Morgunblaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 13
„Það var ekki mikið af verk-
efnum eftir hrun og Steffan bauðst
vinna í Kaupmannahöfn. Við
ákváðum að fara og Steffan myndi
einbeita sér að vinnunni í Danmörku
en ég sæi um Einrúm á meðan við
værum að koma okkur fyrir og skapa
svigrúm fyrir börnin okkar til þess að
aðlagast dönsku samfélagi,“ segir
Kristín, en Steffan á strák sem er 25
ára, Kristín stelpu 24 ára og saman
eiga þau tvö börn 9 og 18 ára.
„Áður en við fórum út datt
danska verkefnið upp fyrir en við
ákváðum að halda okkar striki og
flytja til Danmerkur. Ég hélt að það
væri lítið mál að flytja þangað af því
að ég hafði búið þar á námsárunum
en þegar við komum til baka hafði
margt breyst. Ég datt ekki inn í
sama samfélag og ég hafði búið í 11
árum fyrr. Þetta var athyglisverð
reynsla,“ segir Kristín og bætir við
að þau hjónin hafi fengið vinnu hvort
á sinni arkitektastofunni og sem báð-
ar voru stórar.
„Það tók tíma að læra á kerfið
og mynda tengsl. Það er margt
þyngra í vöfum í Danmörku og ferlar
og reglur í kringum arkitektúrinn
sem við eigum ekki að venjast á Ís-
landi. Það var upplifun mín en það
spilar eflaust inn í að ég þekki betur
til heima en í Danmörku. Mér finnst
allt aðgengilegra á Íslandi. Danir eru
með mjög flott starfsumhverfi og
mikil virðing er borin fyrir arkitektúr
þar,“ segir Kristín og bætir við að
fyrirtæki nýti sér nær undantekn-
ingalaust þjónustu innanhúss-
arkitekta en það fari minna fyrir því
hjá einstaklingum.
„Almenningur á Íslandi notar
þjónustu innanhússarkitekta meira
en danskur almenningur, sem kaupir
að hámarki 4 klst. vinnu við hönnun
eldhúss. Danir versla fyrir heimilið í
IKEA eða Kvikk.“
Kristín segir hlæjandi að
prjónaskapur skipi stóran sess í lífi
hennar.
„Þegar ég og maðurinn minn
förum að skoða arkitektúr sér hann
rými. Það geri ég líka en ég sé meira
af mynstrum sem mörg hver mætti
hæglega nota í prjónaða flík.“
Hlýlegt Steinn Steffansson klæðist hér röndóttri peysu eftir uppskrift
Bjargar Pjétursdóttur úr Einrúmsbandi sem Kristín móðir hans hannaði.
Einrúm.
Leikur Vaka Árnadóttir í feluleik í
fallegum ullar- og silkivettlingum.
Gleði Saga Steffansdóttir klæðist
glaðlegri peysu úr Fyrstu bók.
DAGLEGT LÍF 13
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2018
Hraðþrif
á meðan þú bíður
Hraðþrif opin virka daga frá 8-18,
um helgar frá 10-17. Engar tímapantanir.
Bæjarlind 2, 201 Kópavogur | SÍMI 577-4700 | bilalindin.is
Verð frá 4.300,-
(fólksbíll)
Bíllinn er þrifinn létt
að innan á u.þ.b.
10 mínútum.
Þriðju og síðustu tónleikar Megasar
og Kristins H. Árnasonar verða í
Mengi við Óðinsgötu 2, í Reykjavík í
kvöld á sjálfum verkalýðsdeginum, 1.
maí.
Á tónleikunum munu félagarnir
flytja óútgefið efni. Miðar á tón-
leikana fást á midi.is. Þar kemur fram
að sölusýning á grafíkverkum Megas-
ar í búðarrými Mengis verði meðan á
tónleikunum stendur. Þar kemur
einnig fram að Megas hafi sýnt verk
sín í Alþjóðlegu grafíkmiðstöðinni í
Chelsea-hverfinu í New York vorið
2017. Dagskrá tónleikanna inniheldur
flutning á safni af lögum sem eiga
það eitt sameiginlegt að vera frjáls
og ekki þrælar í nauðungarvinnu
netsins.
Sagt er að efnið sé sundurleitt og
enginn samnefnari mögulegur og
lögin séu ýmist ný eða nokkuð göm-
ul, sum hafi heyrst á leik- eða listsýn-
ingum en aldrei náð inn á þær slóðir
sem netklærnar ná til.
Takmarkað sætaframboð er í boði
á tónleikanna sem hefjast kl. 21. Nú
er lag að njóta meistara Megasar.
Einnig sölusýning á grafíkverkum Megasar
Morgunblaðið/Einar Falur Ingólfsson
Frjálsir Megas og Kristinn H. Árnason flytja tónlist sína á tónleikum í Mengi.
Megas og Kristinn flytja
sundurlaust efni í Mengi í kvöld
Einfalt og fljótlegt ennisband sem
hægt er að prjóna bæði úr Ein-
rúms E-bandi og L-bandi.
Prjónað er úr einföldu E-bandi
en tvöföldu L-bandi.
Ennisbandið er prjónað fram og
til baka. Nálægt miðju er gat sem
lengri enda ennisbandsins er
stungið í gegnum rétt eins og gert
er við kleinur. Ennisbandinu er lok-
að að aftan með einni smellu svo
ekki þurfi að rugla hárgreiðslunni.
SKAMMSTAFANIR:
L: lykkja
sl.: slétt
br.: brugðið
óprj.: óprjónuð L
sl. sm.: slétt saman
prj.: prjóna
umf.: umferð
BAND:
Allar einrúm E og L tegundir.
Stærðir: 1 (2)
E+2 band: 50 g (50 g)
E+4 band: 50 g (50 g)
L+2 band: 50 g (50 g)
L+4 band: 50 g (100 g)
PRJÓNAR:
E-band: Prjónar nr. 3,5
L-band: Prjónar nr. 7
PRJÓNFESTA, garðaprjón:
E-band:
10 cm = 21 L
10 cm = 32 umf.
L-band:
10 cm = 12 L
10 cm = 20 umf.
MÁL:
Stærðir: 1 (2)
Lengd ennisbands, ósnúið: 50 (58)
cm
Breidd ennisbands: 9 (10) cm
AÐFERÐ:
Ennisbandið er prjónað fram og til
hvorri hlið við gat), prj. sl. þar til
1 L er eftir á prjóni, 1 óprj. Snúið
við.
Prj. 9 (11) L ef prjónað er úr E-
bandi en 5 (7) L ef prjónað er úr
L-bandi, aukið út um 1 L, prj. sl.
þar til 1 L er eftir á prj., 1 óprj.
Snúið við.
Prj. sem fyrr (allar L sl., síðasta L
á prjóni óprj.).
Prj. 20 (24) garða (40 (48) umf.)
ef prjónað er úr E-bandi en 12
(16) garða ( 24 (32) umf.) ef
prjónað er úr L-bandi.
ÚRTAKA:
*1 sl, 2 sl. sm., prj. sl. þar til 1 L
er eftir á prj., 1 óprj. Snúið við.
Endurtakið fyrri umf. Prj. 2 umf.
án úrtöku*.
Endurtakið *-* þar til 2 L eru eftir
á prjóni. Fellið af.
Gangið frá endum og handþvoið
ennisbandið úr volgu vatni, vindið
ef til vill í þvottavél á stuttu kerfi
og leggið til þerris. Þræðið lengri
enda ennisbandsins inn í gatið.
Saumið smellu á enda enn-
isbandsins og lokið því.
baka úr einföldu E-bandi eða tvö-
földu L-bandi.
ENNISBAND:
Fitjið upp 2 L úr einföldu E-bandi á
prjóna nr. 3,5 eða tvöföldu L-bandi
á prjóna nr. 7.
1. umf.: 1 sl., 1 óprj.
2. umf.: 1 sl., aukið út um 1 L, 1
óprj.
3. umf.: 2 sl., 1 óprj.
4. umf.: 1 sl., aukið út um 1 L, 1 sl.,
1 óprj. (4 L).
5. umf.: 3 sl., 1 óprj. (4 L).
6. umf.: 3 sl., 1 óprj. (4 L).
7. umf.: 2 sl., aukið út um 1 L, 1 sl.,
1 óprj. (5 L).
8. umf.: 2 sl., aukið út um 1 L, 2
sl., 1 óprj. (6 L á prjóninum).
9. umf.: 5 sl., 1 óprj.
10. umf.: 5 sl., 1 óprj.
Endurtakið umf. 7 til 10 með því
að auka út 1 L í tveimur umf. og
prj. 2 umf. án útaukninga þar til
20 (24) L eru á prjóni ef prjónað
er úr E-bandi en 12 (16) L eru á
prjóni ef prjónað er úr L-bandi. Prj.
24 (28) garða (48 (56) umf.) ef
prjónað er úr E-bandi en 14 (18)
garða (24 (42) umf.) ef prj. er úr
L-bandi.
GAT Í MIÐJU:
Prj. 9 (11) L ef prjónað er úr E-
bandi en 5 (7) L ef prjónað er úr
L-bandi, 1 óprj. Snúið við. End-
urtakið síðustu umf. þar til prj.
hafa verið 3 (4) garðar (6 (8)
umf.) ef prjónað er úr E-bandi en 2
(3) garðar (4 (6) umf.) ef prjónað
er úr L-bandi. Slítið bandið og prj.
hina hliðina við gatið á sama hátt
og fyrri (byrjið umf. við gatið).
SAMEINA HLIÐAR:
1. umf.: Prj. 9 (11) L ef prjónað er
úr E-bandi en 5 (7) L ef prjónað er
úr L-bandi, prj. 2 sl. sm. (1 L af
Kleina – ennisband úr Einrúmsbandi
PRJÓNAUPPSKRIFT ÚR BÓKINNI RENDUR
Saga
Steffansdóttir