Morgunblaðið - 21.04.2018, Page 36
36 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
✝ Fjóla Ólafs-dóttir fæddist
að Kleifum í Skötu-
firði í Ísafjarðar-
djúpi 10. júní 1922.
Hún lést 10. apríl
2018.
Foreldrar henn-
ar voru hjónin Ólaf-
ur Hálfdánarson, f.
4.8. 1891, d. 1973,
og María
Rögnvaldsdóttir, f.
13.1. 1891, d. 1989. Fjóla átti 14
systkini: Ósk, f. 1916, d. 2010,
Guðrún, f. 1917, d. 2009, tvíbur-
arnir Karítas, f. 1919, d. 1919,
og Einar, f. 1919, d. 2010, tví-
burarnir Kristín, f. 1920, d.
2009, og Rögnvaldur, f. 1920, d.
1964, Lilja tvíburasystir Fjólu, f.
1922, d. 2009, Jónatan, f. 1925,
Hlíð, svo í Bolungarvík og að
lokum til Þorlákshafnar.
Fjóla og Pétur eignuðust
börnin: 1) Friðgerði, f. 1943,
maki Magnús Þ. Snorrason, þau
eiga fimm börn, 14 barnabörn
og sex barnabarnabörn, 2) Jón
Guðna, f. 1947, maki Ester Hall-
grímsdóttir, þau eiga fjögur
börn, 13 barnabörn og níu
barnabarnabörn, 3) Ólaf, f.
1947, maki Kristrún Ástvalds-
dóttir, þau eiga þrjá syni, 4) Sig-
urð, f. 1948, sambýliskona Anna
Manikutdlak, hann á fimm börn
og fjögur barnabörn, 5) Elísa-
betu Maríu, f. 1949, maki Jakob
H.S. Ragnarsson, þau eiga fjög-
ur börn og sjö barnabörn, 6)
Fjólu, f. 1957, maki Arnulf Er-
iksen, þau eiga tvö börn og eitt
barnabarn.
Fjóla verður jarðsungin frá
Þorlákskirkju í dag, 21. apríl
2018, klukkan 14.
Meira: mbl.is/minningar
tvíburarnir Helga
Svana, f. 1926, og
Hálfdán, f. 1926, d.
1999, tvíburarnir
Halldóra, f. 1928, d.
2013, og Haukur, f.
1928, d. 2014, tví-
burarnir Ólafur
Daði, f. 1932, d.
1992, og María, f.
1932, d. 2018, fóst-
urbróðir þeirra var
Ármann Leifsson,
f. 1937, d. 2006.
Fjóla og Pétur Jónsson, f.
1921, d. 1995, sonur Elísabetar
Bjarnadóttur og Jóns Guðna
Jónssonar, gengu í hjónaband á
jóladag 1943 og hófu búskap í
Bolungarvík. Þaðan lá leið
þeirra að Breiðabóli í Skálavík,
svo í Þjóðólfstungu, þá Meiri-
Þá er komið að leiðarlokum hjá
tengdamóður minni henni Fjólu.
Því miður á ég þess ekki kost að
fylgja henni síðasta spölinn þar
sem ég er stödd á sjúkrahúsi vest-
ur á Ísafirði og því langar mig að
senda frá mér nokkrar línur til
þess að minnast hennar.
Þakklæti er mér efst í huga
þegar ég læt hugann reika til fjöl-
margra samverustunda með
tengdamóður minni á yfir fimm
áratugum. Sérstaklega hugsa ég
til ljúfra samverustunda á Upp-
salaeyri en hún Fjóla undi sér
óvíða betur.
Fjóla var börnum mínum,
barnabörnum og barnabarna-
börnum ávallt hlý og góð og met
ég það mikils. Eins fann ég það
alla tíð vel sjálf að henni þótti
vænt um mig. Við vorum nú
kannski ekki alltaf mikið fyrir að
skiptast á blíðuhótum en gagn-
kvæm væntumþykja og vinátta
leyndi sér aldrei og þá sérstak-
lega ekki þegar við vorum bara
tvær saman.
Ég mun alltaf minnast Fjólu í
sumarblíðunni fyrir vestan og
þykir mér því vel við hæfi að
kveðja með orðum Steins Stein-
arr:
Það vex eitt blóm fyrir vestan,
og vornóttin mild og góð
kemur á ljósum klæðum
og kveður því vögguljóð.
(Steinn Steinarr)
Kæra tengdamamma, megir
þú hvíla í friði og hafðu þökk fyrir
allt.
Þín tengdadóttir,
Ester Hallgrímsdóttir.
Ég hélt að Fjóla amma yrði ei-
líf. Hún var bóndakona sem veigr-
aði sér aldrei við neinu. Hún fór í
öll störf með sínum manni. Hún
vaknaði alltaf fyrir allar aldir og
útbjó morgunmat fyrir sitt fólk og
ræsti svo liðið sitt. Hún var á fullu
fram á kvöld og amma fór svo síð-
ust að sofa eftir að hún hafði klár-
að öll húsverkin. Sjálf sagði hún
að fjölskyldan hefði alltaf verið
dugleg að hjálpa til. Það verður að
segjast eins og er að hún og henn-
ar fólk var og er allt harðduglegt
fólk.
Amma og afi áttu sex börn.
Hún sagði að strákarnir hefðu
stundum verið fjörugir og miklir
grallarar en þeir áttu nú ekki
langt að sækja það þar sem Pétur
afi var þekktur grallari og dugn-
aðarforkur. Hún sagði að stelp-
urnar hefðu verið duglegri heima
fyrir og hún kannski stundum
verið tilætlunarsamari við þær.
Þegar bóndaferlinum lauk
fluttu þau niður í bæ og fóru bæði
að vinna hjá Íshúsinu. Fljótlega
eftir það fæddist augasteinninn
hennar ömmu sinnar, sem vildi al-
laf fá fyrst fransbrauð svo smjör
og svo sultu. Svona vildum við
Fjóla amma hafa það. Reyndar
átti Fjóla amma þegar orðið
nokkra augasteina og nokkrir
komu svo á eftir. Ég fór oft til
þeirra ömmu og afa og var alltaf
vel tekið. Ég hjálpaði ömmu oft
við að þurrka rykið af bókunum í
bókahillunni með því að henda
bókunum á gólfið og fékk svo
ömmu eða mömmu til að skila
þeim til baka. Við afi ræddum svo
heimsmálin og hvað væri í frétt-
unum. Mér er minnisstætt þegar
þau fengu fyrsta litsjónvarpið
sem auðvitað kom á fimmtudegi
og biðin eftir að nota það var löng.
Maurapúkaveislurnar á jóladag
eru mínar bestu minningar enda
finnst mér maurapúkarnir hennar
Fjólu ömmu hressasta fólk sem til
er. Þegar ég fór svo að fela mig í
eldhúsinu hjá ömmu þá frétti
maður nú ýmislegt og ekki var
málfarið alltaf vandað þegar það
fauk í þá gömlu. Amma og afi
fengu sér tjaldvagn og höfðu hann
í Hestfirði en þar var ævintýra-
landið okkar. Þau byggðu svo
sumarbústað í Seyðisfirði. Þar
stendur upp úr hafnargerðin með
þeim gömlu og maurapúkunum
þeirra. Volvóinn var þar í stóru
hlutverki. Fyrir ömmu var þetta
paradís á jörð en satt best að
segja þá dó Djúpið fyrir mér með
Pétri afa.
Þau fluttu til Þorlákshafnar
1987. Eftir þetta var ég mest í
símasambandi við þau þangað til
að afi dó en þá fór ég að koma oft-
ar til ömmu. Ég náði mér í konu
sem sá ekki sólina fyrir gömlu
guddu eins og hún kallaði sjálfa
sig svo oft. Við Salbjörg fórum oft
til hennar. Enda einstakleg
skemmtileg kona þarna á ferð.
Við Fjóla amma sáum Gullna hlið-
ið opnast þegar við vorum að
keyra úr Hestfirði og yfir í Seyð-
isfjörð á leiðinni vestur. Þetta var
virkilega fallegur gylltur bogi yfir
fjallinu hinumegin í firðinum.
Þetta var falleg stund hjá okkur
Fjólu ömmu. Ég sagði við hana:
þeir verða að bíða lengur eftir þér,
amma mín, en núna er sú stund
komin og margir vinir hennar sem
fagna henni hinumegin. Ég er
þakklátur fyrir þær stundir sem
við Salbjörg mín, Elísabet María
og Matthildur Bylgja höfum átt
með þér, elsku Fjóla amma.
Hvíldu í friði, elsku Fjóla
amma.
Magnús Már Jakobsson.
„Ertu nokkuð á leið vestur?“
Oft kom þessi spurning frá ömmu
er ég kom til hennar. Elsku
amma, nú spyr ég: „Ertu kannski
komin vestur núna?“ Það er eitt-
hvað sem mér finnst líklegt, að þú
og afi hafið farið þangað saman
þegar þú hittir hann. Það voru
forréttindi að fá að hafa ömmu hjá
okkur svona lengi, það eru ekki
allir svo heppnir.
En nú er amma farin úr þessari
jarðvist, löngu tilbúin í þá ferð.
Eins og hún sagði einhvern tím-
ann við mig og örugglega oftar en
einu sinni „það fá allir að deyja
nema ég“. Ég og fjölskylda mín
fluttum hingað til Þorlákshafnar
árið 1995, þá höfðu amma og afi
búið hér í nokkur ár. Ekki fengum
við að hafa afa eins lengi með okk-
ur en hann lést árið 1995, 74 ára
að aldri. Amma var mjög heilsu-
hraust í gegnum allt sitt líf, og var
enn hálf-hlaupandi um gólf fram á
síðasta dag. Aldrei var „volvoinn“
hennar langt undan, en það kall-
aði hún göngugrindina sína. Ég
fer þetta ekki labbandi, en get far-
ið á volvonum. Þessi setning
hljómaði oft hjá henni, og hélt hún
að það væri ekki svo langt og erf-
itt hjá henni að fara á volvonum úr
Hveragerði og niður í Þorláks-
höfn að heimsækja stelpurnar sín-
ar þar.
Elsku amma, endalaust gæti ég
skrifað um þig og rifjað upp mörg
okkar samtöl og þakkað þér sam-
veru í gegnum tíðina. Elsku
amma, takk fyrir allt, og ég er viss
um að þið afi eruð búin að kíkja
vestur í „fjörðinn okkar fagra“.
Minning þín lifir með okkur öll-
um. Þín
Fjóla Halldóra.
Fyrir 23 árum þá hitti ég þig
fyrst, elsku Fjóla (amma). Maggi
hafði varað mig við því að þú létir
ekki þitt eftir liggja í skoðunum
og þú myndir segja það hreint út
hvort þér líkaði við mig eða ekki.
Ég verð að viðurkenna að ég var
með nettan hnút í maganum yfir
því að hitta þig, en það losnaði
fljótlega um hnútinn og upp frá
þessu urðum við strax góðar vin-
konur. Það var alltaf stutt í hlát-
urinn nálægt þér, elsku Fjóla. Það
sem ég kunni vel að meta hjá þér
er að þú varst laus við alla tilgerð
og komst til dyranna eins og þú
varst klædd. Þú varst dugleg að
tjá skoðanir þínar á öllu. Þú varst
beinskeytt og tilfinningarík og
fann ég alltaf svo mikla ást og
hlýju frá þér.
Margar yndislegar stundir höf-
um við átt saman um allt land, má
þar nefna nokkur jól, rúntana,
ferðirnar vestur og fyrir vestan,
veislur, afmæli, ættarmót o.fl. Ég
gleymi því ekki þegar við vorum
að fara heim frá Noregi þegar
Belli og Irene giftu sig. Þið Elsa
(amma) voruð samferða okkur á
heimleiðinni. Á flugvellinum í
Noregi var Elsa (amma) stoppuð í
hliðinu og ég grét úr hlátri og átti
erfitt með að hætta að hlæja. Þið
voruð svo skemmtilegar og ólíkar,
frábærar báðar tvær. Jólin sem
við vorum í íbúðinni fyrir vestan
þegar við fengum okkur drykk og
spjall fyrir svefninn á kvöldin.
Ég á svo margar dýrmætar
minningar um þig, elsku Fjóla
mín. Þú varst svo dugleg að hrósa
honum Magga okkar fyrir dugnað
og fegurð. Ég er svo þakklát fyrir
að dætur mínar fengu að kynnast
þér og eiga fullt af gæðastundum
með þér. Bið að heilsa í sumar-
landið, ég veit að Pétur tekur á
móti þér opnum örmum.
Takk fyrir allt sem þú varst
mér og fjölskyldu minni.
Öllum aðstandendum votta ég
mína dýpstu samúð.
Salbjörg Júlía
Þorsteinsdóttir.
Elsku Fjóla amma.
Takk fyrir að vera amma okkar.
Þú varst okkur alltaf svo góð og
studdir okkur í einu og öllu. Mikið
hvað við vorum heppin að hafa þig
í okkar lífi, þú tókst alltaf virkan
þátt í öllu því sem við vorum að
gera. Það var oft mikið glens og
gaman í kringum þig, þú varst
alltaf til í að spjalla um alla heima
og geima og komst þú þá helst á
flug ef minnst var á Vestfirðina og
ekki þá síst um Seyðisfjörðinn
þinn sem var himnaríki á jörð. Öll-
um stórum sem smáum þótti gott
að koma til þín í djúpið fagra.
Jólin okkar verða núna öðru-
vísi, þar sem þú hefur oftast verið
hjá okkur um hátíðarnar. Við
munum minnast allra okkar góðu
stunda saman.
Enn og aftur takk fyrir allt,
elsku Fjóla amma, þú varst okkur
mjög dýrmæt.
Þín fjölskylda,
Þorbjörg (Bogga), Valdimar
(Valli), Bjarni Már, Bryndís
Ósk og Magnús (Maggi) Þór.
Jæja, elsku Fjóla amma, þá er
hún bara komin, kveðjustundin.
Nú leggur þú í hann og framund-
an er, að mig grunar, mikil æv-
intýraferð hjá þér og á ég von á því
að það verði nú ansi glatt á hjalla
þegar þú nærð áfangastað, eða að
þá verði nú aldeilis fjör í Beggabæ
eins og hann Pétur afi var vanur
að segja. Nú er hann afi búinn að
bíða þolinmóður eftir þér í tæp 23
ár, blessaður karlinn, á meðan þú
hefur verið hér og litið eftir hinum
sífellt stækkandi hóp fjörugra
maurapúka ykkar hjóna og hefur
það nú verið ærinn starfi því við
erum nú ekki beinlínis hljóðlátasti
eða feimnasti hópurinn og alveg
ótrúlegt stundum hverju við get-
um tekið upp á.
Nú er víst komið að því að við
spjörum okkur án ættmóðurinnar
sem fyrir bara örfáum árum hætti
að prjóna í jólapakkana fyrir öll
börnin í afkomendahópnum.
Húmorinn þinn var alltaf á sínum
stað og eru þær ófáar sögurnar
sem þú sagðir okkur í gegnum tíð-
ina en oft hefur maður legið í hlát-
urskasti yfir frásagnarstílnum
þínum. Ég hugsa oft um kvöldið
góða á Svalbarðseyri á afmælis-
degi þínum 2006, en þá áttum við
„unga fólkið“, sem sagt amma tán-
ingur og við hin góða stund og sát-
um langt fram á nótt við spjall og
hlátrarsköll eftir að mamma og
pabbi og börnin voru farin að sofa.
Mamma útskrifaðist frá Háskól-
anum á Akureyri þennan dag og
það kom nú ekki til greina annað
hjá þér en að koma með norður, þú
ætlaðir nú ekki að fara að missa af
því þegar dóttir þín útskrifaðist úr
háskólanámi. Ég verð að segja að
ég skil ekki enn þann dag í dag að
nokkrum manni hafi orðið svefn-
samt í Eyjafirðinum þá nóttina
fyrir látunum í okkur. Það sem við
veinuðum úr hlátri. Ég gleymi því
líka seint þegar þú, 89 eða 90 ára
gömul, ákvaðst að kíkja eftir því
hvernig útlitið væri fyrir berja-
sprettuna í Seyðisfirðinum og
raukst af stað upp fjallið og
stakkst ekki bara langömmubörn-
in þín af, heldur hundinn minn
líka. Þau höfðu ekki roð við þér, en
þú blést varla úr nös. Þú varst nú
aldrei há í loftinu, en lítil varstu
aldrei, þú varst stór og mikill kar-
akter, dugnaðarforkur, hreinskil-
in, samkvæm sjálfri þér, gast vel
látið heyra í þér ef svo bar undir
og það leyndi sér sko ekki ef þú
varst ósátt við menn eða málefni.
Við fjölskyldan erum afar þakklát
fyrir samfylgdina við þig, elsku
Fjóla amma, og okkur finnst við
vera afar rík að hafa átt þig að. Við
óskum þér góðrar ferðar og kveðj-
um þig með söknuði.
Elísa Rakel Jakobsdóttir
og fjölskylda.
Fjóla Ólafsdóttir
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1800
www.hjarta.is
Frímann & hálfdán
Útfararþjónusta
Frímann
897 2468
Hálfdán
898 5765
Ólöf
898 3075
Sími: 565 9775
www.uth.is
uth@uth.is
Cadillac 2017
Ástkær eiginkona mín, móðir okkar,
tengdamóðir, amma og langamma,
ÁSA SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR
frá Akranesi,
lést mánudagin 16. apríl á dvalaheimilinu
Höfða, Akranesi, í faðmi fjölskyldu sinnar.
Útförin fer fram frá Akraneskirkju miðvikudaginn 25. apríl
klukkan 13. Blóm og kransar afþakkaðir, en þeim sem vilja
minnast hennar er bent á styrktarsjóð dvalarheimilisins Höfða.
Valur Sólberg Gunnarsson
Jóhanna M. Steindórsdóttir
Björn Hilmarsson Guðríður Þórðardóttir
Auðunn Sólberg Valsson Brynja Guðnadóttir
Saga Valsdóttir Sigurður Arnfjörð
Hekla Valsdóttir Guðmundur Björnsson
Valur Ásberg Valsson Friðmey Baldursdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Elskulegur eiginmaður minn, faðir,
tengdafaðir, afi og langafi,
GUÐMUNDUR BJÖRGVINSSON,
Hringbraut 65, Hafnarfirði,
lést á Landspítalanum mánudaginn
16. apríl. Útförin fer fram frá
Hafnarfjarðarkirkju mánudaginn 7. maí klukkan 13.
Fanney Óskarsdóttir
Einar P. Guðmundsson Lára Halldórsdóttir
Óskar H. Guðmundsson Berglind Hallmarsdóttir
Björgvin S. Guðmundsson Þóra Hallgrímsdóttir
Sigrún B. Guðmundsdóttir
Elín Þ. Guðmundsdóttir
Guðmundur F. Guðmundss. Kolbrún Magnúsdóttir
Klara G. Guðmundsdóttir Miles Boarder
Sigurður P. Sigmundsson Valgerður Heimisdóttir
barnabörn og barnabarnabörn
Ástkær eiginkona mín, móðir, systir,
tengdamóðir og amma,
ÓLÖF MAGNÚSDÓTTIR,
húkrunarheimilinu Eir,
áður Bogatúni 6, Hellu,
andaðist miðvikudaginn 11. apríl.
Útför hennar fer fram frá Grafarvogskirkju miðvikudaginn
25. apríl klukkan 13.
Fyrir hönd aðstandenda,
Hilmar E. Guðjónsson
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir, afi og langafi,
JENNI RAGNAR ÓLASON,
Böðvarsgötu 8,
Borgarnesi,
verður jarðsunginn frá Borgarneskirkju,
þriðjudaginn 24. apríl klukkan 14.
Þeim sem vildu minnast hans er bent á að láta
Björgunarsveitina Brák, Borgarnesi, njóta þess.
Aðalbjörg Stella Ólafsdóttir
Áslaug Þorvaldsdóttir
Rósa Jennadóttir Guðmundur F. Guðmundss.
Birna Guðrún Jennadóttir
barnabörn og barnabarnabörn