Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 6

Morgunblaðið - 14.03.2018, Blaðsíða 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018 gæðafisk og reynum að hafa verðið stöðugt og í lægri kantinum. Það er ekki gott að vera stöðugt að hræra í verðinu ef dollarinn rýkur upp eða niður eða brælur hafa áhrif á fram- boð. Þú myndir ekki kaupa ýsuflak ef það hefði hækkað um 300 krónur frá því í gær. Samkeppnin hefur líka sitt að segja en víða á höfuðborgarsvæð- inu hefur hún minnkað og sami aðili er kannski að flaka fyrir marga aðila. Þessa viku hefur langan farið á 150 krónur kílóið á fiskmörkuðunum og það er eitthvað að hjá mönnum sem eru að selja ýsu og löngu á um og yfir tvö þúsund kall. Viljum við ekki að fólk borði fisk eða hvað?“ spyr Jón Garðar. við Gylfa Norðdahl og auk þeirra eig- endanna starfa 3-4 starfsmenn með þeim, fleiri seinni part dags. Í tvö ár ráku þeir einnig fiskbúð við Háaleitisbraut og segist Jón Garðar hafa séð talsverðan mun á viðhorfum viðskiptavina í Reykjavík og Hafnar- firði. Þeir hættu rekstrinum í Reykja- vík þar sem erfitt var að keppa um góða starfsmenn eftir því sem góð- ærið jókst á ný. Verðið stöðugt og í lægri kantinum – En hver er galdurinn við að geta selt fisk á lágu verði? „Það er enginn galdur,“ segir Jón Garðar. „Við leggjum áherslu á Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Góður loðnuafli fékkst í gær og í fyrradag á Kópanesgrunni út af Pat- reksfirði. Jón Axelsson, skipstjóri á Álsey VE 2, sagði upp úr hádegi í gær að vel gengi, en þá voru þeir búnir að fá tvö 800 tonna köst í góðu veðri og vantaði um 100 tonn upp á fullfermi. „Þetta er fín hrognaloðna í litlum og þéttum en varhugaverðum torfum,“ sagði Jón. „Ef maður lokar of mikið inni getur farið illa og einhverjir bát- anna lentu í að sprengja næturnar.“ Skipin að klára hvert af öðru Jón sagði mjög erfitt að segja hvort um vestangöngu væri að ræða, en sagðist frekar hallast að því að svo væri ekki. „Þessi fiskur þokast norð- austur og ég get vel trúað að hann sé að koma sunnan að. Hann hafi gengið dreift og síðan þétt sig hérna. Hrogn- in eru þroskuð og í góðu standi, en í vestangöngum eru hrognin ekki alveg svona langt komin,“ sagði Jón. Á miðunum í gærdag voru einnig tvö önnur skip Ísfélagsins í Vest- mannaeyjum, Heimaey og Sigurður, og höfðu þau einnig verið að kasta. Ís- félagsskipin klára ekki kvótann í þessum túr, en skipin eru hvert af öðru að ljúka loðnuveiðum. Beitir NK, skip Síldarvinnslunnar, lauk loðnuveiðum á mánudag en hann fékk 1.400 tonn út af Patreksfirði. Sturla Þórðarson, skipstjóri á Beiti, sagði í samtali við heimasíðu Síldar- vinnslunnar í gærmorgun að mjög góð köst hefðu fengist út af Patreks- firði. „Þetta er fínasta loðna sem þarna er á ferðinni og hún ætti að henta vel til hrognatöku. Þarna er um vestangöngu að ræða og menn klár- uðu líka vertíðina í fyrra á þessum slóðum,“ sagði Sturla. Grænlenska skipið Polar Amaroq kastaði tvisvar á Skjálfanda á mánu- dag og fyllti, en áður höfðu Polar- menn fyllt frystilestar. Hoffellið frá Fáskrúðsfirði var að veiðum á svip- uðum slóðum og var á heimleið í gær úr sínum öðrum túr á miðin fyrir Norðurlandi. Meiri rannsóknir Á heimasíðu HB Granda er haft eftir Guðlaugi Jónssyni, skipstjóra á Venusi, að gera þurfi miklu víðtækari rannsóknir á loðnunni. „Það þarf að fylgjast með loðnunni öllum stundum og menn eiga ekki að þurfa að bíða í fleiri daga eftir nauðsynlegustu upp- lýsingum,“ segir Guðlaugur. Hann tekur líka fram að menn verði að fara að átta sig á því að hrygningarsvæði loðnunnar séu að færast norðar. Fín hrognaloðna í litlum en varhuga- verðum torfum  Góð veiði á Kópanesgrunni  Óljóst hvort um vestangöngu er að ræða Ljósmynd/Þorgeir Baldursson Álsey VE-2 Vel hefur veiðst út af Patreksfirði síðustu daga vertíðar. Umsóknum til Vinnumálastofnunar um atvinnuleyfi til útlendinga til að starfa hér á landi fjölgaði í seinasta mánuði en alls hefur stofnunin gefið út 329 atvinnuleyfi það sem af er ári. Þar af voru gefin út 198 atvinnuleyfi til útlendinga í seinasta mánuði. Þetta kemur fram á nýju yfirliti Vinnumálastofnunar yfir ástand og horfur á vinnumarkaðinum. „Það sem af er ári hefur Vinnu- málastofnun lokið afgreiðslu 400 umsókna, en til samanburðar lauk stofnunin afgreiðslu 349 umsókna á fyrstu tveimur mánuðum ársins 2017,“ segir í skýrslu Vinnumála- stofnunar. Fjölgun atvinnuleyfa vegna skorts á starfsfólki Flestar umsóknirnar eru vegna atvinnuleyfa fyrir námsmenn eða 122 leyfi en þar á eftir koma 91 leyfi vegna skorts á starfsfólki og 76 leyfi vegna starfa sem krefjast sérfræði- þekkingar en þeim fjölgaði töluvert á þessu ári miðað við fyrstu tvo mán- uðina í fyrra. Einnig hefur leyfum vegna skorts á starfsfólki fjölgað úr 44 í janúar og febrúar í fyrra í 91 leyfi það sem af er þessu ári eins og fyrr segir. Fjórða árið í röð eru fleiri útsend- ir starfsmenn og starfsmenn starfs- mannaleiga við störf hér á landi í febrúarmánuði en á sama tíma árið á undan. „Samkvæmt skráningu til Vinnumálastofnunar voru samtals 48 erlend fyrirtæki starfandi í febr- úar 2018 með samtals 370 starfs- menn. Þá voru starfsmenn starfsmanna- leiga, innlendra sem erlendra, sam- tals 1.484 í febrúar á vegum 27 starfsmannaleiga. Af þeim 27 starfsmannaleigum sem voru starfandi á Íslandi í febr- úar voru 19 innlendar og 8 erlendar. Innlendu starfsmannaleigurnar höfðu 1.444 starfsmenn á sínum veg- um en hinar erlendu 40 starfsmenn,“ segir í skýrslunni. Atvinnuleysi meðal erlendra ríkis- borgara hér á landi er hlutfallslega mun meira en meðal Íslendinga. Alls voru 1.347 erlendir ríkisborgarar án atvinnu í lok febrúar eða um 29% allra atvinnulausra. Þessi fjöldi sam- svarar um 5,2% atvinnuleysi meðal erlendra ríkisborgara. omfr@mbl.is Fleiri umsóknir um atvinnuleyfi  Vinnumálastofnun hefur gefið út 329 atvinnuleyfi til útlendinga til starfa hér á landi það sem af er ári  5,2% atvinnuleysi mælist nú meðal erlendra ríkisborgara Jón Garðar segir að þeir í Litlu fiskbúðinni kaupi allan fisk á mörkuðum og vinni alla vöru sjálfir hvort sem er um að ræða að flaka, hakka, útbúa tilbúna rétti eða hvaða nöfnum sem það nefnist. Oft þurfi útsjónarsemi eins og þegar flakarinn eða roðflettivélin skemmi ýsuflakið. Þá sé fátt annað í stöðunni en að hakka flakið því viðskiptavinurinn kaupi síður út- litsgallað flak þó að gæðin séu þau sömu. Hann segir að sömu viðskiptavinirnir komi reglulega í Litlu fiskbúðina og þessa viku hafi verið líflegt í búðinni. „Þegar niðurstöður verðkönn- unar birtast taka viðskiptin kipp, en því miður eru Íslendingar fljótir að gleyma,“ segir Jón Garðar. Fyrri hluta dags seljist mikið af óunnum fiski, en þegar fólk sé að hraða sér heim síðdegis færist viðskiptin yfir í tilbúna rétti til að skella á pönnu eða beint inn í ofninn. Frá mánudegi til miðvikudags sé mikið að gera, en seinni part vikunnar sé rólegra yfir vetrartímann. Þegar grilltíminn komi á vorin færist aftur fjör í viðskiptin þegar helgin nálgast. Íslendingar fljótir að gleyma KAUPA ALLAN FISK Á MÖRKUÐUM OG VINNA VÖRUNA SJÁLFIR Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Það er allt ódýrast í Hafnarfirði, sem er á margan hátt eins og bær úti á landi. Hafnfirðingar halda margir fastar utan um budduna en fólk í Reykjavík. Hér hefur fólk líka þekk- ingu á fiski og veit hvað hann á að kosta. Sums staðar pælir fólk ekki svo mikið í verðinu, þó svo að það geri það hér,“ segir Jón Garðar Sigur- vinsson, fisksali í Litlu fiskbúðinni við Helluhraun í Hafnarfirði. Verslunin var með lægst verð á 13 tegundum af 24 í könnun Alþýðu- sambands Íslands á verði í átján fisk- verslunum og fiskborðum matvöru- verslana víða um land. Mesti munur- inn var 132% en sá minnsti 21%. Algengur verðmunur var á bilinu 40- 80%. Hafnfirðingar í fararbroddi Athygli vekur að þrjár verslanir í Hafnarfirði voru með lægst verð á 22 vörutegundum af þeim 24 sem kann- aðar voru. Auk Litlu fiskbúðarinnar var Fiskbúðin í Trönuhrauni með lægst verð í fimm tilvikum og fisk- borð Fjarðarkaups með lægst verð á fjórum tegundum. Þessar verslanir eru á tiltölulega litlu svæði í Hafnar- firði. Einnig komust á blað Fiskbúð Sjávarfangs á Ísafirði og FISK kompaní á Akureyri. Jón Garðar segir að niðurstöður könnunarinnar hafi í sjálfu sér ekki komið á óvart. Litla fiskbúðin hafi frá stofnun 2008, en þá var hún við Mið- vang, alltaf komið vel út úr verðkönn- unum. Hann rekur búðina í samstarfi Morgunblaðið/Hari Litla fiskbúðin Jón Garðar Sigurvinsson við fiskborðið, en í versluninni er lögð áhersla á gæði og gott verð. „Viljum við ekki að fólk borði fisk eða hvað?“  „Allt ódýrast í Hafnarfirði,“ segir fisksali í Litlu fiskbúðinni Skráð atvinnuleysi á landinu var 2,4% í seinasta mánuði og er það óbreytt frá í janúar. Sam- kvæmt Vinnumálastofnun minnkaði atvinnuleysi í febrúar í flestum landshlutum, nema á Suðurnesjum þar sem það jókst um 0,2 prósentustig og einnig varð örlítil aukning atvinnuleys- is á Vesturlandi. Gert er ráð fyrir að draga muni úr skráðu atvinnuleysi í mars og það verði á bilinu 2,1- 2,4%. 2,4% at- vinnuleysi VINNUMÁLASTOFNUN

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.