Morgunblaðið - 14.03.2018, Side 17

Morgunblaðið - 14.03.2018, Side 17
FRÉTTIR 17Erlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018 Fjölbreytt úrval af gæða viftum frá Vent-Axia fyrir eldhúsið, baðherbergið, skrifstofuna, verkstæðið eða hesthúsið. Við aðstoðum ykkur við rétta valið. Lo-Carbon Silhouette 125 Centrif-duo Silent 12in Wall fan Hi-line Sabre Plate DALVEGI 10-14 | 201 KÓPAVOGI | SÍMI 540 7000 | FALKINN.IS Hreint loft og vellíðan Það borgar sig að nota það besta VENT–AXIA VIFTUR Guðmundur Sv. Hermannsson gummi@mbl.is Rússnesk stjórnvöld sögðu í gær að ásakanir Breta um að Rússar bæru ábyrgð á taugaeiturárás á rússnesk- an fyrrverandi gagnnjósnara væru tilraun til að koma óorði á Rússland. Segjast Rússar munu bregðast hart við hvers konar refsiaðgerðum sem Bretar kunni að ákveða að grípa til. Theresa May, forsætisráðherra Breta, sagði í breska þinginu á mánudag að allar líkur væru á að rússnesk stjórnvöld bæru ábyrgð á árásinni. Sergei Lavrov, utanríkisráðherra Rússa, sagði hins vegar á blaða- mannafundi í gær að þessar ásakanir væru þvættingur. Hann sagði að Rússar væru reiðubúnir að eiga samvinnu um rannsókn málsins í samræmi við sáttmála um efnavopn ef Bretar féllust á að uppfylla alþjóð- legar skuldbindingar sínar í sam- ræmi við sama sáttmála. Sagði Lavrov að Bretar hefðu átt að senda stjórnvöldum í Moskvu formlega ósk um upplýsingar um taugaeitrið sem beitt var á Bret- landi. Slík ósk hefði ekki borist. Hann sagði einnig að Rússar hefðu krafist þess formlega að sérfræðing- ar þeirra fengju aðgang að tauga- eitrinu og að rannsókn Breta á eitr- inu en Bretar hefðu hafnað þeim kröfum. May sagði í breska þinginu á mánudag að aðeins tvennt kæmi til greina; annaðhvort hefði árásin á Sergei Skripal og Juliu dóttur hans verið bein aðgerð rússneska ríkisins gegn Bretlandi eða rússnesk stjórn- völd hefðu misst tökin á stórhættu- legu taugaeitri og gert öðrum kleift að komast yfir það. Ef Rússar veittu ekki trúverðugar skýringar fyrir lok þriðjudags yrði litið svo á þetta hefði verið ólögmæt aðgerð Rússa gegn Bretum, sem brugðist yrði hart við. Sendiráð Rússa í Lundúnum sagði síðdegis í gær á Twitter, að það hefði sent tölvupóst til breska utanríkisráðuneytisins þar sem ítrekað var að Rússar tengdust ekki málinu og óskaði eftir sameiginlegri rannsókn landanna á því. Uppörvandi viðbrögð Boris Johnson, utanríkisráðherra Breta, sagði í gær að viðbrögð ann- arra ríkja við málinu hefðu verið mjög uppörvandi. Jens Stoltenberg, framkvæmdastjóri Atlantshafs- bandalagsins, sagði í gær að þetta mál væri afar alvarlegt og bandalag- ið hefði verið í sambandi við bresk stjórnvöld vegna þess. Sigmar Gabriel, utanríkisráð- herra Þýskalands, sagði eftir að hafa talað við Johnson í gær að Þjóðverjar stæðu með Bretum í þessu máli. Ef sannað yrði að Rúss- ar bæru ábyrgð á árásinni væri það mjög alvarlegt mál. Amber Rudd, innanríkisráðherra Breta, sagði í gær að breska leyni- þjónustan MI5 og lögreglan væru að rannsaka fullyrðingar um að allt að 14 dauðsföll í Bretlandi mætti rekja til einhvers konar aðgerða Rússa. Theresa May sagði að ef við- brögð Rússa yrðu ekki fullnægjandi myndi hún upplýsa breska þingið í dag um til hvaða aðgerða yrði gripið. Að sögn fréttaskýrenda gætu Bretar ákveðið að vísa rússneskum sendi- mönnum úr landi líkt og gert var eft- ir að Alexander Litvinenko var ráð- inn af dögum með geislavirku eitri í Lundúnum árið 2006. Að auki sé mögulegt að frysta rússneskar eign- ir, stöðva vegabréfsáritanir, snið- ganga heimsmeistarmótið í knatt- spyrnu, sem verður í Rússlandi í sumar, og loka fyrir útsendingar rússneskra sjónvarpsstöðva, svo sem RT, í Bretlandi. Harðnandi orðastríð um taugaeitursárás  Rússar ábyrgir fyrir árásinni, segja Bretar  Þvættingur, segja Rússar Eðlilegt Þegar taugaeitri er beitt Cholinesterase er hindrað Taugaeitrið novitsjok Boðin eru flutt frá taugafrumu til viðkomandi vöðva með boðefninu acetylcholine Þróað í Sovétríkunum á áttunda og níunda áratug Sagt hafa verið þróað til að sniðganga bann við efnavopnummeð því að búa til ný efnasambönd Getur verið í formi örfíns dufts Talið vera 5-8 sinnum banvænna en VX Einkennin geta komið fram eftir 30 sekúndur Helstu einkenni: Eitrið berst í lík- amann með innöndun Acetylcholine heldur áfram að senda boð til vöðva Líkaminn verður fyrir oförvun, bregst óeðlilega við Heimild: Science Direct/Live Science Augasteinar dragast saman Munnvatn lekur Tautakippir Krampi Lömun Hjartastopp Vöðvinn fær boðin og hlýðir Þegar boðin eru komin til skila brýtur ensímið cholinesterase niður boðefnið og „slekkur á”viðbragðinu Truflar boðskipti í taugakerfinu með sama hætti og önnur taugaeitur svo sem sarin og VX Novitsjok Heilinn sendir boð til vöðva um tauga- kerfið 1 2 3 Donald Trump, utanríkisráðherra Bandaríkjanna, vék í gær Rex Til- lerson úr embætti utanríkis- ráðherra Bandaríkjanna og til- nefndi Mike Pompeo, forstjóra bandarísku leyniþjónustunnar CIA, í embættið í hans stað. Tillerson kom í gærmorgun aft- ur til Bandaríkjanna eftir ferð til Afríku. Aðstoðarmenn hans sögðu, að Trump hefði ekki rætt við hann áður en tilkynning um brottvikn- ingu hans var gefin út. Háttsettur embættismaður í Hvíta húsinu sagði, að Trump hefði viljað endurskipuleggja lið sitt fyrir væntanlegan fund með Kim Jong- un, leiðtoga Norður-Kóreu, sem áformaður er í maí. Það hefur lengi þótt augljóst að Trump væri óánægður með utan- ríkisráðherra sinn. Trump sagði við blaðamenn í gær, að honum og Tillerson hefði samið vel en þeir hefðu verið ósammála í málum, þar á meðal um kjarnorkusamn- ing, sem gerður var við Íran í for- setatíð Baracks Obama. Trump bar hins vegar lof á Pompeo og sagði að hann myndi standa sig frábærlega; væri réttur maður í starfið á réttum tíma. Hvatti hann Bandaríkjaþing til að staðfesta til- nefningu Pompeos í embættið fljótt og vel. Pompeo, sem er 54 ára, sat áður á þingi fyrir Repúblikanaflokkinn og hefur verið staðfastur stuðn- ingsmaður Trumps. Þá tilnefndi Trump Ginu Haspel í embætti forstjóra CIA. Verði út- nefningin staðfest verður Haspel fyrsta konan til að gegna þessu embætti. Haspel, sem er 61 árs, er núver- andi aðstoðarforstjóri CIA og hef- ur starfað lengi í bandarísku leyni- þjónustunni. Hún er m.a. sögð hafa stýrt „svartholi“, fangelsi á vegum CIA í Taílandi þar sem grunaðir Al-Qaeda-hryðjuverkamenn voru beittir vatnspyntingum árið 2002. Trump rak utanríkisráðherrann  Forstjóri CIA tilnefndur í embættið AFP Rekinn Rex Tillerson gengur inn í flugvél í Nairobi í Kenía á mánudags- kvöld. Skömmu eftir að hann lenti í Washington missti hann starfið. Heimilt verður að hafa krár í Bretlandi opnar til klukkan 1 helgina sem brúðkaup Harrys Bretaprins og Meghan Markle verður haldið. Breska ríkis- stjórnin hefur gefið út tilskipun um að krár megi vera opnar lengur kvöldið fyrir brúðkaupið og einnig kvöldið sem brúðkaupið fer fram, 19. maí. Byggist það á sérstakri lagaheimild. „Konunglega brúðkaupið gefur samfélögum um allt land tækifæri til að fagna þessari hamingjustund konungsfjölskyldunnar og þjóðar okkar,“ sagði Amber Rudd innan- ríkisráðherra í yfirlýsingu. Flestum krám í Bretlandi er lok- að klukkan 23 á kvöldin. BRETLAND Opið lengur á krám á brúðkaupsdaginn Meghan Markle og Harry prins

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.