Morgunblaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 30
30 MENNING MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2018 Fyrir utan umfjöllunarefnið:hlutskipti miðaldrakvenna í atvinnulífi ogsamfélagi nútímans, og umbreytandi möguleika sam- takamáttar kvenna til að virkja hæfi- leika og blómstra á sínum for- sendum, er fýsileiki þess að leikgera Svartalogn langt í frá augljós. Þessi nýjasta bók Kristínar Marju Bald- ursdóttur líður dálítið fyrir sviplitlar aðalpersónur og skort á verulega áhugaverðum og dramatískum „þröskuldum“ á vegi Flóru, Petru og pólsku söngdísanna, sem eru þrjár í bókinni en tvær á sviðinu, Ewa og Jo- anna. Tónskáldið Petra er að koðna niður í Vestfjarðaþorpinu en sigrar loks heiminn með hjálp hinna aust- rænu radda og viðskiptavits brott- reknu bókhaldskonunnar að sunnan. Jafnvel ástin lætur á sér kræla en mun ekki fá að afvegaleiða konurnar í lífshamingjuleit sinni, eins og hún hefur áður gert. Það verður að játast að ekki þótti mér Melkorku Teklu Ólafsdóttur og Hilmi Snæ Guðnasyni auðnast að berja í þessa bresti að neinu marki. Til að gera söguna að nothæfu elds- neyti í leiksýningu hefði þurft tals- vert sjálfstæðari afstöðu, meira framlag frá leikskáldinu, minni virð- ingu fyrir texta skáldkonunnar. Stóri vandinn liggur í persónu Flóru. Þó að við fáum langsamlega mest að vita um hennar hagi, fortíð og þá klemmu sem lífið er búið að koma henni í verður persónan sjálf aldrei fyllilega lifandi, sérstök eða áhugaverð fyrir lesanda/áhorfanda. Til þess ber hún of þungar byrðar í erindisrekstri verksins varðandi meðferð samfélagsins og vinnumark- aðarins á síðmiðaldra konum með til- heyrandi tjóni á sjálfsmynd og -trausti. En það er ekki hægt að leika það, ekki í svona hefðbundinni og leikhúsraunsærri úrvinnslu. Það þarf persónuleika. Það þarf alvöru árekstra við annað fólk og kringum- stæðurnar. Það fýkur vissulega svo- lítið í Flóru stundum, þegar Petra dettur í þunglyndi eða listræn frekju- köst, en allt slíkt lagast áreynslulítið. Vissulega vinnur hún hógværa hetju- dáð með því að bjarga Joönnu úr klóm ofbeldishrottans Krumma og halda honum fjarri, en jafnvel það gengur stóráfallalaust og skilur ekki eftir sjáanleg merki á persónunni og þroska hennar. Það er varla nokkuð út á skothelda frammistöðu Elvu Óskar Ólafsdóttur að setja, annað en ósk um að hún fái feitari og safaríkari bita fljótlega. Petra er jafnvel enn óskýrari per- sóna, en hana sjáum við með augum Flóru í fyrstupersónufrásögn bókar- innar. Geðsveiflur hennar og mót- sagnir gera Petru auðvitað skraut- lega og andlegt ástand hennar og/eða dyntir móta að mörgu leyti fram- vindu verksins, ásamt aðstæðum Jo- önnu og viðbrögðum hennar við þeim. En persónan sjálf nær ekki sjálfstæðu lífi, hvorki í bók né á sviði. Edda Arnljótsdóttir náði Petru fyrir vikið ekki í fókus, en skapaði vissu- lega nokkur sönn augnablik, ekki síst þar sem kómískir möguleikar voru í boði. Það sama má segja um Elvu Ósk, sérstaklega var vandræðagang- urinn í samdrætti Flóru og heims- borgarans Marteins (Baldur Trausti Hreinsson) gleðigjafi. Það gerir minna til þó að smærri persónur skorti dýpt og fyrir vikið var þar fleira sem gladdi. Ragnheið- ur Steindórsdóttir var hæfilega aðsópsmikil sem Guðrún gamla, frænka og skjól Petru, þó að eldri og skrítnari „kerling“ hefði trúlega hjálpað sýningunni og breikkað gall- eríið. Pálmi Gestsson náði sýndist mér öllu sem í boði var út úr hrúður- karlinum innanmjúka, Jóhannesi verkstjóra. Sama má segja um Hall- grím Óskarsson, ekki við hann að sakast þó að Krummi sé klisjulegur ofbeldismaður og vesalmenni þegar á reynir. Hann fór síðan einna verst út úr einum af stærri annmörkum sýn- ingarinnar: leikmyndinni. Eins og það hefur nú hljómað vel á einhverju stigi að staðsetja þetta Vestfjarðadrama í jarðgangamunna, og þó að útfærsla Gretars Reynis- sonar þjóni í raun flæði sýningar- innar ágætlega og gangverk hennar sé hnökralaust og flott hjá Hilmi Snæ hefur hún þann stóra galla að skapa skelfilega hljóðvist fyrir leikhópinn. Allt of oft drukknaði textinn, eða barst í það minnsta ekki skiljanlegur út í sal. Verst fór út úr þessu eitt lyk- ilatriði verksins, lokauppgjör Krumma og Joönnu. Hann á öskrinu, hún að berjast við hvolfþak Grétars með grátstaf í kverkum. Og pólskan hreim. Langoftast þegar unnið er með er- lendan hreim í íslensku leikhúsi er það í grínleikritum og oft er bæði út- færsla og tilgangur einhvers staðar á rasismarófinu. Svo er ekki hér. Raunar finnst mér hin vandaða og heiðarlega vinna Snæfríðar Ingvars- dóttur og Estherar Talíu Casey með pólska hreiminn, og pólska textann, vera eitt það besta við sýninguna, að svo miklu leyti sem ég er dómbær á hversu vel þeim tekst til í samstarfi við Ewu Marcinek, pólskuráðgjafa sinn. Esther hefur ekki úr stóru drama að moða í hlutverki sínu en Jo- anna hefur talsverða nærveru og átökin í kringum hana eru viðburða- miðja verksins. Snæfríður gerði þetta ágætlega. Ónefnd eru Birgitta Birgisdóttir og Snorri Engilbertsson, sem fara með hlutverk nokkurs konar innri radda Flóru, holdgerðar sem fyrr- verandi samstarfsmenn hennar. Raddirnar eru að mestu hæðnislegar og sjálfsásakandi, sem á vel við, og hugmyndin er fín, sem og úrvinnsla Birgittu og Snorra. En textinn nær ekki nægilegu flugi og dugar ekki til að gefa þessum þætti vídd og líf. Einu nær sviðsetningin að miðla sem ekki tekst í bókinni, reyndar mjög skiljanlega. Það er tónlistin sem Petra semur, Ewa og Joanna syngja og allir sem heyra heillast af. Það er ekki lítið sem lagt er á herðar Markétu Irglová og Sturlu Mio Þórissyni, tónlistarhöfundum verksins. Góðu heilli er útkoman ákaflega sjarmerandi lög við seið- mögnuð og dramatísk ljóð íslenskra skáldkvenna, Guðfinnu frá Hömrum, Ólöfu frá Hlöðum og Ólínu Andrés- dóttur. Lögin eru í einhvers konar þjóðlagaskotnum söngvaskálda- poppstíl, sem hægt er að spyrja sig hvort rími við það sem okkur er sagt um tónskáldið sérlundaða, eða eigi erindi í kirkjur Suður-Þýskalands, þar sem Petra og systur hennar í list- inni slá í gegn. En góð tónlist afvopn- ar jafnvel hryssingslega gagnrýn- endur og þetta eru falleg lög, vel flutt í sýningunni og gætu auðveldlega átt framhaldslíf. Eins og persónur verksins sem hafa sótt í þau styrk og von til að ganga til móts við lífið. Það sést best í lokamynd verksins, sem er snjöll og fer langt með að réttlæta leikmyndina. Það hefur ekki verið neinn hægðarleikur fyrir Halldór Örn Óskarsson að lýsa þessi göng hans Gretars. Enda stundum erfitt að ná sambandi við svipbrigði leikaranna. Effektalýsing í gangaveggjum og lofti er hins vegar stundum áhrifarík í samspili sínu við hljóðmynd Elvars Geirs Sævarssonar og Arons Þórs Arnarssonar. Búningar Maríu Th. Ólafsdóttur eru frekar rökréttir og tilþrifalitlir, nema þá rauði kjóll Flóru sem gegnir nokkuð mikilvægu tákn- og sálfræðilegu hlutverki í frelsun hennar. Óheppilegt að þessi glæsifatnaður skuli virka meira heft- andi en frelsandi, kona að pakka sér inn í þröngar kynæsandi umbúðir og upp á óstöðugu háu hælana. Alger- lega gegn sögn verksins. Leikgerð Svartalogns fylgir mót- aðri leikgerðarhefð Þjóðleikhússins, sem það fær oft skammir fyrir að leita svona oft í. Hér endurgeldur efniviðurinn ekki traustið og virð- inguna sem honum er sýndur, nær ekki að blómstra eða hafa þau sterku áhrif sem augljós vilji stendur til. Við enda ganganna Ljósmynd/Hörður Sveinsson Heiðarleiki „Raunar finnst mér hin vandaða og heiðarlega vinna Snæfríð- ar Ingvarsdóttur og Est- herar Talíu Casey með pólska hreiminn, og pólska textann, vera eitt það besta við sýninguna.“ Þjóðleikhúsið Svartalogn bbbnn Eftir Kristínu Marju Baldursdóttur í leikgerð Melkorku Teklu Ólafsdóttur. Leikstjórn: Hilmir Snær Guðnason. Leik- mynd: Gretar Reynisson. Búningar: María Th. Ólafsdóttir. Tónlist: Markéta Irglová og Sturla Mio Þórisson. Lýsing: Halldór Örn Óskarsson. Hljóðmynd: Elvar Geir Sævarsson og Aron Þór Arnarsson. Ráðgjöf varðandi pólsku: Ewa Marcinek. Leikarar: Elva Ósk Ólafs- dóttir, Edda Arnljótsdóttir, Ragnheiður Steindórsdóttir, Snæfríður Ingvars- dóttir, Esther Talía Casey, Hallgrímur Ólafsson, Pálmi Gestsson, Baldur Trausti Hreinsson, Birgitta Birgisdóttir og Snorri Engilbertsson. Frumsýning á Stóra sviði Þjóðleikhússins 27. apríl 2018. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST PÖNTUN AUGLÝSINGA: Til mánudagins 7. maí SÉRBLAÐ Skoðuð verða húsgögn og innréttingar, skrautmunir og fylgihlutir fyrir heimilið, litir og lýsing ásamt mörgu öðru. NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Heimili & hönnun fylgir Morgunblaðinu föstudaginn 11. maí

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.