Morgunblaðið - 09.03.2018, Qupperneq 33
viðeigandi að nóttina eftir að
hún dó dreymdi mig hana þar
sem hún sat við borð og spurði
mig á dönsku hvort við ættum
nú ekki að fá okkur smávegis
rauðvín.
Ég sé ömmu fyrir mér sitj-
andi við eldhúsborðið í Jónshús-
inu að fletta uppskriftum. Núna
er hún laus við þjáningar og
getur notið þess að borða góðan
mat með bræðrum sínum og
foreldrum sem hún saknaði svo.
Láttu nú ljósið þitt
loga við rúmið mitt.
Hafðu þar sess og sæti,
signaði Jesús mæti.
(Höf. ók.)
Hildur Georgsdóttir.
amma sjóræningi
leppar fyrir augum og klútar á
höfðum
á skenknum trónir pappafallbyssa
við stöndum saman
hönd í hönd
tveir sjóræningjar
reiðubúnir til atlögu
man vart þennan dag
en rúmum tveimur áratugum síðar
finnst mér ekkert sjálfsagðara
veit að þér fannst ekkert sjálfsagðara
þú skildir nauðsyn þess fyrir unga
menn
að vera ávallt gráir fyrir plasti
og vílaðir ekki fyrir þér að vopnast
sjálf
þú
sem varst heiðursgestur í
Amalíuborg
jafnt sem Kristjaníu
hélst stórveislur í húsum forseta
jafnt sem fellihýsum
menntaðir hundruð
í Holti jafnt sem Dofraskóla
hjúkraðir þúsundum
sjúklingum jafnt sem sjóræningjum
amma
þú sigldir með mér um höfin sjö
nú siglir þú öll hin höfin.
Þorvaldur S. Helgason.
Frú Sigurveig Georgsdóttir
hjúkrunarfræðingur er látin.
Systa var glöggskyggn, glað-
vær og leifturfljót að hugsa.
Hún bjó yfir skemmtilegri frá-
sagnargáfu og þegar Systa
mælti lagði fólk við hlustir. Hún
var móðir, heilari, líknari og
gjöf af manneskju. Systa bjó yf-
ir mannelsku og visku sem hreif
hvern þann sem kynntist henni.
Smitandi hlátur hennar og
kímnigáfa var engu lík. Systa
var salt jarðar og ljós himins
sem allir, sem henni kynntust,
elskuðu.
Kærleikur þeirra hjóna Lár-
usar og Sigurveigar var með
eindæmum skilyrðislaus og á ég
þeim heiðurshjónum líf mitt að
launa er þau, án orðtaks hvað
þá meira, tóku mig að sér sem
ráðvilltan ungling. Heimili
þeirra, Holt í Önundarfirði, bjó
yfir reisn, kærleik, hlýju,
svefnró og gnægð matar. Minn-
ingin er sem paradís og lífgjöfin
sönn.
Það var gjöfull lærdómur að
kynnast fjölskyldunni í Holti.
Borðbænir, messur og dagleg
störf í dreifbýli. Lárus og Systa
bökuðu grófkjarnabrauð af lífs-
ins lyst, dældu í okkur bætiefn-
um og næringarríkri fæðu og
þarna lærði ég að meta líðandi
stund án örvæntingar eða kvíða,
sem ég er ævinlega þakklátur
fyrir.
Elsku Lárus minn, Georg,
Ragnheiður og Özur, tengda-
börn, barnabörn og barna-
barnabörn. Þyngra en tárum
taki þykir mér að vera í fjar-
lægum heimshluta og geta ekki
verið viðstaddur útförina. Votta
ykkur innilega hjartans samúð
vegna fráfalls Sigurveigar.
Hugur minn og bænir er hjá
ykkur.
Árni Mar Jensson.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018
Raðauglýsingar
Raðauglýsingar
Nauðungarsala
Uppboð
Einnig birt á www.naudungarsolur.is.
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á
þeim sjálfum, sem hér segir:
Brekknaás 9, Reykjavík, fnr. 205-3773, þingl. eig. Hestamanna-
félagið Fákur, gerðarbeiðendur Orkuveita Reykjavíkur-vatns sf. og
Reykjavíkurborg, þriðjudaginn 13. mars nk. kl. 13:30.
Háagerði 87, Reykjavík, fnr. 203-5030, þingl. eig. Marinó Ólason og
Anna Kristín Gunnlaugsdóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður,
Vátryggingafélag Íslands hf. og Tollstjóri, þriðjudaginn 13. mars nk.
kl. 11:00.
Krummahólar 8, Reykjavík, fnr. 204-9600, þingl. eig. Edda Hilmars-
dóttir, gerðarbeiðandi Íbúðalánasjóður, þriðjudaginn 13. mars nk.
kl. 14:00.
Suðurmýri 56, Seltjarnarnesbær, fnr. 224-6735, þingl. eig. Edda
Margrét Jensdóttir, gerðarbeiðandi Landsbankinn hf., þriðjudaginn
13. mars nk. kl. 11:30.
Sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu
8. mars 2018
Tilkynningar
Sveitarstjórn Norðurþings auglýsir hér með til almennrar kynningar tillögu að deiliskipulagi athafnasvæðis A5 –
Kringlumýri á Húsavík. Deiliskipulagstillagan sýnir þau mannvirki sem þegar hafa verið reist og skilgreinir frekari
byggingarrétt og skilmála um heildarásýnd svæðisins til lengri tíma. Á svæðinu eru nú þegar tvær byggingarlóðir, og
ekki gert ráð fyrir að þeim fjölgi. Skipulagið gerir ráð fyrir breyttum aðkomuleiðum að lóð Norðlenska Matborðsins ehf.
Deiliskipulagstillagan er sett fram á uppdrætti á blaðstærð A2 auk greinargerðar í A4 hefti.
Skipulagstillagan verður til sýnis á sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík frá 9. mars til 20.
apríl 2018. Ennfremur verður hægt að skoða skipulagstillöguna á heimasíðu Norðurþings (nordurthing.is). Þeim sem
eiga hagsmuna að gæta er gefinn kostur á að gera athugasemdir við tillöguna til föstudagsins 20. apríl 2018. Skila
skal skriflegum athugasemdum til sveitarstjórnarskrifstofu Norðurþings að Ketilsbraut 7-9 á Húsavík. Þeir sem ekki
gera athugasemdir við tillöguna teljast henni samþykkir.
Húsavík 2. mars 2018
Gaukur Hjartarson
Skipulags- og byggingarfulltrúi
Tillaga að deiliskipulagi athafnasvæðis
A5 – Kringlumýri á Húsavík
Félagsstarf eldri borgara
Aflagrandi 40 Opin vinnustofa kl. 9 og bingóið vinsæla kl. 13.30,
verið velkomin!
Árskógar Smíðastofan er lokuð. Opið hús kl. 13-16, Bókabíllinn
kemur við Árskóga 6-8 kl. 16.15-17, opið fyrir innipútt, hádegismatur
kl. 11.40-12.45, kaffisala kl. 15-15.45, heitt á könnunni. S. 535-2700.
Boðinn Vatnsleikfimi í sundlaug Boðans kl. 9.10, vöfflukaffi kl. 14.30.
Línudans fyrir byrjendur og og lengra komna kl. 15.15.
Bólstaðarhlíð 43 Opin handverksstofa kl. 9-16. Heimsókn frá ung-
lingum í Háteigsskóla kl. 10-11, morgunkaffi kl. 10-10.30, leikfimi kl.
12.50-13.30, opið kaffihús kl. 14.30-15.15.
Dalbraut 18-20 Stólaleikfimi hjá Rósu kl. 10.15.
Félagsmiðstöðin Lönguhlíð 3 Leikfimi kl. 13.45, kaffiveitingar kl.
14.30. Allir velkomnir!
Félagsmiðstöðin Vitatorgi Aðstoð við notkun á æfingatækjum kl.
9.30-10.30, föstudagshópurinn kl. 10-11.30, gönguhópur kl. 10.30,
handaband, vinnustofa með leiðbeinendum kl. 13-16, bingó í sal, 250
kr. spjaldið, kl. 13.30, vöfflukaffi kl. 14.30. Verið velkomin á Vitatorg,
síminn er 411-9450.
Garðabær Opið í Jónshúsi og heitt á könnunni alla virka daga frá kl.
9.30-16, meðlæti með síðdegiskaffinu er selt frá kl. 14-15.40, göngu-
hópur frá Jónshúsi kl. 10, félagsvist FEBG í Jónshúsi kl. 13, bíll fer frá
Litlakoti kl. 12.20, Hleinum kl. 12.30 og frá Garðatorgi 7 kl. 12.40 og til
baka að lokinni félagsvist ef óskað er. Smiðjan í Kirkjuhvoli er opin kl.
13–16. Allir velkomnir.
Gerðuberg Opin handavinnustofa kl. 8.30-16, glervinnustofa með
leiðbeinanda kl. 9-12, prjónakaffi kl. 10-12, leikfimi gönguhóps kl. 10-
10.20, gönguhópur um hverfið kl. 10.30, bókband með leiðbeinanda
kl. 13-16, kóræfing kl.13-15.
Gjábakki Kl. 9 handavinna, kl. 9.10 botsía, kl. 9.30 postulínsmálun, kl.
13 tréskurður, kl. 13 gönguhópur, frjáls mæting.
Gullsmári Handavinna kl. 9, leikfimi kl. 10, ljósmyndaklúbbur kl. 13,
bingó kl. 13.30.
Hraunbær 105 Kaffiklúbbur og spjall, allir velkomnir í frítt kaffi kl. 9.
opin handavinna kl. 9–12, útskurður kl. 9, verkfæri á staðnum og ný-
liðar velkomnir, hádegismatur kl. 11.30, bingó kl. 13.15, kaffi kl. 14.30.
Hvassaleiti 56-58 Félagsmiðstöðin er opin kl. 8-16, morgunkaffi og
spjall til kl. 10.30, dagblöðin og púsl liggja frammi, morgunleikfimi kl.
9.45, jóga kl. 10 hjá Carynu, hádegismatur kl. 11.30. Spilað brids kl. 13,
bingó kl. 13.15, kaffisala í hléi. Fótaaðgerðir 588-2320, hársnyrting
517-3005.
Hæðargarður 31 Félagsmiðstöðin opnuð kl. 8.50, við hringborðið kl.
8.50, boðið upp á kaffi, málað á steina með Júllu kl. 9-12, leikfimi með
Guðnýju kl. 10-10.45, listasmiðjan er öllum opin frá kl. 12.30, hádegis-
matur kl. 11.30 (panta þarf fyrir kl. 9 samdægurs), sönghópur Hæðar-
garðs kl. 13.30-14.30, eftirmiðdagskaffi kl. 14.30, línudans með Ingu kl.
15-16. Allir velkomnir, óháð aldri. Nánari uppl. í s. 411-2790.
Korpúlfar Hugleiðsla og létt jóga kl. 9 í Borgum. Brids kl. 12.30 í Bor-
gum, hannyrðahópur kl. 12.30 í Borgum, tréútskurður kl. 13 á Korp-
úlfsstöðum og vöfflukaffi í Borgum kl. 14.30 til 15.30 og sundleikfimi
kl. 15 í Grafarvogssundlaug.
Norðubrún 1 Morgunkaffi kl. 8.30, trésmiðja kl. 9-12, listasmiðja
með leiðbeinanda kl. 9-12, morgunleikfimi kl. 9.45, upplestur kl. 11,
bingó kl. 14, ganga með starfsmanni kl. 14. Uppl. í s. 4112760.
Selið, Sléttuvegi 11-13 Selið er opið frá kl. 10-14, upp úr kl. 10 er
boðið upp á kaffi og gaman að koma í spjall og kíkja í blöðin, ganga
kl. 10, hádegisverður kl. 11.30-12.15, framhaldssaga kl. 13. Allir eru
hjartanlega velkomnir. Nánari upplýsingar hjá Maríu, s. 568-2586.
Seltjarnarnes Kaffispjall í krók kl. 10.30, Jóga / hláturjóga á Skóla-
braut kl.11, syngjum saman á Skólabraut kl.13, spilað í króknum kl.
13.30 og brids í Eiðismýri kl.13.30, skráningarblöð liggja frammi fyrir
,,Óvissuferðina" sem farin verður nk. fimmtudag, 15. mars. Þá heim-
sækjum við þyrluskýli Lnadhelgisgæslunnar, fáum þar leiðsögn og
förum síðan í kaffi á Satt. Skráning og upplýsingar í síma 8939800.
Stangarhylur 4, Íslendingasögu- / fornsagnanámskeiðið kl. 13,
kennari Baldur Hafstað, dansleikur sunnudagskvöld kl. 20, hljómsveit
hússins leikur, allir velkomnir.
Vesturgata 7 Enska leiðb. frá kl. 10-12 er Peter R.K.Vosicky, sungið
við flygilinn kl. 13-14, Gylfi Gunnarsson, kaffiveitingar kl. 14-14.30.
Smáauglýsingar
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Til sölu
Lok á heita potta og hitaveitu-
skeljar
Stærðir í cm: 200x200, 210x210,
220x220, 235x235, 235x217,
217x174, 8 hyrnd lok. Lokin þola 1000
kg jafnarðarþunga af snjó. Vel ein-
angruð og koma með 10 cm svuntu.
Sterkustu lokin á markaðnum. Litir:
Brúnt eða grátt. Opnarar til þess að
auðvelda opnun á loki.
www.heitirpottar.is
Sími 777 2000 Haffi
og 777 2001 Grétar
Ýmislegt
Palacký University in Olomouc
í Tékklandi heldur inntökupróf
í tannlækningum og læknis-
fræði 23 júní nk. á Íslandi
Olomouc er 110 þúsund manna
háskólabær í austur hluta Tékk-
lands. 20.000 nemar eru í ýmsum
fögum í Palacký University.
www.medicineinolomouc.com
www.upol.cz http://admis-
sion.upol.cz/
Uppl. í fs. 8201071
kaldasel@islandia.is
Jessenius faculty of Medicine
Martin, Slóvakíu
Inntökupróf verða haldin í
læknisfræði í Reykjavík 25. apríl
og 1. júní. Á Akureyri 26 apríl.
Margir íslendingar stunda nám við
skólann.
Uppl. Runólfur Oddsson
s. 8201071 kaldasel@islandia.i
Hjólbarðar
Nýjar og notaðar dekkjavélar
til sölu
M & B dekkjavélar
Ítalskar topp gæða dekkjavélar.
Gott verð.
Einnig notaðar Sicam vélar og lyftur.
Kaldassel ehf.,
sími 8201070
kaldasel@islandia.is
Húsviðhald
FLÍSALAGNIR - MÚRVERK
FLOTUN - SANDSPARSL
MÁLUN - TRÉVERK
Ásamt öllu almennu viðhaldi
fasteigna
Áratuga reynsla og þekking
skilar fagmennsku og gæðum
Tímavinna eða tilboð
Strúctor
byggingaþjónusta ehf.
S. 893 6994
með
morgun-
fasteignir