Morgunblaðið - 14.03.2018, Side 4

Morgunblaðið - 14.03.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018 Framtak-Blossi er umboðsaðili fyrir VOLVO PENTA á Íslandi Dvergshöfða 27 , 110 Reykjavík | www.blossi.is | blossi@blossi.is Framtak-Blossi kappkostar að bjóða góða þjónustu og sanngjarnt verð á varahlutum. Hafið samband við Hafþór í síma 895-3144 eða hafthor@blossi.is herra, voru á meðal gesta, ásamt bæjarstjóra Hafnarfjarðar, Haraldi L. Haraldssyni, og öðrum bæjarfulltrúum Hafnarfjarðar. Í öðru sæti varð Krista Sól Guðjónsdóttir, nemandi í Áslandsskóla, og þriðja sætið hreppti Ísabella Alexandra Speight úr Öldu- túnsskóla. Nemendur lásu upp ljóð og sögur Andri Steinar Johansen, nemandi í Setbergs- skóla, bar sigur úr býtum í lokakeppni Stóru upplestrarkeppninnar sem fram fór í Hafn- arborg í Hafnarfirði í gærkvöldi. Er þetta í 22. skipti sem keppnin er haldin. Eliza Reid forsetafrú og Lilja Dögg Al- freðsdóttir, mennta- og menningarmálaráð- að eigin vali, en skáld keppninnar voru Sigrún Eldjárn og Ólafur Jóhann Sigurðsson. Ingibjörg Einarsdóttir, fyrrverandi skrif- stofustjóri skólaskrifstofu Hafnarfjarðar, stýrði hátíðinni og hafði umsjón með verkefn- inu. Keppnin hófst sem þróunarverkefni í grunnskólum Hafnarfjarðar árið 1996 og var mótuð í samstarfi við þá fyrsta skólaárið, en síðan fjölgaði sveitarfélögum sem þátt taka í keppninni. Eru nú allir grunnskólar landsins með 7. bekk þátttakendur. Fá ef nokkur verk- efni hafa fengið slíka útbreiðslu í íslenskum grunnskólum. ernayr@mbl.is Úrslitin í Stóru upplestrarkeppninni fóru fram í Hafnarborg í Hafnarfirði í gærkvöldi Morgunblaðið/Árni Sæberg Nemendur lásu upp ljóð og sögur að eigin vali Baldur Arnarson baldura@mbl.is Katrín Jakobsdóttir forsætisráð- herra segir stjórnvöld reiðubúin að breyta skattkerfinu til að bæta kjör lágtekjuhópa í samfélaginu. „Við höfum þegar boðað að eiga samstarf við verkalýðshreyfinguna og aðila vinnumarkaðarins um skatt- kerfisbreytingar. Við höfum boðað að við séum reiðubúin að létta skatt- byrði af tekjulægri hópum með ein- hverjum hætti,“ segir Katrín. Tilefnið eru ummæli Ragnars Þórs Ingólfssonar, formanns VR, í Morgunblaðinu í gær um skilyrði komandi kjarasamninga. Verði skatta- og lánakerfinu ekki breytt í þágu tekjulágra verði krafist sömu hækkana og hjá kjararáði. Verði ekki orðið við því verði verkfalls- vopnið dregið fram. Vísar til fyrri yfirlýsinga Spurð um slík skilyrði ítrekar Katrín yfirlýsingar stjórnvalda. „Það kemur fram í stjórnarsátt- mála, og í yfirlýsingunni sem við sendum frá okkur í kringum endur- skoðun samninga, að við erum tilbú- in að eiga þetta samstarf og skoða um leið samspil skattkerfisins og bótakerfisins í þágu tekjulægri hópa. Ég hef lagt áherslu á að eiga gott samstarf við aðila vinnumarkaðar- ins. Ég vil ekki setja þetta í skilyrða- eða hótanasamhengi. Heldur finnst mér mikilvægt fyrir okkur öll í þessu samfélagi að stjórnvöld eigi gott samstarf við aðila vinnumarkaðarins um mál sem lúta að ábyrgum vinnu- markaði og kjör- um fólks í land- inu. Þar geta stjórnvöld lagt sitt af mörkum í gegnum skatt- kerfið og bóta- kerfið. Þá er ég að tala um barna- bætur og hús- næðisstuðning,“ segir Katrín. Spurð hvernig samstarfsflokkarn- ir, einkum Sjálfstæðisflokkur, taka í slíkar hugmyndir minnir Katrín á að yfirlýsingin sé gefin út sameiginlega af ríkisstjórnarflokkunum. Bjarni Benediktsson, fjármála- og efna- hagsráðherra, muni leiða samtalið við aðila vinnumarkaðarins um endurskoðun á tekjuskattskerfinu. Ragnar Þór nefndi í áðurnefndu viðtali að fjármagna mætti breyting- ar á persónuafslætti í þágu tekju- lágra með því að færa til byrðar. Nefndi hann þar auðlindagjald og hátekju- og fjármagnstekjuskatt. Vilji stjórnvalda er skýr Katrín kveðst reiðubúin að skoða ýmsar leiðir til að fjármagna breyt- ingar á skattkerfinu. Niðurstaða úr samtali ríkisstjórnarinnar við verka- lýðshreyfinguna og aðila vinnumark- aðarins muni liggja fyrir í haust. „Við sjáum fyrir okkur einhverjar slíkar breytingar, ef sátt skapast um þær, við afgreiðslu næstu fjárlaga. Ég ætla hins vegar ekki að gefa mér niðurstöðuna úr samtalinu áður en það á sér stað. En okkar vilji liggur alveg skýr fyrir. Við höfum átt marga fundi með forystumönnum verkalýðshreyfingarinnar, og þar á meðal Ragnari Þór, og hlustað eftir því sem hann hefur lagt áherslu á, sem er að horfa til skattkerfisins.“ Ásamt því að krefjast breytinga á skatta- og lánakerfinu kallar Ragnar Þór eftir aðgerðum vegna starfs- mannaleiga. Gagnrýnir hann útvist- un starfsfólks sem hafi lægri laun og minni réttindi en fastráðið fólk. Taka á starfsmannaleigum Katrín telur aðspurð hægt að breyta reglum um starfsmannaleig- ur, þrátt fyrir skuldbindingar Ís- lands gagnvart EES-samningnum. Leigurnar starfa á grundvelli hans. Fyrstu skrefin í lagasetningu hafi verið stigin á síðasta þingi varðandi keðjuábyrgð. Tekjulágir fái meiri aðstoð  Forsætisráðherra boðar samstarf við verkalýðshreyfinguna um endurskoðun á skattkerfinu í ár  Skattbyrði tekjulágra verði létt  Tekur undir með formanni VR að skoða þurfi nýja tekjuöflun Katrín Jakobsdóttir „Það er alltaf ánægjulegt að ljúka samningi og ekki verra þegar það er gert í ágætu samstarfi. Við höfum ver- ið í ágætis ró og spekt með þessa vinnu með sveitarfélögunum og náð- um niðurstöðu sem ég held að fólk geti sætt sig við,“ segir Ólafur Lofts- son, formaður Félags grunnskóla- kennara. Nýr kjarasamningur grunnskóla- kennara var undirritaður í gær milli samninganefnda Kennarasambands Íslands og Sambands íslenskra sveit- arfélaga. Gildir samningurinn frá 1. apríl næstkomandi og út mars á næsta ári. Fyrri samningur rann út í lok nóvember á síðasta ári. Verði nýi samningurinn samþykktur fá fé- lagsmenn eingreiðslu til að bæta upp þann tíma sem samningar voru lausir. Laun munu hækka um 3% á samningstíman- um, samkvæmt upplýsingum Morgunblaðsins, og þá fá grunn- skólakennarar eingreiðslu við lok samningstímans. Eins eru gerðar breytingar á menntunarkafla kjara- samningsins sem liðkar fyrir endur- menntun grunnskólakennara. Ólafur vill ekki tjá sig um launalið- inn. Hann segir að enn eigi eftir að kynna samninginn fyrir félagsmönn- um og því vill hann ekki upplýsa um öll efnisatriði. „Við náum fram breyt- ingum sem skipta grunnskólakennara máli, eins og það að horfið er frá vinnumatinu og framsetning vinnu- tíma er breytt. Kennarar munu fá meiri tíma til að sinna grunnþættin- um, sem er kennsla og undirbúningur. Þetta eru breytingar sem skipta máli. Ég hefði vissulega viljað hækka launin meira enda er fyrirséður kenn- araskortur í framtíðinni og eitt af því sem vinnur bug á honum er að hækka launin. En þetta er stuttur samningur og okkur fannst þetta orðið ásættan- legt og vel þess virði að láta á þetta reyna.“ Kjarasamningurinn verður kynnt- ur sveitarfélögum og kennurum á næstu dögum. Niðurstaða atkvæða- greiðslu Félags grunnskólakennara mun liggja fyrir miðvikudaginn 21. mars. hdm@mbl.is Þetta er „ásættanlegt“  Grunnskólakennarar sömdu til eins árs  Horfið frá vinnu- mati og framsetning vinnutíma breytt  Laun hækka um 3% Ólafur Loftsson

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.