Morgunblaðið - 16.05.2018, Síða 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
RAFVÖRUR
Dalvegi 16c | 201 Kópavogur | Sími 568 6411 | rafvorur@rafvorur.is
Þvottavél tekur 17 kg og
þurrkari tekur 10 kg
Amerísk
gæða
heimilistæki
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Brúnandarsteggur (Anas rubripes)
hefur sést í Vestmannaeyjum und-
anfarið. Andartegundin er norður-
amerísk og hefur sést hér áður,
þótt nokkuð sé liðið síðan hún sást
síðast, að sögn Yanns Kolbeins-
sonar, líffræðings hjá Náttúrustofu
Norðausturlands. Dæmi eru um að
brúnönd ílengist hér og dvelji árum
saman. Hér hafa sést brúnandar-
blendingar sem líklega voru af-
kvæmi brúnandarsteggs og stokk-
andarkollu. Yann sagði að það væri
þekkt að þessar tegundir blönd-
uðust enda væru þær náskyldar. Ef
blendingurinn er kolla taka menn
líklega ekki eftir því að um blend-
ing sé að ræða. „Til ársins 2011
höfðu sést 39 brúnendur hér á
landi og sú fertugasta sást 2014.
Síðan hefur ekki sést brúnönd hér
fyrr en nú,“ sagði Yann.
Sigurgeir Jónasson, ljósmyndari
í Vestmannaeyjum, sem fylgdist
með brúnöndinni í fyrradag og í
gær og tók meðfylgjandi myndir af
fuglinum. Hann sagði að öndin
hefði haldið sig á tjörn sem Árni
Johnsen útbjó við heimili sitt að
Höfðabóli sunnarlega á Heimaey.
Einnig komu æðarfuglar og settust
á tjörnina. Brúnöndin hélt sig á
sama stað í gær.
„Brúnöndin var ákaflega stygg
og varla leið að ná mynd af henni
nema innan úr bílnum. Annars er
hún farin eins og skot,“ sagði
Sigurgeir.
Náskyld stokköndinni
Brúnönd er stór buslönd og er á
stærð við stokkönd. Ekki er mikill
útlitsmunur á steggjum og kollum
brúnandar. Brúnandarsteggnum
svipar svolítið til stokkandarkollu
en bæði hann og stokkandarkollan
eru með bláa spegla ofan á vængj-
unum. Hausinn á brúnöndinni er
ljósari en búkurinn og goggurinn
gulleitur.
Heimkynni brúnandar eru í aust-
anverðri Norður-Ameríku. Varp-
stöðvar þeirra eru í Kanada, m.a. í
Ontario, Quebec, Labrador, á Ný-
fundnalandi og Nova Scotia. Suður-
mörk varpstöðvanna eru í nyrstu
ríkjum Bandaríkjanna austan-
verðum. Brúnendurnar ferðast suð-
ur á bóginn, allt suður til Flórída á
vetrum. Þær halda sig gjarnan í
stórum hópum með stokköndum.
Flækingsfuglar brúnanda hafa sést
í Evrópu. Þannig fannst brúnönd
merkt í New Brunswick í Kanada í
Frakklandi. Einnig hafa þær sést á
vesturströnd N-Ameríku og í Asíu.
Brúnöndum fækkaði talsvert
mikið eftir miðja 20. öldina vestan-
hafs. Hertar veiðireglur drógu úr
fækkuninni. Einnig hefur þrengt að
búsvæðum brúnanda og sá vandi er
enn til staðar.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Brúnönd Steggurinn hefur haldið sig á tjörn við Höfðaból sunnarlega á Heimaey undanfarna daga.
Brúnönd frá N-Ameríku
í heimsókn á Heimaey
Styggur brúnandarsteggur hefur haldið sig við Höfðaból
Morgunblaðið/Sigurgeir
Norðuramerísk Blár spegillinn á vinstri vængnum sést vel á myndinni.
Alls voru 1.452 starfsmenn starfandi
á vegum starfsmannaleiga á innlend-
um vinnumarkaði í seinasta mánuði
og er það í fyrsta sinn sem starfs-
mönnum starfsmannaleiga fækkar
milli mánaða á fyrri hluta árs frá því
uppgangur starfsmannaleiga hófst í
lok 2015. Fækkaði þeim um tæplega
150 milli mánaða en rekja má fækk-
unina einkum til þess að ein starfs-
mannaleiga með um 300 starfsmenn
hætti starfsemi í mars sl.
Þetta kemur fram á nýju yfirliti
Vinnumálastofnunar um stöðuna á
vinnumarkaði í apríl.
Skráð atvinnuleysi í apríl var 2,3%
og minnkaði um 0,1 prósentustig frá
mars en hins vegar fjölgaði atvinnu-
lausum lítið eitt frá sama mánuði í
fyrra eða um 368 einstaklinga en þá
mældist atvinnuleysið 2,1%.
Alls voru 2.217 karlar að jafnaði
atvinnulausir í apríl og 1.974 konur
og var atvinnuleysi 2,2% meðal
karla, og 2,4% meðal kvenna. At-
vinnuleysi var mest á Suðurnesjum í
apríl eða 3,0% og 2,4% á höfuðborg-
arsvæðinu og Norðurlandi eystra.
Alls voru 1.359 erlendir ríkisborg-
arar án atvinnu í lok apríl eða um
30% allra atvinnulausra. Þessi fjöldi
samsvarar um 4,5% atvinnuleysi
meðal erlendra ríkisborgara.
Vaxandi umsvif í sumar
Sérfræðingar Vinnumálastofnun-
ar gera ráð fyrir að atvinnuleysi fari
að minnka í maí þegar vaxandi árs-
tíðaumsvif verða í ýmsum atvinnu-
greinum, byggingariðnaði, gistinga-
og veitingastarfsemi, o.fl. Gera megi
ráð fyrir að skráð atvinnuleysi
minnki í maí og verði 2,0-2,2%.
Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá
Vinnumálastofnun, segir að í ljós
hafi komið á seinni hluta seinasta árs
að farið væri að hægja á víða þannig
að þessar tölur sem sýna aðeins
meira atvinnuleysi í apríl en í fyrra
séu sennilega í takt við þá þróun.
Spurður um fækkunina hjá starfs-
mannaleigum segir hann að allt
bendi til þess að ekki muni draga úr
umsvifunum yfir sumarmánuðina og
jafnvel bæta aftur í þau því bygging-
arframkvæmdir eru enn á fullri ferð
og mikil þörf á vinnuafli. omfr@mbl.is
Færri á vegum starfsmannaleiga
Í fyrsta sinn í þrjú ár fækkar starfsmönnum starfsmannaleiga milli mánaða á fyrri hluta ársins
2,3% skráð atvinnuleysi mældist í apríl sem er lítilsháttar aukning frá sama mánuði í fyrra
Fjöldi starfsmanna hjá starfsmannaleigum
Janúar til apríl 2016, 2017 og 2018
1.500
1.000
500
0
janúar febrúar mars apríl
Heimild: Vinnumálastofnun
2016
2017
2018
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Bændur á Suðurlandi eru að bera
áburð á tún þessa dagana. Margir
eru hálfum mánuði seinna á ferðinni
en vanalega. Eftir rigningar undan-
farna daga eru mýratún blaut og erf-
itt að komast um á dráttarvélum.
Vorið hefur verið frekar kalt sunn-
anlands og vestan og gras því lítið
sprottið í uppsveitum. Gæðunum er
þó misskipt, eins og venjulega, því
gróður er lengra kominn syðst á
landinu.
Erfitt að komast um túnin
„Við erum að bera á, byrjuðum í
gær og höldum áfram í dag. Það er
aðeins seinna en venjulega vegna
klaka í jörðinni og kulda. Það er þó
aðeins farið að grænka,“ segir Est-
her Guðjónsdóttir, bóndi í Sólheim-
um í Hrunamannahreppi.
Þar sem enn er klaki undir og
mýratún blaut eiga bændur erfitt
með að komast um. „Vélarnar fara
stundum á bólakaf og þá er bara náð
í næstu vél og dregið upp,“ segir
Esther.
Bændur í nágrenni hennar sem
rækta korn eru þessa dagana að sá.
„Gróður er ekkert afleitur. Hann
er kannski seinni til núna en verið
hefur mörg undanfarin ár en ekki
verri en algengt var fyrir árið 1990,“
segir Hermann Árnason, frjótæknir
hjá Búnaðarsambandi Suðurlands,
sem er mikið á ferðinni um austur-
hluta Rangárvallasýslu og alla Vest-
ur-Skaftafellssýslu.
„Það er margt að gerast núna.
Flestir eru á fullu að bera á. Það er
aðeins seinna en verið hefur undan-
farin ár, jafnvel tveimur vikum á eft-
ir,“ segir Hermann.
Kal í illa kýfðum túnum
Hermann hefur undanfarna daga
farið mikið um Skaftárhrepp. Hann
segir að þar sjáist kal í túnum og
nefnir sérstaklega Skaftártungu í
því sambandi. Segir raunar að einnig
sjáist kalblettir á túnum sem ekki
eru vel kýfð í Landeyjum, það er að
segja ekki með nógu góðum halla.
Margir kornbændur náðu að sá
fyrir mánaðamót en aðrir eru að því
nú. Einhverjir hafi lent í bleytunni
og eru þess vegna seinna á ferðinni.
Hálfum mánuði á
eftir með vorverk
Kal sést í túnum á Suðurlandi
Morgunblaðið/Helgi Bjarnason
Plæging Vorverkin standa sem
hæst hjá bændum landsins.