Morgunblaðið - 21.04.2018, Page 46
Tónlistarhátíðin Heima fór fram í ýmsum heimahúsum í Hafnarfirði nú á
miðvikudaginn, síðasta vetrardag. Pistilritari rölti um götu bæjarins og þáði
góðgjörðir úr höndum tónlistargyðjunnar.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Tónlistarhátíðin Heima eðaHEIMA fór nú fram ífimmta sinn í Hafnarfirð-
inum. Hátíðin er haldin að fær-
eyskri fyrirmynd og gengur út á að
tónleikar eru haldnir í heima-
húsum. Þrettán listamenn og
hljómsveitir af alls kyns toga komu
fram á jafn mörgum heimilum
tvisvar um kvöldið og eins og nærri
má geta var nándin mikil. Gest-
gjafar buðu gjarnan upp á léttar
veitingar og þar sem maður gæddi
sér á saltstöng í stofunni stóð Króli
í 20 sentimetra fjarlægð frá mér á
meðan húsbóndi og -freyja sátu
uppi í sófa með barnaskaranum og
kunnugir sem ókunnugir röðuðu
sér víðs vegar um heimilið; ýmist
skrafandi, hlustandi eða hlæjandi.
Fríkirkjan í Hafnarfirði og Bæjar-
bíó luku einnig upp dyrum sínum.
Rás 2 var þá á staðnum og útvarp-
aði hluta dagskrárinnar.
Nú er heima!
Morgunblaðið/Kristinn Magnússon
Húsfyllir Félagarnir í Dr. Spock léku fyrir troðfullu húsi hjá Hebu og Ægi.
Ég renndi í hlaðið hjá þeim
Gunnþóru og Michael á Vestur-
götunni um áttaleytið þar sem
Between Mountains, sigurvegarar
Músíktilrauna frá því í fyrra, léku í
stofunni. Stemningin var u.þ.b. eins
og ég lýsti hér að framan, með ein-
dæmum hugguleg og hlýleg og ég
46 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 21. APRÍL 2018
Söngsveitin Ægisif mun á tón-
leikum í Langholtskirkju í dag,
laugardag, kl. 17, flytja kórverkið
Bjöllurnar eftir Sergej Rach-
maninov, auk valdra kafla úr Nátt-
söngvum tónskáldsins.
Kórsinfóníuna Bjöllurnar samdi
Rachmaninov árið 1913 við texta
Edgars Allan Poe The Bells. Upp-
haflega var verkið samið fyrir stóra
sinfóníuhljómsveit, auk kórs og ein-
söngvara, en verður nú flutt í nýrri
undirleiksumritun fyrir píanó.
Verkið er í fjórum köflum sem hver
um sig túlkar ákveðið æviskeið
mannsins, og er kórinn ýmist í for-
grunni eða sem undirspil við ein-
söngvarana. Er þetta frumflutn-
ingur á Íslandi.
Náttsöngvar voru fyrst fluttir í
mars 1915 en ekki endurfluttir fyrr
en hálfri öld síðar.
Ægisif var stofnuð 2016 af
Hreiðari Inga Þorsteinssyni, kór-
stjóra og tónskáldi. Einsöngvarar
eru Lilja Dögg Gunnarsdóttir, Eyj-
ólfur Eyjólfsson, Hrafnhildur Árna-
dóttir og Fjölnir Ólafsson. Píanó-
leikari er Anna Guðný Guðmunds-
dóttir.
Ægisif Söngsveitin flytur rómuð kórverk eftir Sergej Rachmaninov.
Flytja Bjöllurnar
og úr Náttsöngvum
Hrafnhildur Arnarsdóttir myndlist-
arkona, sem þekkt er undir lista-
mannsnafninu Shoplifter, segir að
þegar henni hafi verið boðið að setja
upp sýningu í samtali við verk Ás-
mundar Sveinssonar í Ásmundar-
safni, hafi hún ákveðið að vinna ekki
með hár, eins og hún er þekktust
fyrir – vera ekki fyrirsjáanleg. Af-
raksturinn má sjá á sýningunni Inn-
rás II sem verður opnuð í safninu í
dag, laugardag, klukkan 16.
„Mér fannst ekki nóg með að setja
mín verk hér inn með hans, ég fann
ekki snertiflöt þar,“ segir Hrafnhild-
ur. „Ég kaus því að lýsa verkin með
litum og fá mína litadýrð hingað inn
– baða verk Ásmundar dýrðarljóma,
en það er einmitt heiti verksins.
Þetta eru partíljós sem mynda
geislabauga á verkunum,“ segir hún
og leiðir blaðamann í fyrsta salinn
þar sem skær kastljós á lágum stöpl-
um vissulega breyta upplifuninni á
verkum Ásmundar.
„Ég vildi nýta verk Ásmundar
beint í minni innrás hér í safnið,“
bætir hún við og bendir upp á pall
þar sem eru minni verk og stúdíur
eftir Ásmund. „Inn á milli þeirra set
ég verk sem ég kalla Boðflennur,
fígúrur sem ég raða upp þannig að
þær dást að skúlptúrum hans. Þetta
er fundið efni sem kann að koma
fólki á óvart; þær eru eins og boð-
flennur í partíi sem hafa klætt sig
upp til að falla í hópinn.“
Við göngum svo í innsta salinn þar
sem sjá má hvernig Hrafnhildur hef-
ur í öðrum endanum hjúpað brons-
mynd Ásmundar Helreiðina, í verki
sem hún kallar Hjúpur, með krump-
uðu plastefni sem minnir á hraun og
er með áprentaðri mynd af hári.
Í hinum endanum eru stál- og
víraverk Ásmundar og þar hefur
Hrafnhildur bætt allrahanda málm-
hlutum inn í verkin, hlutum sem hún
hefur fundið á nytjamörkuðum, til
að mynda kertastjökum, sem renna
saman við verk meistarans á athygl-
isverðan og oft launfyndinn hátt, og
kallar hún þau verk sín Hermikrák-
ur. „Þetta verk Ásmundar hér Þjóð-
lag og ég hef bætt við það kerta-
stjaka og hljómplötu,“ segir hún og
bendir á svarta plötuna. „Þetta eru
allrahanda æfingar í komposisjón,
gert með virðingu og af alúð.“ Og
nafn plötunnar er vel við hæfi,
„Myndræn áhrif“. „Ég valdi þessa
plötu því heitið passar svo vel við
það sem ég er að gera.“ efi@mbl.is
Morgunblaðið/Einar Falur
Dýrðarljómi „Nú fellur hér dýrðarljómi á verk Ásmundar,“ segir Hrafnhildur Arnardóttir um innrás sína í Ás-
mundarsafn. Annars staðar fellir hún hluti af nytjamörkuðuðum saman við skúlptúra Ásmundar Sveinssonar.
Með virðingu og af alúð
Í Innrás II í Ásmundarsafni breytir Hrafnhildur Arnar-
dóttir upplifun gesta á verkum Ásmundar Sveinssonar
Söfn • Setur • Sýningar
LISTASAFN ÍSLANDS
Barnasáttmálinn rokkar, já hann er okkar! Sýning á Barnamenningarhátíð 2018
Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár
grunnsýning Þjóðminjasafnsins
David Barreiro – Langa blokkin í Efra Breiðholti í Myndasal
Karl Jeppesen – Fornar verstöðvar á Vegg
Prýðileg reiðtygi í Bogasal
Safnbúð fjölbreytt úrval gjafavöru
Kaffitár ljúfar veitingar í fallegu umhverfi
Sunnudagur 22. apríl kl. 14 Leiðsögn Markúsar Þórs Andréssonar um Sjónarhorn
Sjónarhorn - Ferðalag um íslenskan myndheim fyrr og nú
grunnsýning Safnahússins
Jónsbók, kirkjulist, skjöl, samtímalist, alþýðulist, plötuumslög,
ljósmyndir, landakort, vaxmynd og margt fleira
Krossfestingarmynd á skinnblaði frá 14. öld
Spegill samfélagsins 1770 - Almúgi og embættismenn skrifa Danakonungi
Fræðslurými og skemmtilegt fræðsluefni fyrir alla fjölskylduna
Safnbúð Bækur og gjafavörur í úrvali
Julia&Julia ljúfar veitingar í fallegu umhverfi.
Safnahúsið er hluti af Þjóðminjasafni Íslands
Hverfisgata 15, 101 Reykjavík, s. 530 2210
www.safnahusid.is - https://www.facebook.com/safnahusid/
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17
SAFNAHÚSIÐ VIÐ HVERFISGÖTU
ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS
Suðurgata 41, 101 Reykjavík, s. 530 2200,
www.thodminjasafn.is • www.facebook.com/thjodminjasafn
Opið þriðjudaga til sunnudaga frá 10-17.
Barnamenningarhátíð í Listasafni Íslands 21. apríl kl. 13 og aftur kl. 14:30.
Sögustund inni í mögnuðu andrúmslofti sýningarinnar Korriró og Dillidó –
þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar.
ELINA BROTHERUS – LEIKREGLUR – 16.2. - 24.6.2018
KORRIRÓ OG DILLIDÓ – Þjóðsagnamyndir Ásgríms Jónssonar – 2.2. - 29.4.2018
FJÁRSJÓÐUR ÞJÓÐAR – Valin verk úr safneign – 7.4.2017 - 31.12.2019
SAFNBÚÐ – Listrænar gjafavörur
Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, www.listasafn.is.
Listasafn Íslands er opið alla daga kl. 11-17 nema mánudaga.
LISTASAFN SIGURJÓNS ÓLAFSSONAR
Sunnudagsleiðsögn 22. apríl kl. 15 í umsjá nemenda
um sýninguna Við mið / At present
VIÐ MIÐ / AT PRESENT – Samstarfsverkefni Listasafns Íslands,
Listaháskóla Íslands og listfræði í Háskóla Íslands. – 13.04. – 22.02. 2018.
TVEIR SAMHERJAR – ASGER JORN OG SIGURJÓN ÓLAFSSON
21.10.2017 - 13.5.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17. Laugarnestanga 70, sími 553 2906, www.lso.is
Kaffistofa – heimabakað meðlæti
SAFN ÁSGRÍMS JÓNSSONAR
ÓGNVEKJANDI NÁTTÚRA – 2.10.2016 - 29.04.2018
Opið laugardaga og sunnudaga kl. 14-17
Bergstaðastræti 74, sími 561 9616, www.listasafn.is