Morgunblaðið - 09.03.2018, Page 18

Morgunblaðið - 09.03.2018, Page 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018 Danskur lakkrís með súkkulaði og lakkrískurli 9. mars 2018 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 99.37 99.85 99.61 Sterlingspund 137.98 138.66 138.32 Kanadadalur 76.84 77.3 77.07 Dönsk króna 16.582 16.68 16.631 Norsk króna 12.751 12.827 12.789 Sænsk króna 12.089 12.159 12.124 Svissn. franki 105.89 106.49 106.19 Japanskt jen 0.9407 0.9463 0.9435 SDR 144.66 145.52 145.09 Evra 123.55 124.25 123.9 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 149.67 Hrávöruverð Gull 1325.4 ($/únsa) Ál 2112.0 ($/tonn) LME Hráolía 65.23 ($/fatið) Brent Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á ● Hagnaður Orku- veitu Reykjavíkur jókst um 22% á milli ára og nam 16,3 milljörðum króna árið 2017. Um helmingur hagnaðarins er vegna reiknaðra framtíðartekna af rafmagnssölu sem tengd er álverði, en álverð hækkaði á síðasta ári, segir í til- kynningu. Tekjurnar jukust um 6% á milli ára og voru 44 milljarðar króna. Aukin umsvif í samfélaginu kölluðu á meiri veituþjón- ustu og álverð hækkaði. Arðsemi eigin fjár var 12% á árinu. Eiginfjárhlutfallið jókst um 6 prósentu- stig í 46%. Í tilkynningu segir að hagnaður fyrir- tækisins verði meðal annars nýttur til að lækka gjaldskrár, þ.m.t. gjaldskrá vatnsveitu. Orkuveitan hagnaðist um 16,3 milljarða OR Tekjur jukust um 6% í fyrra. STUTT BAKSVIÐ Þóroddur Bjarnason tobj@mbl.is Að mati Sigríðar Snævarr, fyrsta kvensendiherra Íslands, er fyrsta forsendan fyrir því að draumurinn um að völd og áhrif í atvinnulífinu verði að raunveruleika fyrir bæði kynin sú, að viðskiptalífið dragi til sín metnaðargjarnar konur. Önnur forsendan er að hennar sögn sú að öflugir aðilar velji að eiga viðskipti eingöngu við þau fyrirtæki þar sem hlutfallið milli karla og kvenna í samsetningu stjórna og lykilstjórnenda er þeim að skapi. Þetta kom fram í máli Sigríðar á athöfn sem haldin var í Kauphöll Íslands í gærmorgun, þegar alþjóðadegi kvenna var fagnað með bjölluhringingu við opnun mark- aða. Sigríður var sérstakur gestur Nasdaq við þetta tilefni, og hringdi hún Nasdaq-bjöllunni kröftuglega eftir að hafa lokið máli sínu. Sigríður benti á í þessu sam- hengi að við opnun viðskiptadags í kauphöllinni í London fyrir mánuði hefðu 27 alþjóðleg fjárfestingar- fyrirtæki komið saman undir yfir- skriftinni 30% klúbburinn sem vísi í hlutfall kvenna í stjórnum þeirra fyrirtækja sem þau munu eiga í viðskiptum við. „Mun þetta duga, eða þurfum við nýjan arkitektúr, að stilla áttavitann upp á nýtt,“ spurði Sigríður. Óbreytt staða í Noregi Í máli Sigríðar kom einnig fram að Norðmenn hafi fyrstir allra fyr- ir 10 árum sett reglur um hlutfall kvenna í stjórnum fyrirtækja. Vís- aði hún í grein The Economist þar sem fram kom að þrátt fyrir þetta hefði konum í lykilstöðum í norsku atvinnulífi ekki fjölgað á þessum 10 árum. Norskar konur væru nú 7% forstjóra þar í landi, á Íslandi sé sama hlutfall 8% og í Bandaríkj- unum, þar sem engar sambæri- legar reglur séu í gildi, sé hlut- fallið 5%. „Þessi grein vekur áleitnar spurningar um það hvaða hnífar bíta.“ Benti Sigríður einnig á þær vörður sem varðaðar hefðu verið hér á landi, og nefndi þar meðal annars 19. júní, kvennafrídaginn, kvennasögusafnið, kjör Vigdísar, Kvennalistann, fléttulistana, feðra- orlofið, jafnlaunavottunina, Press for progress og He for She. Páll Harðarson, forstjóri Kaup- hallarinnar, sté einnig í pontu við þetta tilefni og sagði að þó að Íslendingar væru iðulega mjög framarlega í öllum könnunum þeg- ar kæmi að mælingum á jafnrétti og stöðu kvenna, sýndi tölfræði atvinnulífsins svo ekki væri um villst að enn væri nokkuð í land. „Þannig að baráttan heldur áfram,“ sagði Páll og bætti við: „Það er óneitanlega umhugsunar- vert, að þó að það sé á fimmta ár síðan kynjakvótar voru innleiddir séum við ennþá að sjá ójafnvægi í valdastöðum. Hlutfall kvenna er skelfilega lágt á mörgum sviðum.“ Öflugir aðilar skipti bara við jafnréttisfyrirtæki Morgunblaðið/Eggert Bjalla Nasdaq á Íslandi fagnaði alþjóðadegi kvenna í samstarfi við m.a. UN Global Compact og UN Women. Jafnrétti » Bjöllu var einnig hringt í móðurkauphöll Nasdaq í New York og hjá Nasdaq í Stokk- hólmi, Kaupmannahöfn, Hels- inki og í Eystrasaltsríkjunum. » Deginum er auk þess fagnað í yfir 50 öðrum kauphöllum. » Adena Friedman, forstjóri Nasdaq, hefur skrifað undir yfirlýsingu Sameinuðu þjóð- anna um þau grunngildi sem snúa að valdeflingu kvenna.  Fimm ár síðan kynjakvótar voru innleiddir  8% íslenskra forstjóra konur Flugfélagið WOW air hefur sótt verulega að Icelandair, einkum utan háannatíma. Nú er svo komið að undanfarna tvo mánuði flutti flug- félagið fleiri farþega en helsti keppi- nauturinn. Í janúar og febrúar flutti WOW 4% fleiri farþega en Iceland- air eða 416 þúsund. WOW air nýtti tilefnið til þess að vekja athygli á áfanganum í fréttatilkynningu. Samt sem áður má sjá á meðfylgj- andi línurit að síðustu tvö sumur hef- ur Icelandair flutt mun fleiri far- þega. Sumarið 2016 flaug WOW air með 30% af samanlögðum fjölda far- þega flugfélaganna og Icelandair 70%. Ári síðar jókst hlutfallið í 37% hjá WOW air á móti 63% hjá Ice- landair. Vöxtur WOW air hefur verið ævintýralegur. Skúli Mogensen stofnaði flugfélagið í lok árs 2011 og það fór í jómfrúarflug sitt 31. maí 2012. Á síðasta ári fjölgaði farþegum um 70% samanborið við 10% vöxt hjá Icelandair. Frá febrúar 2016 til febr- úar 2018 fjölgaði farþegum um 216%, eða úr 63 þúsund í 199 þúsund. Á sama tíma fjölgaði farþegum Ice- landair um 6%. helgivifill@mbl.is WOW flutti 4% fleiri farþega en Icelandair Farþegafjöldi Icelandair og WOW 600 500 400 300 200 100 0 j f m a m j j á s o n d j f m a m j j á s o n d j f 2016 2017 ’18 Icelandair WOW þúsund  Icelandair er umsvifameiri á sumrin

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.