Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 33
MENNING 33 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018 ICQC 2018-20 : Glæsilegt páskablað fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 23.mars NÁNARI UPPLÝSINGAR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUN AUGLÝSINGA: fyrir mánudaginn 19. mars. –– Meira fyrir lesendur SÉRBLAÐ Girnilegar uppskriftir af veislumat og öðrum gómsætum réttum ásamt páskaskreytingum, páskaeggjum, ferðalögum og fleira. Örmyndin Blindfolded eftir Árna Þór Guðjónsson hlaut Örvarpann, áhorfendaverðlaun Örvarpsins, á Stockfish-kvikmyndahátíðinni um liðna helgi. Árni Þór er yngsti hand- hafi Örvarpans frá upphafi, en hann er 15 ára gamall. Samkvæmt upplýsingum frá skipuleggjendum Örvarpsins fjallar mynd Árna Þórs um konu sem veit ekkert við hverju hún á að búast þegar hún er í bíl með þremur und- arlegum mönnum og má hvorki sjá né tala. „Blindfolded er skemmtileg örmynd eftir 15 ára upprennandi kvikmyndagerðarmann, Árna Þór Guðjónsson. Árni nær með þessari mynd að bæði byggja góða spennu og svo koma áhorfandanum vel á óvart,“ segir í umsögn dómnefndar. Örvarpið er vettvangur íslenskra örmynda og er ætlað öllum þeim sem hafa áhuga á kvikmyndalist og annars konar listformum, reyndum sem óreyndum, ungum og öldnum. Umsjónarmenn Örvarpsins eru Halldóra Rut Baldursdóttir og Harpa Fönn Sigurjónsdóttir Verðlaunahafi Árni Þór Guðjónsson hlaut Örvarpann. Yngsti verðlaunahafi Örvarpsins frá upphafi » Tvær sýningar voru opnaðar í gær, annars vegar sýning fata-hönnuðarins Steinunnar Sigurðardóttur, Hvítur draumur til- finninga, í vinnustofu hennar við Grandagarð og hins vegar sýn- ingin Önnur sæti í höfuðstöðvum Arion banka í Borgartúni. Sýning Steinunnar er hluti af Hönnunarmars og á henni fá hlutir, í samhengi við aðra hluti, nýja merkingu sem tekur þá frá fyrra hlutverki í rýminu. Á sýningunni Önnur sæti má sjá verðlauna- tillögur arkitekta að þekktum byggingum á Íslandi, hugmyndir sem hlutu viðurkenningar í samkeppnum en urðu aldrei að bygg- ingum, eins og titill sýningarinnar ber með sér. Hvítur draumur tilfinninga hjá Steinunni og Önnur sæti í Arion banka Hvítur draumur Vigdís Gunnarsdóttir, Steinunn Sigurðardóttir fatahönnuður og Birna Sif Magnúsdóttir. Önnur sæti Ólafur Sigurðsson og Áslaug Ásgeirsdóttir á sýningunni í Arion banka. Arkitektúr Andrea Sif Hilmarsdóttir og Kristín Guðmundsdóttir skoða teikningar arkitekta. Gestir Agnes Guðmundsdóttir, Helga I. Stefánsdóttir og Halldór Lárusson. Morgunblaðið/Eggert

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.