Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 92

Morgunblaðið - 22.02.2018, Blaðsíða 92
92 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018 OCEAN MIST Modus Hár og Snyrtistofa Smáralind | harvorur.is REF Stockholm er 12 ára gamalt Professional haircare merki Ocean Mist er 100 % Vegan , sulfate, Paraben, glúten og Cruelity free Verð 2.560 kr. Sjá nánar á harvorur.is Einar Falur Ingólfsson efi@mbl.is Listasafn Reykjavíkur minnist ald- arafmælis sjálfstæðis og fullveldis Íslands í ár með því að bjóða mynd- listarmönnum frá Danmörku að sýna í safninu. Sýning þeirra, Tak i lige måde: Samtímalist frá Dan- mörku, verður opnuð í Hafnarhúsinu annað kvöld, föstudag, kl. 20. Fjórir kunnir danskir myndlist- armenn eiga verk á sýningunni, þau Jeannette Ehlers, Jesper Just, John Kørner og Tinne Zenner. Just verð- ur viðstaddur opnunina og mun kl. 21 ræða við Markús Þór Andrésson sýningarstjóra um sýninguna og eig- in verk. Mikil gerjun á sér stað í danskri myndlist um þessar mundir, ekki síst í ljósi breyttrar heimsmyndar í pólitísku og samfélagslegu tilliti. Þessi fyrrverandi herraþjóð okkar á sér langa sögu sem nýlenduveldi og heyra Grænland og Færeyjar enn undir konungsríkið. Þá er Danmörk í dag fjölmenningarsamfélag. Marg- ir danskir listamenn, og þar á meðal þeir sem eiga verk á sýningunni, endurspegla í verkum sínum þessa þætti í sögu þjóðarinnar og samtíma. Viðfangsefni þeirra tengjast meðal annars hugmyndum um síðný- lendustefnu, fólksflutninga, sjálfs- mynd þjóða og landamæri. Í verk- unum vísa listamennirnir ýmist í eigin reynsluheim og fjölskyldusögu, eða takast á hendur heimildavinnu, ferðalög og rannsóknir. Veggur verður hljóðfæri Sem dæmi um verk á sýningunni má nefna nýtt myndbandsverk Tinne Zenner, Nutsigassat (Þýð- ingar). Það er tekið á Grænlandi og fá áhorfendur innsýn í starfsemi fólks í höfuðstaðnum Nuuk og er horft til snævi þakinna fjalla og jökla allt um kring. Yfir kvikmyndinni er fluttur texti á grænlensku sem greinir frá því hvernig Danir tóku upp á því að nefna ýmsa staði á Grænlandi upp á dönsku þegar valdatíð þeirra hófst í landinu. Þann- kæmi fram í og myndi spila, ekki á gítar heldur á landamæravegg milli Bandaríkjanna og Mexíkó. Þetta er einföld kvikmynd og ekkert er gefið í skyn um það hvort þessi mikli stál- veggur sé góður eða slæmur þar sem hún spilar á hann. En verkið hefur breyst síðan ég gerði það, áður en Donald Trump var kosinn forseti. Hugmyndir hans um vegg urðu mik- ilvægur hluti kosningaherferð- arinnar, þótt hann verði sjálfsagt aldrei reistur, en engu að síður er landamæraveggur víða þegar til staðar,“ segir hann. Og bætir við að sér þyki þetta verk orðið fullpólitískt í ljósi hugmynda Trumps. Just hefur sínar hugmyndir um þær en vill alls ekki þröngva þeim upp á áhorf- endur. „En það má finna ákveðna ljóð- rænu í þessum vegg sem er umdeild- ur nú en var það auðvitað líka áður,“ segir hann. „Ég hef sýnt þetta verk annarsstaðar með öðrum verkum mínum sem fjalla um byggingar og strúktúra með mikla táknræna merkingu, eins og Tvíburaturnana í New York. Í sumum verka minna birtast kvenpersónur og mynda ákveðið jafnvægi við byggingar sem eru mjög karllægar – eru líka oftast reistar af körlum.“ Sérkennilegt að vera fulltrúi Sum verka Just eru vandlega skrifuð fyrirfram og hann gerir þá tökuhandrit, ólíkt því verki sem sýnt er hér nú, og eru þá jafnvel sýnd á mörgum skjáum. Í þessu verki hér skipti hugmyndin mestu máli, segir hann. Þá hefur Just líka unnið með innsetningar í auknum mæli og flétt- að saman við kvikmyndir en í seinni tíð hefur hann oftast kvikmyndað á filmur, ekki vídeó. „Mér finnst áhugavert að skapa frásagnir, ekki bara innan kvikmyndanna heldur samhliða í sýningarrýminu öllu,“ segir hann. Á sýningunni í Hafnarhúsinu er Jesper Just kynntur sem danskur listamaður í hópi landa sinna og hon- um finnst það skemmtilegt þar sem ákveðinn húmor er í því hvernig sýn- ingin er sett fram, til að minnast þess að Danir réðu eitt sinn landinu. „Ég hef ekki búið í Danmörku í 11 ár og finnst það í raun sérkennilegt að vera kynntur sem fulltrúi lands- ins,“ segir hann. „Það getur þó verið áhugavert í samhengi eins og núna, þar sem Listasafn Reykjavíkur vel- ur listamennina og býður okkur, en það er annað þegar til að mynda ráðuneyti setur saman hóp og otar honum að öðrum sem fulltrúum. Því geta fylgt vandamál … En þegar Ís- lendingar vilja þakka Dönum fyrir síðast, og hafa ákveðinn húmor í skilaboðunum, þá er ég til í að taka þátt.“ Og Just minnist á húmorinn í verkum Ragnars Kjartanssonar sem hann kann greinilega að meta. Þeir hittust fyrst þegar báðir sýndu á listahátíð í Noregi. „Og þar sýndi Ragnar myndbandsverk sem sýnir danskan kaupmann flengja Íslend- ing! Það var rosalega fyndið.“ Landamæri, þjóðir og nýlendur  Sýning með verkum fjögurra þekktra danskra myndlistarmanna í Listasafni Reykjavíkur  Jesper Just, einn listamannanna, segir ákveðna ljóðrænu í landamæravegg í myndbandsverki hans Birt með leyfi listamannsins & Perrotin Landamæri Úr myndbandsverki Jespers Just, Continuous Monuments (Interpassivities). Bassaleikarinn kunni úr Sonic Youth, Kim Gordon, sést hér banka taktviss á stálvegg á landamærum Bandaríkjanna og Mexíkó. ig voru ný nöfn gefin náttúrufyr- irbærum og stöðum sem Grænlend- ingar þekktu undir sínum eigin heitum. Sum hver eru langsótt, eins og að nefna fjall „Söðul“ því hestar voru aldrei á Grænlandi og nafnið því úr samhengi við menningu svæð- isins. Texti verksins er þýddur með enskum texta þar sem orðalag og orðaskipan er nákvæmlega eins og á grænlensku. Þannig opnast nýr skilningur á virkni tungumálsins fyrir þá sem skilja það ekki. Jesper Just er einn þekktasti samtímalistamaður Dana en síðustu 11 ár hefur hann verið búsettur í New York og unnið þar að list sinni. Hann var fulltrúi Dana á Feneyja- tvíæringnum árið 2013. Í mynd- bandsverkinu Continuous Monu- ments (Interpassivities), sem er rúmlega árs gamalt, er komið að landamærunum milli Bandaríkjanna og Mexíkó en þar er þegar voldug stálgirðing á köflum – sem Banda- ríkjaforseti vill nú lengja með mikl- um vegg. Í verkinu sést Kim Gord- on, sem er þekkt sem bassaleikari hljómsveitarinnar Sonic Youth, rölta meðfram girðingunni, dangla í hana með spýtu og breyta henni í hálfgert hljóðfæri. Hlutverki voldugrar landamæragirðingarinnar er breytt með græskulausu gamni „og þannig verður hugmyndin um þessa girð- ingu í miðri eyðimörk sem aðskilur mannfólk nánast hjákátleg“, segir í lýsingu á verkinu. Orðið fullpólitískt Þegar rætt er við Jesper Just seg- ir hann þetta myndband sem sýnt er hér upphaflega hafa verið hluta viða- mikils dansverkefnis sem þau Kim Gordon unnu saman fyrir Kon- unglega danska ballettinn og fjallaði um landamæri og skorður, milli landa sem manna. „Verkin mín fjalla iðulega um arkitektúr og form, ekki endilega um fólk – og hér er fjallað um vegg,“ segir Just um Continuous Monu- ments (Interpassivities). „Þegar það var ljóst að Kim Gordon myndi skapa tónlist fyrir ballettinn þá lang- aði mig að gera kvikmynd sem hún Ljósmynd/Guillaume Ziccarelli Listamaðurinn „Þegar Íslendingar vilja þakka Dönum fyrir síðast, og hafa ákveðinn húmor í skilaboð- unum, þá er ég til í að taka þátt,“ segir Jesper Just. i8 galleríið tekur þátt í ARCO Madrid-listkaupstefnunni á Spáni sem hófst í gær og stendur út helgina. Alls sýna 211 gallerí frá 29 löndum verk eftir listamenn á þeirra snærum en þetta er ein um- fangsmesta listkaupstefnan sem sett er upp í Evrópu á ári hverju. 160 galleríanna eru á hinu al- menna svæði en unnið er sérstalega með nokkrum og þar á meðal i8 sem sýnir í þeim hluta kaupstefn- unnar sem kallaður er Dialogues, eða Samtöl. Þar hafa 14 gallerí ver- ið valin af stjórnendum kaupstefn- unnar til að kynna sérstaklega vel ákveðna listamenn og verk þeirra og sýnir i8 þar verk eftir Sigurð Guðmundsson og Ragnar Kjart- ansson. Verk Sigurðar og Ragnars á ARCO Sigurður Guðmundsson Ragnar Kjartansson
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.