Fréttablaðið


Fréttablaðið - 04.07.2018, Qupperneq 26

Fréttablaðið - 04.07.2018, Qupperneq 26
Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is Þegar Þórdís er spurð hver staðan sé í greininni þegar markaðurinn er skoðaður í heildina, svarar hún því til að nýsköpun sé ekki afmörkuð grein heldur viðfangsefni sem snertir flesta ef ekki alla þætti samfélags- ins. „Hún er ein meginforsenda aukinnar verðmætasköpunar og samkeppnishæfni þjóðarinnar hvort sem hún fer fram í ungum sprotafyrirtækjum eða hjá rót- grónum fyrirtækjum. Nýsköpun er einnig lykilatriði í viðleitni okkar til að bæta samfélagið. Þar má nefna sem dæmi nýsköpun í heilbrigðisþjónustu, opinberum rekstri, menntamálum og grænar lausnir í þágu umhverfisins.“ Hvernig styðja stjórnvöld nýsköp- unarfyrirtæki? „Stuðningur stjórnvalda við nýsköpunarfyrirtæki og frum- kvöðla kemur fram á ýmsum stigum nýsköpunar. Þar má kannski fyrst nefna stuðning til fyrirtækja sem stunda rannsóknir og þróun. Sá fjárhagslegi stuðn- ingur hefur mælst vel fyrir og verið fyrirtækjum hvatning til aukinnar nýsköpunar. Ríkisstjórnin hefur lýst því yfir að þessi stuðningur verði aukinn. Stjórnvöld hafa einnig innleitt stuðning í formi skattaafsláttar til þeirra sem fjár- festa í sprotafyrirtækjum og unnið er að því að bæta það stuðnings- kerfi enn frekar. Lögð hefur verið áhersla á að efla stuðning við opin- bera samkeppnissjóði á Íslandi og má í því tilliti nefna að framlag til Tækniþróunarsjóðs hefur þrefald- ast frá árinu 2014. Við erum einnig í samstarfi við erlenda vísinda- og tæknisjóði og greiðum framlag í þá. Þangað hafa íslenskir vísinda- menn og frumkvöðlar sótt um styrki með mjög góðum árangri. Þá má nefna stofnanir sem veita mikilvægan stuðning við frum- kvöðla, svo sem Nýsköpunarmið- stöð, Hönnunarmiðstöð, háskóla- stofnanir sem og frumkvöðlasetur og stafrænar smiðjur víðs vegar um landið. Þegar kemur að fjár- festingum í fyrirtækjum höfum við Nýsköpunarsjóð atvinnulífsins sem stutt hefur við sprotafyrirtæki bæði í gegnum beina fjárfestingu eða í samstarfi við aðra sjóði og almennt leggjum við áherslu á að eiga gott samstarf við þá öflugu einkaaðila sem starfa með frum- kvöðlum. Það má segja að stjórn- völd styðji nýsköpun á ýmsum stigum en á sama tíma er okkur ljóst að betur má ef duga skal og því leita stjórnvöld sífellt leiða til að efla stuðningsumhverfið enn frekar og gera það skilvirkara og skýrara.“ Hvernig finnst þér fyrirtækjum í nýsköpun vegna á Íslandi og erum við nógu öflug á því sviði miðað við aðrar þjóðir? „Þegar litið er á alþjóðlegar skýrslur um samkeppnishæfni má segja að Ísland standi nokkuð vel að vígi í alþjóðlegum samanburði. Helstu styrkleikar Íslands í saman- burði við ríki Evrópusambandsins eru taldir vera nýsköpunarvænt umhverfi, rannsóknarkerfi, frum- kvöðlahugsun og mannauður. Veikleikar okkar eru m.a. taldir snúa að sölu og markaðssetningu, hugverkaréttindum og fjármögn- unarumhverfi. Hjá ráðuneytinu erum við einmitt að greina þessa þætti nánar í tengslum við það starf sem er að hefjast um mótun heildstæðrar nýsköpunarstefnu,“ svarar Þórdís. „Nýsköpun í fyrirtækjum, hvort sem er í sprotafyrirtækjum eða rótgrónum fyrirtækjum, er megin- forsenda aukinnar verðmæta- sköpunar og samkeppnishæfni og nýsköpun innan fyrirtækja og stofnanna er forsenda fyrir bættu samfélagi. Það er okkur því lífs- nauðsynlegt að Ísland sé og verði nýsköpunardrifið samfélag, ein- mitt vegna þess að nýsköpun skilar arði til samfélagsins.“ Eru of mörg fyrirtæki í nýsköpun að flytja vinnu sína til útlanda? „Þetta er svolítið snúin spurning. Markmið margra fyrirtækja í nýsköpun er að selja vöru og þjónustu á erlendum mörkuðum og komast í samstarf við erlenda aðila. Það er því eðlilegt að ein- hver fyrirtæki flytji starfsemi til annarra landa og við gerum okkur grein fyrir því að vegna smæðar þjóðarinnar getum við ekki keppt við aðrar þjóðir á öllum sviðum. Það er á sama tíma mjög mikil- vægt að við leggjum okkur fram um að skapa góð starfsskilyrði og frjóan jarðveg fyrir nýsköpun og þróun hér á Íslandi hvort sem hún á sér stað í nýjum eða í rótgrónum fyrirtækjum. Þrátt fyrir smæð þjóðarinnar höfum við ýmislegt upp á að bjóða sem gerir landið að ákjósanlegum vettvangi fyrir frum- kvöðlastarfsemi og uppbyggingu fyrirtækja.“ Þurfum við að efla sprotafyrir- tækin sem eru að fóta sig? „Já, svo sannarlega og stjórn- völd leggja sig fram um slíkan stuðning.“ Getur þú nefnt eitthvert íslenskt fyrirtæki sem hefur vakið sérstaka athygli þína varðandi nýsköpun? „Í starfi mínu sem ráðherra verð ég þeirrar ánægju aðnjótandi að fá að kynnast fjölda fyrirtækja og sprota sem eru að gera gífurlega spennandi hluti. Það er erfitt fyrir mig að nefna eitt fyrirtæki frekar en annað, en sem dæmi má nefna hina miklu nýsköpun sem á sér stað innan sjávarútvegsins og í vinnslu sjávarafurða. Þar erum við t.d. að sjá spennandi tækniþróun í aðferðum til skurðar á fiski sem og nýtingu á fiskiroði í þágu heil- brigðistækni.“ Nýsköpun á réttri leið Þórdís Kolbrún Reykdal Gylfadóttir ný sköp un ar ráðherra segir að íslensk fyrirtæki séu á réttri leið í nýsköpunargreinum. Ráðuneytið er að hefja vinnu við heildstæða nýsköpunarstefnu fyrir Ísland. Þórdís Kolbrún segir að þegar litið sé á alþjóðlegar skýrslur um samkeppnishæfni megi segja að Ísland standi nokkuð vel að vígi í alþjóðlegum samanburði. noxmedical.com 4 KYNNINGARBLAÐ 4 . j ú L Í 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RNýsKöpuN á ÍsLANdI 0 4 -0 7 -2 0 1 8 0 5 :1 5 F B 0 6 4 s _ P 0 4 2 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 3 K .p 1 .p d f F B 0 6 4 s _ P 0 2 6 K .p 1 .p d f A u to m a ti o n P la te r e m a k e : 2 0 5 0 -F 1 F 8 2 0 5 0 -F 0 B C 2 0 5 0 -E F 8 0 2 0 5 0 -E E 4 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 8 A F B 0 6 4 s _ 3 _ 7 _ 2 0 1 8 C M Y K
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.