Morgunblaðið - 09.03.2018, Page 12
12 DAGLEGT LÍF
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018
Guðrún Erlingsdóttir
ge@mbl.is
Ég er móðir, leikskóla-kennari, fyrrverandi þing-maður, verkefnisstjóri ogmanneskja sem elskar að
vera til og læra. Ég er stolt af því að
vera innflytjandi og læt vita að ég til-
heyri þeim hópi. Ég veit ekki af
hverju ég geri það og sumum finnst
ég gera of mikið úr því að vera inn-
flytjandi,“ segir Nichole Leigh Mosty
sem verið hefur áberandi í Metoo-
byltingu kvenna á Íslandi sem eru af
erlendu bergi brotnar.
Nichole segir að fólk hafi mis-
jafna þörf fyrir að skilgreina sig sem
innflytjendur. Sumir vilji falla inn í
samfélagið án þess og það sé ekkert
að því.
Nichole fæddist í Bandaríkj-
unum en fluttist til Íslands árið 1999.
Hún er fyrrverandi þingmaður
Bjartrar framtíðar og fyrsti þingmað-
ur af erlendum uppruna sem sest hef-
ur í stól forseta Alþingis. Í dag starf-
ar Nichole sem verkefnisstjóri hjá
þjónustumiðstöð Reykjavíkur í
Breiðholti þar sem verkefni hennar
er að efla félagsauð í hverfinu með
áherslu á fjölmenningu og marg-
breytileika.
„Ég nýt þess að vera aftur bú-
sett í Breiðholtinu og starfa þar. Ég
þekki vel til og hef góða tengingu við
marga foreldra. Ég þekki líka vel til
innflytjendamála sem er kostur þar
sem flestir innflytjendur búa í Breið-
holti,“ segir Nichole.
Nicole kynntist Garðari Kenn-
eth Mosty Gunnarssyni í bakaríi í
Boston þar sem hann lærði bakara-
iðn. Nichole var á þeim tíma í kokka-
Manneskja sem elskar
að vera til og læra
Nichole Leigh Mosty er innflytjandi frá Bandaríkjunum sem flutti til landsins
með íslenskum eiginmanni sínum árið 1999. Veran á Íslandi varð lengri en til
stóð í upphafi. Nichole hefur látið til sín taka í málefnum innflytjenda og hún
starfar sem verkefnisstjóri hjá þjónustumiðstöð Reykjavíkur í Breiðholti.
Morgunblaðið/Eggert
Baráttukona Nichole Leigh Mosty, ein af forsvarsmönnum Metoo-byltingar
erlendra kvenna á Íslandi, flytur ræðu af sannfæringu úr ræðustóli Alþingis.
Leikskólakennarinn Nichole ræðir stafrófið við lítinn vin í leikskólanum.
FÍT-verðlaunin 2018 eru veitt af Fé-
lagi íslenskra teiknara og verða af-
hent nk. miðvikudag, 22. mars. Verð-
launin eru veitt fyrir þau verk sem
sköruðu fram úr á sviði grafískrar
hönnunar og myndskreytingar á
liðnu ári. Í tilkynningu frá FÍT kemur
fram að í keppnina sendi verk bæði
auglýsingastofur og einyrkjar auk
þess sem nemendur í grafískri hönn-
un senda verk í nemendaflokk. Í ár
voru 350 innsendingar sem er met-
fjöldi og rúmlega 15% aukning frá því
í fyrra. Tilnefnt er í 21 flokki og ná
þeir yfir helstu undirflokka grafískrar
hönnunar svo sem skjágrafík, vef-
hönnun, prentverk, hönnun auglýs-
inga og myndskreytingar. Að auki eru
veitt aðalverðlaun fyrir það verk sem
þótti skara fram úr á meðal verð-
launaðra verka og er það valið af for-
mönnum dómnefnda í FÍT-keppninni.
Tilkynnt verður um verðlaunahafa
og viðurkenningar með viðhöfn í
Tjarnarbíói hinn 14. mars kl. 18.30 en
að auki verður nýr verðlaunagripur
kynntur og veittur en hönnuður hans
er Garðar Eyjólfsson. Viðburðurinn
markar upphaf hönnunarhátíðarinnar
HönnunarMars sem mun setja svip á
borgarlífið í Reykjavík dagana 15.-18.
mars. Sýning á þeim verkum sem
hljóta verðlaun og viðurkenningu
verður í Listasafni Reykjavíkur, Hafn-
arhúsi meðan á HönnunarMars
stendur. Þeir flokkar sem tilnefnt er í
eru: Auglýsingaherferðir, bókahönn-
un, bókakápur, firmamerki, gagnvirk
miðlun, geisladiskar og plötur, hreyfi-
grafík, menningar- og viðburða-
mörkun, mörkun fyrirtækja, mynd-
skreytingar fyrir auglýsingar og
herferðir, myndskreytingaröð, nem-
endaflokkur, opinn flokkur, opinn
stafrænn flokkur, stakar auglýsingar
fyrir prentmiðla, stakar myndskreyt-
ingar, umbúðir og pakkningar, um-
hverfisgrafík, upplýsingahönnun, vef-
síður og veggspjöld. Jónsson &
Le’macks er með flestar tilnefningar
eða 26, en næst á eftir þeim er
Brandenburg með 21 tilnefningu.
FÍT-verðlaunin 2018
Ljósmynd/Magnús Elvar Jónsson
Frá Lava eldfjallasetri Verk eftir Gagarín fyrir LAVA eldfjallasetur,
en það er tilnefnt í upplýsingahönnun og gagnvirkri miðlun.
Jónsson & Le’macks á toppnum
Litríkt Ein myndanna úr verkinu
Parallel space, eftir Stúdíó Fræ
fyrir Genki Instruments. Tilnefnt í
opnum flokki og hluti af verki til-
nefndu í mörkun fyrirtækja.
Eftirspurn eftir víni sem framleitt er
án dýraafurða hefur aukist mjög í
kjölfar veganbyltingarinnar að því er
fram kemur í grein sem birtist á vef-
miðli The Guardian, á slóðinni
www.theguardian.com.
Í lok víngerðar er vínið bragðbætt
og gerleifar og bakteríur fjarlægðar.
Til slíkra verka eru notaðar meðal
annars eggjahvítur, gelatín og efni
sem fyrirfinnast í kúamjólk og fiski.
Það er breska samvinnufélagið Co
op sem vinnur að því í samráði við
vínframleiðeindur um allan heim að
auka vöruúrval veganvíns í verslunum
sínum á komandi vikum og mán-
uðum.
Baunir og jafnvel kartöflur verða
notaðar í stað dýraafurða. Það er gert
til þess að koma til móts við vínkaup-
endur sem neyta ekki dýraafurða í
neinu formi og bragðbæta þannig vín
og fjarlægja gerleifar og bakteríur.
Stefnt er að því að yfir 100 vegan-
víntegundir verði komnar á markað í
lok þessa árs.
Nýjungar í vínframleiðslu
Breytingar Víngerð tekur breytingum vegna aukins áhuga á vegan lífsstíl.
Baunir og kartöflur í veganvíni
Suðurhrauni 4210 Garðabæ | Furuvellir 3 600 Akureyri | Sími 575 8000 | samhentir.is
Heildarlausnir
í umbúðum og öðrum rekstrarvörum
fyrir sjó- og landvinnslu
u KASSAR
u ÖSKJUR
u ARKIR
u POKAR
u FILMUR
u VETLINGAR
u HANSKAR
u SKÓR
u STÍGVÉL
u HNÍFAR
u BRÝNI
u BAKKAR
u EINNOTA VÖRUR
u HREINGERNINGAVÖRUR
Allt á
einum
stað