er svo lánsamur að geta mætt í félagsheimilið hér við Hverfisgötu og sinnt minni list- sköpun í fullu starfi,“ segir Gói og tekur fram að Slá í gegn gerist ein- mitt í litlu byggðarlagi þar sem leik- félagið á staðnum fagnar 100 ára starfsafmæli með því að setja upp Gullna hliðið eftir Davíð Stefánsson. „Formaður leikfélagsins er Sigur- jón digri, sem Jón Gnarr leikur, og hann hefur ásamt fjölskyldu sinni borið leikfélagið á herðum sér. Hann leikstýrir afmælissýningunni og yfir- tekur smám saman öll hlutverkin því honum finnst enginn geta leikið jafn- vel og hann sjálfur. Á staðinn mætir draumóramaðurinn Binni, sem Örn Árnason leikur, með sirkus frá Rúm- eníu sem hann keypti á eBay og ætlar að nýta plássið til að þróa sirkussýn- inguna áður en hann heldur til höfuð- borgarinnar. Með honum í för eru Helga eiginkona hans, sem Ólafía Hrönn Jónsdóttir leikur, og dóttir þeirra, Harpa Sjöfn sem Snæfríður Ingvarsdóttir leikur. Þá er nú heppi- legt að Sigurjón digri er búinn að reka alla úr leikfélaginu, því bæjar- búar, sem dreymir alla um að slá í gegn með einhverjum hætti, ganga til liðs við sirkusinn og úr verður heil- mikil sýning,“ segir Gói og bendir á að það sé engin tilviljun að sirkus hafi orðið fyrir valinu sem rauði þráður verksins. „Því það er mikill sirkus í Stuðmönnum. Sirkusinn er líka kjör- in leið til að skapa þá gleðisprengju sem markmiðið er,“ segir Gói og tek- ur fram að í lokaþætti verksins gefist færi á góðri lagasyrpu, en í þriðja og síðasta þætti leikritsins fá áhorfendur að sjá sirkussýninguna sem verið hef- ur í undirbúningi allt verkið. Í ljósi þess að þetta er fyrsta stóra sýningin sem þú leikstýrir í atvinnu- leikhúsi er eðlilegt að spyrja hvort þú sért nú kominn á bragðið og langi að leikstýra meira? „Já, ekki spurning. Fyrir nokkrum árum, þegar ég hafði skrifað Góa og eldfærin, var ég spurður hvort mig langaði að skrifa meira og svaraði þá neitandi. Hálfu ári seinna var ég kom- inn á fullt við að skrifa Stundina okk- ar. Fyrir nokkrum árum var ég líka spurður hvort mig langaði að leik- stýra og þá svaraði ég líka neitandi og sá fyrir mér að ég myndi bara vilja leika. Í dag get ég hins vegar svarað því einlæglega að ég væri til í að leik- stýra meira. Sennilega er þetta það sem kallast þroski. Þannig að ég er að þroskast. Ég skal alveg viðurkenna að ég átti ekki von á því að það myndi gerast,“ segir Gói og skellihlær. „Sannkölluð gleðisprengja“  Þjóðleikhúsið frumsýnir sirkussöngleikinn Slá í gegn eftir Góa með tónlist Stuðmanna  Höfundurinn segist sannfærður um að breyta megi heiminum til góðs með uppfærslunni Ljósmynd/Hörður Sveinsson Fjölskyldusöngleikur Örn Árnason (fyrir miðju) í hlutverki Binna sem keypti sér sirkus á eBay í Slá í gegn. Guðjón Davíð Karlsson Opið: 8-18 virka daga og 10-14 laugardaga • Sími 588 8000 • slippfelagid.is DROTTNINGABLÁR* AFSLÁ R 50% T Li tir ni r er u le ið be in an di .F áð u ek ta lit ap ru fu hj á ok ku r ín æ st u ve rs lu n. T ÍU P U N K T A R Kozýgrár Draumagrár Gammel bleikur af þremur vinsælustu litunum í febrúar
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97
Qupperneq 98
Qupperneq 99
Qupperneq 100

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.