Fréttablaðið - 04.07.2018, Page 1
— M e s t l e s n a dag b l a ð á Í s l a n d i * —1 5 6 . t ö l u b l a ð 1 8 . á r g a n g u r M i ð V i K u d a g u r 4 . j ú l Í 2 0 1 8
Fréttablaðið í dag
sKoðun Bubbi Morthens fjallar
um laxalús og eitur. 10
sport Þó ótrúlegt megi virðast
komust Englendingar í 8-liða
úrslit á HM eftir vítaspyrnu-
keppni. 14
tÍMaMót Blængur NK kom til
heimahafnar í gær með verð-
mætasta farminn. 16
lÍfið Með hverju
mæla
útlend-
ingar við
vini sína á
Íslandi? 26
Faxafeni 11 • Sími 534 0534
Finndu okkur á
Bæjarhátíðarskraut!
Vatnsheldar fánalengjur ofl.
Håkan Juholt, sendiherra Svíþjóðar á Íslandi, var ánægðasti maður HM-torgsins á Ingólfstorgi í gær. Svíar lögðu þá Sviss að velli í 16-liða úrslitum mótsins. FRÉTTABLAÐIÐ/ÞÓRSTEINN
plús 3 sérblöð l fólK
l nýsKöpun á Íslandi
l MarKaðurinn
*Samkvæmt prentmiðlakönnun Gallup apríl-júní 2015
golf Haraldur Frank-
lín Magnús, atvinnu-
kylfingur úr GR, komst
fyrstur íslenskra kylfinga
á Opna breska meistara-
mótið í golfi í gær. Er um
eitt elsta og virtasta golfmót
heimsins að ræða en þar mun
hann keppa við kylfinga á borð
við Tiger Woods, Jordan Spieth
og Rory McIlroy.
Tók hann þátt í úrtökumóti
með 72 öðrum kylfingum
en aðeins þrír þeirra kom-
ust áfram í Opna breska
meistaramótið.
Var hann efstur við
komu í klúbbhúsið
en hann þurfti að
bíða eftir að mótinu lyki áður
en sætið var í höfn. Hann tók
léttan blund í búningsklef-
anum til að halda ró sinni.
„Ég hafði ekki taugar í að
fylgjast með. Ég fór bara inn
í búningsherbergi, stillti
vekjaraklukku og ætlaði að
reyna að sofa aðeins,“ sagði
Haraldur þegar Fréttablað-
ið heyrði í honum í gær.
Hann sagði að veðurað-
stæður hefðu eflaust ekki
truflað hann jafn mikið og
aðra kylfinga.
„Það var hávaðarok
þarna en ég held að veðrið
hafi hjálpað mér.“
– kpt / sjá síðu 14
Sá fyrsti á Opna breska
KjaraMál Kjarasamningur ljós-
mæðra við ríkið, sem felldur var af
félagsmönnum í síðasta mánuði,
fól í sér um tólf prósenta launa-
hækkun þegar allt er talið saman.
Þá var samningurinn afturvirkur um
níu mánuði. Þetta herma heimildir
Fréttablaðsins.
Umræddur samningur fól í
sér rúmlega 4,2 prósenta mið-
læga launahækkun auk nokkurra
bókana. Sú helsta fól í sér um sex-
tíu milljóna króna innspýtingu
frá heilbrigðis ráðuneytinu. Hluti
bókananna hefði skilað sér í frekari
hækkunum en þessi hefði skilað sé
misjafnlega til félagsmanna. Samn-
ingurinn var felldur af félagsmönn-
um með 63 prósentum atkvæða en
þriðjungur vildi samþykkja hann.
Fyrr á þessu ári samdi hluti aðild-
arfélaga BHM, en Ljósmæðrafélag
Íslands á aðild að bandalaginu,
við ríkið. Sá samningur fól í sér ríf-
lega tveggja prósenta afturvirka
hækkun til sex mánaða auk þess að
laun hækkuðu á ný um tvö prósent
í upphafi júní.
Að sögn heimildarmanna Frétta-
blaðsins var samningurinn þess
eðlis að óttast var að hann hefði
áhrif á samninga BHM þar sem
hækkun ljósmæðra væri umtals-
vert meiri en annarra aðildarfélaga
bandalagsins. Þórunn Sveinbjarn-
ardóttir, formaður BHM, vildi ekki
tjá sig um orðróminn eða stöðuna í
kjaradeilu ljósmæðra þegar Frétta-
blaðið leitaði eftir því.
Samninganefnd ljósmæðra hefur
ekki sagt frá því hvaða kröfur hún
hefur uppi við gagnaðila sinn nú
og sagt að trúnaður ríki um það
sem fram fer á fundum. Fjármála-
ráðuneytið birti í gær tölur þar
sem farið er yfir kjör ljósmæðra á
undanförnum árum. Þar segir að
meðalheildarlaun ljósmæðra séu
með því hæsta sem þekkist innan
BHM og að meðaldagvinnulaun
stéttarinnar hafi hækkað um fram
hjúkrunarfræðinga og önnur aðild-
arfélög bandalagsins. Þá sagði fjár-
málaráðherra að hann gerði ekki
athugasemdir við að kröfurnar
yrðu gerðar opinberar.
Fréttablaðið hefur rætt við nokkr-
ar ljósmæður um samninginn sem
felldur var. Sumar þeirra höfðu á
orði að kynningin á samningnum
hefði ekki verið eins og best verður
á kosið í ljósi þess hve ofboðslega
flókinn hann var. Þá hafi formaður
samninganefndarinnar talað gegn
honum. Ný nefnd var skipuð eftir að
samningurinn var felldur.
Ekki náðist í samninganefndar-
fulltrúa ljósmæðra í gær til að bera
efni fréttarinnar undir þá og spyrja
út í afstöðu þeirra til yfirlýsingar
fjármálaráðuneytisins þrátt fyrir
margítrekaðar tilraunir.
Ljósmæður hafa boðað til yfir-
vinnubanns sem mun taka gildi
um miðjan mánuðinn ef samningar
nást ekki fyrir þann tíma. Bannið
kemur til með að hafa mikil áhrif
ef af því verður en ástandið er víða
slæmt fyrir og vaktir keyrðar áfram
með neyðarmönnun.
Velferðarnefnd Alþingis kom
saman í gær vegna stöðunnar sem
komin er upp. Á fundinn mættu,
auk nefndarmanna, heilbrigðisráð-
herra, landlæknir og fulltrúar Land-
spítalans. Guðjón S. Brjánsson, full-
trúi Samfylkingarinnar í nefndinni,
lagði fram bókun á fundinum þar
sem skorað er á stjórnvöld að leið-
rétta kjör ljósmæðra.
„Staðan sem komin er upp er
grafalvarleg og við megum engan
tíma missa,“ sagði Svandís Svavars-
dóttir heilbrigðisráðherra að fundi
loknum. joli@frettabladid.is
Ljósmæður felldu tólf
prósenta hækkun
Heimildir Fréttablaðsins herma að formaður samninganefndar ljósmæðra hafi
talað gegn samningi félagsins við ríkið á kynningarfundi. Samningurinn var
felldur af félagsmönnum en óttast var að hann gæti skapað usla annars staðar.
Samninganefnd ljós-
mæðra hefur ekki upplýst
hvaða kröfur hún hefur uppi
nú þar sem trúnaður ríki um
það sem fram fer á fundum.
0
4
-0
7
-2
0
1
8
0
5
:1
5
F
B
0
6
4
s
_
P
0
6
4
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
0
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
6
4
s
_
P
0
1
6
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 2
0
5
0
-A
C
D
8
2
0
5
0
-A
B
9
C
2
0
5
0
-A
A
6
0
2
0
5
0
-A
9
2
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
1
A
F
B
0
6
4
s
_
3
_
7
_
2
0
1
8
C
M
Y
K