Morgunblaðið - 23.02.2018, Side 1
F Ö S T U D A G U R 2 3. F E B R Ú A R 2 0 1 8
Stofnað 1913 46. tölublað 106. árgangur
FJÖLBREYTT
UMFJÖLLUN UM
FALLEG ELDHÚS
VERKFRÆÐING-
URINN SEM VARÐ
JÓGAKENNARI
ÍSLENSKU MYND-
LISTARVERÐ-
LAUNIN AFHENT
SÆUNN RUT, 12 SIGURÐUR GUÐJÓNSSON 30SÉRBLAÐ 32 SÍÐUR
„Borgarstjórn og borgarkerfið er
fjarlægt okkur í efri byggðum og
mig langar til að snúa því við,“ segir
Valgerður Sigurðardóttir sem skip-
ar 3. sætið á lista Sjálfstæðisflokks-
ins í borginni. Nafn hennar er eitt
margra nýrra á lista flokksins fyrir
borgarstjórnarkosningar, en listinn
var formlega samþykktur í gær.
Eyþór Arnalds leiðir listann og
segir marga hafa viljað vera á listan-
um. „Ég fagna því að fá þetta góða
fólk með í baráttuna og vil þakka
þeim sem eru að kveðja fyrir vel
unnin störf,“ segir Eyþór, en Marta
Guðjónsdóttir er eini núverandi
borgarfulltrúinn sem fékk sæti á
uppstilltum lista kjörnefndar.
Eyþór segir listann tilbúinn að
takast á við margvíslegan vanda
Reykjavíkurborgar.
„Við erum með þverskurð af borg-
arbúum, bæði hvað varðar búsetu og
reynslu, óvenjubreiðan lista og ég
held að hann geti átt samhljóm með
íbúunum.“
Endurnýjun hjá D-lista
Tilbúinn að takast á við vanda borgarinnar, segir leiðtoginn
MMikil nýliðun hjá D-lista »6
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Framboð Vel fór á með fundar-
mönnum í Valhöll síðdegis í gær.
Keflavík
Reykjanesbraut
Keflavíkur-
flugvöllur
Njarðvík
Bílaþorpið
Loftmyndir ehf.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Á næstunni hefst uppbygging þjón-
ustuklasa fyrir bílaleigubíla í
Reykjanesbæ. Hann verður við nýja
götu, Flugvelli, og steinsnar frá
Keflavíkurflugvelli. Þar verða
minnst átta bílaleigur og hundruð,
jafnvel þúsundir, bílaleigubíla.
Eggert Þór Kristófersson, for-
stjóri N1, segir hugmyndina þá að
bílaleigur sameinist um að ferja við-
skiptavini milli flugvallarins og
þeirrar þjónustu sem fyrirtækin
veita.
Eggert Þór segir aðspurður farið
að þrengja að bílaleigum við Kefla-
víkurflugvöll og í Reykjavík.
Þokað burt úr Reykjavík
„Það er verið að ýta bílaleigum út
úr bílaborginni Reykjavík. Það er
ekki ólíklegt að höfuðstöðvar bíla-
leiga muni færast nær flugvell-
inum,“ segir Eggert Þór um stöð-
una.
Egill Jóhannsson, forstjóri Brim-
borgar, segir orðið þröng á þingi við
flugstöðina. „Þar hefur ekki orðið
nein þróun. Við sjáum ekki fram á að
Isavia geri neitt í þeim málum,“
segir Egill. »10
Bílaþorp
rís við
flugvöllinn
Þjónustukjarni fyr-
ir þúsundir bílaleigu-
bíla í Reykjanesbæ
Útiæfingar knattspyrnufólks eru vorboði, enda
þótt hríðarbylur geisi. Fótboltamenn Gróttu áttu
góða spretti á íþróttavellinum á Seltjarnarnesi í
gærkvöldi og sýndu ágæt tilþrif. Gætu þeir því
átt sterka innkomu á knattspyrnusumrinu 2018.
Í gær var éljagangur á höfuðborgarsvæðinu og í
dag má búast við rigningu en strax á morgun
snýst veðráttan til betri vegar svo boltastrákar
eins og aðrir munu brosa hringinn.
Vorboðar á vellinum þótt hríðarbylur geisi
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Fótboltamenn á Seltjarnarnesi komnir á fullt í æfingum fyrir sumarið
ans en meðal annarra leikara má
nefna Sigurð Sigurjónsson og Svein
Ólaf Gunnarsson sem einnig léku í
Hrútum.
Tökuliðið hefur m.a. komið sér
fyrir í félagsheimilinu Árbliki í Mið-
dölum. Aðaltökustaðurinn verður
bærinn Erpsstaðir en eftir páska
fara fram tökur á Hvammstanga og
í nágrenni. Um 30 manns verða á
tökustöðum, auk leikara, en leitað
hefur verið til heimamanna um að-
stoð við fjöldasenur og fleira.
Framleiðslukostnaður Héraðsins
er áætlaður um 280 milljónir kr. »4
Tökur hefjast í Dalabyggð í næstu
viku á myndinni Héraðið, The
County, í leikstjórn Gríms Há-
konarsonar sem jafnframt skrifar
handrit. Aðstandendur mynd-
arinnar eru þeir sömu og gerðu
Hrúta, margverðlaunaða kvikmynd
er fjallaði um tvo sauðfjárbændur
og bræður í afdölum.
Grímar Jónsson hjá Netop Films,
aðalframleiðandi Héraðsins, segir
þessa mynd vera kvenhetjusögu
kúabónda sem geri uppreisn í karl-
lægu samfélagi. Arndís Hrönn Eg-
ilsdóttir fer með hlutverk kúabónd-
Kvenhetjusaga kúa-
bónda á leið í tökur
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Íslandsbanki hefur ákveðið að leggja
inn beiðni til Reykjavíkurborgar um
að hefja vinnu við að skipuleggja
Kirkjusandslóðina en í því felst m.a.
að rífa stórbygginguna á Kirkjusandi
sem um langt árabil hýsti höfuðstöðv-
ar fyrirtækisins. Hún hefur staðið auð
frá því í fyrra þegar bankinn flutti
starfsemi sína í nýjar höfuðstöðvar í
Norðurturni í Kópavogi.
Birna Einarsdóttir, bankastjóri Ís-
landsbanka, segir að ákvörðun um
niðurrifið eigi sér langan aðdraganda.
„Húsið er illa skemmt af raka og
þrjú sérfræðifyrirtæki hafa komist að
þeirri niðurstöðu. Meðal niðurstaðna
er að rakaskemmdir sem ekki eru sjá-
anlegar leynist víða um húsið.“
Umfangsmiklar rannsóknir
Eitt þeirra þriggja fyrirtækja sem
lögðu mat á skemmdirnar á húsinu er
verkfræðiskrifstofan Efla og mun
rannsókn hennar á húsinu á Kirkju-
sandi vera umfangsmesta rannsókn
sem hún hefur gert.
Birna segir að ákvörðunin um nið-
urrif hafi í raun blasað við þegar ljóst
var orðið að kostnaður við endurbæt-
ur á húsinu myndi hlaupa á gríðarleg-
um fjárhæðum.
„Það er ljóst að viðgerðir á húsinu
myndu kosta milljarða auk þess sem
ekki er ljóst hvort hægt sé að hreinsa
rakaskemmdirnar alveg,“ segir
Birna.
Hún segir að bankinn óski nú eftir
samstarfi við Reykjavíkurborg um
nýtt skipulag fyrir lóðina. Nú þegar
vinna Íslandssjóðir, sem eru í eigu Ís-
landsbanka, að uppbyggingu á
Strætólóðinni svokölluðu í nágrenn-
inu og hefur það verið gert í samvinnu
við borgina. Þar verða á næstu árum
reistar 150 íbúðir. Birna segir mikil
tækifæri vera í spennandi uppbygg-
ingu á þessu svæði sem geymir mik-
ilvæga atvinnusögu sem þurfi að
varðveita.
Hús Íslandsbanka rifið
Bankinn hyggst rífa stórbyggingu á Kirkjusandi Viðgerð myndi kosta millj-
arða Bankinn óskar samstarfs við borgina um framtíðarskipulag lóðarinnar