Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 14
Innlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018 Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Faxaflóahafnir sf. undirbúa smíði á nýjum og öflugum dráttarbáti. Á síðustu vikum hefur verið unnið að gerð útboðsgagna en þau liggja fyrir í frumdrögum og verða til frekari skoðunar á næstu vikum. Stefnt er að því að leggja fullgerð útboðsgögn fyrir hafnarstjórnina í haust. Þetta kom fram á síðasta stjórnarfundi Faxaflóahafna. Með ört stækkandi skipum sem koma til Faxaflóahafna, þ.e. í Reykjavík, á Grundartanga og Akranesi, er talin brýn þörf á að bregðast við með öflugri drátt- arbáti. Ekki síst ef horft er til nýs bakka utan Klepps þar sem ljóst er að veðurfarslegar aðstæður eru ekki eins góðar og í núverandi legum á Kleppsbakka, þar sem stærstu kaupskipin leggjast að. Þetta kemur fram í minnisblaði Gísla Gíslasonar hafnarstjóra og Gísla Jóhanns Hallssonar yf- irhafnsögumanns. Togkraftur verður 80 tonn Horft er til þess að nýr bátur verði með a.m.k. 80 tonna tog- kraft og búinn svonefndri Azi- muth-skrúfu og stýribúnaði (ASD). Núverandi dráttarbátur, Magni, er með 40 tonna togkraft. Þá verður gert ráð fyrir því í úr- boðsgögnunum að tilboðsgjafi geti gefið verð í hefðbundinn drátt- arbát með dísilvél, en einnig „twin“ bát þ.e. umhverfisvænni orkugjafa sem nýst geti á sigl- ingu. Í minnisblaðinu kemur fram að miðað við þær upplýsingar sem aflað hefur verið megi áætla að bátur af þessari tegund muni kosta á bilinu 7,5-8,0 milljónir evra (á.a.g. 950-1.000 milljónir ís- lenskra króna, en ræðst af þróun gengis á hverjum tíma) og að smíðatími gæti verið 14-18 mán- uðir. Ef smíði bátsins yrði boðin út síðsumars eða í haust væri ljóst að færa þyrfti til greiðslur miðað við langtímaáætlun fram um eitt ár. Í fjárhagsáætlun Faxaflóa- hafna sf. fyrir árin 2020 og 2021 er gert ráð fyrir alls 1.000 millj- ónum króna til kaupa á nýjum dráttarbáti. Kostir ASD-dráttarbáts um- fram núverandi dráttarbáta Faxa- flóahafna eru margir, að því er fram kemur í minnisblaðinu. ASD-bátur getur t.d. tengt drátt- artaug að aftan og beitt sér á allt upp í 10 mílna ferð en mörk teng- ingar á núverandi dráttarbátum er 4 mílur. Þessi munur á hraða geti skipt sköpum á þröngum svæðum, svo sem á Viðeyjarsundi, því um leið og skip slá af ferð með vind inn á hlið byrja þau að hörfa („drifta“) og snúast upp í vind. 95 % af vinnu skipstjóra ASD báts er fyrir framan hann þegar dráttartaug er notuð, þ.e. yfirleitt er notuð er vinda að framan, en á núverandi dráttarbátum er vinn- an öll að aftan þar sem vinda og dráttarkrókur eru þar. Nýr dráttarbátur gæti kostað milljarð  Faxaflóahafnir undirbúa smíði á nýjum og öflugum báti Dráttarbátur Hefðbundin stærð af báti með 70-80 tonna togkraft. Flestir nýir bátar eru ASD bátar með skrúfu- og stýrisbúnaði sem snýst 360°. náist á heimilum sem nota mikið raf- magn, svo sem á köldum svæðum þar sem húsin eru hituð með raf- magnsofnum. „Heimilisfólkið getur séð hvað er í gangi og hvenær. Með því að setja stýritengla á rafmagns- ofna er hægt að láta einhverja þeirra slökkva á sér yfir nóttina og þegar fólk er í vinnunni. Með því getur fólk sparað sér marga tíuþúsundkalla yf- ir árið,“ segir Hilmir. Hann segir að í einbýlishúsum og öðrum stórum íbúðum geti fólk einnig sparað um- talsverða fjármuni þótt ekki sé notuð rafmagnskynding. Hleðsla raf- magnsbíla eykur orkunotkun heim- ila og þótt rafmagnið sé ekki selt sem orkutoppur, eins og til dæmis í Nor- egi, er gagnlegt fyrir fólk að vita hvað hleðslan kostar. Búnaðurinn getur einnig nýst til að auka öryggi húseigenda. Hægt er að láta búnaðinn kveikja ljós og Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Fólk getur lækkað rafmagnsreikn- inginn með því að minnka óþarfa raf- magnsnotkun, án þess að draga úr þeim þægindum sem rafmagnið veit- ir. Þetta á ekki síst við um heimili á köldum svæðum sem nota rafmagn til húshitunar. Lykillinn að þessu er búnaður til að fylgjast með raf- magnsnotkuninni. „Okkur Íslendingum hættir til að líta svo á að rafmagnið kosti ekki neitt og ekki sé ástæða til að spara það,“ segir Hilmir Ingi Jónsson, framkvæmda- og markaðsstjóri sölu- og ráðgjafarfyrirtækisins Po- wena sem selur búnað til að fylgjast með og stýra rafmagnsnotkun heim- ila og fyrirtækja. Mikil „ósýnileg notkun“ Hann leggur áherslu á það að þeg- ar fólk er komið með tæki til að greina rafmagnsnotkun einstakra herbergja íbúðarinnar og tækja sjái það hvað tæki sem alltaf er kveikt á noti mikið rafmagn, gjarnan 20-30% allrar notkunar heimilisins. „Þetta er ósýnileg notkun, sem fer líka fram á meðan heimilisfólk sefur eða er að heiman. Mikið af þessu er óþarfa notkun og hleypir rafmagnsreikn- ingnum upp,“ segir Hilmir. Greiningartækið fylgist stöðugt með rafmagnsnotkuninni. Það er nettengt og getur unnið með öðrum tækjum heimilisins. Með því er hægt að fá tengla til að stýra notkun ein- stakra tækja. Öllu þessu er hægt að stýra með appi í símanum. Búast má við að mesti ávinning- urinn af stýringu rafmagnsnotkunar slökkva á meðan fólk er í fríi í sum- arbústaðnum eða útlöndum til þess að það líti út fyrir að fólk sé í íbúð- inni. Einnig er hægt að fylgjast með rafmagns- og vatnsnotkun í sum- arbústaðnum, þegar enginn á að vera þar. 35 þúsund kr. pakki Með rafmagnsmælinum fylgir einn tengill til stýringar og kostar lágmarkspakkinn tæplega 35 þús- und krónur. Tengilinn má til dæmis nota til að kveikja á kaffivél á morgn- ana. Hægt er að bæta við tenglum að vild, til dæmis við rafmagnsofna. Hilmir segir að góðar leiðbeining- ar um uppsetningu fylgi og geti margir sett búnaðinn upp sjálfir. Eftir að rafmagnsmælinum hefur verið stungið í samband er hægt að sækja appið án endurgjalds og setja upp í símanum. Mælir sem fylgist með rafmagnsnotkun tækja  Hægt að lækka rafmagnsreikninginn með betri upplýsingum Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Sparnaður Hilmir Ingi Jónsson sýnir Snappee-tæki sem notað er til að mæla rafmagnsnotkun heimila. Ekki fer mikið fyrir búnaðinum. citroen.is Verðlaunabíllinn Citroën C3 er hlaðinn þægindum, lofi og búnaði. Með 300 lítra skotti, nýjustu kynslóð sparneytinna véla, undurþýðri sjálfskiptingu sem gerir hann silkimjúkan í akstri ert þú klár í þitt ævintýri. C3 er fáanlegur með Apple Car Play og Mirror Link sem gerir þér kleift að spegla helstu forrit snjallsímans eins og t.d. Google Maps á 7“ snertiskjáinn. Punkturinn yfir i-ið er svo vegmyndavélin ConnectedCam sem þú getur notað til fanga dýrmæt augnablik. KOMDU OGMÁTAÐU CITROËN C3 C3 LIVE BEINSKIPTUR FRÁ 2.090.000KR. C3 FEEL SJÁLFSKIPTUR FRÁ 2.520.000 KR. Yfir 25 alþjóðleg verðlaun • Vegmyndavél • Nálægðarskynjarar • Blindpunktsviðvörunarkerfi • Brekkuaðstoð • Hliðarvörn •Breið og þægileg sæti • Isofix festingar • Rúmgott skott • Sparneytinn Nýir og notaðir bílar: Söludeildir eru opnar alla virka daga kl. 9-17 og laugardaga kl. 12-16 Brimborg Reykjavík: Bíldshöfða 8, sími 515 7040 I Brimborg Akureyri: Tryggvabraut 5, sími 515 7050 CITROËN ÞÆGINDI CITROËN C3 Hlaðinn lofi og búnaði

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.