Morgunblaðið - 09.03.2018, Qupperneq 35
múrverk en síðustu rúm 20 starfs-
árin vann hann hjá Síldarvinnsl-
unni í Neskaupstað.
Þorgeir hefur lengi verið
áhugamaður um hestamennsku,
átti hross um áratuga skeið, reið
oft út og hefur farið á hestum um
stóran hluta landsins. Hann hefur
unnið ötult starf að æðarvarpi og
með prýðilegum árangri, fyrst í
Viðfirði og síðar í Borgum í Norð-
firði: „Ég byrjaði að dútla við
þetta árið 1968. Þá var töluverður
reki í Viðfjörð og ég var að þvæl-
ast þarna suður eftir á hestum.
Síðan sá ég um þetta og var
þarna með dúntekju til 2004, er
Þórarinn, bróðir minn, tók við.
Ég fékk svo leyfi til að koma
upp æðarvarpi í Borgum í Norð-
firði árið 1987 og hef annast það
þar til í fyrra, er ég hætti. Það er
gaman að eiga við þetta en eins og
öll önnur hlunnindi er þetta mikið
háð duttlungum náttúrunnar á
hverjum tíma.“
Þorgeir er prýðilegur hagyrð-
ingur þó að hann vilji sem minnst
úr því gera. Hann hefur oft látið
vísur flakka af ýmsu tilefni sem
síðan hafa orðið fleygar fyrir aust-
an. Auk þess hefur hann að sjálf-
sögðu áhuga á góðum kveðskap og
dýrum ljóðum.
Þorgeir dvelur mikið í Viðfirði
en þar hefur hann, ásamt bræðr-
um sínum, byggt upp íbúðarhúsið
þar, sem komið var í niðurníðslu.
Uppbyggingin hófst 1989. Þar
dvelur stórfjölskyldan mikið yfir
sumartímann.
Þorgeir hefur sinnt ýmsum fé-
lagsstörfum, s.s. í Hestamanna-
félaginu Blæ, Æðarræktarfélagi
Íslands, Kiwanis og öðrum fé-
lögum.
Fjölskylda
Þorgeir kvæntist 26.12. 1984,
Svanbjörgu Gísladóttur, f. 10.2.
1939, d. 30.6. 2017, frá Brún í
Mjóafirði. Þau slitu samvistum.
Á seinni árum kynntist Þorgeir
Þóru Ólöfu Guðnadóttur, f. 20.2.
1930, d. 10.5. 2016. Þau bjuggu
saman á Eskifirði þar til Þóra lést.
Systkini Þorgeirs eru Sveinn, f.
12.8.1930, húsgagna- og húsasmið-
ur, búsettur í Neskaupstað, Ólöf
Erla, f. 8.9. 1934, húsfreyja, búsett
í Hafnafirði; Freysteinn, f. 26.12.
1935, vélstjóri og sjómaður og síð-
ar hjá Síldarbræðslunni í Nes-
kaupstað.
Hálfbróðir Þorgeirs, sammæðra,
er Þórarinn Viðfjörð, f. 3.6. 1949,
vélstjóri, búsettur í Neskaupstað.
Foreldrar Þorgeirs voru Þór-
arinn Viðfjörð Sveinsson, f. 8.7.
1902, d. 1.10. 1936, bóndi og sjó-
maður í Viðfirði, og k.h., Guðríður
Friðrikka Þorleifsdóttir, f. 4.11.
1908, d. 14.10. 2000, húsfreyja og
bóndi í Viðfirði og síðar húsfreyja í
Neskaupstað.
Þórarinn og Guðríkur Friðrikka
bjuggu í Viðfirði en Þórarinn fórst
í sjóslysi 1936, ásamt bræðrum
sínum, Sófusi Lynge og Frímanni.
Guðríður bjó áfram í Viðfirði
ásamt börnum sínum og giftist síð-
ar Guðna Þorleifssyni sem gekk
börnum hennar í föður stað.
Þorgeir V.
Þórarinsson
Guðný Ólafsdóttir
húsfr. á Tandrastöðum, systurdóttir Einars, langafa Jakobs,
föður rithöfundanna Svövu og Jökuls, föður rithöfundanna
Unnar, Illuga, Hrafns og Elísabetar, af Hellisfjarðarætt
Guðmundur Magnússon
b. á Tandrastöðum í
Norðfirði
Guðfinna Guðmundsdóttir
húsfr. á Hofi
Þorleifur Torfason
b. á Hofi í Norðfirði
Guðríður Friðrikka Þorleifsdóttir
b. og húsfr. í Viðfirði
Valgerður Stefánsdóttir
húsfr. í Skuggahlíð í
Norðfirði
Torfi Jónsson
b. í Skuggahlíð
Dr. Björn Bjarnason málfræðingur og kennari
Dr. Halldór Halldórsson
prófessor í íslenskum
fræðum við HÍ
Halldór Halldórsson
blaðamaður og ritstj.
Halldór Bjarnason
búfræðingur og
kaupm. á Ísafirði
orsteinn frá
Hamri skáld
Guðný
Þorleifsdóttir
húsfr. á Hamri
í Þverárhlíð
Þ
Þórir Jökull
Þorsteinsson
fyrrv. sóknarpr.
á Selfossi og
sendiráðspr. í
Kaupmannahöfn
Soffía Friðriksdóttir
húsfr. á Randversstöðum
Ólöf Þórarinsdóttir
húsfr. í Viðfirði
Sveinn Bjarnaon
b. og smiður í Viðfirði
Guðrún Jónsdóttir
húsfr. í Viðfirði, af
Pamfílsætt
lafur Jóhann
Sigurðsson
rithöfundur
í Rvík
ÓÓlafur Jóhann
Ólafsson
rithöfundur
og forstjóri
Sigurður Jónsson
kennari og hreppstj.
á Torfastöðum í
Grafningi
Þrúður Sveinsdóttir
húsfr. á Núpi á
Berufjarðarströnd
Bjarni Sveinsson
b. í Viðfirði
Úr frændgarði Þorgeirs V. Þórarinssonar
Þórarinn Viðfjörð Sveinsson
b. og sjóm. í Viðfirði
Þórarinn Sveinsson
b. á Randversstöðum
í Breiðdal
Þorgeir Hann er a.m.k. hestamaður,
hagyrðingur, vélstjóri og múrari.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018
Sigurjón Pétursson fæddist íSkildinganesi við Reykjavík9.3. 1888. Hann var sonur Pét-
urs Þórarins Hanssonar, sjómanns
og síðan næturvarðar í Skildinganesi,
og k.h., Vilborgar Jónsdóttur hús-
freyju.
Pétur Þórarinn var sonur Hans
Hanssonar, tómthúsmanns á Litlu-
Bergsstöðum í Reykjavík, og Ólafar
Jónsdóttur húsfreyju, en Vilborg var
dóttir Jóns Einarssona, bónda og sjó-
manns í Skildinganesi, og Ástu Sig-
urðardóttur húsfreyju.
Kona Sigurjóns var Sigurbjörg Ás-
björnsdóttir Stephensen og eign-
uðust þau þrjú börn, Pétur, verk-
fræðing og forstjóra
Rannsóknarstofnunar byggingariðn-
aðarins, Sigríði húsfreyju og Ásbjörn.
Sigurjón stundaði verslunarstörf
hjá ýmsum í Reykjavík á árunum
1902-15 og var síðan kaupmaður þar
frá 1915. Hann festi kaup á klæða-
verksmiðjunni Álafossi í Mosfells-
sveit 1919 og starfrækti hana síðan.
Sigurjón var þekktur glímukappi
og glímukóngur á sínum yngri árum.
Hann var einn af glímuköppunum
sem glímdu á Þingvöllum við kon-
ungskomuna 1907, meðal ólympíu-
faranna til London 1908 og til Stokk-
hólms 1912 og var glímukappi Íslands
1910-1919. Þá var hann skautameist-
ari Íslands 1910 og 1911 og var
sæmdur fjölda verðlauna fyrir ýmis
íþróttaafrek, s.s. á íþróttamótinu sem
haldið var í Reykjavík á hundrað ára
fæðingarafmæli Jóns Sigurðssonar.
Sigurjón var á ýmsan hátt dæmi-
gerður fulltrúi aldamótakynslóð-
arinnar sem trúði á land og þjóð og
heilbrigða sál í hraustum líkama.
Hann var íþróttafrömuður, einn af
stofnendum Glímufélagsins Ármanns
1906 og sat í stjórn þess í mörg ár,
einn af stofnendum ÍSÍ 1912 og heið-
ursfélagi þess, rak frægan íþrótta-
skóla að Álafossi, var meðal stofn-
enda Sálarrannsóknarfélags Íslands,
Náttúrulækningafélags Íslands og
Félags íslenskra iðnrekenda og for-
maður þess.
Sigurjón lést 3.5. 1955.
Merkir Íslendingar
Sigurjón
Pétursson
101 árs
Björgvin Árni Ólafsson
95 ára
Margrét Björnsdóttir
90 ára
Sigurður Zophonias
Skúlason
85 ára
Elín H. Guðmundsdóttir
Gunnhildur
Guðmundsdóttir
Magnús Hjálmarsson
Þorgeir Þórarinsson
75 ára
Agnar Olsen
Guðrún Friðriksdóttir
Harrý Ágúst Herlufsen
Steinar Jóhannsson
70 ára
Auður Gústafsdóttir
Guðjón Ómar Hauksson
Gunnar H. Loftsson
Kristín Bjarnadóttir
Margrét Kolbeinsdóttir
Ólafur Rúnar Árnason
Sigríður Jónína
Garðarsdóttir
Soffía Svava Daníelsdóttir
60 ára
Alda Gunnarsdóttir
Bragi Egilsson
Edda Björk Ragnarsdóttir
Edda Gíslrún Kjartansdóttir
Elín Reynisdóttir
Friðrik Sigurjónsson
Guðbjörg Jónsdóttir
Guðjón Gíslason
Hildur Símonardóttir
Hulda Skúladóttir
Jón Birgir Ármannsson
Magnús Ingi
Kristmannsson
Páll Kolka Ísberg
Sigríður Högnadóttir
Sigurður Jónsson
Sigurður Thorarensen
50 ára
Friðrik Guðmundsson
Ingólfur Ásmundsson
Ísak Winther
Kristinn Axel Ólafsson
Margrét Sif Hákonardóttir
Oddný Halldórsdóttir
Ólafur Már Ólafsson
Pétur Magnússon
Svavar Guðmundsson
Sveinn Hjartarson
40 ára
Adam Szuba
Arnar Steinn Þorsteinsson
Gísli G. Bjarnason
Hlynur Rafn Guðjónsson
Hrönn Sigurðardóttir
Marife Legaspe Cagay
Ronald Rafn Quitoras Obas
Si Hai Nguyen
Susana Rosa Da Silva
Nunes
Vaka Sigmarsdóttir
30 ára
Aðalheiður Björk S.
Pedersen
Ana Margarida Pinto e.
Costa
Árni Freyr Sigurjónsson
Ástþór Valur Árnason
Bjarki Rúnar Guttormsson
Davíð Páll Ingimarsson
Hinrik Þór Guðbjartsson
Katarzyna Honorata
Kosecka
Ósk Kristinsdóttir
Sveinbjörn Árni Lund
Unnur Thelma Gestsdóttir
Til hamingju með daginn
30 ára Unnur ólst upp í
Reykjavík, býr þar, lauk
sjúkraliðaprófi, er sjúkra-
liði við bráðamótöku og
verslunarmaður í Iceland.
Maki: Sindri Dalsgaard, f.
1993, verslunarstjóri.
Sonur: Óðinn Dreki
Dalsgaard, f. 2016.
Foreldrar: Kristín Grét-
arsdóttir, f. 1963, skrif-
stofumaður hjá Sýslu-
manni, og Gestur Jón
Gestsson, f. 1963, sölu-
maður.
Unnur Thelma
Gestsdóttir
30 ára Sveinbjörn ólst
upp á Húsavík, býr þar,
lauk sveinsprófi í húsa-
smíði og starfar hjá Curio.
Maki: Tinna Ósk Ósk-
arsdóttir, f. 1990, uppeld-
is- og menntunarfræð-
ingur.
Synir: Gabríel, f. 2015, og
Eiður, f. 2017.
Foreldrar: Sveinbjörn
Lund, f. 1955, vélfræð-
ingur, og Jóhanna Halls-
dóttir, f. 1958, húsfreyja.
Þau búa á Húsavík.
Sveinbjörn
Árni Lund
30 ára Ástþór ólst upp í
Keflavík, býr í Reykja-
nesbæ, lauk flugvirkja-
prófi og er flugvirki hjá
Icelandair.
Maki: Guðrún Aradóttir, f.
1989, fótaaðgerðarfræð-
ingur.
Foreldrar: Árni Þór Árna-
son, f. 1959, flugvirki hjá
Atlanta, og Ásta Þórarins-
dóttir, f. 1961, stuðnings-
fulltrúi við Myllubakka-
skóla. Þau eru búsett í
Reykjanesbæ.
Ástþór Valur
Árnason
Vertu velkomin!
...til dæmis
eldhúsinu, með
litlum tilkostnaði.
Eina sem þarf eru efni
og ráðleggingar frá
Slippfélaginu.
Það er auðvelt að breyta...
Borgartúni 22 og Dugguvogi 4, Reykjavík, sími 588 8000 • Dalshrauni 11, 220 Hafnarfirði, sími 565 0385
Hafnargötu 54, Reykjanesbæ, sími 421 2720 • Gleráreyrum 2, Akureyri, sími 461 2760
Opið 8.00–18.00 alla virka daga og 10.00–14.00 alla laugardaga
Hér má sjá eldhús sem gert var upp
af Söru Dögg innanhússarkitekt,
(femme.is), lakkað matt svart.