Morgunblaðið - 14.03.2018, Page 20

Morgunblaðið - 14.03.2018, Page 20
20 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 14. MARS 2018 Miklar áskoranir blasa við Íslendingum eins og öðrum jarð- arbúum, mat- vælaframleiðsla til framtíðar er þar á meðal. Þeim fjölgar sem veita því athygli að innan við 5% af heildar matvæla- og fóðurframleiðslu heimsins kemur úr höfum og vötnum, þó svo þau þeki um 70% af yfirborði jarðarinnar. Því er vert að horfa til þess að nýta vatn betur til mat- vælaframleiðslu og þar kemur strandbúnaður sterkur inn, þannig spilast saman sjötta heimsmark- miðið – hreint vatn og salernis- aðstaða – og það fjórtánda – líf í vatni – við annað heimsmarkmiðið – ekkert hungur. Atvinnugreinar sem byggjast á hagnýtingu auð- linda á og við strendur landsins geta sannarlega liðkað til við lausn þeirra áskorana sem við okkur blasa. Fæðuöryggi heimsins getur styrkst með hinni svokölluðu bláu byltingu – fæðuframframleiðslunni – í vatni – þ.m.t. við ströndina. Nokkrar tilraunir hafa verið gerðar til að færa hugtakið aqua- culture yfir í íslenskan búning. Fiskeldi fjallar fyrst og fremst um ræktun fiska, eldi á skeldýrum eða ræktun og nytjar þörunga falla þar ekki undir. Lagareldi vísar til eldis í vökva, það hugtak hefur ekki leyst landfestar. Strandbúnaður er samheiti yfir atvinnugreinar sem tengjast nýtingu land- og/eða sjáv- argæða í og við strandlengju lands- ins, hvort sem um ræktun eða eldi er að ræða, rétt eins og landbún- aður vísar til þess að yrkja jörðina, rækta dýrategundir og hafa nytjar af því sem dýrin gefa af sér. Merkja mátti á fyrstu ráðstefnunni, fyrir ári, að nafnið strandbún- aður gæti fest í sessi. Mikilvægt er að fyr- ir hendi sé opinn vett- vangur fyrir faglega og fræðandi rökræðu um brýnustu og mikilvæg- ustu úrlausnarefnin fyrir atvinnugreinarnar sem hagnýta auðlindir og gæði á, við og fyrir ströndum landsins. Atvinnugrein- arnar sem umræðir eru fiskeldi, þörungaræktun og skelræktun. Hagaðilar hafa tækifæri til að ráða ráðum sínum á ráðstefnunni Strandbúnaður 2018 sem fram fer á Grand Hótel dagana 19. og 20. mars nk. Ráðherra sjávarútvegs- og landbúnaðarmála mun setja ráð- stefnuna. Strandbúnaður 2018 er öllum opinn, þar verður rætt sér- staklega um, á skilgreindum mál- stofum; siðferði, velferð, möguleika til landeldis á laxi, hvort laxalús sé „upprennandi“ vandamál, örlög ís- lenskrar skelræktar í ljósi sam- keppni við lifandi innflutta skel, nýtingu smáþörunga sem byltingu í framleiðslu lífrænna efna og að eldi sé meira en lax. Á meðal málstof- anna er uppskeruhátíð rannsókna og að lokum verður rætt um heil- brigði í strandbúnaði með undirtitl- inum verk og vitundarvakning. Í öllu ræktunarstarfi þar sem maðurinn nýtir land- eða hafsvæði sér til hagsbóta geta vaknað spurn- ingar um hvað sé siðferðislega rétt að ganga langt með tilliti til um- hverfis, siðferðis og ekki síst vel- ferðar lífveranna sem aldar eru. Þessar vangaveltur eiga rétt á sér í tengslum við þær atvinnugreinar sem falla undir strandbúnað sem og aðrar greinar þar sem lífverur eru ræktaðar til manneldis. Ráð- stefnum Strandbúnaðar er ætlað að vera vettvangur uppbyggilegra um- ræðna um atvinnugreinarnar og í opnunarmálstofunni gefst tækifæri til að ræða þessi álitamál. Þar verð- ur fjallað um efnistökin út frá sjón- arhóli siðfræðinnar, friðunar land- svæða, möguleg víti til varnaðar verða skoðuð og horft til mögulegra fyrirbyggjandi aðgerða. Í ljósi þess að rannsóknir leggja af mörkum þekkingu sem styður við atvinnuuppbyggingu er sérstök málstofa helguð afrakstri rann- sókna og þróunar sem m.a. hefur verið fjármögnuð af AVS Rann- sóknasjóði í sjávarútvegi, Umhverf- issjóði sjókvíaeldis, Tækniþróun- arsjóði, norrænum sjóðum, evrópskum sjóðum og hagaðilum. Þar verða nokkur dæmi þess hvernig ný þekking hefur verið hagnýtt í þágu íslensks atvinnulífs til verðmætasköpunar í strandbún- aði reifuð og jafnframt gefin dæmi um sóknartækifæri á því sviði. Mik- ilvægt er að vel takist til við inn- leiðingu nýrrar þekkingar í rekstri fyrirtækja svo hámarka megi áhrif fjárfestingarinnar sem lögð hefur verið í rannsókna-, nýsköpunar- og þróunarvinnuna. Í málstofunni um heilbrigði strandbúnaðar verður m.a. fjallað um; hverjar eru stærstu áskor- anirnar, hvar og hvað má gera bet- ur og hvaða nýjungar má sækja í reynslubanka nágranna okkar til þess að nýta þær aðstæður sem eru taldar hagfelldar til að auka fram- leiðslu matar frá fiskeldi og öðrum strandtengdum greinum. Strandbúnaður 2018 Eftir Arnljót Bjarka Bergsson Arnljótur Bjarki Bergsson » Spennandi ráðstefna um málefni þör- ungaræktar, fiskeldis og skelræktar fer fram dagana 19. og 20. mars undir yfirskriftinni Strandbúnaður 2018. Höfundur er stjórnarformaður Strandbúnaðar ehf. og sviðstjóri hjá Matís arnljotur.b.bergsson@matis.is Þverhausinn er sérstök tegund af „homo sapiens“ – tegund, sem mikið lætur að sér kveða á Íslandi. Þverhausar eru manntegund, sem lætur sér ekkert óviðkomandi, hefur sterkar skoðanir á öllu – en getur aldrei komið sér saman um neina niðurstöðu. Þráast við, setur undir sig hausinn og þráast við unz einhver annar tekur loksins ákvörðun eftir langa bið. Þá setur hann undir sig haus- inn, hleypur á vegginn – og eftir það heyrist ekkert frá honum. Svona hefur það verið Þetta er alþekkt. Svona var það þegar Perlan var byggð. Allir þverhausar uppi á háa c-inu – þar til Davíð tók ákvörðunina og hafist var handa. Eftir það heyrðist ekki aukatekið orð. Eins Þegar ráð- húsið var byggt við Tjörnina. Mót- mælagöngur og mótmælastöður – unz hafist var handa. Þverhausinn hljóp þá á vegginn – og þagnaði. Eða þegar hæstaréttarhúsið var byggt. Þverhausar söfnuðu saman liðsafla á Arnarhóli og höfðu hátt. Settu svo undir sig þverhausinn og hlupu á vegginn. Og steinþögn- uðu. Eða muna menn ekki eftir látunum út af Gálgahraunsveg- inum. Þegar Ómar og fleiri góðir liðsmenn voru bornir af lögregluliðum burtu úr mótmælastöðunum og vinur minn, einn af mótmælendum, full- yrti, að ef haldið yfir áfram með verkið myndi sjálfstæðismeiri- hlutinn í Garðabæ fá heldur betur útreiðina. Svo var hafist handa. Þverhausarnir hlupu að sjálfsögðu á þann vegg með sinn þverhaus á undan. Ekkert hefur meira um Garðahraunsveginn heyrst – nema hvað Sjálfstæðisflokkurinn í Garðabæ hlaut góða kosningu. Og svona er það enn Og mikið er eftir enn. Landspít- alinn. Um hann hefur verið rifist í meira en tuttugu ár. Sumir þver- hausarnir segja, að slíkan spítala þurfi alls ekki að byggja. Í staðinn eigi að byggja útibú á landsbyggð- inni. Aðrir að hann eigi að vera á Vífilsstöðum. Enn aðrir að farsæl- ast sé að hann verði þar sem Björgun er nú til húsa – við Bryggjuhverfið. Og enn aðrir að fara eigi með hann upp á Hólms- heiði. Og loks þeir, sem segja að fresta eigi öllum framkvæmdum og kalla til erlenda sérfræðinga til þess að koma með tillögur um framkvæmdina. Fyrir þá þver- hausa breytir engu, þótt tveir slík- ir ráðgjafarhópar erlendra sér- fræðinga hafi þegar um málið fjallað og báðir komist að sömu niðurstöðu. Þessu mun halda áfram þangað til loksins að því kemur, að þverhausarnir þurfa að setja undir sig þverhausinn – og hlaupa á vegginn. Þá loksins linn- ir. Mikill verður sá léttir. Engin niðurstaða Eða deilur þverhausanna um Reykjavíkurflugvöll. Þeir segja sumir, að hann eigi bara að vera kyrr þar sem hann er. Aðrir að sameina eigi hann Keflavíkur- flugvelli. Svo þeir, sem vilja helst sjá hann á Hólmsheiði – vænt- anlega þó ekki á þeim stað, þar sem aðrir þverhausar vilja hafa Landspítalann. Og loks síðasta og nýjasta útspilið – völlinn eigi að byggja upp í Skagafirði því þar sé svo mikið pláss. Þverhausarnir munu aldrei geta komið sér saman um neina lausn. Einhver eða ein- hverjir verða bara að taka af skar- ið og hefjast handa – svo þver- hausarnir geti sett undir sig þverhausinn, hlaupið á vegginn – og þagnað. Þverhausarnir kosta mikið fé Vond eru þau áhrif sem þrætur þverhausanna geta haft á mann- lífið hér á þessu landi. Verst þó af öllu þegar eilíft þverhausanaggið kostar samfélagið stórfé. Svo sem eins og þræturnar um hvort og þá hvernig eigi að láta erlenda ferða- menn, sem hingað sækja, taka þátt í að kosta eigin aðbúnað og áhrif af eigin ágangi á þau nátt- úruvætti, sem þeir eru hingað komnir til þess að skoða. Erlend- um ferðamönnum hefur fjölgað um fleiri hundruð þúsunda, ágangur þeirra veldur stöðugt meira tjóni og íslenski þverhausinn getur aldrei náð samkomulagi um hvern- ig beri að fá þá, sem þessu valda, til þess að taka þátt í kostn- aðinum, sem af þeim leiðir. Þar hafa þverhausarnir þráttað og þrætt núna allt frá því ferða- mannastraumurinn hófst – allar tilraunir stjórnvalda til þess að finna ásættanlega lausn hefur allt- af einhver þverhausahópurinn ge- reyðilagt. Málinu þokar ekkert áfram – jafnvel þótt vitað sé, að hinir erlendu ferðamenn eru til þess reiðubúnir að taka þátt í að greiða kostnaðinn sem af heim- sókn þeirra leiðir enda eiga þeir því að venjast frá heimaslóðum að svo sé gert. Sérstakan þverhausavegg til þess að hlaupa á Miklar líkur eru nú taldar á því, að allar samræmdu steinahleðsl- urnar við Miklubrautina í Reykja- vík verði fjarlægðar. Þar mun mikið verk fara til spillis. Væri nú ekki ráð að nota hluta af þessum hleðsluvegg og reisa hann á auða reitnum fyrir framan alþingishúsið þar sem nú er mynd af göfugri forystukonu. Þann vegg má áforma að nota fyrir þverhausana svo þeir geti athafnað sig þar án mikillar fyrirhafnar og án margra ára tafa. Hlaupið á hann með sinn þverhaus á undan – og þagnað svo. En auðvitað kæmu þeir sér aldrei saman um það! Nema hvað!?! Eftir Sighvat Björgvinsson Sighvatur Björgvinsson » Vond eru þau áhrif sem þrætur þver- hausanna geta haft á mannlífið hér á þessu landi. Verst þó af öllu þegar eilíft þverhausa- naggið kostar sam- félagið stórfé. Höfundur er fv. alþingismaður og ráðherra. Hinn íslenski þverhaus Hver þekkir ekki til- finninguna að hafa skoðað fasteign sem mann langaði svo í að maður horfði fram hjá göllunum eða skoðaði ekki nægilega vel og tók bara íslensku leið- ina á þetta og sagði ÞETTA REDDAST? Hver hefur ekki heyrt af einhverjum, þekkir til einhvers eða þekkir það af eigin reynslu að hafa keypt húsnæði sem reyndist gallað eða uppfyllti ekki þær kröfur sem því var ætlað og hvað hefði verið hægt að spara mikla fjármuni og tíma ef bara hefði verið látið ástandsskoða hús- næðið áður en keypt var? Gildir þetta bæði um einstaklinga og fyrirtæki. Þegar við ákveðum að fjárfesta í bíl þá finnst okkur ekkert athugavert að fara með bílinn í ástandsskoðun, svo við séum örugg um að kaupa ekki köttinn í sekknum. Við ástand- sskoðun fáum við skýrslu með at- hugasemdum yfir þau atriði sem koma í ljós og hægt er að taka með- vitaða ákvörðun hvort það standi undir sér að kaupa bílinn á uppsettu verði, lækka verðið eða bara sleppa kaupunum og finna nýjan og betri bíl. Það vita það kannski ekki allir en það er hægt að gera að sama fyrir fasteignina sem þú vilt kaupa eða jafnvel enn þá betra, fasteignina sem þú ætlar að selja og vilt hafa þitt á hreinu. Fasteignakaup eru stærsta fjár- festing sem við gerum um ævina og því er mjög mikilvægt að vita hvaða galla hún hefur að geyma ef ein- hverjir eru svo hægt sé að taka skyn- samlega og upplýsta ákvörðun með kaupin. Ef við horfum inn í framtíð- ina væri það draumur að geta sagt að engin fasteign gengi kaupum eða söl- um nema henni fylgdi ástandsskýrsla þar sem það er bæði hagur kaupanda og seljanda að hafa allt uppi á borð- um. Í dag er einfalt mál fyrir ein- staklinga og fyrirtæki að fá heimilis- eða fyrirtækjaskoðanir fyrir þá sem vilja vera fyrirbyggjandi, hyggjast fara í framkvæmdir og þá sem vilja sinna eðli- legu viðhaldi. Markmið slíkra skoðana er að benda á þau viðhald- stengdu atriði sem huga þarf sérstaklega að og meta svæði þar sem rakavandamál eru til staðar eða eru líkleg til að koma upp. Einnig er boðið upp á ráðgjöf varðandi hreinsun og þrif fyrir og eftir fram- kvæmdir en mjög mik- ilvægt er að fylgja verkferlum varð- andi rif og förgun á rakaskemmdu byggingarefni til að valda ekki frek- ara tjóni. Öll viljum við halda heilsunni og hugsa vel um okkur en hvar setjum við mörkin? Að meðaltali verjum við um 90% af tíma okkar innandyra og því skipta loftgæði og innivist miklu máli, á heimili okkar eða vinnustað. Til að uppfylla það þarf að sinna nauðsynlegu viðhaldi sem oft er trassað vegna fjárskorts. Oft heyrir maður að eigendur húsnæðis og fyr- irtækja hræðist að fá skoðun á hús- næði vegna hugsunarinnar um að hætta geti verið á að húsnæðið eða vinnustaðurinn sé dæmt ónýtt eða óíbúðarhæft. Það er ekki rétt, til- gangur skoðana er ekki að rýra verð- mæti fasteigna eða dæma húsnæði ónýtt, heldur að finna vandamálin ef einhver eru og koma með tillögur að úrbótum til að koma í veg fyrir frek- ara tjón. Munum að reglulegt viðhald eykur verðmæti fasteignarinnar og sölugildi. Ekki mygla eða kaupa kött- inn í sekknum, fáðu skoðun. Boðun í skoðun eða mygla? Eftir Hilmar Frey Gunnarsson Hilmar Freyr Gunnarsson »Fasteignakaup eru stærsta fjárfesting sem við gerum um ævina og því er mjög mikilvægt að vita hvaða galla hún hefur að geyma ef ein- hverjir eru … Höfundur er húsasmíðameistari á verkfræðistofunni Eflu, fagsviði húsa og heilsu. Allt um sjávarútveg

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.