Morgunblaðið - 21.04.2018, Side 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Þessi maður er nú bara hálfviti, ég held að það
sé eina skýringin á þessu. Ég veit ekki hvort
hann var fullur en mig grunar það,“ segir
Gunnlaugur Sigursveinsson, varaformaður
stjórnar Knattspyrnufélags Fjallabyggðar.
Skemmdir voru unnar á knattspyrnuvellinum
á Ólafsfirði hinn 31. mars. Þá keyrði ökumaður
jeppa inn á völlinn og spólaði hann upp. Að
sögn Gunnlaugs átti atvikið sér stað síðdegis á
laugardegi, eða um klukkan 18. Ökumaðurinn
var erlendur ferðamaður.
„Þetta var skíðamaður. Lögreglan tók af hon-
um skýrslu og honum var svo sleppt,“ segir
Gunnlaugur.
„Þetta leit mjög illa út í fyrstu enda var mjög
blautt. Nú er farið að þorna og völlurinn lítur
betur út. En förin eftir þetta sjást alltaf, jafn-
vel þó það verði sáð í þetta.“
Fjallað var um þetta atvik á fundi bæjar-
stjórnar Fjallabyggðar í vikunni. Óskað var
eftir lögregluskýrslu um málið.
Knattspyrnufélag Fjallabyggðar leikur í
þriðju deild karla og fyrsti leikur á vellinum er
skráður í næsta mánuði. Gunnlaugur segir
óvíst að völlurinn verði tilbúinn þá, bæði vegna
skemmdanna og ekki síður tíðarfarsins.
Hann segir að ekki liggi enn fyrir hver
kostnaður vegna skemmdanna verði. „Bara
fræin sem sáð er í hjólförin eru 3-400 þúsund
krónur. Svo er eftir öll vinnan við þetta. Þetta
getur verið dýrt fyrir lítinn klúbb og kostn-
aðurinn lendir sjálfsagt á bænum fyrir rest.
Nema þessi erlendi ferðamaður borgi, þeir
tóku alla vega niður reikningsnúmerið hjá okk-
ur.“
Skíðamaður olli skemmdum
Erlendur ferðamaður keyrði á jeppa yfir knattspyrnuvöllinn á Ólafsfirði Tjón
upp á hundruð þúsunda Lögregla tók skýrslu en manninum var svo sleppt
Morgunblaðið/Kristinn Benedikt
Ólafsfjörður Knattspyrnuvöllur bæjarins var
skemmdur um síðustu mánaðamót.
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Meirihluti hreppsnefndar Reyk-
hólahrepps hefur samþykkt að láta
gera „óháð mat“ á valkostum í vega-
gerð í Gufudalssveit. Samþykktin er
gerð að frumkvæði formanns skipu-
lagsnefndar sveitarfélagsins sem
greiddi atkvæði gegn því að veg-
inum yrði ætlaður staður í Teigs-
skógi og hefur talað fyrir jarð-
gangaleið og með hliðsjón af boði
viðskiptamannanna Sigurðar Gísla
og Jóns Pálmasona um kostun á
„hlutlausri rýni“ á vegkostum.
Hreppsnefndin vinnur áfram að
undirbúningi breytingar á skipulagi
þar sem gert er ráð fyrir að veg-
urinn fari um Teigsskóg.
„Málið er búið að vera fast í lang-
an tíma. Okkur langar til að það sé
pottþétt, að Vegagerðin sé að setja
hlutina rétt fram,“ segir Vilberg
Þráinsson, oddviti hreppsnefndar
Reykhólahrepps, um ástæðu þess
að ráðist er í viðbótarmat á valkost-
um. Hann segir að það hafi komið til
vegna þess að menn hafi komið og
boðist til að kosta slíkt mat.
Töldu málinu lokið
„Þetta kemur okkur bæði mikið á
óvart og veldur okkur vonbrigðum.
Við töldum eftir margra ára sam-
vinnu að þessu verki að því hefði
lokið með samþykkt sveitarfé-
lagsins um lagningu vegarins um
Teigsskóg. Þessi nýja úttekt kemur
því í bakið á okkur,“ segir Hreinn
Haraldsson vegamálastjóri.
Eftir mikla vinnu við undirbúning
og mat á valkostum við lagningu
Vestfjarðavegar um Gufudalssveit
ákvað hreppsnefnd í byrjun mars,
með fjórum atkvæðum gegn einu, að
setja leiðina sem fer í gegnum Teigs-
skóg inn á skipulag. Jarðgangaleiðin
er talin hafa minni umhverfisáhrif í
för með sér en er mun dýrari. Vil-
berg segir að skýrt hafi komið fram
að ríkið væri ekki tilbúið að kosta
dýrari kostinn. Heimamenn væru
ekki tilbúnir að bíða með ónýta vegi í
tuttugu ár. Því hafi niðurstaðan orð-
ið sú að fara að ráði Vegagerðarinn-
ar og leggja veginn yfir firðina og um
Teigsskóg þótt hann og fleiri hefðu
viljað hlífa skóginum.
Vilberg segir að Vegagerðin sé
bæði hönnunar- og framkvæmda-
aðili. Heimamenn velti því stundum
fyrir sér hvort þeir séu að hygla ann-
arri leiðinni á kostnað hinnar. Til
dæmis hafi uppgefnar tölur um
kostnað við jarðgangaleiðina hækk-
að um tvo eða tvo og hálfan milljarð
á því kjörtímabili hreppsnefndar
sem nú er að ljúka. „Mér finnst allt í
lagi að spyrja þessarar spurningar
og fá skýr svör. Við erum þá viss um
að við höfum svarað öllum spurning-
um,“ segir Vilberg.
Hreinn Haraldsson segir að
starfsmenn Vegagerðarinnar hafi
farið yfir alla þætti þessa máls, stóra
sem smáa, og borið saman kosti og
galla beggja leiða. Það hafi verið
gert af fullum heilindum enda hafi
þeir enga ástæðu til að falsa hluti
eða fegra. „Við hljótum því að líta á
þessa ákvörðun sveitarstjórnar sem
vantraust á okkar störf.“
Vilja kanna ódýrari göng
Skipulags- og hafnarnefnd Reyk-
hólahrepps samþykkti tillögu frá
formanninum, Karli Kristjánssyni,
hinn 9. apríl um að fengin yrði óháð
verkfræðistofa, helst erlend, til að
meta og fara yfir valkosti í vegagerð
í Gufudalssveit. Fram kemur í sam-
þykktinni að ekki hafi verið fengnir
óháðir fagaðilar til að meta hvort
draga megi úr kostnaði og auka um-
ferðaröryggi jarðgangaleiðar undir
Hjallaháls, til dæmis með styttri
göngum og breyttri veglínu í vestan-
verðum Djúpafirði. Eingöngu hafi
verið stuðst við upplýsingar frá
Vegagerðinni sem vilji og ætli sér að
fara aðra leið.
Tveimur dögum seinna barst boð
frá Sigurði Gísla og Jóni Pálmason-
um, eigendum IKEA á Íslandi, inn á
fund hreppsnefndar þar sem þeir
bjóðast til að kosta „hlutlausa rýni“
á vegkostum og samþykkti hrepps-
nefndin með þremur atkvæðum
gegn tveimur að ræða við þá um það.
Vilberg segir að Sigurður Gísli og
Jón hafði lagt til að tiltekin norsk
verkfræðistofa verði fengin í verkið
en segir ekki búið að ganga frá því.
Aðspurður segist hann ekki hafa velt
fyrir sér siðferði þess að auðmenn
reyni að hafa áhrif á umræðu í sveit-
arstjórn. Bendir hann á að sömu
menn hafi boðist til að kosta athug-
un á þjóðgarði í Árneshreppi á
Ströndum í stað Hvalárvirkjunar en
það hafi gerst á síðustu stigum máls-
ins.
Þeir tveir hreppsnefndarmenn
sem voru á móti nýja matinu létu
bóka að það vekti furðu þeirra að
formaður skipulagsnefndar legði
fram tillögu um öflun frekari gagna
á þessum tíma, eftir að hafa haft
málið í nefndinni undanfarna mánuði
og eftir að sveitarstjórn hafi tekið
ákvörðun um að velja tiltekna leið.
Skipulagið auglýst
Hreppsnefndin ákvað síðan á
aukafundi 17. apríl að auglýsa tillögu
þá að breytingu á skipulagi sem unn-
ið hefur verið að undanfarna mánuði
en hún gerir ráð fyrir veginum um
Teigsskóg. Tillagan var samþykkt
með fjórum atkvæðum gegn einu. Á
móti var sem fyrr Karl Kristjánsson,
formaður skipulagsnefndar. Nefnd
hans hafði fundað hálftíma á undan
hreppsnefnd og meirihluti hennar
lagst gegn tillögunni sem sveitar-
stjórn svo samþykkti.
Um þetta segir Vilberg oddviti að
skipulagsferlið hafi sinn gang. Ekki
verði beðið eftir nýja matinu. Ef það
komi verði það lagt inn sem athuga-
semd við auglýsta tillögu. „Við von-
umst til þess að það styrki mál okkar
og Vegagerðarinnar um að við séum
að fara bestu leiðina,“ segir hann.
Kosta „óháð mat“ á kostum
Meirihluti hreppsnefndar Reykhólahrepps samþykkir að láta endurskoða mat Vegagerðarinnar á
valkostum við lagningu vegar um Gufudalssveit Vegagerðin lítur á þetta sem vantraust á störf sín
Djú
pif
jör
ðu
r
Þor
ska
fjör
ður
Þo
rs
ka
fjö
rð
ur
Skálanes-
fjall
Teigssk
ógur
Hja
llah
áls
Reykjanes
Gufudalssveit
Grónes-
-hyrna
Vestfjarðavegur um Gufudalssveit
Loftmyndir ehf.
Núverandi vegur
Kostur D2
Nýtt vegstæði, kostur Þ-H
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Ástand göngustíga að Brúarfossi í
Biskupstungum er slæmt í vor. Stíg-
arnir þola ekki þá miklu umferð sem
er um svæðið. Til stendur að halda
áfram úrbótum í sumar.
Fá ár eru síðan Brúarfoss varð
þekktur meðal ferðamanna og um-
ferðin þangað margfaldaðist.
Landeigendur hafa unnið að lag-
færingum á svæðinu og notað til þess
styrki úr opinberum sjóðum og eigið
fé. Á síðasta ári var efri hluti stígsins
lagaður en þangað hafði fólk verið að
stelast á bílum, að sögn Rúnars
Gunnarssonar á Efri-Reykjum en
hann er einn landeigenda. Einnig var
unnið neðst á svæðinu en þar var
meðal annars lagður stígur yfir mýri.
Þá var gert bílastæði niður við þjóð-
veg. Það er mikið notað, að sögn Rún-
ars, en hann áætlar að 25-26 komist
þar fyrir ef þeim er lagt vel.
600-700 metra kafli lagaður
„Við fengum viðbótarstyrk núna
eftir áramótin. Það er verið að bíða
eftir að frost fari úr jörðu þannig að
hægt sé að gera eitthvað,“ segir Rún-
ar. Til stendur að laga 600-700 metra
kafla á miðhluta göngustígsins, frá
Hlaupatungulæk að Hlaupatungu-
fossi sem er neðsti fossinn af þremur
við göngustíginn að Brúarfossi. Jafn-
framt er ætlunin að laga stíginn
beggja vegna göngubrúarinnar við
Brúarfoss og afmarka svæði við foss-
inn svo fólk fari sér síður að voða.
Haldið áfram við lagfæringar stíga
Gönguleiðin að Brúarfossi er eitt svað á köflum vegna mikils álags Í sumar
verður unnið að endurbótum á miðhluta stígsins og við göngubrúna við fossinn
Morgunblaðið/Eyrún Magnúsdóttir
Leðja og svað Ástand göngustíga að Brúarfossi í Biskupstungum er slæmt.
Upptök eldsvoð-
ans í Miðhrauni í
Garðabæ fyrr í
mánuðinum voru
í tenglum neðan
við rafmagns-
töflu á bruna-
vegg í húsnæði
Icewear. Þetta
kemur fram í
bráðabirgðanið-
urstöðu rann-
sóknar lögreglu.
Að sögn Skúla Jónssonar aðstoð-
aryfirlögregluþjóns eiga aðrar
stofnanir sem að þessu máli koma
eftir að skila sínum niðurstöðum,
það er Mannvirkjastofnun og
slökkviliðið.
Spurður út í framhald rannsókn-
arinnar, til dæmis varðandi mögu-
lega ábyrgð á eldsvoðanum, segir
Skúli að næsta skref verði að setj-
ast niður með tæknideild lögregl-
unnar vegna þess. freyr@mbl.is
Upptök eldsins voru
í rafmagnstenglum
Slökkvistarf Eld-
urinn var gífurlegur.
Til stendur að loka fæðingardeild
Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja í
Reykjanesbæ í sumar þar sem ekki
hefur tekist að fá fólk til afleysinga-
starfa þar. Þetta segir Katrín Sif
Sigurgeirsdóttir, formaður kjara-
málaráðs Ljósmæðrafélags Íslands.
Fæðingardeildin hefur verið lokuð í
fjórar til fimm vikur á hverju sumri
undanfarin ár, en ætlunin var að
hún yrði opin í sumar. Nú er ljóst að
þær fyrirætlanir ganga ekki upp.
Lokun í Keflavík hefur þá keðju-
verkun að álag eykst á fæðingar-
deild Landspítalans. Nú hafa alls
um tuttugu ljósmæður sem þar
starfa sagt upp störfum og sú
þeirra sem fyrst lagði inn uppsagn-
arbréf er þegar hætt. Næsti fundur
samninganefnda ljósmæðra og rík-
isins er fyrirhugaður á fimmtudag-
inn í næstu viku. Þunglega þykir
horfa um lausn á kjaradeilunni, en
ljósmæður hafa lengi verið samn-
ingslausar. freyr@mbl.is
Fæðingardeildin
verður lokuð í sumar