Morgunblaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 12

Morgunblaðið - 01.05.2018, Blaðsíða 12
12 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 1. MAÍ 2018 Ljósmyndir/Saga Sig. Áhugamálið Kristín Brynja Gunnarsdóttir, með bók sína, Fyrsta bók. Í bak- grunni sést í prjóna og bandið Einrúm sem hannað er af Kristínu. Guðrún Erlingsdóttir ge@mbl.is Frá níu ára aldri fór ég labb-andi í Efstasundið á hverj-um laugardegi til ömmuminnar Katrínar Gunn- arsdóttur handavinnukennara. Ég fékk saltfisk og hamsatólg í hádegis- mat og vöfflur með rjóma með kaffinu,“ segir Kristín Brynja Gunn- arsdóttir, arkitekt og prjónahönn- uður. „Amma kenndi mér að prjóna og ég sat hjá henni, hlustaði á gufuna og spjallaði eða spjallaði ekki við ömmu. Ég prjónaði afmælis- og jólagjafir eftir því sem ég gat miðað við aldur,“ segir Kristín. Hún segir að prjóna- skapur heilli hana á margan hátt. „Það er sérstaklega skemmti- legt að geta notað frístundir til þess að framleiða afurð sem hægt er að nota. Það felst svo mikil ánægja í því að velja sér efni, horfa á og finna áferð bandsins. Velja sér svo munst- ur eða ákveða hvernig flíkin á að vera,“ segir Kristín, sem bætir við að því fylgi sérstök ánægja að leysa þá þraut sem prjónaskapur geti verið. „Maðurinn minn Steffan, sem er arkitekt eins og ég, skilur ekki hvernig hægt er að lesa út úr prjóna- uppskriftum. En það er svolítið eins og að lesa úr morssendingu,“ segir Kristín og heldur áfram að lýsa vel- líðaninni sem felst í því að prjóna. „Það er sérstök tilfinning að um- breyta þráðum í fast form. Ég hef gaman af því að prjóna eftir upp- skrift en prjóna líka án þeirra. Þegar ég byrja að prjóna eftir uppskriftum horfi ég stundum á blaðið og skil ekk- ert hvernig ég eigi að klóra mig fram úr þessu. Það getur verið töluverð áskorun að byrja að fitja upp á fyrsta prjóninn en vellíðanin er mikil þegar verkefnið er leyst og fullbúin flíkin liggur á borðinu,“ segir Kristín, sem hefur á síðustu mánuðum gefið út tvær prjónauppskriftabækur. „Fyrsta bókin kom út í nóvem- ber með uppskriftum eftir mig og Höllu Benediktsdóttur, bókin heitir einfaldlega Fyrsta bók. Önnur bókin heitir Rendur, hún kom út seinni- partinn í apríl. Allar uppskriftir í þeirri bók eru eftir Björgu Pjéturs- dóttur og prjónað er úr Einrúmi, bandi sem ég þróaði,“ segir Kristín. Í bandinu Einrúmi blandar Kristín saman íslenski ull og taí- lenskum silkiþræði. Hún segir að ís- lenska ullin sé fullkomin eins og hún er en hana hafi langaði til að lyfta henni á enn hærra plan og blanda í hana taílenskum silkiþræði. „Ég vildi gera það á þann hátt að það sæist að öðru efni hefði verið blandað við ullina. Það tel ég að mér hafi tekist með Einrúmsbandinu,“ segir Kristín. Nafnið segir Kristín koma frá fyrirtækinu Einrúmi, sem hún rekur ásamt eiginmanni sínum. Á síðu fyrirtækisins einrum.com er hægt að finna bæði arkitektúr og prjóna- hönnun. „Nafnið Einrúm kemur til af því að mér fannst það geta rúmað eitt- hvað meira en arkitektúr. Einrúm getur fyrir einhverjum hljómað ein- manalegt en það er það alls ekki. Einrúm þýðir rými milli þess sem skapar og þess sem skapað er,“ segir Kristín og bendir á að sköpun geti verið bæði stór og smá og í einrúm- inu náist góð tenging við sköpunina sem einn eða fleiri skapa. Kristín segir arkitektúr, prjóna- hönnun og bókaútgáfu fara vel sam- an eins og fyrirtækið Einrúm sanni. En Einrúm gaf út bækur Kristínar, Fyrstu bók og Rendur. „Við gefum út einblöðunga með einni prjónauppskrift. Þeir eru gefn- ir út á íslensku, ensku og dönsku. Framundan er markaðssetning í Þýskalandi. Við fengum styrk frá Tækniþróunarsjóði Íslands til þess að markaðssetja Einrúm hönnun og band í Þýskalandi og erum nú að yfir- færa heimasíðuna okkar yfir á ís- lensku,“ segir Kristín. Kristín og Steffan stofnuðu teiknistofuna Einrúm þegar þau bjuggu á Íslandi, En Steffan kynntist hún á námsárunum í Danmörku. „Það var kannski ekki drauma- starfið að gerast arkitekt en þegar maður er ungur hugsar maður ekki alltaf með hjartanu og tilviljun ein réði því að ég ákvað að læra arkitekt- úr. Ég fór lengri leiðina að því að láta drauminn um prjónaskap rætast,“ segir Kristín, sem lærði fyrst innan- húshönnun í Danmarks Design skole og síðan arkitektúr í Konunglegu dönsku akademíunni. Kristín og Steffan bjuggu í 11 ár á Íslandi en fluttu svo með fjölskylduna til Dan- merkur árið 2011 vegna afleiðinga hrunsins. Gaman að umbreyta þráðum í fast form Kristín Brynja Gunnarsdóttir, arkitekt og prjónahönnuður, lærði að prjóna hjá ömmu sinni 9 ára. Hún segir ánægju fylgja því að leysa þá þraut sem prjónaskap- ur geti verið. Að lesa út úr prjónauppskriftum sé líkt og að lesa úr morssendingu. Litskrúðug Sigurbjörg Þóra Hjaltadóttir klæðist fallegri peysu úr Einrúms- bandi þar sem taílenskur silkiþráðurinn kemur vel fram í íslensku ullinni. Rjúkandi heitt kaffi og kósístemming verður í boði hjá Krafti, félagi ungs fólks sem greinst hefur með krabba- mein og aðstandendur þeirra, á kaffi- húsakvöldi á morgun miðvikudag 2. maí kl. 20. Þetta kemur fram á heimasíðu Krafts. Kaffihúsakvöld Krafts verður haldið þar sem félagið er til húsa hjá Ráðgjafaþjónustu Krabbameinsfélagsins að Skógarhlíð 8 í Reykjavík. Markmiðið með kaffi- húsakvöldunum er að gefa ungu fólki sem greinst hefur með krabbamein og aðstandendum þeirra tækifæri til þess að hittast og spjalla við aðra sem eru í sömu sporum. Reynslan hefur sýnt að það skiptir máli að tala saman þegar tekist er á við veikindi. Stuðningsfélagið Kraftur sem stofnað var 1. október 1999 er fyrir fólk sem greinst hefur með krabba- mein og er á aldrinum 18 til 40 ára. Aðstandendur eru einnig í félaginu. Kraftur býður ungu fólki stuðn- ingsnet, sálfræðiþjónustu, endur- hæfingu og veitir styrk til lyfjakaupa, rekur neyðarsjóð og sér um útgáfu fræðsluefnis. Kaffihúsakvöld Krafts á morgun Rjúkandi kaffi og kósístemning hjá Krafti í Skógarhlíðinni Morgunblaðið/Golli Samvera Á Kaffihúsakvöldum Krafts gefst tækifæri fyrir ungt fólk með krabbamein og aðstandendur að hittast og bera saman bækur sínar. • Gamli lykillinn virkar áfram • Vatns- og vindvarinn Verð: 39.990 kr. LYKILLINN ER Í SÍMANUM Lockitron Bolt gerir snjallsímann þinn að öruggum lykli til að opna fyrir fjölskyldu, vinum eða öðrum gestum þegar þér hentar og hvaðan sem er. Þægilegt og öruggt. Þú stjórnar lásnum og fylgist með umgengni í símanum. Hægt er til dæmis að opna fyrir börnunum eða iðnaðarmönnum tímabundið án þess að fara heim eða lána lykil. Lockitron Bolt snjalllásinn fæst í Vélum og verkfærum. Sölumenn okkar taka vel á móti þér.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.