Morgunblaðið - 16.05.2018, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 16. MAÍ 2018
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
BAKSVIÐ
Stefán E. Stefánsson
ses@mbl.is
Stór hluti tekna vefmiðilsins Kjarnans er fólginn í
styrktarfé sem aflað er meðal almennings. Upplýs-
ingar sem Morgunblaðið hefur undir höndum, og
hafa að geyma rekstrarniðurstöðu Kjarnans á
fyrstu fimm mánuðum síðasta árs, sýna að styrk-
irnir eru um 46% af heildartekjum fyrirtækisins.
Þannig námu styrkir þessir ríflega 7 milljónum frá
janúar og út maí í fyrra en á sama tímabili námu
aðrar tekjur 8,3 milljónum króna. Í apríl í fyrra
reyndust styrkirnir reyndar hærri en aðrar tekjur
fyrirtækisins. Þá voru þeir 1,6 milljónir króna, sam-
anborið við tæplega 1,4 milljónir í aðrar tekjur.
Sömu tölur varpa ljósi á linnluausan taprekstur
fyrirtækisins. Þannig tapaði Kjarnainn 1,4 milljón-
um í janúar 2017, 1,1 milljón í febrúar, 1,8 milljónum
í mars, 1,9 milljónum í apríl og 1,5 milljónum í maí.
Tugmilljóna tap
Ársreikningur Kjarnans fyrir árið 2017 hefur
ekki verið birtur. Í upplýsingum sem Morgunblaðið
hefur aflað og hafa að geyma rekstraráætlun fyrir-
tækisins fyrir síðastliðið ár, áætlun sem gerð var
um mitt ár í fyrra, kemur í ljós að gert var ráð fyrir
áframhaldandi tapi af rekstrinum út árið. Þannig
gerðu stjórnendur þess ráð fyrir að heildartapið
yrði rétt tæpar 14 milljónir króna. Heildartekjur
myndu nema 45,7 milljónum en rekstrarkostnaður-
inn myndi nema 59,7 milljónum.
Hafi áætlanir Kjarnans gengið eftir og tapið
reynst um 14 milljónir hefur það dregist nokkuð
saman frá fyrra ári þegar það reyndist 18,6 millj-
ónir króna, áður en tekið er tillit til 3,7 milljóna
króna yfirfæranlegs taps. Vegna þess varð bókfært
tap 2016 hins vegar 14,9 milljónir. Svipaða sögu má
segja af rekstrarárinu 2015. Þá var tapið 20,8 millj-
ónir króna fyrir skatta en 4,2 milljóna króna yfir-
færanlegt tap dró úr endanlegu tapi það ár.
Keyptu útgáfuna af Heimi
Þann 1. júlí í fyrra tók Kjarninn við rekstri viku-
ritsins Vísbendingar sem áður var í eigu útgáfu-
félagsins Heims, sem m.a. gaf út Frjálsa verslun og
var í eigu Bendikts Jóhannessonar, fyrrverandi for-
manns Viðreisnar. Ekki hefur áður verið greint frá
kaupverðinu en það reyndist 5 milljónir króna. Var
greitt fyrir það í þremur greiðslum, tveimur á árinu
2017 og einni árið 2018. Gera áætlanir Kjarnans ráð
fyrir að tekjur af vikuritinu verði um 830 þúsund
krónur á mánuði en að kostnaður vegna prentunar
og dreifingar nemi um 350 þúsund krónum. Hafi
þessar áætlanir forsvarsmanna fyrirtækisins geng-
ið eftir má gera ráð fyrir að þeim takist að greiða
upp kaupverðið á tæpum 11 mánuðum.
Eigendurnir tólf
Stærsti eigandi Kjarnans er félagið HG80 ehf.
sem er í eigu Hjálmars Gíslasonar, sem oft er
kenndur við Datamarket. Félagið heldur á 18,28%
hlut. Næststærsti eigandinn er Miðeind ehf. sem er
í eigu Vilhjálms Þorsteinssonar. Birna Anna
Björnsdóttir rithöfundur á 12,2%. Þá á Magnús
Halldórsson, ritstjóri Vísbendingar, 10,36%, og
Þórður Snær Júlíusson, ritstjóri Kjarnans, 10,36%.
Minni eignarhlutir eru svo á höndum Hjalta Harð-
arsonar, framkvæmdastjóra Kjarnans, Birgis Þórs
Harðarsonar, Jónasar Reynis Gunnarssonar,
Kjarnans sjálfs, Fanneyjar Birnu Jónsdóttur að-
stoðarritstjóra, Fagaskógar ehf. í eigu Stefáns
Hrafnkelssonar og Milo ehf. í eigu Gumma Haf-
steinssonar og Eddu Hafsteinsdóttur.
Styrkir stór hluti teknanna
Kjarninn tapaði 7,7 milljónum króna fyrstu fimm mánuði ársins 2017 46%
tekna fyrirtækisins eru svokallaðir styrkir Keypti Vísbendingu á 5 milljónir
Þungur rekstur
» Kjarninn var stofnaður árið 2013.
» Miðillinn hefur ekki skilað hagnaði að
undanskildu stofnárinu. Þá nam hagnaður-
inn 261 þúsund krónum.
» Áætlanir fyrir árið 2017 gerðu ráð fyrir að
auglýsingatekjur miðilsins næmu 1,4 millj-
ónum á mánuði að meðaltali það ár.
Breytingar Kjarninn hóf göngu sína sem vikurit
á netinu. Síðan þá hefur útgáfan breyst mikið.
MSCI hefur verið fumkvöðull í
þróun á vísitölum fyrir hlutabréfa-
markaði og hefur gefið út vörur
tengdar vísitölum hlutabréfamark-
aða allt frá árinu 1969.
„Við erum búnir að vinna í því að
komast með einhverju móti inn í
þeirra vísitölur, alveg frá því að
gjaldeyrishöftunum var aflétt hér í
mars á síðasta ári,“ segir Páll
Harðarson, forstjóri Kauphallar-
innar.
Hann segir þetta jákvætt fyrsta
skref. „Þetta er merki um áhuga
og getur stuðlað að frekari áhuga
seinna meir. Þarna er búin til ís-
lensk MSCI-vísitala, ellefu félaga,
og auk þess erum við á athugunar-
lista hjá FTSE og vonumst til þess
að komast inn í vísitölumengi
þeirra í haust ef allt fer eins og
stefnir í,“ segir Páll.
Hann segir Kauphöllina gjarnan
vilja komast í fleiri vísitölur hjá
MSCI. „Við erum búnir að dýfa
tánni í vatnið og viljum síðan
byggja ofan á þetta. Ég tel að þetta
hafi verið gríðalega mikilvægt
fyrsta skref, en í framhaldinu vilj-
um við komast í fleiri vístölur og
fara upp um flokka.“
steingrimur@mbl.is
Alþjóðlega vísitölufyrirtækið
MSCI, sem áður var hluti af fjár-
festingabankanum Morgan Stanl-
ey, hefur tilkynnt áform sín um að
taka inn ellefu félög úr íslensku
kauphöllinni inn í vísitölur sínar.
Breytingin mun eiga sér stað 31.
maí næstkomandi.
Vísitalan „MSCI Iceland Inves-
table Market Index“ mun til að
byrja með ná yfir eitt meðalstórt
fyrirtæki, samkvæmt skilgreiningu
MSCI, Marel, og tíu minni fyrirtæki
en þau eru Eik, Eimskip, HB
Grandi, Hagar, Icelandair Group,
N1, Reginn, Reitir, Síminn og VÍS.
Íslensk félög í alþjóðlega vísitölu
Ellefu kauphallarfélög verða tekin inn í MSCI-vísitölur
Morgunblaðið/Þórður
MSCI Forstjóri Kauphallar telur
þetta gríðarlega mikilvægt skref.
● Fiskafli íslenskra skipa í apríl síðast-
liðnum var 30% meiri en í apríl í fyrra
og nam hann 147 þúsund tonnum.
Aukning í botnfiskafla var 23% frá apríl
í fyrra og nam botnfiskafli rúmum 49
þúsund tonnum í síðasta mánuði. Þar
af nam þorskaflinn rúmum 23 þúsund
tonnum sem er 30% meiri afli en í apríl
2017. Þetta kemur fram í nýjum tölum á
vef Hagstofu Íslands.
Af uppsjávartegundum veiddist nær
eingöngu kolmunni, en af honum
veiddust tæp 94 þúsund tonn, sem er
33% meira en í apríl í fyrra. Skel- og
krabbadýraafli nam 1.607 tonnum sam-
anborið við 824 tonn í apríl 2017.
Heildarafli á undanförnum tólf mán-
uðum, frá maí 2017 til apríl 2018, var
rúmlega 1.265 þúsund tonn. Það er
17% aukning miðað við tólf mánuði þar
á undan.
Mun meiri afli í apríl í ár
16. maí 2018
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 102.61 103.09 102.85
Sterlingspund 138.94 139.62 139.28
Kanadadalur 80.07 80.53 80.3
Dönsk króna 16.41 16.506 16.458
Norsk króna 12.768 12.844 12.806
Sænsk króna 11.857 11.927 11.892
Svissn. franki 102.51 103.09 102.8
Japanskt jen 0.933 0.9384 0.9357
SDR 146.45 147.33 146.89
Evra 122.26 122.94 122.6
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 148.6711
Hrávöruverð
Gull 1320.7 ($/únsa)
Ál 2285.0 ($/tonn) LME
Hráolía 77.05 ($/fatið) Brent
● Samtök atvinnulífsins gera alvar-
legar athugsemdir við drög að frum-
varpi um húsnæðismál sem nú liggur
fyrir Alþingi. Telja þau engar haldbærar
ástæður fyrir því að Íbúðalánasjóður fái
aukið hlutverk á sviði greininga og
stefnumörkunar. Fjölmargir aðilar gefi
reglulega út greiningar á húsnæðis-
markaði og sinni því hlutverki vel.
Samtökin segja það draga úr trú-
verðugleika Íbúðalánasjóðs sé honum
ætlað að vera ráðherra til ráðgjafar um
mótun húsnæðisstefnu og stunda
lánaviðskipti í samkeppni við banka og
lífeyrissjóði. Víðtækar heimildir stofn-
unarinnar til að afla ýmiss konar upp-
lýsinga og gagna frá öðrum stofnunum
standist auk þess vart lög.
SA telja útvíkkun á hlut-
verki ÍLS óæskilega
STUTT
Ísfell ehf, Óseyrarbraut 28
220 Hafnarfjörður, Sími 5200 500
www.isfell.is, isfell@isfell.is
Höfum á lager mikið úrval af alskyns vinnufatnaði, hífi- og festingabúnaði, krönum og talíum, snjókeðjum,
pökkunarlausnum og fallvarnarbúnaði. Í vörulistanum á www.isfell.is er að
finna ítarlegar upplýsingar um allar vörur.
Vinnufatnaður Hífilausnir Kranar og talíur Snjókeðjur Pökkunarlausnir Fallvarnarbúnaður
Hafðu samband og kynntu þér
vöruúrvalið og þjónustuna!