Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018
FLOORING SYSTEMS SÍÐUMÚLA 14 • 108 REYKJAVÍK • SÍMI 510 5510
O
ttó
A
u
g
lýsin
g
astofa
teppaflísar
Sterkar og einfaldar í lögn
Einhvern tíma var fullyrt að einneinasti aðili, sem nánar var til-
greindur, gæti auðveldlega spurt
spurninga sem 10 vitringar gætu
ekki svarað. Þetta rifjast upp þegar
spurningalisti Björns
Levís þingmanns birt-
ist og slagar upp í síð-
ustu símaskrá. Flest
svörin liggja vísast
fyrir í skýrslum og á
heimasíðum. Sig-
urður Sigurðarson
bendir þó á að varð-
andi ráðherrabíla
séu spurningarnar
alls ekki tæmandi og
nefnir dæmi um það
sem vantar:
Hversu oft hefursprungið á ráð-
herrabílum? Hafa ráðherrar að-
stoðað við að skipta um dekk þegar
sprungið hefur á ráðherrabílum?
Eru ráðherrabílar á nöglum,
heilsársdekkjum eða harðskelja-
dekkjum? Hver er loftþrýstingurinn
í dekkjum ráðherrabíla? Að aftan,
að framan?
Hversu oft hefur ráðherra sofið íráðherrabíl í stað þess að fara
heim til sín eða gista á hóteli? Hafa
ráðherrar drukkið áfengi í ráð-
herrabílum? Er bar í ráðherrabíl-
um? Hefur ráðherra skutlað ein-
hverjum öðrum lengri eða skemmri
leið án þess að taka greiðslu fyrir?
Sé svo var gefinn út reikningur?
Var reiknaður útskattur á reikn-
ingnum?
Hefur einhverjum ráðherra flog-ið í hug að nota hesta, reiðhjól
eða mótorhjól í stað ráðherrabíls?
Notar ráðherra farangursrými í
ferðum sínum? Hafa þeir sett lík í
farangursrými? Er ráðherrabíl-
stjóri vopnaður?
Sé svo hefur ráðherra fengið aðskjóta?“
Björn Leví
Frábært framtak
en vantar upp á
STAKSTEINAR
Sigurður
Sigurðarson
Veður víða um heim 13.3., kl. 18.00
Reykjavík 6 skýjað
Bolungarvík 0 heiðskírt
Akureyri 2 alskýjað
Nuuk -6 skýjað
Þórshöfn 4 skúrir
Ósló 2 skýjað
Kaupmannahöfn 2 súld
Stokkhólmur 0 snjókoma
Helsinki 2 súld
Lúxemborg 5 skúrir
Brussel 5 skýjað
Dublin 9 skýjað
Glasgow 8 skýjað
London 10 léttskýjað
París 11 skýjað
Amsterdam 5 skýjað
Hamborg 5 skýjað
Berlín 9 skúrir
Vín 15 heiðskírt
Moskva 0 rigning
Algarve 17 léttskýjað
Madríd 14 léttskýjað
Barcelona 15 skýjað
Mallorca 16 léttskýjað
Róm 15 léttskýjað
Aþena 17 léttskýjað
Winnipeg -9 léttskýjað
Montreal 0 snjókoma
New York 1 snjókoma
Chicago 1 léttskýjað
Orlando 12 heiðskírt
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
14. mars Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 7:50 19:25
ÍSAFJÖRÐUR 7:56 19:29
SIGLUFJÖRÐUR 7:39 19:12
DJÚPIVOGUR 7:19 18:54
Ferðamennirnir
þrír sem fluttir
voru alvarlega
slasaðir á Land-
spítalann í Foss-
vogi með þyrlu
Landhelgisgæsl-
unnar eftir um-
ferðarslys
skammt austan
við Kirkjubæjar-
klaustur sl.
sunnudag eru ekki í lífshættu. Er
það lögreglan á Suðurlandi sem
staðfestir þetta.
Skýrslur hafa verið teknar af
bandarískum ökumanni og sam-
landa hans í öðru ökutækinu vegna
slyssins. Enn á eftir að ræða við öku-
mann hinnar bifreiðarinnar, sem er
frá Taívan og er málið því enn í
rannsókn, samkvæmt upplýsingum
frá lögreglu.
Aðstæður á slysstað voru góðar,
þurr vegur og bjart. Morgunblaðið
greindi frá því á mánudag að allt
benti til þess að öðrum bílnum hefði
verið ekið á öfugum vegarhelmingi.
Loka þurfti veginum í rúmlega fjór-
ar klukkustundir vegna slyssins.
Ferðafólk-
ið er ekki
í lífshættu
Lögregla vinnur
áfram að rannsókn
Slys Áreksturinn
var mjög harður.
Karlmaður á þrítugsaldri hefur ver-
ið ákærður fyrir manndráp, en hon-
um er gefið að sök að hafa stungið
albanskan karlmann á þrítugsaldri,
Kelvis Sula, til bana. Árásin átti sér
stað í desember síðastliðnum. Þá er
maðurinn einnig ákærður fyrir til-
raun til manndráps með því að hafa
lagt til annars manns þannig að
hann hlaut skurðsár víða um líkam-
ann og slagæðarblæðingu á fæti.
Maðurinn hefur verið í gæslu-
varðhaldi á Litla-Hrauni frá því að
hann var handtekinn eftir árásina 3.
desember.
Í ákærunni kemur fram að Sula
hafi verið stunginn í bringu vinstra
megin þannig að hnífurinn gekk inn í
hjartað. Notaðist árásarmaðurinn
við hníf með 9,5 sentimetra löngu
blaði. Þá var hann einnig stunginn í
öxl og tvívegis í bakið. Sula lést af
sárum sínum fimm dögum eftir árás-
ina, en áverkinn á hjartanu var ban-
vænn og samkvæmt ákæru málsins
höfðu önnur skurðsár einnig áhrif á
andlát hans.
Hinn maðurinn sem varð fyrir
árásinni hlaut stungusár í bakið, í
öxl, upphandlegg og kálfa og náði
síðastnefnda stungan ofan í slagæð
og olli slagæðarblæðingu. Er ákært
fyrir brot á 211. gr. almennra hegn-
ingarlaga, en hún nær til manndráps
og er lágmarksrefsing fyrir slíkt
brot fimm ára fangelsi.
Ákærður fyrir manndráp í miðbænum
Stakk annan karlmann til bana á Austurvelli í desember Beitti stórum hníf
Morgunblaðið/Sverrir
Miðbær Árásin var á Austurvelli.