Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 1 4. M A R S 2 0 1 8 Stofnað 1913  62. tölublað  106. árgangur  SEGIR ALLT ÓDÝRAST Í HAFNARFIRÐI ENGIR RUSTAR EN KENNA SIG VIÐ BARBARA HIÐ SJÓNRÆNA VINNI MEÐ HINU HLJÓÐRÆNA KVARTETT 12 SÓNAR REYKJAVÍK 30LITLA FISKBÚÐIN 6 Baldur Arnarson baldura@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir ríkisstjórnina hafa skiln- ing á kröfum um að létta skattbyrði tekjulægri hópa. Hún sé reiðubúin að skoða ýmsar leiðir til að fjár- magna breytingar á skattkerfinu. Niðurstaða úr samtali ríkisstjórnar- innar við verkalýðshreyfinguna og vinnumarkaðinn liggi fyrir í haust. Tilefnið er ummæli Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, í Morg- niðurstöðuna úr samtalinu áður en það á sér stað. En okkar vilji liggur alveg skýr fyrir. Við höfum átt marga fundi með forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar, þar á meðal Ragnari Þór, og hlustað eftir því sem hann hefur lagt áherslu á, sem er að horfa til skattkerfisins,“ segir Katrín. Hún tekur fram að hún vilji þó ekki ræða málin í „skilyrða- eða hótanasamhengi“. Ríkisstjórnin hafi boðað aðgerðir fyrir tekjulága. unblaðinu í gær um kjaramál. Sagði Ragnar Þór að breyta þyrfti skatta- og húsnæðislánakerfinu, ellegar yrði látið sverfa til stáls. Með því að hækka auðlindagjald og fjármagns- og hátekjuskatt mætti fjármagna skattalækkanir á tekjulága. Hafi áhrif á fjárlagagerðina Katrín segir slíkt koma til greina. „Við sjáum fyrir okkur einhverjar slíkar breytingar, ef sátt skapast um þær, við afgreiðslu næstu fjárlaga. Ég ætla hins vegar ekki að gefa mér Skattahækkanir til skoðunar  Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina hlusta á kröfur um breytt skattkerfi Bætur verði hækkaðar » Katrín segir stjórnvöld geta lagt sitt af mörkum í þágu tekjulágra í gegnum skatt- kerfið og bótakerfið. » Hún nefnir barnabætur og húsnæðisstuðning í því efni. » Hún vill herða reglur um starfsmannaleigur. MTekjulágir fái meiri aðstoð »4 Hægt hefur verið undanfarið að aka á litlum jeppum eða góðum fjórhjóladrifnum fólksbílum að Goðasteini á Eyjafjallajökli. Harðfenni er á jöklinum og því auðvelt að komast þar upp, enda engar sprungur þar nú snemma að vori. Best er þó að fara árla dags áður en sólbráðin kemur, en hún er fljót að mynda hálku. Kunnugir benda þó á að aðstæður séu síbreytilegar og leiðin geti lokast fyrirvaralaust. „Þetta var heilmikil upplifun,“ sagði Þorsteinn Jónsson á Hvolsvelli. Hann fór á jökulinn í síðustu viku á Subaru Forester og gekk ferðin eins og í sögu. Ferðaþjón- ustufyrirtæki hafa boðið upp á ferðir á Eyjafjallajökul á sérútbúnum bílum, en að þangað sé fært á algengum óbreyttum bílum er fátítt. Þegar ekið er upp á Eyjafjallajökul er farið fyrst upp á svonefnda Seljalandsheiði, en þangað var lagður vegur fyrir nokkrum árum að grjótnámu sem sótt var í vegna framkvæmda við Landeyjahöfn. Frá námunni liggur slóði að sporði jökulsins. Þaðan er svo ekið upp brekkurnar í vestanverðum jöklinum sem eru í 15-20°halla. Eftir 3,5 km akstur er svo komið að Goðasteini sem er í 1.577 metra hæð. Síðasta sunnudag fóru að Goðasteini Theódór Guðmundsson á Hvolsvelli og sonur hans, Hlynur Snær, bóndi á Voðmúlastöðum í Landeyjum. „Við vorum innan við klukkustund upp að steini neðan úr sveit. Fengum einstakt útsýni. Maður fylltist auðmýkt að sjá landið liggja svona fyrir fótum sér,“ sagði Theódór í samtali við Morgunblaðið. Hann ók á óbreyttum Nissan Terrano-jeppa. Hlynur Snær var hins vegar á Nissan Patrol á 33 tommu dekkjum, bíl sem reyndist vel í Goðasteinsför. sbs@mbl.is Komast á toppinn Greið leið yfir harðfennið á fjórhjóladrifnum fólksbílum upp að Goðasteini á Eyjafjallajökli Ljósmynd/Þorsteinn Jónsson Þrenning Bíll, maður og Goðasteinn. Þorsteinn Jónsson við Subaru-bíl sinn og í baksýn er steinninn frægi, sem er í 1.577 m hæð – hlaðinn kynjamyndum úr ís. Ljósmynd/Theódór Guðmundsson Klifur Ekið á Nissan Patrol upp brekkurnar á vestanverðum Eyja- fjallajökli. Það var frábært útsýni út á haf og til Vestmannaeyja. Tap af rekstri hótela úti á landi jókst milli áranna 2016 og 2017. Ein skýringin er að kostnaður jókst um- fram tekjur. Þetta er meðal niðurstaðna greiningar KPMG á hótelmarkaði. Afkomutölurnar miðast við valin hótel á fyrri hluta árs 2016 og 2017. Alexander G. Eðvardsson, sér- fræðingur hjá KPMG, segir komið að tímamótum í íslenskri ferðaþjón- ustu. Versnandi rekstrarskilyrði muni knýja fram sameiningu fyrir- tækja. Það sama muni gerast og í sjávarútvegi eftir innleiðingu kvótakerfisins. Félögum muni fækka. Hægir á fjölgun starfa Vegna þessarar þróunar telur Al- exander komið að frekari hagræð- ingu í ferðaþjónustunni. Athugun KPMG bendi til að starfsfólki í greininni hafi fjölgað mun hægar síðustu ár en ferðamönnum. Hann telur ferðaþjónustuna ekki standa undir mikilli launahækkun. Kristófer Oliversson, eigandi CenterHotels, segir fyrirtæki í ferðaþjónustu þurfa að laga sig að breyttum veruleika og hagræða. Dæmi eru um að hagnaður hótela í Reykjavík hafi verið notaður til að niðurgreiða tap af hótelum í sömu eigu úti á landi. baldura@mbl.is »10 Hótelin í tapi úti á landi  KPMG bendir á versnandi afkomu Morgunblaðið/Eggert Á ferð Ferðamenn í Reynisfjöru.  „Það er er ekkert leyndarmál og Ragnar hefur sagt það margoft sjálf- ur að hann ætlaði sér að hreinsa út úr stjórninni. Honum tókst það ekki og því má velta því fyrir sér hvort hann sé kominn í minnihluta í eigin stjórn,“ segir Ingibjörg Ósk Birg- isdóttir sem í gær var endurkjörin í stjórn VR. Hún segir að Ragnar Þór Ingólfs- son, formaður VR, hafi ætlað að koma fimm stuðningsmönnum sínum í stjórnina en aðeins komið tveimur inn. Sjálfur segist Ragnar nokkuð sáttur við úrslitin og öflugt fólk komi inn í stjórnina. Gott samstarf hafi verið innan stjórnar. »2 og 18 Segir að Ragnari Þór hafi mistekist

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.