Morgunblaðið - 16.05.2018, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
Mest seldu ofnar
á Norðurlöndum
áreiðanlegur hitagjafi
10 ára ábyrgð
Draghálsi 14 - 16 · Sími 4 12 12 00 · www.isleifur.is
Álfheimum 74, 104 Rvk, sími 568 5170
20% afsláttur
af LANCOME vörum
Árangur sem þú bæði sérð og finnur.
• Samstundis: Húðin er nærðari og áferðin fallegri.
• Eftir 2 vikur: Húðin er sterkari og þéttari eins og henni hafi
verið lyft, húðin er full orku og ferskari.
• Eftir 8 vikur: Hrukkur eru minna sjáanlegar, húðin er fylltari.
RÉNERGIEMULTI-GLOW
krem sem endurvekur heilbrigðan húðlit
KYNNING
miðvikudag til föstudags
Glæsilegur kaupauki
ef þú kaupir tvær eða fleiri
Lancome vörur
NÝTT
BAKSVIÐ
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Ólafur Heiðar Helgason, hagfræð-
ingur hjá Íbúðalánasjóði, segir gögn
sjóðsins benda til að hægt hafi á
fjölgun íbúða í skammtímaleigu hér
á landi í gegnum Airbnb. Slíkar
íbúðir eru jafnan leigðar til ferða-
manna. Flestar eru á höfuðborgar-
svæðinu.
„Gistieiningum á Airbnb fjölgaði
mjög hratt árin 2015, 2016 og 2017.
Miðað við gögn sem við höfum að-
gang að hefur fjöldi þeirra staðnað
síðustu mánuði. Þótt við greinum
ekki fækkun er ljóst að þeim hefur
fjölgað mun minna í vetur en und-
anfarin ár,“ segir Ólafur Heiðar en
bætir við að þeim geti fjölgað meira
þegar líður að háannatíma.
„Væntingar fólks til ferðaþjón-
ustu hafa áhrif. Við sjáum merki um
að það sé að hægja talsvert á ferða-
þjónustu. Væntingar um hægari
vöxt í ferðaþjónustu geta einar og
sér valdið minni kaupþrýstingi á
Airbnb-íbúðum. Við eigum eftir að
sjá hvernig sumarið verður. Það er
háannatíminn. Ef það dregur úr
uppkaupum á íbúðum fyrir Airbnb
mun það leiða til minni hækkana á
íbúðamarkaði en ella.“
Skortur þrýstir upp leiguverði
Samkvæmt vísitölu leiguverðs hjá
Þjóðskrá er húsaleigan á uppleið.
„Leiguverð hefur hækkað mikið
að undanförnu. Það hefur t.d. hækk-
að meira en laun. Það er auðvitað
áhyggjuefni í ljósi þess að margir
leigjendur eru nú þegar að greiða
mjög stóran hluta af ráðstöfunar-
tekjum sínum í leigu. Það skortir
leiguhúsnæði á viðráðanlegu verði,“
segir Ólafur Heiðar og rifjar upp að
greiningaraðilar geri ráð fyrir 6-9%
hækkun á nafnverði fasteigna að
meðaltali á Íslandi í ár. „Almennt
séð er samband á milli íbúðaverðs
og leiguverðs. Við sáum íbúðaverð
hækka talsvert hraðar en leiguverð í
fyrra. Því þarf ekki að koma á óvart
að leiguverð hækki nú tímabundið
hraðar en íbúðaverð,“ segir Ólafur.
Ari Skúlason, sérfræðingur hjá
Landsbankanum, segir leiguverð á
höfuðborgarsvæðinu ekki hafa hald-
ið í við fasteignaverð síðan 2016.
„Verðþróun á fjölbýli er töluvert
undir væntingum. Síðustu sex mán-
uði hefur nafnverðið hækkað um
rúmlega 1%. Það koma nýjar tölur
um þróunina seinna í vikunni. Ef
staðan verður svipuð erum við að
horfa til hækkunar fasteignaverðs
undir 5 prósentum milli ára. Ef sú
þróun heldur áfram held ég að leigu-
verðið muni nálgast þróun kaup-
verðsins. Ástæðan fyrir því að leigu-
verðið hefur ekki haldið í við
fasteignaverðið er væntanlega hinar
miklu hækkanir á kaupverði. Hrað-
inn í hækkunum er svo mikill,“ segir
Ari og bendir á að það sé alltaf leitni
upp á við í leiguverði. Margir leigu-
samningar séu verðtryggðir og
margir samningar með ákvæði um
að leiguverð hækki með tímanum.
Fari að nálgast kaupverðið
„Ef það dregur úr hækkunum á
kaupverði er líklegra að leiguverðið
nálgist það,“ segir Ari sem telur að-
spurður ekki útlit fyrir að framboð
nýrra íbúða muni slá á verðhækk-
anir. T.d. sé hátt hlutfall nýrra íbúða
í Reykjavík dýrar íbúðir miðsvæðis.
„Söluverð nýrra íbúða á fermetra
á höfuðborgarsvæðinu er 12%
hærra en í gömlum íbúðum það sem
af er árinu. Eftir því sem meira selst
af nýjum íbúðum ætti það að hækka
verðið. Þau áhrif koma þó ekki fram
fyrr en með þinglýsingu eignanna.“
Ólafur Heiðar
Helgason
Leiguverðið heldur
áfram að hækka
Frekari hækkunum spáð Stöðnun í fjölda hótelíbúða
Vísitala íbúða- og leiguverðs
Höfuðborgarsvæðið janúar 2011 til mars 2018
200
180
160
140
120
100
2011 2012 2013 2014 2015 2016 2017 ’18
Janúar 2011 = 100
Mars 2018
195,0
184,9
Mars 2014
128,1
132,6
Mars 2012
110,3
112,3
Mars 2016
149,7
152,4
Vísitala íbúðaverðs
Vísitala leiguverðs
Heimild: Þjóðskrá Íslands
Ari
Skúlason
Ólafur D. Torfason, stjórnar-
formaður Íslandshótela, segir
vísbendingar um að nokkur
fjöldi Airbnb-íbúða hafi verið
tekinn úr skammtímaleigu í
miðborginni að undanförnu.
Eigendurnir hafi annaðhvort
ákveðið að selja íbúðirnar eða
setja þær í langtímaleigu.
Íslandshótel hafi keypt slíkar
einingar og sett í langtímaleigu,
m.a. fyrir starfsmenn.
Ólafur rekur þessa þróun til
þess að samkeppni um gistingu
fari harðnandi í miðborginni.
Lítilsháttar fækkun sé í komum
ferðamanna milli ára samhliða
því sem framboð á gistirýmum
hafi aukist. Þá þýði sterk króna
að færri krónur fást fyrir þjón-
ustu sem er seld í erlendri mynt
í gegnum bókunarsíður.
Þessir þættir og hækkandi
rekstrarkostnaður, einkum
launakostnaður, valdi því að
leigusalar þurfi margar hótel-
íbúðir til að reksturinn beri sig.
Ólafur segir launataxta fyrir
almennan starfsmann á hóteli
hér á landi hærri miðað við
tekjur af hverju herbergi en al-
mennt gerist í öðrum löndum.
Vísbendingar
um fækkun
HÓTELÍBÚÐIR
Alþjóðamálastofnun Háskóla Ís-
lands efnir til opins fundar á
morgun þar sem kynntar verða
fyrstu niðurstöður verkefnisins
Landamæri og alþjóðavæðing, sem
snýr að rannsóknum á landamær-
um og landamærastefnum 15 ríkja
víðsvegar um heiminn. Rætt verð-
ur hvernig landamærastefnur eru
í síauknum mæli að færast frá
áherslu á föst svæðisbundin landa-
mæri í átt að áherslu á virkni
landamæranna í nýju samskipta-
umhverfi landa.
Gestur fundarins er Emmanuel
Brunet-Jailly sem er prófessor í
opinberri stjórnsýslu við Viktoríu-
háskóla í Bresku-Kólumbíu í Kan-
ada. Hann er einnig Jean Monnet-
prófessor og forstöðumaður Evr-
ópufræðaseturs háskólans.
Fundurinn fer fram á morgun,
frá kl. 12 til 13 í Odda 201 í Há-
skóla Íslands, og er opinn öllum.
Fjalla um landamæri og alþjóðavæðingu