Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 27

Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 27
ÍSLENDINGAR 27 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018 bestalambid.isBeztu uppskriftirnar okkar Enn einn dagur í Paradís Bez t á lambið Agnar Ludvigsson fæddist íReykjavík 14.3. 1918. For-eldrar hans voru hjónin Lud- vig C. Magnússon, skrifstofustjóri frá Sauðárkróki, og fyrri kona hans, Ragnheiður Sumarliðadóttir hús- móðir, frá Breiðabólstað í Sökkólfs- dal í Dalasýslu, Systkini Agnars sem eru öll látin, voru Hildur Elísabet, Valtýr og Reynir. Agnar kvæntist 1944, Áslaugu Árnadóttur, húsfreyju sem lést 2010. Foreldrar hennar voru Árni Jónsson, smiður í Reykjavík, og Guðbjörg Sigurðardóttir húsmóðir. Agnar og Áslaug voru barnlaus. Agnar ólst upp í Reykjavík, en var flestöll sumur frá því á æskuárunum í sveit í Fremri-Hundadal í Dala- sýslu, hjá móðurbróður sínum, Bald- vini Sumarliðasyni. Hann stundaði nám við Verslunarskóla Íslands og brautskráðist þaðan 1937. Agnar stundaði verslunarstörf í Reykjavík 1938-40. Hann var sölu- maður hjá Heildverslun G. Helgason & Melsted hf. 1940-41. Agnar stofnsetti eigið heildsölu- fyrirtæki sem nefnt var Agnar Lud- vigsson hf., í Reykjavík í árslok 1941 og sá um innflutning á ýmsum þekktum vörumerkjum. Árið 1958 stofnsetti hann efnagerð þar sem framleitt var Royal lyftiduft og búð- ingar. Hann starfrækti fyritækið þar til hann varð nær áttræður en þá seldi hann það og er það nú í eigu fyrirtækisins John Lindsay. Agnar sat í stjórn knattspyrnu- félagsins Víkings 1940-43, í bygging- arnefnd skíðaskála Víkings 1942-43 og sinnti ýmsum nefndar- og trún- aðarstörfum á vegum íþróttafélaga í Reykjavík. Hann var einn af frum- kvöðlum að stofnun Bygginga- samvinnufélags Verslunarmanna- félags Reykjavíkur árið 1947. Hann sat í stjórn þess á árunum 1947-54. Þá skrifaði hann margar greinar í blöð og tímarit um hin ýmsu málefni. Agnar var sæmdur silfurmerki og gullmerki með lárviðarsveig Knatt- spyrnufélagsins Víkings. Agnar lést 28.10. 2013. Merkir Íslendingar Agnar Ludvigsson 90 ára Guðmunda Guðmundsdóttir Guðni Ragnar Jónsson 85 ára Benedikt Andrésson Guðrún Jómundsdóttir 80 ára Smári Jónas Lúðvíksson 75 ára Ásthildur Bjarnadóttir Guðrún L. Björnsdóttir Halldóra Hákonardóttir Sigurður Jónsson Sigurður Ragnarsson 70 ára Agnar Pétursson Guðrún Ingólfsdóttir Halla Guðmundsdóttir Halldór Ólafsson Hildur Hávarðardóttir Ingibergur Vilhjálmsson Kristbjörg S. Eðvaldsdóttir Kristjana A. Kristjánsdóttir Margrét B. Kristinsdóttir María Kristín Lárusdóttir Paul D. Arnar ÓKeeffe Sigurbjörn Ólafsson Sigurborg Gísladóttir 60 ára Anton Emil Bragason Guðfinna Hólmfríður Pálmadóttir Gunnlaugur Magnússon Hörður Jóhannsson Jóhanna María Einarsdóttir Magnús H. Skaftason Rannveig Hallvarðsdóttir Sigríður Ólafsdóttir Tatiana Teplyakova Valdimar F. Valdimarsson 50 ára Ágúst Brynjar Eiðsson Ása Magnea Ólafsdóttir Ástríður G. Eggertsdóttir Gísli Guðjónsson Halldór Jónas Ágústsson Hans Wium Guðmundsson Hjörtur Árnason Hulda G. Björnsdóttir Jóhannes Þór Ólafsson Jóhann Heiðar Oddsson Jón Bjarni Baldursson Lýður Ásgeirsson Magnús Árni S. Magnússon Ragnar Pálsson Róbert Edward Róbertsson 40 ára Agnes Helga Martin Birgir Dagbjartur Sveinsson Daniel Tomasz Wojtkowiak Gerður Guðmundsdóttir Guðmundur Rafn Gylfason Márus Hjörtur Jónsson Mindaugas Andrijauskas Oanh Thi Le Richard Robert McNair 30 ára Aleksejs Semjonovs Ársæll Ottó Björnsson Díana Ásta Harrison Einar Helgi Sigurðsson Elva Kristín Arnarsdóttir Fjóla Karen Hafsteinsdóttir Friðgeir Elí Jónasson Garðar Örn Arnarson Guðlaug Guðmundsdóttir Gunnar H. Baldvinsson Kristín Alma Sigmarsdóttir Kristín María Stefánsdóttir Paulina Karolina Wieczorek Paulina Rapp Przemyslaw Zajdowski Sævar Örn Sigurvinsson Til hamingju með daginn 30 ára Tinna ólst upp í Reykjavík, býr þar, lauk prófi í íþróttafræði frá HR og er nú í fæðingarorlofi. Maki: Vífill Gústafsson, f. 1988, viðskiptafræðingur. Dætur: Ólivía, f. 2013, og Alexandra, f. 2017. Stjúp- dóttir: Efemía, f. 2008. Foreldrar: Gauti Grét- arsson, f. 1960, sjúkra- þjálfari, og Hildigunnur Hilmarsdóttir, f. 1962, leikfimiskennari. Þau eru búsett í Reykjavík. Tinna Laxdal Gautadóttir 30 ára Sigrún ólst upp í Reykjavík, býr þar og er veitingastjóri á Jamie’s Italian á Hótel Borg. Bræður: Pétur Óli, f. 1988; Baldvin, f. 1993; Þo- móður, f. 2001, og Jón Ólafur, f. 2002. Foreldrar: Þormóður Jónsson, f. 1961, og Helga Ólafsdóttir, f. 1961. Kona Þormóðs er Sigríður Garðarsdóttir, en maður Helgu er Hannes Jóns- son. Sigrún Þormóðsdóttir 30 ára Oddný ólst upp í Ferjunesi í Flóahreppi, býr þar, lauk stúdentsprófi frá Tækniskólanum og hefur verið stuðningsfulltrúi við Flóaskóla. Maki: Jakob Nielsen Kristjánsson, f. 1986, bif- vélavirki. Sonur: Egill Ingi Nielsen, f. 2011. Foreldrar: Ingjaldur Ás- mundsson, f. 1944, og Kristín Þorbjörg Ólafs- dóttir, f. 1959, d. 2016. Oddný Ása Ingjaldsdóttir Sveinn sló Íslandsmet í 3.000 metra hindrunarhlaupi árið 2003. Sveinn lauk stúdentsprófi frá MS 1997, gerði stuttan stans við Uni- versity of Arkansas á íþróttastyrk, stundaði nám við HÍ og lauk BSc- prófi í matvælafræði og síðar dokt- orsprófi í iðnaðarverkfræði við HÍ og DTU í Kaupmannahöfn 2008. Fjölskyldan flutti heim árið 2009. Þau hjónin rannsökuðu, ásamt fleir- um, misferli með stofnfjárbréf í Byr sparisjóði, sem kennt var við Exeter Holdings. Sveinn varð forstjóri Matís árið 2010 og hefur sinnt því starfi síðan. Sveinn bjó í Halifax í Kanada 2014- 2015, til að byggja upp viðskipta- tengsl Matís. Hann lauk þá stjórn- unarnámi við Harvard Business School. Hann leggur mikið upp úr sam- veru við fjölskylduna og hefur yndi af því að gera upp gamlar bygg- ingar: „Ég hef líka lengi verið með hugann við ótal sóknarfæri tengd líf- hagkerfinu um allt land, eða ræktun lýðs og lands í víðu samhengi, eins og gamla aldamóta- og ungmenna- félagskynslóðin hefði líklega orðað það. Í þeim efnum horfi ég ekki síst til æskuslóðanna í Skagafirði, þar sem foreldrar mínir leggja stund á lífrænan sauðfjárbúskap. Fjöl- skyldan hefur tekið virkan þátt í um- ræðu um jarðstrengi sem valkost við háspennustóriðjulínur við styrkingu flutningskerfis raforku á Íslandi. Ég hef setið í vísinda- og tækniráði frá 2009, sinnt ýmiss konar nefnda- og stjórnarstörfum, innanlands sem ut- an, og er formaður frjálsíþrótta- deildar KR.“ Fjölskylda Kona Sveins er Rakel Gylfadóttir, f. 6.5. 1968, frjálsíþróttaþjálfari, sjúkraþjálfari og kennari: „Við hóf- um búskap árið 1999 en hún varð síðar hlaupaþjálfari minn.“ Foreldrar Rakelar voru Gylfi Eld- járn Sigurlinnason, f. 17.3. 1936, d. 6.1. 2006, forstöðumaður hjá Ice- landair, og k.h., Þórunn Sólveig Ólafsdóttir, f. 13.10. 1937, d. 5.6. 2013, húsfreyja og söngkona. Þau- bjuggu lengst af í Hafnarfirði. Börnin eru: 1) Kári Eldjárn Þor- steinsson, f. 2.1. 1995, sálfræðinemi í Reykjavík, í sambandi með Kristínu Björk Smáradóttur; 2) Iðunn Fjall- dís, f. 6.2. 2005, nemi, og 3) Gunnar Jarl, f. 17.9. 2007, nemi. Albræður Sveins: Björn, f. 2.5. 1979, verkfræðingur í Reykjavík, og Ólafur, f. 6.3. 1984, hagfræðingur Sviss. Hálfsyskini Sveins, samfeðra, eru Hrafn, f. 13.12. 1966, bílstjóri í Reykjavík, og Þorbjörg 23.8. 1971, flugfreyja í Reykjavík. Hálfsystkini Sveins, sammæðra, eru Starri Heiðmarsson, f. 6.9. 1969, náttúrufræðingur á Svalbarðs- strönd, og Rakel Heiðmarsdóttir, f. 14.8. 1972, sálfræðingur í Kópavogi. Foreldrar Sveins eru Helga Þórð- ardóttir, f. 7.4. 1950, viðurkenndur bókari og skógarbóndi á Mælifellsá, og Margeir Björnsson, f. 19.10. 1938, bóndi, hundatemjari og veiðimaður á Mælifellsá. Sveinn Margeirsson Rósa Björnsdóttir húsfr. á Breið Hjálmar Pétursson b. á Breið í Skagafirði Björn Hjálmarsson b. á Mælifellsá Þorbjörg Ólafsdóttir húsfr. á Mælifellsá í Skagafirði Margeir Björnsson b. með lífrænt sauðfé á Mælisfellsá Margrét Eyjólfsdóttir húsfr. á Starrastöðum Ólafur Sveinsson b. á Starrastöðum í Skagafirði Hjálmar Indriði Guðmundsson b. og bifreiðastj. að Korná Rósa Sigurbjörg Guðmundsdóttir húsfr. að Goðdölum í Skagafirði Gísli Pálsson hreppstj. á Hofi í Vatnsdal Páll Gíslason verkfr. og form. VFÍ Ingunn Gísladóttir gistihúseigandi í Rvík Reynir Grétarsson forstj. Creditinfo Sigþrúður Pálsdóttir (Sissú) myndlistarm. Guðrún Jóhanna Ólafsdóttir óperusöngkona í Madríd Signý Pálsdóttir skrifstofustj. í Rvík Ívar Pálsson viðskiptafr. og rækuútflytjandi Páll S. Pálsson hrl. í Rvík Árni Stefánsson forstj. Húsa- smiðjunnar Stefán Pálsson hrl. í Rvík Sólborg Hjálmarsdóttir ljósmóðir í Sölvanesi í Skagafirði og á Sauðárkróki Páll Árni Jónsson fyrrv. forstj. Mílu Skúli Jóhannsson verkfræðingur Einar Skúlason ferðamála- fræðingur Jón Pálsson póstmeistari í Rvík Sigrún Pálsdóttir húsfr. í Rvík Hermann Pálsson prófessor í Edinborg Sesselja Þórðardóttir húsfr. í Sauðanesi Páll Jónsson b. í Sauðanesi, A-Hún. Þórður Pálsson b. og kennari í Sauðanesi, síðar á Blönduósi Sveinbjörg Jóhannesdóttir húsfr. í Sauðanesi og á Blönduósi Jóhannes Jónsson útgerðarm. á Gauksstöðum í Garði Helga Þorsteinsdóttir húsfr. á Gauksstöðum í Garði Úr frændgarði Sveins Margeirssonar Helga Þórðardóttir viðurkenndur bókari og skógarb. á Mælifellsá

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.