Morgunblaðið - 22.02.2018, Side 97
MENNING 97
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. FEBRÚAR 2018
Leikritið Kvennaráð eftir Sellu
Páls verður leiklesið undir leik-
stjórn Sveins Einarssonar í Hann-
esarholti í kvöld, fimmtudag, kl. 20
og sunnudaginn 25. febrúar kl. 16.
„Kvennaráð fjallar um Þorgerði,
áttræða ekkju sem var stoð og
stytta áhrifamikils manns í fimmtíu
ár og nú vill hún breyta til. Sam-
band hennar við einkadótturina,
forstjórann Birnu, er þvingað
vegna tengdasonarins sem ekkjan
grunar um græsku. Er ekkjan fer
að taka á eigin málum bregst Birna
illa við og ásakar hina víetnömsku
heimilishjálp Kim um samsæri. En
þegar Birna þarf a glíma við örð-
ugar aðstæður koma móðir hennar
og Kim henni á óvart,“ segir í til-
kynningu. Með hlutverk kvennanna
í verkinu fara Þórunn Magnea
Magnúsdóttir, Guðrún Þórðar-
dóttir og Lieu Thuy Ngo. Búninga-
og sviðshönnuður er Helga Björns-
son. Miðar fást á tix.is, en aðgangs-
eyrir er 2.000 kr.
Kvennaráð leiklesið í Hannesarholti
Leikskáldið Sella Páls.
Nýjasta kvikmynd mexí-kóska leikstjórans Guill-ermo del Toro heitir TheShape of Water eða Lög-
un vatnsins. Fyrir myndina hlaut
Del Toro gullljónið á kvikmyndahá-
tíðinni í Feneyjum, ellefu tilnefn-
ingar til BAFTA-verðlaunanna og
heilar þrettán tilnefningar til Ósk-
arsverðlaunanna.
Del Toro er frábær leikstjóri og
mynd hans frá 2006, Pan‘s Labyr-
inth, er meistaraverk. Í nýjustu
myndinni leitar Del Toro aftur á mið
fantasíunnar en The Shape of Water
er rómantískt ævintýri um mállausa
konu sem verður ástfangin af ein-
hvers konar hafmanni með tálkn og
sundfit. Myndin, líkt og La La Land
eftir Damien Chazelle, er uppfull af
vísunum í gamla tíma, gullöldina í
Hollywood, Bandaríki kalda stríðs-
ins og París sjötta áratugarins í ein-
um allsherjar nostalgíugraut. En
eins og Del Toro hefur sjálfur sagt í
viðtölum eru áhrifin úr myndinni
einna mest úr B-hryllingsmyndum
sjötta áratugarins og þá sérstaklega
úr hinni stórskemmtilegu The
Creature from the Black Lagoon.
Elísa, leikin af Sally Hawkins, er
hetja sögunnar. Hún vinnur við að
þrífa tilraunastofu leyniþjónust-
unnar CIA í ónefndri borg í kalda
stríðinu undir illa innrættum yfir-
manni sem er skemmtilega ofleikinn
af Michael Shannon. Daglegt líf
hennar einkennist af þrúgandi ein-
manaleika. Hún fer í bað á morgn-
ana, fróar sér, fer í vinnuna og hlust-
ar á gamla franska slagara og horfir
á kvikmyndir, en á neðstu hæð heim-
ilis hennar er einmitt kvikmynda-
hús. Hún á viðkunnanlegan, sam-
kynhneigðan nágranna sem er líka
einmana og deilir ást hennar á söng-
leikjum. Einn daginn er hafmaður-
inn, sem kemur úr djúpum Amason-
fljótsins, færður inn í húsakynni CIA
og lokaður í vatnstanki. Haf-
skrímslið er dálítið Marvel-ofur-
hetjulegur froskamaður, krípi og
ófrýnilegur með tálkn og hreistur.
Milli þeirra verður tenging, hann
hlustar á lögin sem hún leikur fyrir
hann og þau ná að eiga samskipti
með táknmáli. Hann talar nefnilega
ekki, líkt og hún, fyrir utan að gefa
einhver hryglukennd fiskahljóð frá
sér. Vondi CIA-yfirmaðurinn vill
bara láta drepa þessa veru og nýtur
þess að pína hann með raflostum.
Vísindamaðurinn sem er að rann-
saka veruna er hinsvegar á öndverð-
um meiði og vill fyrir alla muni vita
hvernig hann getur andað bæði lofti
sem legi. Það kemur svo í ljós að vís-
indamaðurinn er í raun sovéskur
njósnari sem lekur upplýsingum um
sæskrímslið til samlanda sinna á
leynilegum fundum. Sæskrímslið, að
hans sögn, var dýrkað sem guð af
frumbyggjum í Suður-Ameríku og
virðist einmitt búa yfir einhvers kon-
ar ofurkröftum eins og við komumst
að síðar í myndinni.
Aðeins nágranni Elísu og vinkona
hennar Zelda, sem vinnur sem ræst-
ingakona á sama stað, vita að ástir
hafa tekist milli hennar og haf-
mannsins. Þegar Elísa kemst að því
að hann er í hættu á að verða drep-
inn tekst þeim að bjarga honum frá
tilraunastofunni og koma honum í
baðkarið hennar Elísu. Hér færist
enn meiri hiti í leikinn: veran og El-
ísa eiga erótíska ástarfundi í vatni og
svo reyna vondu karlarnir að ná
skrímslinu.
Frá upphafi myndarinnar fannst
mér henni svipa heilmikið til kvik-
mynda franska leikstjórans Jean-
Pierre Jeunet sem gerði meðal ann-
ars Amélie, Delicatessen og The
City of Lost Children. Stílbragðið er
mjög keimlíkt og eftir smá eftir-
grennslan komst ég að því að Jeunet
var einmitt, nú í síðustu viku, að
saka Del Toro um að hafa stolið at-
riði úr Delicatessen.
Kvikmyndin er afskaplega fögur
og frábærlega vel gerð. Atriði eins
og þegar Elísa fyllir baðherbergið af
vatni eru eftirminnileg. Litirnir
minna allir á hafið, íbúðin hennar El-
ísu er sægræn, búningar og jafnvel
bílar eru allir í grænum og bláum
tónum. Eini kontrastinn er eldrauð
tjöldin í kvikmyndahúsinu sem end-
urspeglast í rauðu blóði verunnar
þegar hún er særð, og rauðum skóm
og rauðu kápunni hennar Elísu. Ein-
manaleiki er þema í myndinni, sögu-
persónurnar Elísa, nágranninn og
sæskrímslið eru öll á skjön við
„normið“. Elísa er mállaus, nágrann-
inn samkynhneigður og veran er …
tja … vera. „Hefur þú líka alltaf ver-
ið einn?“ segir nágranninn við
skrímslið, sem er ótrúlega vel gert,
fallegt og hræðilegt á sama tíma.
Vatnið í myndinni táknar bæði til-
finningar og erótík, Elísa fróar sér í
baðkarinu, Elísa og skrímslið tengj-
ast og njótast í vatninu. Tónlistin
leikur stórt hlutverk til að endur-
spegla tilfinningarnar milli þeirra.
Vissulega er The Shape of Water
falleg en það var ýmislegt sem
hreinlega fór í taugarnar á mér við
hana. Elísa var ofleikin, tilfinningar
hennar of dramatískar og kvik-
myndin allt of stílfærð. Atriðið þar
sem hún brestur í söng og dansar við
skrímslið var pirrandi og í raun náði
sagan ekkert að heilla mig. Ein-
hvern veginn fannst mér sagan
drukkna í allt of mikilli stílfæringu
og persónusköpunin of einfeldnings-
leg.
Del Toro hefur sagt í viðtölum að
hann hafi viljað búa til ævintýri fyrir
fullorðna, en sem slíkt ævintýri gekk
það ekki alveg upp. The Shape of
Water er vissulega óvenjuleg og
falleg áhorfs en vantar einhvern
neista til þess að fanga áhorfandann.
Undirtitill kvikmyndarinnar er A
Fairy Tale for Troubled Times (Æv-
intýri fyrir erfiða tíma) og ég velti
fyrir mér hvers vegna þessi tiltekna
mynd er að slá í gegn vestanhafs í ár.
Kannski er einmitt ástæðan einhver
raunveruleikaflótti þar ytra þar sem
fólk vill hverfa aftur til fortíðarinnar
og einblína á hvunndagshetjur, til-
finningar og ólíklegar ástarsögur.
Fortíðarþrá „Einn allsherjar nostalgíugrautur,“ segir rýnir meðal annars um The Shape of Water.
Ævintýri sem drukkn-
ar í formfegurð
Sambíóin Álfabakka, Borgarbíó,
Háskólabíó og Smárabíó
The Shape of Water bbbnn
Leikstjóri: Guillermo del Toro. Aðalleik-
arar: Sally Hawkins, Michael Shannon,
Richard Jenkins, Doug Jones og Mich-
ael Stuhlbarg. Bandaríkin, 2017. 119
mín.
ANNA MARGRÉT
BJÖRNSSON
KVIKMYNDIR
ICQC 2018-20
Miðasala og nánari upplýsingar
5%
NÝ VIÐMIÐ
Í BÍÓUPPLIFUN Á ÍSLANDI
LAUGARÁSBÍÓ KYNNIR
DOLBY ATMOS
LUXURY · LASER
Sýnd kl. 8, 10.15Sýnd kl. 5.15, 7.50, 10.35
Sýnd kl. 10.30Sýnd kl. 7.50 Sýnd kl. 5.30Sýnd kl. 5.30