Morgunblaðið - 09.03.2018, Síða 38

Morgunblaðið - 09.03.2018, Síða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. MARS 2018 www.VBL.is REYKJAVÍK Krókháls 5F 110 Reykjavík Sími: 414-0000 AKUREYRI Baldursnes 2 603 Akureyri Sími: 464-8600 Leitið upplýsinga hjá sölumönnum okkar STÆRSTA OG AFLMESTA AVANT VÉLIN Avant 760i er meðal annars í notkun hjá Reykjavíkurborg, Hafnarfjarðarbæ, Norðurþing, Borgarbyggð, Skútustaða- hreppi og víðar. FRÁBÆR VÉL FYRIR BÆJARFÉLÖG Verð miðast við gengi EUR 125 Sjá nánar á ÍSLENSKU AVANT síðunni: www.avanttecno.com/www/is 760i Kohler KDI 1903, 57 hö, díeselmótor 80 l/min vökvadælu, 225 bar, vatnskæld Lyftigeta: 1400 kg Lyftihæð: 310 cm Þyngd: 2100 kg Lengd: 306 cm Breidd: 145 cm Hæð: 211 cm Fáanlegur með L, LX eða DLX húsi Listasafn ASÍ kallaði nýverið eftir tillögum frá myndlistarmönnum vegna innkaupa og til samstarfs um sýningahald á næstu mánuðum og bárust 53 tillögur. Listráð safnsins fór yfir tillögurnar 5. mars sl. og ákvað að kaupa verk af Hildigunni Birgisdóttur og bjóða henni jafn- framt til samstarfs um sýningahald á tveimur stöðum á landinu, eins og segir í tilkynningu. Hildigunnur vinnur jöfnum hönd- um með skúlptúra og innsetningar og segir í tilkynningu að hún sé upptekin af smæð og látleysi hvers- dagslegra hluta og notist m.a. við fundið efni og setji þá tilbúnu hluti í samhengi við tímaskynjun manns- ins. Um valið segir að listráðið hafi haft nýja innkaupastefnu safnsins að leiðarljósi sem taki mið af því menntunar- og miðlunarátaki sem safnið vinni nú að með sýningahaldi víða um land og kaupum á nýjum verkum til safnsins þar sem við- fangsefni og/eða miðill endurspegli tíðarandann með afgerandi hætti. Um verk Hildi- gunnar segir að þau tali til sam- tímans, séu rann- sakandi og leiki með viðfangs- efnið og kveiki jafnframt hug- myndir um hið háleita í því lát- lausa, smáa og venjulega. Hildi- gunnur Birgisdóttir er annar lista- maðurinn sem safnið velur til þátt- töku í nýrri sýningaröð sem hleypt var af stokkunum í fyrra en fyrstur var Sigurður Guðjónsson. Á meðan safnið vinnur að því að koma upp nýjum sýningarsal verða sýningar safnsins haldnar í sam- starfi við stofnanir og samtök víðs- vegar um landið og eru sýningar- staðirnir valdir í samvinnu við listamennina, sýnendurna, hverju sinni og verða til skiptis á höfuð- borgarsvæðinu og í öðrum lands- hlutum, skv. tilkynningu. Listasafn ASÍ velur Hildigunni Hildigunnur Birgisdóttir Helgi Snær Sigurðsson helgisnaer@mbl.is Almennar sýningar hefjast í dag á Andið eðlilega, fyrstu kvikmynd Ísoldar Uggadóttur í fullri lengd, en fyrir hana hlaut Ísold leikstjórnar- verðlaun í flokki erlendra kvikmynda á Sundance-kvikmyndahátíðinni 7. janúar síðastliðinn. Í Andið eðlilega fléttast saman sögur tveggja kvenna, annars vegar flóttakonu og hælisleit- anda frá Gíneu-Bissá, Ödju, sem leik- in er af belgísku leikkonunni Babet- idu Sadjo og hins vegar íslenskrar konu, Láru, sem Kristín Þóra Haraldsdóttir leikur. Leiðir þeirra liggja saman í Leifsstöð þar sem Lára starfar við vegabréfaeftirlit og stöðvar Ödju þar sem henni þykir eitthvað grunsamlegt við ferðaskil- ríki hennar. Báðar eru mæður og glíma við mótlæti af ólíku tagi. Kon- urnar tengjast óvænt vinaböndum í myndinni sem fjallar að hluta um stöðu flóttamanna og hælisleitenda hér á landi en auk þeirra Sadjo og Þóru fer Patrik Nökkvi Pétursson með eitt af aðalhlutverkum myndar- innar en hann leikur Eldar, son Láru. Upphafspunktur mikilvægur Sadjo býr og starfar í Belgíu en á ættir að rekja til Gíneu-Bissár og segist hafa stungið upp á því við Ísold að Adja væri þaðan en ekki frá Úganda, eins og stóð til upphaflega. Hún segist hafa ferðast til Gíneu- Bissár með eiginmanni sínum og syni nokkrum mánuðum eftir að Ísold til- kynnti henni að hún hefði verið valin í hlutverkið en þá voru um tíu ár liðin frá því Sadjo heimsótti landið síðast. Þar segist hún hafa freistað þess að ræða við fólk um aðstæður tiltekins minnihlutahóps sem kemur við sögu í myndinni, til að búa sig undir hlut- verkið. Adja og dóttir hennar eru búnar að flakka milli landa og á leið til Kanada þegar þær þurfa að millilenda í Keflavík og eru stöðvaðar í vega- bréfaeftirliti. Sadjo er spurð hvort hún hafi átt auðvelt með að setja sig í spor Ödju og svarar hún því neitandi. Erfitt sé að ímynda sér hvernig sé að vera í þessum aðstæðum; að eiga hvergi heima og vera á flótta. Hún segist hafa rætt við hælisleitendur til að undirbúa sig fyrir hlutverkið og segir að sér þyki best að fara á slóðir persónunnar þegar hún undirbýr sig fyrir hlutverk. „Það skipti mig miklu að vita hver upphafspunkturinn væri,“ segir hún og því hafi hún heimsótt Gíneu-Bissá, til að fá tilfinningu fyrir landinu og hvernig sé að búa þar. Þegar hún hafi svo flogið til Íslands hafi henni þótt sem hún væri að ferðast hingað sem Adja. Óttast afleiðingar gjörða sinna Sadjo segist hafa rætt við hælis- leitendur hér um allt mögulegt; þeirra daglega líf, veðrið og aðstæður þeirra. „Þeir eru venjulegt fólk eins og við en eiga sér engan stað sem hægt er að kalla heimili,“ bendir Sadjo á. Hælisleitendur byrgi sumir hverjir tilfinningar sínar inni og tjái sig lítið um sín mál enda óttist þeir afleiðingar gjörða sinna. „Margir hafa upplifað hörmungar stríðs og eru að leita sér að stað til að lifa sínu lífi en Evrópa er farin að vernda sjálfa sig í stað þess vernda þetta fólk,“ segir Sadjo. „Ég tel að þessi kvikmynd komi út á hárréttum tíma en hún fjallar líka um samband tveggja manneskja, tveggja kvenna sem báðar hafa ástæðu til að missa vonina en ákveða að hjálpa hvor ann- arri í vandræðum sínum. Kvikmynd- in fjallar um mátt samkenndarinnar og hjálpræðisins,“ bætir Sadjo við. „Vindurinn, guð minn góður!“ – Voru tökur myndarinnar erfiðar? Mér skilst að veðrið hafi verið að stríða ykkur töluvert? Sadjo hlær, segist hreinlega dýrka Ísland og hefur ekkert út á veðrið að setja, greinilega heilluð af síbreyti- leika þess. „Ég var hissa á veðrinu, það var kannski sólskin og allt í einu rigning tveimur mínútum síðar. Og vindurinn, guð minn góður!“ segir Sadjo og hlær innilega að rokinu á Suðurnesjum þar sem tökur kvik- myndarinnar fóru fram. Hún segist hafa notið þess að leika í kvikmyndinni og nýtt hléin til að átta sig betur á persónunni, „finna hryggjarsúluna“ í henni og hverju atriði fyrir sig. „Það er erfitt að halda sig í karakter og þessi persóna, Adja, krafðist mjög tilfinningaríkrar tján- ingar án orða. Helsta áskorunin var að tjá tilfinningar hennar eingöngu með svipbrigðum og líkamstján- ingu.“ Af líkama og sál – Andið eðlilega hefur hlotið lof gagnrýnenda og verðlaun á Sun- dance, sem er mikill heiður og frá- bær árangur. Heldurðu að myndin muni hafa meiri áhrif fyrir vikið og vekja frekari athygli og umræðu um aðstæður flóttafólks? „Ég vona það. Ég reyndi að gera mitt allra besta, setti líkama, sál og rödd í hlutverkið og Kristín gerði það líka í sínu hlutverki,“ svarar Sadjo. Að lokum berst talið aftur að Íslandi og ber Sadjo ekki aðeins lof á landið heldur líka þjóðina sem hún segir afar vingjarnlega og hjálpfúsa. „Ég fékk svipaða tilfinningu gagn- vart Íslendingum og fólkinu í fæðing- arbæ mínum í Afríku. Fólk er alltaf reiðubúið að hjálpa hvað öðru og mér fannst dvölin stórkostleg,“ segir hún. Betri landkynningu er varla hægt að fá. Máttur samkenndar og hjálpræðis  Andið eðlilega komin í bíó  Sögur tveggja kvenna sem glíma við mótlæti af ólíkum toga  Leikkonan Babetida Sadjo bjó sig undir hlutverk hælisleitanda með því að fara til Gíneu-Bissár Biðstöð Babetida Sadjo og Patrik Nökkvi Pétursson í verðlaunamynd Ísoldar Uggadóttur, Andið eðlilega. Ljósmynd/Lilja Jónsdóttir Í tökum Ísold leiðbeinir Sadjo við tökur á kvikmyndinni Andið eðlilega. Ljósmynd/Þórdís Claessen Vinkonur Ísold og Sadjo á Sun- dance-kvikmyndahátíðinni í Utah.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.