Morgunblaðið - 09.03.2018, Síða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018
Þingmenn hafa ýmsar leiðir tilað rækja skyldur sínar við
kjósendur. Eitt af því sem þing-
menn geta gert er að spyrja ráð-
herra um eitt og annað sem máli
skiptir og veita með því aðhald
eða draga fram mikilvægar upp-
lýsingar sem erfitt er að nálgast
með öðrum hætti.
En það er meðþetta eins og
flest annað að það
er hægt að mis-
nota.
Þingmaður Pí-rata, Björn
Leví Gunnarsson,
hefur lagt fram 61 fyrirspurn frá
því um miðjan desember. Haldi
hann áfram að spyrja af sama
ákafa má gera ráð fyrir að spurn-
ingarnar verði orðnar á bilinu
200-250 áður en árið er liðið.
Ef allir þingmenn sem ekki eruráðherrar sýndu sama
stjórnleysi í fyrirspurnum sínum
mætti búast við meira en 10.000
fyrirspurnum á ári frá þingmönn-
um.
Það tekur tíma að svara fyrir-spurnum og ætla má að þessa
stundina sitji til dæmis fjöldi
starfsmanna stjórnarráðsins og
svari misjafnlega þarflausum
fyrirspurnum Björns Levís Gunn-
arssonar.
Þessi vinna embættismannannakostar töluvert fé eins og
gefur að skilja, en því miður
liggja engar upplýsingar fyrir um
hve mikið fé er um að ræða.
Er ekki brýnt að Björn Levíspyrji að því hver kostnaður-
inn er við að svara fyrirspurnum
hans?
Björn Leví
Gunnarsson
Hvað kosta svörin?
STAKSTEINAR
43 einstaklingar
greindust með
inflúensu í síð-
ustu viku, viku 9.
Þar af greindist
31 með inflúensu
B og 12 með
inflúensu A.
Þetta kemur
fram í frétt á vef
Embættis land-
læknis. Þar segir
að af þeim sem greindust með síð-
arnefndu tegundina hafi átta verið
með afbrigðið A(H3) og fjórir með
A(H1)pdm09. Flestir þeirra sem
greindust með fyrrnefnda afbrigðið
voru aldraðir.
Í fréttinni segir að talsvert hafi
verið um innlagnir á Landspítalanna
vegna inflúensu í síðustu viku. Flest-
ir þeirra sem lagðir voru inn hafi
verið með undirliggjandi sjúkdóma
eða aldraðir.
RSV-veiran var staðfest hjá 17
manns, sem er mikil aukning frá vik-
unni á undan þegar hún var staðfest
hjá fjórum.
Þá var töluvert um niðurgang í
síðustu viku og voru flest tilvikin hjá
börnum 1-4 ára.
Flensutil-
vikum
fjölgaði
Töluvert var um
niðurgang í viku 9
Flensa Hún hefur
hrjáð marga.
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
Vel gekk að leggja samræmt próf í
stærðfræði fyrir nemendur í níunda
bekk í gær. Ekki komu upp sam-
bærileg vandamál og með íslensku-
hluta prófsins daginn áður. Alls
þreyttu um 4.300 nemendur prófið
og aðeins komu upp einstaka tækni-
leg vandamál. Fulltrúar þjónustuað-
ila prófakerfisins voru með sérstaka
vakt og sáu til þess að tölvuþjónar á
Írlandi réðu við álagið.
Mennta- og menningarmálaráðu-
neytið sendi frá sér tilkynningu í
gær þar sem það er harmað að fram-
kvæmd samræmdra prófa í íslensku
í 9. bekk hafi mistekist með tilheyr-
andi óþægindum fyrir nemendur og
kennara.
Ráðuneytið hefur boðað fulltrúa
skólastjóra, kennara, nemenda, for-
eldra og sveitarfélaga til fundar á
miðvikudaginn í næstu viku þar sem
farið verður yfir stöðuna eftir ís-
lenskuprófið. Í framhaldinu verður
tekin ákvörðun um hvort íslensku-
próf verður lagt fyrir að nýju fyrir
þá nemendur sem ekki náðu að ljúka
því eða prófið fellt niður.
Prófin rædd á Alþingi
Framkvæmd samræmdu próf-
anna var rædd á Alþingi í gær. Þar
spurði Guðmundur Andri Thorsson,
þingmaður Samfylkingar, Lilju Al-
freðsdóttur, mennta- og menningar-
málaráðherra, út í tilgang sam-
ræmdu prófanna. Sagði hann að sú
nálgun á íslenskukennslu sem sneri
að prófunum og undirbúningi fyrir
þau gæti skapað andúð á íslenskri
tungu og bókmenntum meðal ung-
menna. Lilja Alfreðsdóttir sagði í
svari sínu að brýnt væri að skoða
samræmdu prófin og athuga hvað
ætti við og hvað ekki í dag.
Telur brýnt að skoða samræmdu prófin
Rætt um samræmd próf á Alþingi Engin teljandi vandamál komu upp í gær
Dvergshöfða 2, 110 Reykjavík bilanaust@bilanaust.is
Sími: 535 9000 | bilanaust.is
Gæði, reynsla og gott verð
Vottaðir hágæða
VARAHLUTIR
í flestar gerðir bifreiða
Siðan 1962
Bílanaust er einnig í Kópavogi – Hafnarfirði – Keflavík – Selfossi – Akureyri – Egilsstöðum
Veður víða um heim 8.3., kl. 18.00
Reykjavík 0 léttskýjað
Bolungarvík 0 skýjað
Akureyri -2 snjókoma
Nuuk -10 léttskýjað
Þórshöfn 2 snjóél
Ósló -2 snjókoma
Kaupmannahöfn 0 þoka
Stokkhólmur -1 snjókoma
Helsinki -4 heiðskírt
Lúxemborg 6 rigning
Brussel 8 léttskýjað
Dublin 7 skúrir
Glasgow 5 skúrir
London 9 skýjað
París 7 rigning
Amsterdam 6 skúrir
Hamborg 8 rigning
Berlín 8 léttskýjað
Vín 11 léttskýjað
Moskva -3 heiðskírt
Algarve 18 skýjað
Madríd 10 rigning
Barcelona 13 léttskýjað
Mallorca 12 þoka
Róm 13 léttskýjað
Aþena 16 léttskýjað
Winnipeg -16 þoka
Montreal -1 snjókoma
New York 3 alskýjað
Chicago -2 léttskýjað
Orlando 12 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
9. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 8:07 19:10
ÍSAFJÖRÐUR 8:15 19:12
SIGLUFJÖRÐUR 7:58 18:55
DJÚPIVOGUR 7:37 18:39