Morgunblaðið - 21.04.2018, Síða 22
BAKSVIÐ
Ásgeir Ingvarsson
ai@mbl.is
Með réttu hugarfari og breytingum
væri hægt að skapa betra rekstr-
arumhverfi á Íslandi, bæði til að
halda að einhverju leyti í þau öflugu
fyrirtæki sem fæðast í landinu og
mögulega laða til landsins fyrirtæki
utan úr heimi. Þetta segir Páll Jó-
hannesson, lögmaður og einn frum-
mælenda á fundi sem haldinn verður
í Hörpu næstkomandi þriðjudag
undir yfirskriftinni Rekstrarum-
hverfið á eyríkinu Íslandi.
Að viðburðinum standa SA, VÍ,
Íslandsstofa, SKR Lögfræðiþjón-
usta, Grant Thornton og GAMMA.
„Umræðan um þessi mál vill
stundum fara út í öfgar, þar sem
engir aðrir möguleikar virðast í
stöðunni en að gera Ísland annað-
hvort að háskattalandi eða skatta-
paradís, en það eru ýmsir valkostir
sum rúmast þar á milli og sem hægt
væri að ná sátt um til lengri tíma
hvernig sem stjórn landsins er sam-
ansett,“ segir Páll.
Hóflegir skattar og reglur
Að mati Páls þarf Ísland ekki að
finna upp hjólið, og má læra af for-
dæmi smærri þjóða í Evrópu, hvort
sem það eru Norðurlönd, Írland,
Belgía, Holland eða Lúxemborg –
ellegar smærri eyríki eins og Malta
og Kýpur. Öll þessi ríki eru með-
vituð um að skattaumhverfið skiptir
verulegu máli þegar kemur að at-
vinnuuppbyggingu og hafa þessar
þjóðir t.a.m. oft náð góðum árangri
með því að velja skynsamlegar út-
færslur á skattlagningu fyrirtækja.
„Á Írlandi er skattur á hagnað fyr-
irtækja 12,5% sem er með því hag-
stæðasta í Vestur-Evrópu. Jafn-
framt gæta Írar þess vandlega að
taka ekki upp mjög íþyngjandi regl-
ur nema að vandlega athuguðu máli
og er sú stefna þeirra orðin rótgróin.
Til samanburðar er tekjuskattur í
almennu þrepi 20% á Íslandi, og
hægt að taka undir það sjónarmið að
íslensk stjórnvöld leiði ef til vill í lög
of mikið af íþyngjandi reglum að fyr-
irmynd stærri ríkja, án þess að
skoða nægilega vel hvort það falli að
undirliggjandi hagsmunum Ís-
lands.“
Norðurlönd hafa öll lækkað skatt-
þrep á fyrirtæki síðastliðin ár svo
þau eru nú á bilinu 20-24% og fara
enn lækkandi. „Flest ríki eru að
lækka skattþrepin og reyna að gera
rekstrarumhverfið meira aðlað-
andi,“ segir Páll.
Hleypum fjármagninu inn
Ingvi Hrafn Óskarsson, fram-
kvæmdastjóri sérhæfðra fjárfest-
inga hjá GAMMA, mun einnig flytja
erindi á fundinum þar sem hann
fjallar um hvernig greiða mætti fyrir
erlendri fjármögnun í íslensku at-
vinnulífi, og þann ávinning sem því
myndi fylgja.
Hann bendir á að innflæðishöft
hamli kaupum erlendra fjárfesta á
íslenskum skuldabréfum, því bindi-
skylduákvæði skikka þá til að leggja
sem nemur 40% af andvirði fjárfest-
ingarinnar inn á vaxtalítinn eða
vaxtalausan reikning hjá Seðlabank-
anum. „Þetta veldur því að fjárfest-
ing sem þeim þætti að öðrum kosti
spennandi er gerð ófýsileg, og þykir
þetta fyrirkomulag mjög óvenjulegt
í alþjóðlegu samhengi.“
Ingvi Hrafn bætir því við að inn-
flæðishöftin brjóti líklegast reglur
EES um frjálst flæði fjármagns, en
jafnvel ef höftin eru fyllilega lögleg
nú um stundarsakir þá gangi þau
miklu lengra en nauðsynlegt er til
að verja hagkerfið gegn mögulegum
neikvæðum áhrifum vaxtamunar-
viðskipta. „Höftin ganga svo langt
að þau fæla frá fjárfesta sem myndu
vilja koma hingað í þeim tilgangi að
styðja við uppbyggingu íslensks at-
vinnulífs með lánveitingum, og þau
standa í vegi fyrir eðlilegri þróun á
skuldabréfamarkaði,“ segir hann.
„Útkoman er sú að erlend þátttaka
á íslenskum skuldabréfamarkaði er
mjög lítil í alþjóðlegu samengi,
miklu minni en í nágrannaríkjum
okkar og jafnvel minni en hjá mörg-
um nýmarkaðsríkjum.“
Með afnámi bindiskyldunnar seg-
ir Ingvi Hrafn hægt að reikna með
því að fjármögnunarkjör myndu
batna. „Með tilkomu erlendra fjár-
festa á skuldabréfamarkaði myndi
skuldabréfamarkaðurinn dýpka,
vextir væntanlega lækka og fyrir-
tæki hefðu stöðugra og fjölbreytt-
ara aðgengi að fjármagni.“
Aðspurður hvort krónan myndi
styrkjast með afnámi bindiskyldu,
bendir Ingvi Hrafn á að mikilvæg-
ast sé að horfa á langtímaáhrifin og
hagsæld í landinu til lengri tíma.
„Það verður líka að muna að íslensk-
ir lífeyrissjóðir þurfa á komandi ár-
um að fjárfesta mikið erlendis til að
bæta hlutföllin í eignasöfnum sín-
um, og það gæti stuðlað að meira
jafnvægi ef innflæðishöftin eru fjar-
lægð svo að erlent fjármagn geti
leitað inn í landið á meðan innlenda
fjármagnið leitar út,“ segir hann.
„Umfram allt er þó erlend fjárfest-
ing í atvinnulífi og innviðum af hinu
góða fyrir hagkerfið og henni fylgir
verðmæt þekking, dýrmæt tengsl-
anet og mikill virðisauki fyrir hag-
kerfið.“
Gætum bætt aðstæður
Morgunblaðið/Hari
Tækifæri Frá Alþingi. Ekki þarf að finna upp hjólið til að bæta rekstrar-
umhverfið, en hætt við að Íslendingar fari að dragast aftur úr öðrum þjóðum.
Með því að fylgja fordæmi Norðurlanda og Írlands mætti renna betri stoðum
undir atvinnulífið Afnám innflæðishafta hefði margs konar jákvæð áhrif
Páll
Jóhannesson
Ingvi Hrafn
Óskarsson
22 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
21. apríl 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 99.95 100.43 100.19
Sterlingspund 140.67 141.35 141.01
Kanadadalur 78.91 79.37 79.14
Dönsk króna 16.498 16.594 16.546
Norsk króna 12.792 12.868 12.83
Sænsk króna 11.844 11.914 11.879
Svissn. franki 102.58 103.16 102.87
Japanskt jen 0.9279 0.9333 0.9306
SDR 144.98 145.84 145.41
Evra 122.89 123.57 123.23
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 147.5141
Hrávöruverð
Gull 1347.9 ($/únsa)
Ál 2597.5 ($/tonn) LME
Hráolía 73.72 ($/fatið) Brent
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
● Origo hefur keypt hugbúnaðarfyrir-
tækið Benhur. Markmiðið með kaup-
unum á Benhur er að breikka lausna-
framboð Origo á heilbrigðissviði, svo
sem með lausnum og þjónustu til rann-
sóknastofa, segir í tilkynningu.
Benhur hefur selt og þjónustað hug-
búnað fyrir rannsóknarstofur á heil-
brigðissviði frá belgíska fyrirtækinu
MIPS í 14 ár.
Kaupin hafa óveruleg áhrif á afkomu
Origo, segir í tilkynningu.
Tekjur Benhur á árunum 2016 og
2015 voru 18-19 miljónir króna, sam-
kvæmt ársreikningi félagsins.
Origo keypti hugbún-
aðarfyrirtækið Benhur
STUTT
TripAdvisor, sem rekur heims-
þekkta ferðasíðu, hefur keypt ís-
lenska hugbúnaðarfyrirtækið Bók-
un. Hugbúnaður fyrirtækisins er
mest notaða sölu- og birgðakerfið í
íslenskri ferðaþjónustu. Bókun
hefur vaxið umtalsvert erlendis á
síðustu misserum og er nú nýtt af
viðskiptavinum víðsvegar um
heiminn, segir í tilkynningu.
Með kaupunum mun TripAdvi-
sor útvíkka vöruframboð sitt, með
því að þjónusta ferðaþjónustuaðila
með rekstrar- og stjórnunarhug-
búnaði, til viðbótar við að starf-
rækja stærsta dreifingarnet í
heiminum fyrir ferðir og afþrey-
ingu.
„Við erum að breikka okkar
kjarnastarfsemi, úr því að vera
stærsti dreifingaraðilinn í okkar
geira ferðaiðnaðarins, yfir í að
bjóða upp á tæknilausnir sem
leysa dagleg vandamál okkar
birgja,“ segir Dermot Halpin,
framkvæmdastjóri hjá TripAdvi-
sor.
Höfuðstöðvar Bókunar verða
áfram á Íslandi og stefnt er að
umtalsverðri aukningu á starfsemi.
Starfsmenn Bók-
unar eru nú um
20 talsins. Hjalti
Baldursson, for-
stjóri Bókunar,
og Ólafur Gauti
Guðmundsson
tæknistjóri
munu áfram
leiða félagið eftir
kaupin. Þeir áttu
félagið að fullu
fyrir söluna, samkvæmt upplýsing-
um frá Creditinfo.
Árið 2016 voru tekjur félagsins
103 milljónir og jukust um 62% á
milli ára, samkvæmt ársreikningi.
Félagið tapaði fjórum milljónum
það ár borið saman við sex millj-
óna króna hagnað árið 2015. Eigið
fé félagsins var 39 milljónir króna
árið 2016 og eiginfjárhlutfallið var
39%. Samkvæmt ársreikningi 2016
fékk félagið 39,5 milljóna króna
lán frá öðrum hluthafa þess.
Starfsmönnum hefur fjölgað frá
því að vera fjórir að meðaltali árið
2015, tólf árið 2016 og samkvæmt
fréttatilkynningunni eru þeir nú
um 20, eins og áður segir.
TripAdvisor eflir
rekstur Bókunar
Bókun verður áfram á Íslandi eftir
kaupin Frumkvöðlarnir áttu félagið
Hjalti
Baldursson
Í viðtali við Guðmund Kristjánsson í
blaðinu á föstudag, um kaup Brims
hf. á þriðjungshlut í HB Granda hf.,
misritaðist nafn Kristjáns Lofts-
sonar, stærsta hluthafa Hvals hf. og
hann kallaður Jónsson. Beðist er af-
sökunar mistökunum. ai@mbl.is
LEIÐRÉTT
Active Liver stuðlar að eðlilegum efnaskiptum
Útsölustaðir: Öll apótek, heilsuverslanir og heilsuhillur stórmarkaðanna
Heilbrigð melting
Innihald:
• Kólín sem stuðlar að:
- eðlilegum fituefnaskiptum
- viðhaldi eðlilegrar
starfsemi lifrarinnar
• Mjólkurþistil ogætiþistil
sem talin eru stuðla að
eðlilegri starfsemi lifrar og galls
• Túrmerik og svartan pipar