Morgunblaðið - 14.03.2018, Qupperneq 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018
Aðalfundur og spennandi málþing
Aðalfundur landssamtakanna Spítalinn okkar verður
haldinn fimmtudaginn 15. mars 2018 kl. 16.00
á Icelandair Hótel Natura, Víkingasal.
Dagskrá aðalfundar
1. Kosning fundarstjóra og fundarritara
2. Skýrsla stjórnar lögð fram
3. Reikningar lagðir fram til samþykktar
4. Lagabreytingar
5. Ákvörðun félagsgjalds
6. Kosning stjórnar og tveggja skoðunarmanna reikninga
7. Önnur mál.
Málþing hefst kl. 16.45 að loknum aðalfundi
Dagskrá málþings.
Hönnun sjúkrahúss 21. aldarinnar
Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt hjá hönnunarteyminu Corpus3
Hvers vegna notendastudd hönnun sjúkrahúss?
Guðrún Björg Sigurbjörnsdóttir, verkefnastjóri á Landspítala
Hringbrautarverkefnið – staðan í dag.
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH
Lokaorð flytur Svandís Svavarsdóttir, heilbrigðisráðherra
Stjórnin.
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/senda grein Prentun Landsprent ehf.
Erna Ýr Öldudóttir
ernayr@mbl.is
„Við fórum yfir málið með aðstand-
endum Hauks Hilmarssonar. Mér
fannst þetta góður fundur og upp-
byggilegur. Málið hefur verið í for-
gangi hjá okkur frá því að við frétt-
um af því,“ segir Guðlaugur Þór
Þórðarson utanríkisráðherra sem
átti fund með aðstandendum Hauks í
gær, en hann er týndur og talinn af á
átakasvæði í Sýrlandi.
„Við höfðum strax samband við
tyrknesk stjórnvöld og höfum notað
allar mögulegar diplómatískar leiðir
líka til að ýta frekar á eftir því.
Sendiráð Íslands sem gætu mögu-
lega haft eitthvað um málið að segja
voru virkjuð, við höfum verið í sam-
skiptum við nágrannaríkin, nýtt
fastanefndir og ég hef átt samtal við
tyrkneska utanríkisráðherrann,“
segir Guðlaugur Þór og bætir við að
svæðið í Sýrlandi sé átakasvæði, sem
flæki hlutina mikið. Hann segir
borgaraþjónustu utanríkisráðuneyt-
isins fá um 30 þúsund mál á ári og al-
menna reglan sé að aðstoða fólk eftir
fremsta megni, við allar aðstæður.
„Tyrkneski utanríkisráðherrann
þekkti til málsins því við höfðum leit-
að aðstoðar tyrkneskra stjórnvalda
eftir hefðbundnum leiðum. Þetta mál
er óvenjulegt og hefur utanríkis-
þjónustan ekki þurft að fást við
svona mál í mjög langan tíma, en
hefðbundnar diplómatískar leiðir
eru líklegastar til að bera árangur.“
Samkvæmt upplýsingum frá utan-
ríkisráðuneytinu var leitað til ræð-
ismanna Íslands í Tyrklandi strax 6.
mars sl. en sendiráðið í Kaupmanna-
höfn er sendiráð Íslands gagnvart
Tyrklandi og ræðismenn Íslands
fulltrúar landsins þar. Þá hafi verið
haft samband við stjórnvöld vina-
þjóða sem hafa reynslu af svipuðum
málum. Utanríkisþjónustan sé í sam-
starfi við aðila á svæðinu og hafi unn-
ið málið í góðu samstarfi við lögregl-
una. Auk allra formlegra leiða séu
óformleg tengsl nýtt. Þegar fréttir
bárust af því að Tyrkir kynnu að
vera með Hauk hafi verið haft sam-
band við sendiráð Tyrklands gagn-
vart Íslandi í Ósló sem hafi strax far-
ið að vinna í málinu. Varðandi hvort
haft hafi verið samband við herinn í
Tyrklandi, þá lúti hann borgaralegri
stjórn og diplómatískar leiðir, eins
og farnar hafi verið, séu líklegastar
til árangurs í samskiptum.
Morgunblaðið/Eggert
Fundur um mál Hauks Utanríkisráðherra hitti aðstandendur í gær þar sem upplýst var um framgang málsins.
Ísland ekki fengist við
svona mál mjög lengi
Utanríkisráðherra átti fund með aðstandendum Hauks
Karlmaður fannst meðvitundarlaus
á horni Kirkjuvegar og Vestmanna-
brautar í Vestmannaeyjum aðfara-
nótt mánudags.
Að sögn Jóhannesar Ólafssonar,
yfirlögregluþjóns hjá lögreglunni í
Eyjum, var maðurinn fluttur á
sjúkrahús þar sem hann var úr-
skurðaður látinn eftir lífgunar-
tilraunir. Ekki er talið að neitt sak-
næmt hafi átt sér stað, en hinn látni
var á fertugsaldri.
Karlmaður fannst án meðvitundar í Eyjum
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Ég fékk alveg ágætis kosningu og
er ánægð með það. Það er ekkert
leyndarmál og Ragnar hefur sagt
það margoft sjálfur að hann ætlaði
sér að hreinsa út úr stjórninni. Hon-
um tókst það ekki og því má velta því
fyrir sér hvort hann sé kominn í
minnihluta í eigin stjórn,“ segir Ingi-
björg Ósk Birgisdóttir, 2. varaforseti
ASÍ, í samtali við Morgunblaðið, en
Ingibjörg var í gær endurkjörin í
stjórn VR.
Kosningum til sjö sæta í stjórn VR
lauk í gær. Alls greiddu 3.345 at-
kvæði en á kjörskrá voru 34.980 fé-
lagsmenn. Kosningaþátttaka var því
9,56% en kosið var til næstu tveggja
ára. Auk Ingibjargar voru kjörin í
stjórn þau Sigríður Lovísa Jónsdótt-
ir, Bjarni Þór Sigurðsson, Dóra
Magnúsdóttir, Arnþór Sigurðsson,
Guðrún Björk Hallbjörnsdóttir og
Friðrik Boði Ólafsson.
Talsverð spenna var fyrir þessar
kosningar enda hefur mikil ólga ver-
ið innan verkalýðshreyfingarinnar
að undanförnu. Eftir sigur Sólveigar
Önnu Jónsdóttur í formannskjöri
Eflingar bjuggust margir við því að
Ragnar Þór Ingólfsson formaður
myndi „herða tök sín“ á VR í þessum
kosningum, eins og einn viðmælandi
Morgunblaðsins orðaði það. Fimm
þeirra sem voru í framboði höfðu lýst
yfir stuðningi við Ragnar og aug-
lýstu framboð sín saman undir yfir-
skriftinni Saman til verka í VR. Þá
lagði Vilhjálmur Birgisson, formað-
ur Verkalýðsfélags Akraness, lóð sín
á vogarskálarnar í byrjun vikunnar
og hvatti til að fólk myndi kjósa áð-
urnefnda stuðningsmenn Ragnars
og þrjá til viðbótar.
Ingibjörg telur að Ragnari hafi
mistekist ætlunarverk sitt: „Hann
ætlaði sér að koma inn fimm eða
jafnvel átta mönnum. Hann náði inn
tveimur og tveimur í varastjórn en
hann missti líka einn á móti. Það
hlýtur að teljast áfall fyrir hann og
það sést reyndar á því hvernig hann
hefur talað eftir þessar kosningar.“
Hún bendir á að fleiri stjórnar-
menn hafi gefið kost á sér til endur-
kjörs og fengið góða kosningu. „Sú
niðurstaða segir auðvitað mikið um
þann árangur sem við höfum náð.“
„Höfum unnið vel saman“
Sjálfur bar Ragnar Þór Ingólfsson
sig vel í viðtali við Morgunblaðið í
gærkvöld. „Ég er nokkuð sáttur við
þetta. Þetta er öflugt fólk, ég hef
unnið með því öllu áður,“ segir hann
um niðurstöður kosninganna.
Ragnar segist sjálfur ekki hafa
tekið opinbera afstöðu gagnvart ein-
staka framboðum í stjórnarkjörinu.
Hann kannast þó vel við hóp fimm-
menninganna sem lýst höfðu yfir
stuðningi við hann.
„Þarna var hópur sem setti fram
stuðningsyfirlýsingu við mig. Ég var
auðvitað ánægður með það. En ég
var líka ánægður með þann áhuga og
þátttöku sem félagsmenn sýndu í
þessum kosningum.“
Hann segir að gott samstarf hafi
verið innan stjórnar síðan hann tók
við formennsku í félaginu. „Það er
eins og fólk haldi að það séu einhver
átök innan stjórnarinnar. Við höfum
unnið gríðarlega vel saman. Þetta er
ekki eins og í Eflingu að formaður
komi með meirihluta stjórnar með
sér, þannig að það var mikil áskorun
þegar ég náði kjöri í fyrra. En við
náðum að púsla okkur saman. Þótt
við séum með ólíkar skoðanir höfum
við unnið saman og unnið að góðum
málum,“ segir hann.
Segir úrslitin áfall fyrir Ragnar Þór
Ingibjörg Ósk Birgisdóttir segir að Ragnari Þór Ingólfssyni hafi mistekist að hreinsa út úr stjórn VR
Tveir stuðningsmanna hans náðu kjöri Sjálfur segist Ragnar Þór nokkuð sáttur við niðurstöðuna
Morgunblaðið/Golli
Kosningar Tveir stuðningsmenn formannsins Ragnars Þórs Ingólfssonar
náðu kjöri í stjórn VR en fimm vildu inn. Myndin er frá fjölskyldudegi VR.
Ragnar Þór
Ingólfsson
Ingibjörg Ósk
Birgisdóttir
Tveir voru fluttir slasaðir á Land-
spítalann í Fossvogi með þyrlu
Landhelgisgæslu Íslands eftir bíl-
veltu skammt vestan við Lómagnúp
síðdegis í gær.
Samkvæmt upplýsingum frá lög-
reglunni á Suðurlandi voru báðir
hinna slösuðu með meðvitund, en
annar þeirra er sagður nokkuð
slasaður á höfði eftir veltuna. Ekki
fengust nánari upplýsingar um líð-
an þeirra í gærkvöldi, en þyrla
Landhelgisgæslunnar lenti við
sjúkrahúsið um klukkan 19.
Ekki þurfti að grípa til þess að
loka fyrir bílaumferð um veginn.
Tildrög slyssins voru í gær óljós.
Stutt er síðan alvarlegt bílslys
varð í umdæmi lögreglunnar á Suð-
urlandi, en sl. sunnudag slösuðust
þrír í hörðum árekstri við Kirkju-
bæjarklaustur.
Tveir voru fluttir slasaðir eftir bílveltu
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Landspítali Þrír voru fluttir slasaðir með
þyrlu eftir harðan árekstur á sunnudag.